625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Mars

20.03.2010 17:00

Aftur þrefaldur sigur

Keppendur frá Ólafsfirði náðu aftur þreföldum sigri á Unglingameistaramótinu á skíðum í dag. Kepptu stelpurnar í 2,5 km göngu með frjálsri aðferð. Stelpurnar stóðu sig mjög vel í frábærri en erfiðri braut á skíðasvæði Siglfirðinga. Jónína nr 1, Ólöf nr 2 og Hugrún 3. Marinó keppti svo í 3,5 km og hafnaði í 4 sæti.

Frá vinstri: Ólöf, Jónína, Hugrún og Marinó

20.03.2010 16:55

Skíðamót Íslands Dalvík/Ólafsfirði 2010

Skíðamót Íslands verður haldið á Dalvík og í Ólafsfirði dagana 26. - 29. mars nk.
Það eru skíðafélögin á Dalvík og í Ólafsfirði sem sjá um framkvæmd mótsins en félögin hafa átt farsælt samstarf um mótahald í meira en tvo áratugi. Nú eru félögin að halda saman sitt fimmta landsmót en fyrsta sameiginlega stórverkefnið var að halda Skíðamót Íslands árið 1992.

Búið er að setja upp heimasíðu fyrir mótið og er hægt að finna hana hér.

20.03.2010 09:44

Þrefaldur sigur á Unglingameistarmóti

Unglingameistaramóti Íslands á Skíðum 2010 er haldið á Siglufirði nú um helgina. Nokrkrir Ólafsfirðingar eru að keppa í alpa- og norrænugreinum. Fresta þurfti alpagreinum vegna veðurs í gær en keppt var í 5 km göngu hjá stúlkum 13-14 ára og unnu ólafsfirðingar þrefalt! Jónína varð númer 1, Ólöf Þóra 2 og Hugrún Pála 3. Einnig var keppt í 5 km göngu drengja þar sem Marinó varð nr 4. Glæsilegur árangur hjá krökkunum.


Frá vinstri: Hugrún Pála, Jónína og Ólöf Þóra

15.03.2010 21:44

Þorrablótið

Á þottablótinu í vetur vöktu skemmtiatriðin mikla lukku. Var það Sverrir Mannsa sem skrifaði að mestu rulluna og fékk svo með í lið valinkunna smillinga til að túlka grínið. Náðist þetta að hluta á myndband. Fyrsta myndbandið sem við birtum er frá því þegar skemmtinefndin fór með kynningarsöng skemmtinefndarinnar. Myndbandið má sér hér.

Það vantar aðeins á byrjunina á myndbandinu en hér er textinn í heild:

Kynningarsöngur skemmtinefndar
Lag: þá stundi Mundi

 

Höfundur alls þess sem í kvöld er hér flutt

Koma af sjónum í morgun svo æfing var stutt

Því Begga beið heima og vildi fá drátt

Því var skotið á fundi og reynt að ná sátt

 

Því stundi Sverrir, Begga mín Begga mín

Má það ei bíða að ég njóti þín

 

Í landi var Stulli  og stjórnaði her

Sem að á sviðinu stendur nú hér

En öfundin innst inni nagði hann

Helvítis kokkurinn hann þetta kann

 

Því stundi Stulli, Guðrún mín Guðrún mín

Víst get ég líka ort vísu til þín

 

Spilarinn Stjáni glamra hann kann

Á gítarinn góður lagið sitt spann

Hann tók hlátur rokur og sló sér á lær

Helvíti er á á gírarinn fær

 

Og svo stundi Stjáni, Helga mín Helga mín

Finnst þér ég nokkuð of montið svín

 

Leikarinn Tómar er hægur og skýr

Var með í öllu í höfðinu skýr

Hann auglýsti blótið og sa það vel um

Þó stundum hann sofnaði á verðinum

 

Þá sagði Tommi, Þurí mín Þurí mín

Þó ég sé gleyminn þá kem ég aftur til þín

 

Gummi okkar Garðars með sinn halta fót

Var alltaf svo hægur en styrkur sem grjót

Ef honum fannst við fara of geist

Það hefst allt að lokum þið vitið þú veist.

 

Og svo sagði Gummi, Þura mín Þura mín

Mikið var falleg, karl ræðan þín.

 

Bjössi minn Kjartans er einmanna sál

Kann betur við okkur svolítið við skál

Kartöflur vildi hann helst bara skralla

Og á tíunda bjórnum þá fór hann að tralla

 

Þá sagði Bjössi, Svava mín Svava mín

Ég held að ég sé orðinn ofdrykkjusvín

 

Svo er hún Lóa nýji formaðurinn

Sífellt hún vefur mér um fingurinn

Með loforðum fínum hún brýtur sum lög

Og í hjörtu okkar spilar með gamalli sög

 

Og svo syngur Lóa, Varði minn Varði minn

Ég vil ekki mjóa ég vil bara þinn.

 

14.03.2010 20:21

Árshátíð Grunnskólans

Árshátíð Grunnskólans fór fram á föstudaginn í Tjarnarborg. Magnús A. Sveinsson er búinn að setja saman video af skemmtuninni. Sjá myndbandið hér.

12.03.2010 18:20

Skólastjórar ráðnir

Á fundi bæjaráðs Fjallabyggðar í morgun voru teknar ákvarðanir varðandi ráðningar nýrra skólastjóra í grunn-, leik- og tónskóla Fjallabyggðar.

Bæjarráð samþykkti að ráða Jónínu Magnúsdóttur sem skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar, Olgu Gísladóttur sem skólastjóra Leikskóla Fjallabyggðar og Magnús G. Ólafsson sem skólastjóra Tónskóla Fjallabyggðar.Hægt er að lesa fundargerð bæjarráðs hér.

12.03.2010 10:26

Hljómsveitin IRONY fer á Músík-tilraunir 2010

Á heimasíðu Tónskóla Ólafsfjarðar er sagt frá því að hljómsveitin IRONY muni taka þátt í Músík-tilraunum í ár. Hljómsveitin hefur spilað saman í tvö ár. Hér má hlusta á lag þeirra sem heitir Are you ready to say (það getur verið fljótara að hægri smella á lagaheitið og vista niður á tölvuna)

Hljómsveitin IRONY er skipuð:
 Söngur:
Snjólaug Traustadóttir          
Agnes Sigríður Sigvaldadóttir
Kristlaug Sigurpálsdóttir
Brynhildur Antonsdóttir 
Erla Vilhjálmsdóttir   
Lóa Rós Smáradóttir
 
Bassi: Hallur Már Baldursson
Trommur: Marinó J Sigursteinsson       
Gítar: Grétar Áki Bergsson
Gítar: Hulda Vilhjálmsdóttir   



Hljómsveitin IRONY
 
Einnig er sagt frá því að þrír nemendur eru að fara á Uppskeruhátíð Tónlistarskóla á Íslandi fer fram á Akureyri  laugardaginn 13 mars. Þessir þrír voru valdir af sérstakri dómnefnd til að fara og taka þátt í keppninni.
 
          Ísl. þjóðlag         Krummi svaf í klettagjá   Garíella Rós Gunnlaugsdóttir píanó
         J. Brahms         Vögguvísa         Rakel Anna Knappett fiðla
         F. Tarrega         Lagrima Hulda Vilhjálmsdóttir gítar

12.03.2010 10:22

Listhúsið í Fjallabyggð opnar heimasíðu

Listhúsið í Fjallabyggð hefur opnað nýja heimasíðu. Endilega að kíkja þangað og kynna sér hvað húsið hefur upp á að bjóða. Slóðin þangað er: http://sites.google.com/site/listhusfjallabyggd/

12.03.2010 10:19

Leikmenn til KS/Leifturs

Fréttir frá KS/Leiftri
---
KS/Leiftur var að bæta við tveimur leikmönnum fyrir tímabilið.
Þorsteinn Þorvaldsson, lék með Magna í fyrra og KA þar áður
er gengin til liðs við KS/Leiftur og spilar með þeim í sumar.
Þorsteinn var gríðarlega öflugur á miðjunni fyrir Magna í fyrra
og verður góður styrkur fyrir KS/Leiftur í sumar.
Þess fyrir utan hefur KS/Leiftur fengið Kristján Vilhjálmsson
að láni í sumar frá Víking Reykjavík, Kristján spilaði með KS/Leiftri
undir lokin á síðasta tímabili og stóð sig mjög vel.
Fleiri tíðindi er að vænta úr herbúðum KS/Leifturs á næstunni.
 
Félagið leikur sinn fyrsta leik í deildarbikarnum nú á sunnudag við Völsung
frá Húsavík og fer leikurinn fram klukkan 18:15 í boganum Akureyri.

09.03.2010 14:10

Samfés ferð félagsmiðstöðvarinnar

Félagsmiðstöðin fór um helgina í hina árlega "Samfés" ferð. Samfés stendur fyrir Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi. Farið var á föstudagsmorgun og brunað beint til Reykjavíkur þar sem 5.000 krakkar komu saman í Laugardalshöllinni á stórglæsilegu balli. Laugardagurinn var síðan undirlagður í "viðurkennda menningarstarfsemi" þ.e.a.s. sund, Laser Tag, Kringlan og Bíó. Alls fóru 24 krakkar frá Ólafsfirði. Þetta árið fengu krakkarnir ferðafélaga en Langanesbyggð fékk að slást í hópinn við Þelamörk og var með hópnum frá Ólafsfirði að stórum hluta. Myndir komnar í myndaalbúmið.

Svo var að sjálfsögðu haldin hin árlega sms keppni, sigurvegarinn sendi inn þennan:
---
Ljóska nokkur kom inn í vefnaðarvöruverslun þar sem seld voru gluggatjöld. Hún sagði við afgreiðslustúlkuna "Ég ætla að fá bleik gluggatjöld sem myndu passa á skjáinn á tölvunni minni" Afgreiðslukonan varð nokkuð hissa og svaraði "en þú þarft ekki gluggatjöld á tölvuna" Þá sagði...
ljóskan; "HALLÓ!!.. Ég er með WINDOWS..."
---

Sæmi "rokk" ánægður með nýja hljóðfærið sitt.

08.03.2010 23:54

Spilavist


625.is langar að minna á félagsvistina sem fer fram öll þriðjudagskvöld kl. 20:00 í UÍÓ húsinu (við knattspyrnuvöllinn). Endilega að kíkja við ef þið hafið gaman af því að spila.

08.03.2010 23:43

Fréttir af skíðafólki

Nú þegar skíðavertíðin stendur sem hæst er í nógu að snúast hjá skíðafólki. Við höfum sagt frá Alexíu sem er á Ítalíu en nóg er einnig um að vera hér heima. Á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er t.a.m. sagt frá 5 keppendum sem voru í Stafdal í Seyðisfirði um helgina, þar varð Kara Gautadóttir í fyrsta sæti í bikarkeppni 13-14 ára og aðrir keppendur að gera fína hluti. Einnig var haldið Kristinsmót í skíðagöngu hér í Ólafsfirði um helgina. Nánar má lesa um þetta og aðrar skíðafréttir á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar

07.03.2010 23:46

Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir sigraði Stóru upplestrarkeppnina

Á heimasíðu Grunnskóla Ólafsfjarðar segir frá því að 3. mars sl. fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í menningarhúsinu Bergi á Dalvík en þátttakendur voru frá Grunnskóla Ólafsfjarðar, Dalvíkurskóla og Árskógarskóla. Fyrir okkar hönd kepptu þær: Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir, Snjólaug Traustadóttir og Erla Vilhjálmsdóttir. Sigurbjörg sigraði keppnina með glæsibrag en Sindri og Valdimar úr Dalvíkurskóla urðu í 2. og 3. sæti.
Myndir frá upplestrarkeppninni má finna á heimasíðu Dalvíkurskóla

Mynd af vef Dalvíkurskóla

04.03.2010 23:01

Flestir fundu 625.is á facebook.

Við spurðum í síðustu skoðanakönnun hvernig þú hafir frétt af 625.is. Flestir sögðust hafa rekist á síðuna á Facebook. Ný skoðanakönnun komin í loftið. Gaman væri að vita hverjir eru að skoða síðuna, endilega að taka þátt hér til hægri.

Niðurstöður síðustu skoðanakönnun voru: (Hvernig fréttir þú af 625.is)

Hvernig fréttir þú af 625.is

Á facebook

38,69%

Götubylgjunni

10,55%

Fann hana á netinu

24,62%

Annað

26,13%

Alls kusu 199

04.03.2010 07:45

Fundur hjá Samfylkingunni

Eftirfarandi barst frá Samfylkingunni:
---
Fundur um komandi bæjarstórnarkosningar verður haldinn í húsi Félags eldri borgara í Ólafsfirði,fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00
Á fundinum verður rætt um framboðsmál og stefnu Samfylkingarinnar í kosningum til bæjarstjórnar.
Þeir sem vilja hafa áhrif á bæjarmálin eru hvattir til að mæta.


Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar