625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Júní

17.06.2010 23:48

Myndir frá 17. júní

Nú eru komnar myndir inn frá hátíðarhöldunum í dag. Albúmin eru tvö. Fyrst eru myndir frá opnun nýja skotsvæðisins í morgun og frá skemmtuninni við Tjarnarborg. Svo er sér albúm með myndum frá vatnsrennibrautinni. Kíkið í myndaalbúmið.

17.06.2010 21:48

Ársþing UÍF

Fyrsta ársþing Ungmenna- og íþróttasambands Fjallabyggðar, UÍF, fór fram í Tjarnarborg  sl. þriðjudag. Mjög vel var mætt á þingið og gengu þingstörf vel fyrir sig. UÍF varð til í fyrra við sameiningu Ungmenna- og íþróttasambands Ólafsfjarðar (UÍÓ) og Íþróttabandalags Siglufjarðar (ÍBS).
Stjórnarkjör fór fram á þinginu en stjórnin á eftir að skipta með sér verkum. Eftirtaldir einstaklingar skipa stjórnina. Guðný Helgadóttir, formaður, Róbert Haraldsson, Hlynur Guðmundsson, Sigurður Gunnarsson, Sigurpáll Gunnarsson, Helga Kristín Einarsdóttir, og Gíslína Salmannsdóttir.

Myndir í myndaalbúminu

Guðný Helgadóttir, formaður UÍF

16.06.2010 17:01

17. júní

Hátíðarhöld 17. júní hefjast formlega kl. 14:00 við Tjarnarborg. Þar fer fram ávarp fjallkonu ásamt tónlistaratriðum að hætti Magga Hildar og félaga. Sölutjald verður á staðnum. Leiktækin opna svo um kl. 14:30 (vatnsrennibrautin hugsanlega aðeins síðar).

Minnum einnig á formlega opnun á skotsvæðinu við Múlagöngin kl. 11:00.

16.06.2010 00:04

Fullt af myndum

Þrjú ný myndaalbúm voru að birtast á síðunni.

Vinnuskólakrakkarnir eru byrjuð og setur það alltaf svip á bæinn þegar þau hefja störf. Myndir frá þeirra störfum í dag.

Slökkviliðsmenn voru að undirbúa 17. júní hátíðarhöldin í gærkveldi og byrjuðu að setja upp vatnsrennibrautina. Myndir komnar inn frá því.

Skotfélag Ólafsfjarðar hefur unnið hörðum höndum undanfarið við að græja nýjan völl upp á skotsvæði. Myndir frá því í gærkveldi þegar þeir voru að prófa völlinn. En hann verður opnaður formlega 17. júní kl. 11.00. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og prufa völlinn, að sjálfsögðu frítt.

Allar myndir er að finna í myndaalbúminu.


Kakkarnir voru ekki lengi að stilla sér upp í myndatöku

14.06.2010 17:03

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar verður haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði þriðjudaginn 15. júní kl. 17.00. Þar verður m.a. kynntur samstarfssamningur B- og D- lista kjörtímabilið 2010-2014 og kosið í nefndir og stjórnir sveitarfélagsins.

Á heimasíðu Fjallabyggðar má lesa pistil frá bæjarstjóra um störf fráfarandi bæjarstjórnar.

13.06.2010 11:18

Leikhópurinn Lotta sýnir Hans klaufa

Laugardaginn 19. júní sýnir Leikhópurinn Lotta nýjasta verk sitt, Hans klaufa við hliðina á Tjarnarborg.
Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum. Þar má til dæmis nefna Öskubusku og froskaprinsinn. Verkið segir frá því þegar Aron prins og aðstoðarmaður hans, Hans klaufi, koma heim úr löngu ferðalagi. Þegar heim kemur komast þeir að því að ekki er allt með feldu. Norn hefur komið þangað í fjarveru þeirra, lagt álög á kóngsríkið og svæft alla þegna þess og til að bæta gráu ofan á svart breytir hún Aroni prins í frosk. Nú eru góð ráð dýr og er það undir Hans klafua komið að aflétta álögunum og bjarga kóngsríkinu. Verst bara hvað hann er mikill klaufi.

Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka teppi til að sitja á og myndavél en börnin fá að hitta karakterana úr sýningunni og þá er gaman að festa það á filmu.

Miðaverð er 1.500 kr. og hefst sýningin klukkan 17:00.

10.06.2010 12:48

KS/Leiftur - Afturelding

KS/Leiftur tekur á móti Aftureldingu á Siglufjarðarvelli Laugardaginn 12. júní. kl: 14:00
Miðaverð kr. 1000

09.06.2010 12:26

Ársþing UÍF

Ungmenna- og íþróttasamand Fjallabyggðar heldur ársþing sitt laugardaginn 12. júní í Tjarnarborg í Ólafsfirði og hefst það kl. 17:00

Dagskráin er sem hér segir:


    1. Formaður UÍF setur þingið.

    2. Kosning þingforseta og þingritara.

    3. Kosning 3ja manna kjörbréfanefndar.

    4. Álit kjörbréfanefndar.

    5. Lögð fram árskýrsla stjórnar svo og skoðaðir reikningar seinasta árs.

    6. Umræður um ársskýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar lagðir fram til samþykktar.

    7. Ávörp gesta.

    8. Kosning þingnefnda: kjörnefnd (3), allsherjar- og laganefnd (5) og fjárhagsnefnd (3)

    9. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.

 10.  Tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar lagðar fram og vísað til nefnda.

 11.  Lagðar fram og teknar til umræðu tillögur um breytingar á lögum og reglugerðum.

ÞINGHLÉ

 12.  Álit nefnda, umræður og atkvæðagreiðsla.

 13.  Kosningar. Álit kjörnefndar

 14.  Kosning stjórnar, sbr. 16. grein. Skal formaður kosinn sér, en hina í einu lagi. Stjórnin skiptir með sér verkum, í þau störf er um getur í 16. grein.

 15.  Kosning skoðunarmanna, (tveir aðalmenn og tveir varamenn).

 16.  Önnur mál.

 17.  Þingslit.

08.06.2010 17:02

Blúsnámskeið í Ólafsfirði

Í tengslum við blúshátíðina í Ólafsfirði 2.-3 júlí bjóðum við upp á blúsnámskeið sem haldið verður í Ólafsfirði dagana 30. júní og 1. júlí. Námskeiðið verður allan daginn báða dagana og munu þátttakendur svo koma fram föstudaginn 1. júní á sérstökum tónleikum. Þar munu námskeiðsgestir og kennarar sýna afrakstur námskeiðsins. Frekari þátttaka á blúshátíðinni er svo möguleg í framhaldinu ef þátttakendur vilja.

Leiðbeinendur verða:
Birgir Baldursson, trommuleikari
Davíð Þór Jónsson, pínaóleikari
Halldór Bragason, gítarleikari
Róbert Þórhallsson, bassaleikari

Skráning og nánari upplýsingar í síma 863-4369 (Gísli) eða á gislirunar4@gmail.com (fyrir 27. Júní nk.)



Kormákur Bragason á blúshátíð 2008, en hann verður á hátíðinni í ár með hljómsveitinni Gæðablóð

08.06.2010 17:01

Póstkortin í póst

Eftirfarandi barst frá Markaðs- og kynningarfulltrúa Fjallabyggðar:
---
Nú eiga  öll heimili í Fjallabyggð að hafa fengið sent 2 póstkort og ísskápssegul með dagskrá sumarsins.
Ég vil biðja ykkur að senda póstkortin á ættingja og vini til að minna á þá viðburði sem eru í boði í Fjallabyggð í sumar og hversu gaman er að heimsækja okkur. Upplagt er að lofa krökkunum eða unglingunum að senda annað póstkortið, mörg þeirra hafa aldrei sent póstkort og margir unglingar hafa aldrei fengið bréf nema frá bankanum.
 
Nú hefur einnig verið efnt til þjóðarátaks í tengslum við "Inspired by Iceland", markaðsátak ferðaþjónustunnar á erlendum markaði. Þar er skorað á fólk að senda tölvupóst á vini, kunningja, fjölskyldu og viðskiptafélaga erlendis með slóð á glænýtt og skemmtilegt myndband sem sýnir Ísland sem spennandi áfangastað.
www.inspiredbyiceland.is 
Þetta átak er aðeins tæknilegra en okkar en svipaðar hugmyndir liggja að baki þeim báðum.
Gerum okkar besta til að kynna landið okkar og Fjallabyggð, tökum þátt.
 
Inga Eiríksdóttir
Markaðs- og kynningarfulltrúi Fjallabyggðar
----
625.is skorar á bæjarbúa að senda kortið og ekki síður að skoða myndbandið sem er stórskemmtileg kynning á landinu okkar.

08.06.2010 12:10

Litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1 mótmælt

Eftirfarandi frétt er að finna á vef Ramma hf.
--
Þeir sem til þekkja vita  að Ólafsfirðingar hafa mikinn áhuga á skipum sínum og útgerð enda  er fólki óvíða betur ljóst  mikilvægi sjávarútvegs fyrir byggðarlag sitt. Gott dæmi um þetta er að nú hafa 176 manns mótmælt litabreytingu á Sigurbjörgu ÓF 1 á fésbókinni, en eins og við sögðum frá er nú verið að mála skipið með sama rauða lit og er á öðrum skipum Rammans. Áður var Sigurbjörgin blá og ljóst er að sitt sýnist hverjum um þessa breytingu.  Við vonum bara að það fiskist á rauða litinn ekki síður en á þann bláa.
 
 http://www.facebook.com/home.php?#!/pages/vid-motmaelum-nyum-lit-a-sigurbjorg-of-1/110986892278747?ref=ts

Einnig hefur mbl.is fjallað um málið undir fyrirsögninni: "Ólafsfirðingar ósáttir við nýjan lit"

Það er því ljóst að ekki eru allir sáttir við nýja litinn.


Nýji liturinn á Sibbunni (mynd fengin af vef Rammans)

07.06.2010 21:11

Herra hinsegin frá Ólafsfirði

Vilhjálmur Þór Davíðsson (Nínu og Dabba) frá Ólafsfirði var valinn Herra Hinsegin þegar keppnin var í fyrsta skipti haldin í Þjóðleikhúskjallaranum um helgina.
Villi sagði aðspurður í viðtali við Vísi.is um þátttöku sína:
Ég kem úr smábæ þar sem ég er í raun sá eini sem hefur komið út úr skápnum. Mig langar að sýna ungu samkynhneigðu fólki, þar og annars staðar, að þau geta líka gert þetta. Þegar ég kom út vantaði mig fyrirmynd og ég vona því að ég sé góð fyrirmynd heima. 

Einni má sjá viðtal við hann á Vísi, (myndband) þar sem honum er lýst sem "the only gay in the village" en það er skemmtilegur karakter úr þáttaséríunni Litla Bretland.
Hér má sjá brot úr þætti Litla Bretlands þar sem þessi persóna kemur fyrir.

07.06.2010 20:57

Sigurbjörg Áróra náði lágmarki inn í úrvalshóp FRÍ

Á heimasíðu FRÍ er sagt frá góðum árangri á móti UMSE um helgina. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir (Ásgeirs Log og Stínu) vakti töluverða athygli, en þar segir:

Einnig vakti athygli árangur Sigurbjargar Áróru Ásgeirsdóttur UMSE  13 ára (í október) en hún kastaði 3kg sleggjunni 31,48m á sínu fyrsta móti utanhús á þessu ári. Íslandsmet 13-14 ára stelpna er 37,90m. Sigurbjörg keppir fyrir UMSE og er frá Ólafsfirði
().....en Sigurbjörg Áróra náði lágmarki inn í úrvalshóp FRÍ þrátt fyrir að vera einungis 13 ára gömul.

Er Sigurbjörg í raun aðeins 12 ára þar sem hún á ekki afmæli fyrr en í október.
Fréttina í heild má finna á heimasíðu FRÍ

07.06.2010 07:43

Myndir og video frá Sjómannadeginum

Magnús A Sveinsson er búinn að setja inn hjá sér myndir og video frá Sjómannadeginum:

Ljósmyndir http://www.flickr.com/photos/magnussveinsson/sets/72157624214189228/detail/

Vídeó http://www.vimeo.com/12327432


Myndin er af vef Magnúsar

06.06.2010 22:47

165 milljón kr. karfatúr Mánabergs

Mánaberg ÓF 42 kom til hafnar fyrir helgi eftir úthafskarfaveiði á Reykjaneshrygg. Veiðiferðin sem hófst 13. maí gekk vel og heildarafli var  ca. 650 tonn og aflaverðmæti ca. 165 milljónir króna. Skipið kom inn til millilöndunar 27. maí.

Að sögn Sigþórs Kjartanssonar skipstjóra var veiðin fyrri hluta túrsins rétt utan við 200 mílna landhelgina en seinni hlutann var veiðin nánast á landhelgislínunni og rétt innan við hana. Karfinn sem skipið fékk var góður og blíðuveður var fyrri part veiðiferðar en kaldaskítur undir lokin. Eftir sjómannadag er stefnan svo aftur sett á Reykjaneshrygginn.

Frétt fengin af vef Ramma hf.

Myndin fengin af vef Ramma hf.

Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar