|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2010 Ágúst16.08.2010 12:27Sundlaugin opnar ekki alveg straxÁ heimasíðu Fjallabyggðar er sagt frá því að hleypt hafi verið vatni á sundlaugina og hún prófuð um helgina. Hins vegar hafi komið í ljós leki sem verið er að vinna í að laga. Ekki verður því hægt að opna laugina strax (þar sem það tekur a.m.k. tvo daga að tæma hana og fylla aftur, þá á eftir að finna og laga lekann). Skrifað af Gísli Rúnar 16.08.2010 12:22Haustið komið með allri sinni dýrðNú þegar komið er að hausti er veðurfar að breytast. Rignt hefur um helgina og rignir enn. Hins vegar er farið að dimma og getur orðið ansi fallegt á haustkvöldum. Þessa mynd tók Sigurjón Magnússon fyrir nokkrum dögum (Kleifarnar sjást í bakgrunninum) Skrifað af Gísli Rúnar 13.08.2010 12:15Veitt á bryggjunniMikill fjöldi hefur verið "út á enda" að veiða undafarin kvöld. Ágætisveiði hefur verið undanfarið og gátu menn nælt sér í matinn án mikilliar fyrirhafnar. Myndir komnar í myndaalbúmið frá því í gærkveldi. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 13.08.2010 12:08Landað úr SigurbjörguSigurbjörg ÓF 1 kom til Siglufjarðar í morgun til hlutalöndunar eftir þorskveiðar í Barentshafi. Heildarafli var yfir 600 tonn og aflaverðmæti 160 milljónir króna. Að lokinni löndun heldur skipið áfram á veiðum í íslensku lögsögunni. Frétt af vef Ramma hf. Landað: mynd af vef af vef Ramma hf. Skrifað af Gísli Rúnar 12.08.2010 12:55Menntaskólinn áTröllaskaga625.is kíkti við í gær í Menntaskólann á Tröllaskaga (gamla Gagnfræðaskóla húsið). Þar eru framkvæmdir á fullu enda á skólinn hefjast 23. ágúst samkvæmt stundaskrá. Mikið er búið að gera en mikið enn eftir. En þar sem margar hendur eru við verkið eru allar líkur á að skólinn verði tilbúinn til notkunar 23. ágúst, þó eitthvað verði eftir sem hægt verður að klára samhliða notkun á skólanum. Hægt er að kynna sér starfsemi skólans á heimasíðu hans, http://www.mtr.is Myndir frá framkvæmdunum eru í myndaalbúminu ![]() Klemenz Jónsson sér um dúkalagnir. Skrifað af Gísli Rúnar 12.08.2010 12:49Framkvæmdir við SundlauginaEins og flestir bæjarbúar vita hafa framkvæmdir staðið yfir við sundlaugina í allt sumar (og í vetur líka). Byrjað er að flísaleggja pottana og styttist í að sundlaugin opni (þó eitthvað lengra í að pottarnir verði klárir og því verður sundlaugin sjálf opnuð fyrst). Bæjarráð Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í gær tillögu frístundanefndar að ganga að tilboði frá Spennandi ehf um kaup á rennibraut. Afhendingartími er 45 dagar og uppsetningartími um vika. Ef allt gengur upp ætti rennibrautin því að vera klár í byrjun október þegar Héðinsfjarðargöng verða opnuð. Það eru komnar myndir af framkvæmdunum í myndaalbúmið (teknar í gær). ![]() Pottarnir flísalagðir Skrifað af Gísli Rúnar 11.08.2010 17:06Berjadagar 20.-22. ágústBerjadagar verða haldnir í Ólafsfirði dagana 20.-22. ágúst. Dagskráin er að venju stórglæsileg og má finna dagskrá hátíðarinnar á heimasíðu berjadaga: http://berjadagar.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 11.08.2010 17:03Ný heimasíða Grunnskóla FjallabyggðarGrunnskóli Fjallabyggðar hefur formlega opnað nýja heimasíðu. En eins og bæjarbúar sjálfsagt vita eru Grunnskóli Siglufjarðar og Grunnskóli Ólafsfjarðar nú sameinaður í einn skóla. Á næstu dögum munu koma þar inn frekari upplýsingar fyrir foreldra skólabarna. Nú þegar eru komnir innkaupalistar fyrir flesta bekki og skóladagatal. Áætlað er að skólinn byrji 1. september nk. Slóðin þangað er: http://grunnskoli.fjallabyggd.is Gamli Barnaskólinn, en hann er aðal húsnæði Grunnskólans í Ólafsfirði í dag. Smíðastofan í Gagganum verður þó áfram notuð. En Menntaksólinn á tröllaskaga hefur leigt annað af því húsnæði undir sína starfsemi. Skrifað af Gísli Rúnar 11.08.2010 12:33Myndir frá pæjumótinuÞað eru komnar inn myndir frá Pæjumótinu á Siglufirði. Eru þær ekki af nema tveimur flokkum þar sem ljósmyndarinn lenti í dómgæslu og gat því lítið myndað. Myndirnar má finna í myndaalbúmi. ![]() 11.08.2010 08:36KS/LeifturNæsti leikur KS/Leifturs verður á Ólafsfjarðarvelli á sunnudag klukkan 14:00, þegar Völsungur frá Húsavík kemur í heimsókn. Frítt verður á leikinn og hvetjum við alla Fjallbyggðinga til að mæta og hvetja okkar stráka. Leikir liðsins eru nær undantekningarlaust mikil skemmtun. Ekkert lið í efstu þremur deildum hefur boðið upp á jafn mörg mörk í sínum leikjum og KS/Leiftur eða að meðaltali rúm 4 mörk í leik. á meðan t.d. eru skoruð 2 mörk að meðaltali í leikjum hjá Keflavík og 2,8 mörk að meðaltali í leikjum hjá KR. Þannig að það má segja að mesta stuðið sé á leikjum KS/Leifturs í öllum deildum Íslandsmótsins. --- Umfjöllun um síðasta leik: Það var hart barist í frábærum knattspyrnuleik á Varmárvelli í kvöld. Þar mættust heimamenn í Aftureldingu og KS/Leiftur. KS/Leiftur og Aftureldingarmenn þurfa á stigunum að halda til þess að forðast botnbaráttuna en ansi þétt er um liðin um miðja deild. Sigur í leiknum hefði því farið langt með að gulltryggja sæti í deildinni að ári. Aðeins var liðið á fimmtu mínútu leiksins þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Þá skoraði Fannar Baldvinsson eftir sendingu frá Sævari Frey Alexanderssyni. Fannar gerði vel í því að elta uppi boltann inn fyrir vörnina og nýtti hann sér misskilning hennar og Nezir Ohran í marki KS/Leifturs. Jafnræði var á liðunum eftir þetta og sköpuðu þau bæði færi til þess að skora annað mark leiksins upp úr þessu. Birgir Ragnarsson skaut í hliðarnet KS/Leifturs úr góðu færi og Eiríkur Magnússon átti gott skot að marki Aftureldingar sem Skarphéðinn Magnússon varði vel. Annað mark leiksins kom hins vegar á 38. mínútu og það var af dýrari gerðinni. KS/Leiftur fengu síðan algjöra gjöf rétt fyrir hálfleik þegar Gunnar Davíð Gunnarsson misreiknaði boltann í vörn Aftureldingar og Skarphéðinn Magnússon kom engum vörnum við þegar Milan Lazarovic potaði boltanum framhjá honum af stuttu færi. Mikilvægt fyrir gestina að skora mark stuttu fyrir hálfleik. 2-1. Það tók síðan gestina aðeins sjö mínútur að jafna leikinn. Góð sending rataði á kassann á Þórð Birgisson og afgreiddi hann boltann glæsilega efst í fjærhornið. Staðan nú orðin 2-2 og galopinn leikur. Þeir rauðklæddu létu sér ekki segjast þrátt fyrir mótspyrnuna því Alexander Davorsson skoraði mark eftir að hafa verið á vellinum í tíu mínútur, eða á 63. mínútu. Þá barst boltinn til hans eftir gott spil upp vinstri kantinn og hann lét vaða af 25 metra færi og söng boltinn í markvinklinum. Frábært mark og aftur voru KS/Leiftur lentir undir 3-2. Einkenndist leikurinn nú af baráttu og var ljóst að gestirnir ætluðu ekki að sætta sig við tap í leiknum. Þeir uppskáru jöfnunarmark á 83. mínútu þegar Þórður Birgisson skoraði sitt annað mark. Nú afgreiddi hann fyrirgjöf með tánni framhjá Skarphéðni í markinu. 3-3 og enn tími fyrir sjöunda markið! Undir lokin hefðu KS/Leiftur svo getað stolið sigrinum en Skarphéðinn varði vel yfir markið í eitt skiptið af stuttu færi og annað skot gestanna rataði rétt framhjá markinu. Heimamönnum tókst heldur ekki að skora og niðurstaðan því jafntefli. En bæði lið spiluðu skemmtilegan fótbolta í kvöld og buðu upp á frábæra skemmtun fyrir áhorfendur. Eftir leikinn eru KS/Leiftur í 5. sæti deildarinnar með 22 stig eftir. Skrifað af Gísli Rúnar 10.08.2010 12:40Hver kannast við drenginaÞessar myndir voru teknar af Trausta Magnússyni fyrir mörgum árum síðan. Þegar hann dó fékk undirritaður þær í hendurnar. Samkvæmt heimildu eru þær teknar í tilefni af afmæli Rótarýklúbbsins í Ólafsfirði (brjóstmyndir af hópnum). Myndirnar voru mun fleiri en þetta eru þær sem ekki hafa skilast til "eigenda" þeirra enn. Þeir sem vilja fá myndirnar sínar geta nálgast þær hjá mér. Gísli Rúnar Gylfason gsm: 863-4369 gislirunar4@gmail.com Skrifað af Gísli Rúnar 09.08.2010 17:10Meira frá þorrablóti vetrarinsNú er hægt að sjá annað myndband frá þorrablótinu í vetur. Í þetta sinn eru það Mundavísur sem urðu fyrir valinu, en þar er það Sturla Sigmundsson í gerfi Vals Hilmars, umhverfis- og garðyrkjufræðing að syngja um ýmsa byrjunarerfiðleika sem tengjast nýju sorphirðunni sem var tekin upp í vetur. Mundi minn láttu ekki rusla dalla ergja þig Mundi inn, elsku Mundi minn. Ekki tók Mundi tiltali og vildi ekki hlusta á rök. Mundi inn, elsku Mundi minn. Núna fór loksins að birta Mundi inn, elsku Mundi minn. Skrifað af Gísli Rúnar 07.08.2010 11:19Landsliðið í AndspyrnuJón Hrói Finnsson (fyrverandi þróunarstjóri Fjallabyggðar) sendi 625.is þessa frétt af gangi liðs Íslands í Andspyrnu. --- Ísland sigraði Finnland á Evrópumeistaramótinu í andspyrnu Ísland sigraði Finnland á Evrópumeistaramótinu í andspyrnu (áströlskum fótbolta) í Danmörku í gær með 57 stigum gegn 44. Íslenska liðið átti frábæran leik og hélt forystu allan tímann, þótt finnarnir veittu harða mótspyrnu í hörðum og jöfnum leik. Íslenska liðið leiddi með 11 stigum á móti 1 eftir 1. fjórðung og jók foskotið um eitt stig í hverjum fjórðungi. Liðið skoraði 8 mörk og 9 "behind", gegn 6 mörkum og 8 "behind" finnanna. Nánari upplýsingar um andspyrnu er að finna á www.andspyrna.is. Nánari upplýsingar um mótið og úrslit leikja er að finna á http://www.ec2010.info/match-schedule. Skrifað af Gísli Rúnar 04.08.2010 12:43Landað úr MánabergiÍ dag er verið að landa úr Mánabergi ÓF 42 í Ólafsfirði. Heildarveiði var 600 tonn úr sjó eftir 24 daga veiðiferð og var afli blandaður; þorskur, ýsa, ufsi og karfi. Söluverðmæti aflans er um 193 milljónir króna. Skipið fer aftur til veiða í lok vikunnar. Flakasnyrting í Mánaberginu (mynd af vef Rammans) Skrifað af Gísli Rúnar 04.08.2010 12:36Keppt á unglingalandsmóti UMFÍ625.is fær reglulega fréttir frá UMSE, en þar eru nokkrir krakkar frá Ólafsfirði að æfa frjálsar íþróttir. Fóru nokkrir krakkar á Unglingalandsmót UMFÍ í Borgarnesi um helgina. Met þátttaka var í ár í Borgarnesi sem tók mótið að sér með frekar stuttum fyrirvara. Við náðum nokkrum titlum í frjálsunum og vorum nálægt unglingalandsmótsmetum En við náðum í 6 gull, 6 silfur og 10 brons svo náðum við einnig í 2 silfur og tvö brons í glímu GERI AÐRIR BETUR :) árangur Ólafsfirsku krakkanna var eftirfarandi: Leó Pétur Magnússon Ólafsfirði náði bronsi í spjótkasti 17-18 ára drengja og bætti sig verulega 44,36m Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir Ólafsfirði náði bronsi í hástökki ásamt félaga sínum úr UMSE Mekkín Daníelsdóttur en þær stukku 1,52m Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir Ólafsfirði náði bronsi í kúluvarpi 13 ára stelpna og kastaði hún 8,30m Erla Vilhjálmsdóttir Ólafsfirði, Bertha Þ Steingrímsdóttir Reyni og Dagbjört Ýr Gísladóttir Æskunni náðu silfri í 4x100m boðhlaupi Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|