|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2012 Febrúar29.02.2012 08:33Formannafundur UÍFStjórn UÍF og formenn aðildarfélaga UÍF;
Boðað er til formannafundar 1. mars nk. kl. 18:30 að Hóli, Siglufirði. Á fundinum er fyrirhugað að fara yfir eftirfarandi mál: 1)Vetrarleikar aðildarfélaga UÍF og UÍF; 2) Framkvæmd á vali á Íþróttamanni Fjallabyggðar 3)Skil á starfsskýrslum, Felix og lottó úthlutun. 4)Málefni Aladíns ehf. 5)Verkefnasjóðurinn. 6) Tilnefning fulltrúa til stjórnarkjörs. 7)Önnur mál. Óskað er eftir að formaður aðildarfélags auk annars stjórnarmanns mæti á fundinn. Vinsamlegast tilkynnið um mætingu svo og forföll tímanlega. Skrifað af Gísli Rúnar 28.02.2012 15:10Aðalfundur Jassklúbbs ÓlafsfjarðarAðalfundur Jassklúbbs Ólafsfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 1. mars kl. 20:00 á Hótel Brimnesi í Ólafsfirði Á dagskrá eru: · Hefðbundin aðalfundarstörf · Blue North Music Festival í sumar (blúshátíðin) · Fjölgun félaga · Nafn félagsins Hvetjum sem flesta til að mæta sem áhuga hafa á tónlist og menningu í Fjallabyggð (Siglfirðingar sérstaklega boðnir velkomnir)
Jassklúbbur Ólafsfjarðar Blues.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 27.02.2012 20:25Sýning í Listhúsi FjallabyggðarMarijke Appelman verður með sýningu í Listhúsi Fjallabyggðar frá 4.-24. mars nk. Hún hefur aðsetur í Listhúsinu í febrúar og mar.s Hér að neðan má lesa fréttatilkynningu frá Listhúsinu, en hún er á ensku. Marijke Appelman (Haarlem, 1979) lives and works in Rotterdam, The Netherlands and is Artist in Resident at Listhús, Ólafsfjörður February and March 2012. In her work Marijke Appelman explores all media as friction devices for philosophical and aesthetic contemplation. The resulting work amounts to an environmental art, but one whose environment is cultural instead of natural. Subtle riddles and twists manage to be simultaneously lyric and straightforward. For the exhibition Staðurinn til að vera (March 4 - 24) at Listhús she explores the swimming pools culture in the video installation To explore the world and other issues.The work was made during the first weeks of her stay at Listhús, where snow, ice and water is exposed to heated swimming pool tiles. More work will be added to the exhibition as she willcontinue working while the exhibition is running. The opening act will consist of a performance and at the second act, the closing of the exhibition, the full result of her working period in Ólafsfjörður can be viewed. Skrifað af Gísli Rúnar 27.02.2012 18:06Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2012Menningarnefnd hefur valið Guðrúnu Þórisdóttur (Garúnu) bæjarlistamann Fjallabyggðar 2012. Útnefning fer fram á Brimnes hóteli í Ólafsfirði, föstudaginn 2. mars nk. kl. 17.00. Skrifað af Gísli Rúnar 25.02.2012 10:18Nennir ungdómurinn að vera úti?Það hefur oft heyrst að unga fólkið nenni ekki að vera úti að leika sér og hangi allan daginn í tölvunni og í raun hefur ungdómurinn verið á hraðri leið til andsk... síðan elstu menn muna eftir (og voru þá ekki til neinar tölvur). Hins vegar má alveg segja að þó svo að tölvurnar séu að taka mikinn tíma þá gefur ungafólkið sér tíma til að fara út, þó það noti svo tæknina til að koma þeim leik í tövlutækt form, en er það ekki bara framtíðin? Hér má sjá myndband þar sem nokkur ungmenni léku sér á Gullatúninu á sleða. http://www.youtube.com/watch?v=biXMSnCbT-8&feature=g-all-lik&context=G27b33aeFAAAAAAAAAAA Skrifað af Gísli Rúnar 24.02.2012 23:30Framkvæmdir við GrunnskólannUnnið er á fullu við Grunnskólann, búið var að grafa fyrir grunninum í dag og var byrjað að fylla upp aftur. Myndir komnar í myndaalbúmið. Það er grafið ansi djúpt Skrifað af Gísli Rúnar 24.02.2012 13:33opið í sundlauginni í Ólasfirði á laugardagSiglómótið í blaki verður haldið á föstudag og laugardag í íþróttamiðstöðinni á Siglufirði og vegna þess verða mikil þrengsli í búningsklefum og hefur verið ákveðið að hafa opið í Sundlaug Ólafsfjarðar á morgun laugardag 25. febrúar frá 14:00 - 18:00 Frétt af www.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 23.02.2012 11:09Skiptihelgi skíðasvæðannaHelgina 25. - 26. febrúar geta vetrarkortahafar á
skíðsvæðinu í Tindastól, skíðasvæðunum í Fjallabyggð (Skarðsdal og Tindaöxl), skíðasvæðinu á Dalvík og
Hlíðarfjalli heimsótt þessi skíðasvæði sem talin eru hér að ofan gegn því
að framvísa vetrarkortinu af sínu heimasvæði. Skrifað af Gísli Rúnar 23.02.2012 08:19Páskaegg - eða réttara sagt páskabolti?KKnattspyrnufélag Fjallabyggðar verður með til sölu fyrir páskana súkkulaðibolta frá Sambó (900gr). Í boltanum er fullt af nammi t.d. þristur, olsen, kúlusúkk, fílakaramellur, lakkrískrítar, snjóboltar, smarties, skittles, rúsínur, ávaxta karamellur, súkkulaðisveppir og fleira. Fótboltinn er á 3.200,-. það þarf að leggja inn pöntun fyrir boltum í síðasta lagi fimmtudaginn 1.mars. Pantanir berist á kf@kfbolti.is eða símum 861 7164 (Dagný) eða 660 4760 (Þorri Sveinn). Skrifað af Gísli Rúnar 22.02.2012 12:27Kötturinn sleginn úr tunnunniKötturinn verður sleginn úr tunnunni kl. 14:00 í Íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði. Skrifað af Gísli Rúnar 22.02.2012 10:01Bjarki Már til KFBjarki Már Árnason hefur skipt yfir í 2. deildarlið KF, Knattspyrnufélag Fjallabyggðar. Bjarki hefur verið lykilmaður hjá Tindastóli undanfarin ár en hann var í liði ársins í annarri deildinni síðastliðið sumar sem og árið 2009. KF hafnaði í sjötta sæti 2. deildarinnar í fyrra en Tindastóll vann deildina og spilar í 1. deild á komandi sumri. Bjarki er mjög góður styrkur fyrir komandi átök hjá KF og er ljóst að leikmannahópurinn er nánast að verða tilbúinn fyrir komandi sumar. KF tekur þátt í lengjubikarnum sem fer fram í mars og apríl, nánar verður fjallað um það síðar. Skrifað af Gísli Rúnar 21.02.2012 21:26Kvæðamannamót á Siglufirði 3. mars 2012ÞjóðList og Kvæðamannafélagið Ríma í Fjallabyggð standa fyrir kvæðamannamóti laugardaginn 3. mars, í samstarfi við kvæðamannafélagið Gefjunni á Akureyri og með stuðningi Menningarráðs Eyþings og Þjóðlagseturs. Á mótinu verður þriggja klst. námskeið sem Bára Grímsdóttir kvæðakona sér um. Hún mun kenna okkur hefbundin kvæðalög og flutningsmáta þeirra, ásamt ýmsu öðru sem við kemur kvæðamennskunni. Bára og maður henna Chris Foster, sem er virtur enskur þjóðlagasöngvari, eru með þjóðlagadúettinn Funa og koma beint frá því að taka þátt í þjóðtónlistarhátíð í Sviss. Þau munu halda stutta tónleika laugardaginn 3. mars kl. 16:30 á Kaffi Rauðku, þar sem við fáum að heyra nokkuð af því efni sem þau fluttu í Sviss. Hápunktur mótsins verður síðan kvöldvaka með glæsilegum kvöldverði á Kaffi Rauðku, þar sem kvæðamenn stíga á stokk og einnig verður kveðið saman. 11:00 - Gestir boðnir velkomnir 11:30 - Námskeið 13:00 - Hádegisverður 14:00 - Námskeið 15:30 - Miðdegiskaffi 16:30 - Tónleikar með Funa 17:15 - Hvíld fyrir kvöldvöku 18:30 - Kvöldverður og kvöldvaka Pakkaverð (Námskeið, tónleikar, hádegisverður, miðdegiskaffi og kvöldverður): 7.700,- Verð á staka viðburði: Námskeið: 2.500,- Tónleikar: 1.500,- Hádegisverður: 1.490,- Kvöldverður með kvöldvöku: 4.290,- Gisting: 5.000,-/mann ein nótt með morgunverði á Gistiheimilinu Hvanneyri Nauðsynlegt er að skrá sig eigi síðar en 27. febrúar með því að senda netpóst á Rúnu hjá Kvæðamannafélaginu Rímu í Fjallabyggð (runaingi@simnet.is - 869-3398) Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 27. febrúar! Skrifað af Gísli Rúnar 21.02.2012 12:50Mikið líf hjá Skíðafélagi ÓlafsfjarðarMikið er um að vera hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar þessa dagana. Á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er fjallað um unga og efnilega krakka sem hafa verið í Ulricehamn að keppa á skíðum ásamt fleirum fréttum, t.a.m. var Skíðafélagið að fjárfesta í bíl. Nánar á heimasíðu Skíðafélags Ólasfjarðar: http://skiol.fjallabyggd.is/is Mynd af heimasíðu Skíðafélagsins Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|