625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Apríl

21.04.2010 17:54

Fundir Samfylkingar kl. 20 í kvöld

Fundir um framboðsmál Samfylkingarinnar í Fjallabyggð verða haldnir í Lionshúsinu á Siglufirði og í húsi Félags eldri borgara í Ólafsfirði í kvöld miðvikudag 21. apríl kl. 20. Á fundinum verður kynnt tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista og málefni framboðsins rædd.

Stjórnir Samfylkingarfélaganna í Fjallabyggð

18.04.2010 13:44

Fyrirlestur um meðvirkni og æðruleysismessa

Æðruleysismessa verður haldinn Ólafsfjarðarkirkju kl. 20:30 í kvöld. Sr. Anna Sigríður pálsdóttir, predikar og Svava Jónsdóttir syngur einsöng.

Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir flytur fyrirlestur um meðvirkni í Sandhól mánudagskvöldið 19. apríl kl. 20:30. Fyrirlesturinn er í boði Ólafsfjarðarkirkju og Rauðakrossdeildar Ólafsfjarðar (enginn aðgangseyrir)

18.04.2010 09:12

Tjörnin í Ólafsfirði endursköpuð á Siglufirði?

Sl. fimmtudag var haldinn íbúafundur á Siglufirði. Tilgangur fundarins var að kynna breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar. Tillagan felur í sér breytingu gamla malarvellinum á Siglufirði. Þar er fyrirhugað að byggja hús. Fundargestir voru hins vegar ekki allir sammála þeim tillögum sem voru á borðinu og komu með aðrar lausnir á málinu. Örlygur Kristfinnsson kom t.d. með þá hugmynd um að miðbæjartjörnin á Ólafsfirði yrði endursköpuð á Siglufirði og þannig myndu bræðrabæirnir spegla hvor annan í kærleika og eindrægni.
Á heimasíðu siglo.is er að finna greinargóða lýsingu á því sem fram fór á fundinum ásamt myndum af þessari og fleiri hugmyndum um notkun á svæðinu.

16.04.2010 18:45

það snjóar

Margir héldu að vorið væri komið til að vera, svo er nú heldur betur ekki. Leiðinda veður var í dag sem byrjaði með "stór" snjókomu í gær, en þá voru snjókornin frekar stór.
Myndir í myndaalbúmi.

Veðrir var ekki fallegt í hádeginu í dag.


ATh. þetta er EITT snjókorn, myndina tók Jón Hrói Finnsson 15. apríl 2010. (Ritzkexið var sett til að átta sig betur á stærðinni)

16.04.2010 17:40

Sex sóttu um verkstjórastöðu

Alls sóttu sex um stöðu verkstjóra þjónustumiðstöðva Fjallabyggðar (áhaldahúsin í Ólafsfirði og á Siglufirði). Usækjendur voru:

Gísli Kristinsson
Guðni Sölvason
Gunnlaugur Ingi Haraldsson
Kristinn S. Gylfason
Rúnar Theodórsson
Sölvi Lárusson

Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna frá 1. júní 2010.

16.04.2010 12:05

Hægt að fylgjast með Svíþjóðarförunum

Eins og fram hefur komið hér á síðunni okkur þá eru 6 krakkar að keppa um helgina í Tarnaby í Svíþjóð á skíðum. Fram kemur á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar að þar sé flotta vefmyndavél að finna og nánast hægt að fylgjast með þeim renna sér í brautinni.

15.04.2010 12:50

Fugl fyrir milljón

Gisti og/eða matargestir á Brimnes hóteli í Ólafsfirði ( www.brimnes.is ), geta skráð sig til þáttöku í ljósmyndasamkeppni um bestu fuglamyndina tekna á Tröllaskaganum, Hrísey eða Grímsey á tímabilinu 15. apríl til 31. ágúst 2010.  Auk ýmissa veglegra verðlauna, verður besta myndin verðlaunuð með 1.000.000 króna í reiðufé.
Nánari upplýsingar er að finna á http://www.fuglfyrirmilljon.com

13.04.2010 23:02

keppendur hjá Skíðafélagi Ólafsfjarðar til Svíþjóðar

Sex keppendur úr Skíðafélagi Ólafsfjarðar lögðu upp í ferð frá Víkurröst á Dalvík um kl: 23:00 í gærkveldi ásamt fimm keppendum úr Skíðafélagi Dalvíkur, til Tarnaby í Svíþjóð, en þar eru þau að fara að taka þátt í alþjóðlegu móti í svigi og stórsvigi.  Þau koma til með að keppa næstkomandi laugardag og sunnudag, og eiga svo möguleika á að vinna sér inn rétt til þáttöku í samhliðasvigi á mánudag.

Svíðþjóðarfararnir eru þau, Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, Kara Gautadóttir, Alexía María Gestsdóttir, Ágúst Örn Jónsson, Orri fannar Jónsson og Jón Fannar Björnsson.

Með þeim í för eru svo Steinunn Gunnarsdóttir, Kristrún Þorvaldsdóttir og Benedikt Snorri Hallgrímsson, og þrír pabbar frá Dalvík.

Á heimasíðu Skíðafélagsins verður nánar greint frá ferð og árangri keppenda.

Gulla, Ágúst, Jón, Orri, Alexía og Kara

12.04.2010 17:46

Stærðfræðikeppni grunnskóla

Stærðfræðikeppni grunnskóla var haldinn þann 10. mars sl. Grunnskóli Ólafsfjarðar eignaðist þar sinn fyrsta sigurvegara sem er Hulda Vilhjálmsdóttir (Ástu Sigurfinns og Villa) sem er í 8. bekk. 

Frá árinu 1996 hefur keppnin verið haldin fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk grunnskólanna. Fyrsta árið var sama verkefnið lagt fyrir alla árganga en frá 1997 hefur hver árgangur fengið sérstakt verkefni.Menntaskólinn á Akureyri hefur haldið keppnina á Eyjafjarðarsvæðinu síðan árið 2006.

Óskar 625.is Huldu til hamingju með árangurinn
 

Hulda Vilhjálmsdóttir (mynd fengin af vef Grunnskólans)

12.04.2010 17:44

Leiðrétting - skíðagöngumenn

625.is fékk ábendingu varðandi frétt um skíðagöngumennina sem voru að gera það gott, við áttum víst hlutdeild í þeim öllum, en móðir Andra Steindórssonar er fædd og uppalin hér í Ólafsfirði. Að sjálfsögðu eignum við hann okkur líka og köllum hann Ólafsfirðing. Öll þrjú sætin því stíluð á fjörðinn :-)

12.04.2010 17:40

Bergþór Morthens bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2010

Menningarnefnd hefur útnefnt Bergþór Morthens myndlistarmann (Siglufirði), bæjarlistamann Fjallabyggðar 2010. Bergþór er sá fyrsti sem ber titilinn í Fjallabyggð og mun hann taka við viðurkenningu við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu á Siglufirði, fimmtudaginn 15. apríl nk. kl. 17.00.  Þá mun Bergþór formlega opna heimasíðu Listasafns Fjallabyggðar. Eru allir velkomnir.
 

Bergþór Morthens

11.04.2010 17:17

Sigurjón Magnússon afhendir slökkvibíl

Lokaúttekt fór í gær fram á nýjasta bílnum frá Sigurjóni Magnússyni ehf. og var hann keyrður til Vopnafjarðar á föstudaginn. Kaupendur slökkvibifreiðarinnar eru Vopnafjarðarhreppur og Flugstoðir en hún mun bæði gegna öryggishlutverki fyrir íbúa sveitarfélagsins og flugvöllinn á Vopnafirði.
Einnig er sagt frá á heimasíðu Sigurjóns Magnússonar ehf að þeir hafa verið að smíða hrognasigti úr trefjaplasti og undirritaður hefur verið samningur um 4 sjúkrabíla.
Á heimasíðu SM er hægt að lesar nánar um þetta og skoða fleiri myndir af bílnum: www.smagnusson.is

bíllinn sem var afhentur á Vopnafirði.

11.04.2010 10:22

Ólafsfirðingar gera það gott í skíðagöngu

Í gær fór fram Buch - Orkugangan á skíðum.  Í boði voru 5 vegalengdir og var lengsta vegalengdin 60 km.  Gengið var frá Kröfluvirkjun til Húsavíkur.  Ólafsfirðingar stóðu sig vel að vanda.  Sigurvegari í 60 km var Brynjar Leó Kristinsson á 3:24:06 og rétt á eftir honum kom Sigurbjörn Þorgeirsson á 3:26:51.  Þriðji varð svo Andri Steindórsson á 3:30:02. 
Má því segja að við höfum átt fyrstu tvö sætin, þó að Brynjar Leó keppi fyrir Skíðafélag Akureyrar þá verður hann alltaf Ólafsfirðingur í grunninn (sonur Kidda Hreins og Ágústu). 
Til hamningju með þetta strákar.
 
Hér má sjá öll úrslit:
http://volsungur.is/default/news/urslit_buch-orkugongunnar_2010/

Brynjar lengst til vinstri  og Sigurbjörn lengst til hægri (myndin tekin á verðlaunaafhendingu á skíðmóti Íslands sem fram fór á Dalvík og Ólafsfirði í mars)

10.04.2010 22:55

Framkvæmdir við sundlaugina

Framkvæmdir við sundlaugina halda áfram. Nú er búið að loka sundlauginni alveg og er verið að grafa meðfram bökkunum til að koma fyrir stútum á hliðinni. Ekki er áætlað að hægt verði að opna svæðið fyrr en í fyrsta lagi einhverntíma í maí (jafnvel seinna). Líkamsræktin verður opin þrátt fyrir þessar framkvæmdir.
Myndir komnar í myndaalbúmið.

09.04.2010 16:48

Fermingar

Í tilefni af fermingu í Ólafsfirði á morgun, 10. apríl vildi Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar minna á að það hefur verið með sölu á fermingarskeytum undanfarin ár.
Allur ágóði af sölu skeytanna rennur óskiptur til tækjakaupa á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar.
 
Nafnalisti fermingarbarna sem fermast 10. apríl kl 11:00 í Ólafsfjarðarkirkju
 
Grétar Áki Bergsson, Ólafsvegi 40 Ólafsfirði
 
Heimir Ingi Gretarsson, Hrannarbyggð 14 Ólafsfirði
 
Hugrún Pála Birnisdóttir, Hrannarbyggð 4 Ólafsfirði
 
Kristinn Már Þrastarson, Vesturgötu 12 Ólafsfirði
 
Lóa Rós Smáradóttir, Vesturgötu 12 Ólafsfirði
 
Salka Hlín Harðardóttir, Ægisgötu 30 Ólafsfirði
 
Örn Elí Gunnlaugsson, Bylgjubyggð 3 Ólafsfirði


Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar
Sími: 663-2277

1102-26-101355
520181-0169

Verð á skeyti er 350 kr.

Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar