|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
08.02.2012 09:49Fyrirlestur um manipulationAð lokinni guðsþjónustu í Ólafsfjarðarkirkju, sem hefst kl. 11:00, sunnudaginn 12. febrúar mun Kristján Már Magnússon, sálfræðingur á Akureyri flytja erindi um manipulation í safnaðarheimilinu. Manipulation er dulin stjórnun á hegðun annarra í eigin hagsmunaskyni. Á íslensku hefur manipulation verið þýtt sem vélabrögð. Siðblindir beita gjarnan vélabrögðum. Hvernig þróast vélabrögð og hver eru birtingarformin? Allir velkomnir Skrifað af Gísli Rúnar 07.02.2012 17:39Snjó/klaka moksturÞað hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum bæjarbúanum að undanfarna dag hefur verið gríðarleg hálka á götum bæjarins enda mikill klaki á þeim. Nýjar aðferðir voru reyndar í dag með miklum ágætum. Fyrst var byrjað á að "fræsa" upp klakann og svo fór veghefillinn á eftir og hreinsaði upp. Myndir komnar í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 05.02.2012 22:08Námskeið í skíðagönguFimmtudaginn 9.febrúar hefst námskeið í skíðagöngu fyrir fullorðna hjá skíðafélagi Ólafsfjarðar. Farið verður yfir undirstöðuatriðin í skíðagöngu og mun Kristján Hauksson leiðbeina. Námskeiðið hefst eins og fyrr segir 9.febrúar kl. 20:00 og verður í 5-6 skipti, allt eftir þörfum og áhuga. Möguleiki er að fá leigð skíði, skó og stafi á vægu verði en námskeiðið sjálft kostar 4.000 kr. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Kristjáni í síma 892-0774 eða netf. krihau@simnet.is Skrifað af Gísli Rúnar 04.02.2012 14:00Góð gjöf til Menntaskólans á TröllaskagaSjávarútvegsfyrirtækið Rammi í Fjallabyggð hefur gefið Menntaskólanum á Tröllaskaga fimm hunduð þúsund krónur til að efla starf skólans. Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri afhenti gjöfina í skólanum í gær. Lára Stefánsdóttir, skólameistari sagði þegar hún veitti gjöfinni viðtöku að stuðningur Rammans og sá velvilji sem stjórnendur fyrirtækisins hafa sýnt frá upphafi skipti skólann miklu máli. Skóli sem njóti öflugs stuðnings í heimabyggð hafi fleiri tækifæri til að vaxa og dafna. Fyrir starfsmenn sé ómetanlegt að finna stuðning samfélagsins, þeir eflist í starfi, ánægja aukist og allt skili þetta sér til nemenda. Fyrir nemendur sé einnig mikilvægt að finna að það sé áhugi og metnaður fyrir því að skóla þeirra gangi vel. Ólafur Marteinsson segir að stjórnendur Ramma hafi úr fjarlægð fylgst með því af ánægju hve vel Menntaskólinn hafi dafnað. Auk þess að efla mannlíf og samfélag í Fjallabyggð almennt, auðveldi það fyrirtækinu að fá fólk til starfa að framhaldsskóli sé í byggðarlaginu. Áður hafi fólk sett fyrir sig einangrun og framhaldsskólaleysi en bæði málin séu nú farsællega leyst. Þar að auki verði samfélagið auðugra ef fólk á aldrinum sextán ára til tvítugs geti verið heima í stað þess að fara burt í skóla. Menntaskólinn á Tröllaskaga tók til starfa haustið 2010. Þetta er fjölbrautaskóli með fimm námsbrautum, listabraut, íþrótta- og útivistarbraut, félags- og hugvísindabraut, náttúruvísindabraut og starfsbraut. Kennt er eftir nýrri námsskrá og gert ráð fyrir að nemendur sem hefja nám við skólann ljúki því á þremur til fjórum árum. Nemendur eru um eitt hundrað, flestir frá Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. Starfsmenn eru fimmtán. Skrifað af Gísli Rúnar 03.02.2012 22:24Tilboð í viðbyggingu grunnskólaÁ heimasíðu Fjallabyggðar kemur fram að í dag hafi verið opnuð tilboð í viðbyggingur Grunnskólans í Ólafsfirði. Lægsta tilboð hljóðar upp á rétt rúmlega kostnaðaráætlun. Hægt var að skila inn fráviksttilboðum þar sem framkvæmdum myndi ljúka í desember. Lægsta tilboðið hljóða hins vegar upp á það að klára á tilsettum tíma og því líklegt að skólinn verði klár næsta haust. Skrifað af Gísli Rúnar 03.02.2012 00:55Framkvæmdir við grunnskólannEins og flestir bæjarbúar sjálfsagt vita þá er búið að ákveða að byggja við Grunnskólann við Tjarnarstíg (gamli Barnaskólinn). Við kíktum við í dag og tókum nokkrar myndir. Við munum að sjálfsögðu mynd reglulega á framkvæmdartímanum og birta hér á síðunni. Myndir í myndaalbúminu. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2012 20:59Aðalfundur Rauðakross deildar ÓlafsfjarðarAðalfundur Rauðakross deildar Ólafsfjarðar verður haldinn í Rauðakrosshúsinu Aðalgötu 1 nh. fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 20:00 Dagskrá: Venjubundin aðalfundarstörf Félagsmenn og aðrir venunnarar velkomnir. Stjórn Ólafsfjarðardeildar Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2012 12:55Námskeið í hestanuddiHelgina 25. - 26. febrúar næstkomandi á Siglufirði, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 -16 á laugardeginum, með bóklegum tíma og byrjar kl. 10 á sunnudeginum með verklegum tíma. Námskeiðið kostar kr. 19.200 og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 6.000 við skráningu. Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19. febrúar. Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:551X2 Getraunaleikur KF í ÓlafsfirðiGetraunaleikur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar er að byrja á laugardaginn (4.feb). Nú er um að gera að taka þátt í skemmtilegum leik. Vinningar veittir fyrir 3 efstu sætin í riðlinum. Liðaskráningar á kf@kfbolti.is eða í síma 865 2325 (Heiðar) eða 660 4760 (Þorri). Þátttökugjald er 5.000 kr. á hvert lið. Skrifstofan verður opin milli kl.12-14 á laugardögum. Frekari upplýsingar um leikinn má finna hér: http://kfbolti.is/frettir/getraunaleikurinn_hefst_aftur_laugardaginn_4feb Skrifað af Gísli Rúnar 31.01.2012 23:54KF réð ekki við KA-menn á NorðurlandsmótinuKF og KA áttust við á Norðurlandsmótinu s.l. laugardag en keppt var í Boganum á Akureyri. Áhorfendur voru 65 og gerði Þórður Birgisson þrennu fyrir KF. Leikskýrslu KSÍ má sjáhér. KF tefldi fram þremur Ungverjum sem eru til reynslu hjá félaginu. Fyrsta markið kom eftir aukaspyrnu af vinstri kanti, boltinn var sendur inná teiginn þar sem Elmar Dan var fyrstur á boltann og kom honum í netið. Seinni hálfleikur byrjaði af sama krafti og fyrri hálfleikur. KF menn fengu víti á 49. mín er leikmaður þeirra var að skjóta að marki þegar á honum var brotið. Þórður Birgisson tók vítið, sendi Sandor í rangt horn og skoraði örugglega. Áfram hélt baráttan og KA með yfirhöndina. Á 81. mín átti Gunnar Valur góðan skalla að marki en naumlega framhjá. Stuttu síðar fékk KA aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, Jóhann Helgason þrumaði þá boltanum í markmannshornið og í netinu lá hann. Glæsilegt mark hjá Jóhanni. Í uppbótartíma gerðust hlutirnir hratt, fyrst skoraði Hallgrímur Mar glæsilegt mark með föstu skoti uppí samskeytinn. KF menn gáfust ekki upp og fengu víti stuttu síðar en þá varði Jóhann Helgason með hendi innan teigs og fékk gult spjald fyrir. Jóhann hafði fengið spjald fyrr í leiknum fyrir kjaft og var hann því sendur í bað. Stuttu síðar kláraði Bjarki Baldvinsson vel færi inná markteig og gulltryggði sigur KA manna. Mikil barátta var í leikmönnum allan leikinn en KA menn fengu fimm gul spjöld fyrir kjaft en KF tvö. KF 3-5 KA Skrifað af Gísli Rúnar 29.01.2012 17:27Myndir af skíðafólki og bænumVið kíktum upp í fjalla í gær og tókum nokkrar myndir af skíðafólki. Tókum einnig myndir yfir bæinn. Sjá í myndaalbúmi. ![]() Hvítur er fjörðurinn Skrifað af Gísli Rúnar 26.01.2012 08:13Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dagSkóla- og frístundaakstur fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. janúar er fram kemur á heimasíðu Fjallabyggðar. Enda er þetta spurning hvort nokkur eigi að vera að ferðast á þessum tíma. Meðfylgjandi mynd er af vef vegagerðarinnar og sýnir færð á vegum um landið. Skrifað af Gísli Rúnar 19.01.2012 23:25Snjór um alla veröld- frítt í fjalliðSkíðafélags Ólafsfjarðra býður öllum frítt á skíðasvæðið Tindaöxl sunnudaginn 22. janúar í tilefni af verkefninu "snjór um víða veröld". Hvetjum fjölskyldur til að mæta saman á skíðinmeð góða skapið, og gera sér góðan dag. Skrifað af Gísli Rúnar 15.01.2012 21:55Skíðamót í ÓlafsfirðiUm helgina fór fram bikarmót í göngu og alpagreinum á Skíðasvæðinu við Tindaöxl Nánar hægt að lesa um mótin á heimasíðu Skíðafélagsins, http://skiol.fjallabyggd.is/
Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 375 Gestir í dag: 121 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800592 Samtals gestir: 160840 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:13:27 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|