|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2010 Maí19.05.2010 17:35Innritun í Tónskóla FjallabyggðarInnritun í Tónskóla Fjallabyggðar fer fram daganna 24. maí til 3. júní. Þeir sem voru nemendur í Tónskóla Ólafsfjarðar og Tónskóla Siglufjarðar, þurfa að staðfesta áframhaldandi nám fyrir skólaárið 2010 - 2011. Hægt er að hafa samband í síma 464-9210 eða 898-2516 og í tölvupósti magnus@fjallabyggd.is Nýir nemendur sem vilja stunda nám næsta skólaár, er bent á sækja um rafrænt í gegnum nýja heimasíðu http://tonskoli.fjallabyggd.is/ en þar er innritun í valmynd sem þarf að fylla út. Skrifað af Gísli Rúnar 19.05.2010 17:30Þrif á sorptunnumEftirfarandi barst 625.is: Skrifað af Gísli Rúnar 19.05.2010 17:23Sjómannadagshelgin í ÓlafsfirðiSjómanna-og fjölskylduhátíð Föstudagur 5 júní:
Kl 17:00 Frítt í bíó í Tjarnarborg fyrir öll börn 12 og yngri Kl 21:00 Fritt í bíó í Tjarnarborg fyrir 13 ára og eldri
Laugardagur 6.júní:
Kl 10:00-11:00 Dorgveiðikeppni við höfnina keppendur verða að vera í björgunarvestum. Kl 13:00 Kappróður við höfnina Kl 21:00 Úti skemmtun við Tjarnarborg, ýmis skemmtiatriði
Sjómannadagur 7.júní.
Kl 10:15 Skrúðganga til Ólafsfarðarkirkju (ath. leiðrétt tímasetning) Kl 13:00 Knattspyrna Sjómenn - Landmenn Kl 14:15 fjölskylduskemmtun við Tjarnarborg Hljómsveitir, Páll Óskar,Friðrik Ómar,Jogvan og fl. Kl 19:00 Árshátíð sjómanna í Tjarnarborg Veislustjórar Friðrik Ómar og Jógvan Elvis Tribute, George Michael show, Vinalög og margt fl. 23:00-03:00 Risa dansleikur í Tjarnarborg þar sem Páll Óskar mun sjá um að halda öllum á dansgólfinu Ræðumaður kvöldsins: Kolbeinn Arnbjörnsson Miðaverð á Árshátíð sjómanna í Tjarnarborg og risa dansleik með Páli Óskari er 7.800 kr. Ath. það þarf að panta miða fyrir 28.maí Skrifað af Gísli Rúnar 19.05.2010 17:09Kynning á miðjumönnum KS/Leifturs - seinni hlutiFannar Örn Hafþórsson, er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki nú í ár. Hann hefur ekki ennþá komið við sögu í alvöru leik en það kemur væntanlega til með að gerast fljótlega. Fannar hefur æft gríðarlega vel í vetur og tekið framförum. Fannar er fæddur 1992 og er því einnig gjaldgengur í 2. flokk eins og margir af okkar yngri leikmönnum. En annar flokkur kemur einnig til með að spila mikið í sumar þar sem teflt er fram sameiginlegu liði með KS/Leiftri, Tindastól og Hvöt. Skemmtileg staðreynd um Fannar Örn, hann er einn helsti styrktaraðili D:Fi en hann fer að sofa stífgelaður og vaknar nákvæmlega eins. Agnar Þór Sveinsson. Aggi er fyrirliði liðsins og hefur verið með betri mönnum í liði KS sem og sameinuðu liði KS/leifturs undanfarin ár. Hann er fæddur 1976 en ber það þó ótrúlega vel. Aggi er einn af reynsluboltunum í liði KS/Leiftri og nýtist vel sem slíkur. Hann er gríðarlega vinnusamur leikmaður og er duglegur að hvetja aðra leikmenn áfram, s.s. mikill leiðtogi á velli. Skemmtileg staðreynd um Agga, Aggi hefur alla tíð spilað með KS, en leiðinlegt er að segja frá því að hann leiddist eitt sinn útaf réttu brautinni þegar hann spilaði eitt með Tindastól. Til allrar hamingju áttaði hann sig fljótt og kom aftur í KS. Andri Freyr Sveinsson. Andri er gífurlega efnilegur miðjumaður sem er að stíga sín fyrstu skref í mfl. Andri kom við sögu í nokkrum leikjum sl. Og stóð sig vel. Andri er fæddur árið 1994 og er því enn í 3. Fl en hefur verið með annan fótinn með mfl. Í allan vetur. Skemmtileg staðreynd um Andra, Uppáhalds söngvarinn hans Andra er Helgi Björns. Sigurbjörn Hafþórsson. Sigurbjörn er varafyrirliði liðsins og verður að teljast með massaðari mönnum í liðinu, not. Sigurbjörn er fæddur árið 1988 og er uppalin KS-ingur. Hann spilaði með úrvaldsdeildarliði Keflavíkur en hann var m.a. fyrirliði 2.flokks Keflavíkur. Sigurbjörn spilaði stórt hlutverk í liði KS/Leifturs sl. Sumar og vonandi heldur hann áfram að spila vel fyrir klúbbinn. Bjössi hefur tekið miklum framförum sérstaklega í að skalla bolta. Skemmtileg staðreynd um Sigurbjörn, Hann á það til að gleyma sér fyrir framan spegilinn og tala við sjálfan sig. Það er ekki lygi. Birgir Sæmundsson, eða hinn eini sanni Hr. Fjallabyggð, enda ættaður og búsettur á báðum stöðum. Birgir spilaði upp yngri flokkana með bæði Leiftri og KS og hefur verið viðloðandi m.fl liðanna undanfarin ár. Birgir lék nokkra leiki með liðinu síðasta tímabil, æft vel í vetur og mun líklega spila stærra hlutverk í ár og á komandi árum með liðinu. Skemmtileg staðreynd um Birgi, Biggi tekur 23 og hálfu kílói meira en Brynjar `hinn harði` Harðarson í bekk. Brynjar Harðarson, er þótt ótrúlega hljómi, aðeins 28 ára fjölhæfur leikmaður. Brynjar getur leikið allar stöður á vellinum og gerir það listavel. Brynjar æfði gríðarlega vel í vetur en lenti í leiðinlegum meiðslum á hné rétt fyrir mót. Brynjar er sárt saknað úr leikmannahópnum og vonast leikmenn eftir því að hann nái sér fljótt og fylgi liðinu eins mikið og hann getur í sumar. Skemmtileg staðreynd um Brynjar, Sólin frá Sandgerði var eitt sinn uppáhalds hljómsveitin hans. Skrifað af Gísli Rúnar 18.05.2010 22:22KS/Leiftur - TindastóllNæsti leikur hjá KS/Leiftri er leikur gegn Tindastóli á Ólafsfjarðarvelli miðvikudaginn 19. maí. kl. 19:00. Sá leikur er í bikarkeppninni, KS/Leiftur sat hjá í 1. umferð og kemur því inn þá aðra. Vinnist sigur á miðvikudaginn er ekki ólíklegt að við drögumst á móti úrvalsdeildarliði. --- Hér kemur svo kynning á miðjumönnun KS/Leifturs (Fyrri hluti) Gabríel Reynisson er einn af þeim leikmönnum sem hefur verið að bæta sig undanfarin ár hann spilaði m.a. 19 leiki síðasta sumar fyrir KS/Leiftur. Gabríel getur spilað margar stöður á vellinum, þó einna helst hægri bakvörður og hægri kantmaður. Ef Gabríel heldur áfram að bæta sig er alveg ljóst að hann mun spila stærra og stærra hlutverk fyrir KS/Leiftur í framtíðinni. Skemmtileg staðreynd um Gabríel. Hann er með risastórt tattú á bakinu og stefnir að því að fá sér KS/Leiftur tattú á báðar kinnarnar og ennið. Halldór Logi Hilmarsson, það má segja að Halldór sér gríðarlega fjölhæfur leikmaður hann getur nánast leist allar stöður á vellinum, nema kannski markið. Hann byrjaði að spila aðeins 16 ára gamall fyrir KS/Leiftur og hefur verið að spila stærra og stærra hlutverk síðan þá. Spilaði m.a. 18 leiki síðasta sumar. Halldór er gríðarlega duglegur leikmaður og vinnu samur og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar í þeim efnum. Skemmtileg staðreynd um Halldór: Halldór Logi sefur að meðaltali 5 tímum meira heldur en meðal hvítur maður á sólahring. Svipað og eins til tveggja ára börn. Kristófer Hlynsson, Kristó kom til KS/Leifturs frá Þór fyrir þetta tímabil en hann og Ingimar hafa verið í láni þar undanfarin tvö ár. Kristó er gríðarlega efnilegur, enda fáir duglegri við æfingar en hann. Kristó getur spilað sem hægri kantur eða bakvörður einnig í miðri vörninni. Enda er hann líkamlega mjög sterkur eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni í vetur. Skemmtileg staðreynd um Kristó: Kristófer Hlynsson stefnir að því að keppa fyrir Keniu á ólympíulekum í hlaupi Ingimar Hlynsson, kom eins og bróður sinni frá Þór fyrir þetta tímabil þar sem hann var á láni. Ingimar hefur tekið gríðarlega miklum framförum sérstaklega núna í ár. Hann hefur verið fasta maður í æfingahóp U19 ára landsliðs Íslands og er því alveg ljóst að hann kemur til með að spila stórt hlutverk fyrir KS/Leiftur í sumar og vonandi næstu sumur. Ingimar spilar hvað best þegar hann er á miðjunni, þó að hann geti einnig leist fleiri stöður á vellinum vel. Skemmtileg staðreynd um Ingimar: Ingimar eyðir meiri tíma berrassaður útí móa heldur en að spila fótbolta. Alexander Örn Kristjánsson, er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki nú í ár. Hann hefur ekki ennþá komið við sögu í alvöru leik en það kemur væntanlega til með að gerast fljótlega. Alexander er fæddur 1993 og er því einnig gjaldgengur í 2. flokk eins og margir af okkar yngri leikmönnum. En annar flokkur kemur einnig til með að spila mikið í sumar þar sem teflt er fram sameiginlegu liði með KS/Leiftri, Tindastól og Hvöt. Skemmtileg staðreynd um Alexander: Hann tekur 95 kg. Bekk mun meira heldur en fóstur pabbi hans Raggi þjálfari. Dalibor Lazic , Dalibor gekk til liðs við KS/Leiftur í fyrra hann spilaði 16 leiki og í þeim lagði hann upp 10 mörk. Dalibor hefur áður spilað með Stjörnunni, Njarðvík og Hamri. Hann varð fyrir því óláni síðasta sumar að meiðast frekar illa á nára og hefur átt við þau meiðsli að stríða nú á undirbúningstímabilinu. Hann verður að öllum líkindum ekki með í byrjun móts en gæti komið inn sterkur þegar líða tekur á sumarið. Skemmtileg staðreynd um Dalibor: Dalibor fór í hot yoga með liðinu í æfingaferð fyrir sunnan um daginn, en honum varð bara ekki heitt. Þorsteinn Þorvaldsson gekk til liðs við KS/Leiftur fyrir tímabilið er hann kom frá Magna Grenivík, Þorsteinn hefur verið fasta maður í liði magna undanfarin ár. Þorsteinn er miðjumaður og er gríðarlega vinnusamur og duglegur leikmaður. Þorsteinn þekkir vel til á Siglufirði og Ólafsfirði en hann á ömmur á báðum þessum stöðum. Steini getur einnig spilað sem kantmaður, hann kemur til með að verða mjög öflugur fyrir KS/Leiftur í sumar. Skemmtileg staðreynd um Þorstein: Steini er gríðarlega fær í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur sérstaklega hlutum sem snúa að hinu kyninu. Skrifað af Gísli Rúnar 18.05.2010 16:00Samfylkingin opnar vefsvæðiSamfylkingin í Fjallabyggð hefur opnað vefsvæði á http://xs.is/fjallabyggd/. Þar er að finna upplýsingar um frambjóðendur, dagatal sem sýnir dagskrá Samfylkingarinnar fram að kosningum, greinar og fleira. Skrifað af Gísli Rúnar 18.05.2010 15:27Fréttir frá RammanumEftirfarandi fréttatilkynning barst frá Rammanum 14. maí sl. (þar sem ritstjórinn var erlendis var því miður ekki hægt að birta þetta fyrr) --- Góð veiði hjá Rammaskipum Aflabrögð hjá skipum Rammans hafa verið góð að undanförnu. Mánabergið landaði í Ólafsfirði í síðustu viku 223 tonnum af afurðum, afli úr sjó var 427 tonn. Mest var veitt af þorski og ufsa og var aflaverðmæti veiðiferðarinnar um 140 milljónir króna. Skipið er nú á leið til karfaveiða á Reykjaneshrygg. Sigurbjörgin er væntanleg til löndunar um næstu helgi og hefur veiði verið góð hjá henni hingað til. Eftir löndun fer Sigurbjörg í ca. þriggja vikna slipp til Akureyrar. Rækjuverksmiðjan á Siglufirði hefur tekið rúmlega 1.100 tonn til vinnslu frá áramótum og hefur langmestum hluta þess afla verið landað á Siglfufirði, en lítilsháttar af rækjunni hefur verið landað í Grundarfirði og ekið til Siglufjarðar. Rækjuvinnslan hefur gengið vel það sem af er ári og nú afla Sigurborg, Siglunes og Múlaberg hráefnis fyrir hana. Fróði og Jón á Hofi byrjuðu humarveiðar frá Þorlákshöfn fyrir rúmum mánuði og hafa þær gengið vel fram að þessu. Skipin eru nú á veiðum við Surtsey og fer humarinn stækkandi eftir því sem veiðar færast vestur á bóginn. Sala á humri sem og reyndar öllum afurðum fyrirtækisins hefur gengið vel það sem af er ári. Skrifað af Gísli Rúnar 18.05.2010 15:20Sjálfstæðisflokkurinn opna kosningaskrifstofuSjálfstæðiflokkurinn hefur opnað skrifstofu í Ólafsfirði. Skrifstofan verður í Lishúsinu (gamla heimaval/Glaumbæ). Skrifað af Gísli Rúnar 18.05.2010 15:16Bandýmyndir frá Magga SveinsMaggi Sveins er búinn að setja inn myndir frá Bandýmótinu inn á síðuna hjá sér. Slóðin er http://www.flickr.com/photos/magnussveinsson/sets/72157624049780058/detail/ Skrifað af Gísli Rúnar 11.05.2010 22:15Kynning á sóknarmönnum KS/LeiftursNú er komið að því að fjalla um sóknarmenn Ks/Leifturs: Skrifað af Gísli Rúnar 11.05.2010 21:00T-listinn opnar kosningaskrifstofuLaugardaginn 15. maí kl. 15:00 opnar T-listinn kosningaskrifstofu í Kirkjuvegi 14 (Reykholti) í Ólafsfirði. Boðið uppá kaffi og meðlæti Skrifað af Gísli Rúnar 11.05.2010 12:20Fermingar í ÓlafsfirðiFermt verður í Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 15. maí kl. 11:00. Fermd verða: Anna Lára Ólafsdóttir, Aðalgötu 19 Daníel Már Kristjánsson, Ólafsvegi 43 Fanney Björg Björnsdóttir, Hlíðarvegi 11 Jón Fannar Björnsson, Hlíðarvegi 11 Kara Gautadóttir, Hrannarbyggð 17 Kristófer Leví Skjóldal, Ægisgötu 20 Orri Fannar Jónsson, Hlíðarvegi 25 Ólöf Þóra Tómasdóttir, Gunnólfsgötu 4 Fermt verður í Ólafsfjarðarkirkju á hvítasunnudag 23. maí kl. 11:00. Fermd verða: Aðalsteinn Ragnarsson, Kirkjuvegi 13 Alexía María Gestsdóttir, Ægisbyggð 5 Ágúst Örn Jónsson, Aðalgötu 37 Brynhildur Antonsdóttir, Ólafsvegi 51 Hallur Már Baldursson, Gunnólfsgötu 12 Hulda Vilhjálmsdóttir, Strandgötu 19 Jónína Kristjánsdóttir, Ólafsvegi 42 Marinó Jóhann Sigursteinsson, Strandgötu 17 Í tilefni af fermingu í Ólafsfirði vildi Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar minna á að það hefur verið með sölu á fermingarskeytum undanfarin ár. Allur ágóði af sölu skeytanna rennur óskiptur til tækjakaupa á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar. Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar Sími: 663-2277 1102-26-101355 520181-0169 Verð á skeyti er 350 kr. Skrifað af Gísli Rúnar 11.05.2010 12:15Kynning á varnarmönnum Ks/LeiftursHeiðar Gunnólfsson er fæddur 1979 og hefur spilað allan sinn feril í Fjallabyggð hann á ófáa leiki með Leiftri og svo KS/Leiftri í efstudeild og 1. deild. Hann spilaði lítið síðasta sumar en ákvað í vetur að taka þetta sumar af fullri alvöru og kemur til með að styrkja lið KS/Leifturs mikið í sumar.
Skrifað af Gísli Rúnar 10.05.2010 21:19Myndir af bandýmótinuGuðný Ágústsdóttir hefur sett inn yfir 200 myndir frá bandýmótinu á síðuna sína. Smelltu hér til að fara á síðu Guðnýar. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|