625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Febrúar

19.02.2010 12:22

Siglingaklúbbur í Fjallabyggð

Eftirfarandi barst frá verðandi siglingaklúbbsfélögum:
---
Föstudaginn 19. febrúar verður haldinn fundur um stofnun siglingaklúbbs í Ólafsfirði (Fjallabyggð).
Fundurinn verður haldinn á kaffistofu bílasmiðju Sigurjóns Magnússonar ehf. kl. 20:00
Kynntar verða hugmyndir um stofnun og starfsemi fyrirhugaðs félags.
Allt áhugafólk um siglingar, skútu, kajak, seglbretti eða öðru eru hvattir til að mæta. Ekkert aldurstakmark.

Undirbúningsnefnd

19.02.2010 12:20

Öskudagsmyndband og fleiri myndir

Magnús A. Sveinsson er búinn að taka saman flott myndband af öskudeginum. Myndbandið er frá Fjarvinnslu Alþingis og þegar kötturinn var sleginn úr tunnunni í íþróttamiðstöðinni.
Myndbandið: http://vimeo.com/9556033

Einnig eru komnar myndir inn á heimasíðu Grunnskólans og hjá Guðný.

18.02.2010 21:46

Öskudagsmyndir

Myndir frá öskudeginum eru komnar í myndaalbúmið.

þessi búningur á vel við miðað við alla sorpumræðuna í bænum undanfarið.

17.02.2010 23:33

Framkvæmdir við sundlaugina

Framkvædir halda áfram við sundlaugina. Í dag var verið að færa girðinguna á sundlaugarbakkann. Myndir í myndaalbúmi.

16.02.2010 12:50

Fréttir frá Rammanun

Miklum afla  hefur verið landað á vegum Ramma í Fjallabyggð frá áramótum. Sigurbjörg og Mánaberg lönduðu nýlega 455 tonnum af fiski að verðmæti 344 milljónir króna og rækjuskipin Sigurborg og Siglunes hafa landað 350 tonnum af rækju og 25 tonnum af fiski. Rækjan hefur öll farið til vinnslu í rækjuverksmiðjunni á Siglufirði. 
 
Múlaberg er nýkomið úr slipp á Akureyri og er að hefja veiðar frá Þorlákshöfn þar sem skipið verður fram á vor og Jón á Hofi og Fróði afla og hráefnis fyrir vinnsluna þar.

15.02.2010 17:58

Vetur konungur mættur

Vetur konungur ákvað að láta sjá sig á sunnudagsmorgun hér í Ólafsfirði eftir blíðviðri undanfarin mánuð. Í myndaalbúmið eru komnar myndir frá því í dag og til gamans eru einnig myndir sem voru teknar sl. fimmtudag, en þá var snjórinn ekki mikill. Því má segja að um fyrir og eftir myndir sé að ræða.


Myndin tekin frá Hornbrekku til norðurs.  

15.02.2010 17:17

Hjalti Már skaut Víkingum í vítaspyrnukeppnina

Á heimasíðunni vikingur.net er sagt frá Ólafsfirðingnum Hjalta Má (Hauks Sig. og Jónínu), en hann skaut Víkingum í vítaspyrnukeppnina í uppbótartíma, eins og sagt er á síðu Víkings.
Góð lýsing er á leiknum á síðunni og má meðal annars lesa þessi orð:

Þá steig upp myndarlegur Norðanmaður, örvfættur öðlingur að nafni Hjalti Már Hauksson. Hjalti klíndi boltanum í netið beint úr aukspyrnunni og kom Víkingum í vítaspyrnukeppni. Rauða spjald Tómasar því ekki til neins.

Fréttina í heild vikingur.net má lesa hér


Hjalti Már (mynd af vefnum: www.vikingur.is)

14.02.2010 21:09

Ingi Freyr til Noregs

Ingi Freyr Hilmarsson (Himma og Birnu) er genginn til liðs við norska 3. deildarliðið Årdal FK

Ingi Freyr hefur leikið með KA undanfarin þrjú ár en hann lék áður með KS/Leiftri og Leiftri/Dalvík.

,,Ingi stóð sig mjög vel þegar hann æfði með liðinu fyrir nokkrum vikum síðan og ég er viss um að hann er góður kostur sem mun styrkja aðalliðið," sagði Nils Tore Krosshaug, þjálfari Årdal, í samtali við staðarblaðið Sognavis.

,,Við höfum leitað lengi að leikmanni eins og Inga," sagði Jan Kåre Stedje, yfirmaður íþróttamála, í samtali við staðarblaðið Porten.

,,Hann er ákafur og góður leikmaður en við höfum leitað lengi að vinstrifótar varnarmanni og höfum við nú fengið spennandi íslenskan leikmann í leikmannahópinn."

Ingi Freyr mun einnig vinna hjá fyrirtækinu NorSun samhliða knattspyrnuiðkuninni.


Frétt frá Fótbolta.net. Sjá alla fréttina: http://fotbolti.net/fullStory.php?id=85515#ixzz0fXxwyAhG


Ingi Freyr

14.02.2010 17:26

Óskað eftir gömlum myndavélum

625.is barst eftirfarandi:
---
Óska eftir að fá keyptar eða gefins gamlar myndavélar (filmuvélar), þurfa ekki endilega að vera í lagi.
Trausti Gylfason, s: 896-4369

13.02.2010 23:26

"Leikstjórinn" Kristinn Gunnarsson

Kristinn Gunnarsson (Gunna Reynis og Kristjönu) stundar nám við Kvikmyndaskóla Íslands. Kristinn var að gefa frá sér kynningarmyndband nú á dögunum sem er verkefni hans í skólanum. Frábært verk hjá stráknum,hægt er að horfa á myndbandið hér.

13.02.2010 16:34

Sólarhringsmaraþon félagsmiðstöðvarinnar

Klukkar 13:00 í dag lauk sólarhringsmaraþoni félagsmiðstöðvarinnar. Um er að ræða fjáröflun krakkanna vegna árlegrar Samfés-ferðar í mars. Krakkarnir dönsuðu, spiluðu pool og fleira í sólarhring. Gengu krakkarnir í hús í vikunni og fengu vægast sagt frábærar viðtökur. Vill félagsmiðstöðin koma á framfæri kærum þökkum til bæjarbúa sem tóku mjög vel á móti þeim.
Myndirnar í myndaalbúminu eru frá því í morgun þegar þreytan fór að segja til sín.

Þessir tveir ætluðu ekki að láta "svefn´púkann" ná á sér tökum.

13.02.2010 16:23

Unglingadeild Björgunarsveitarinna þrífur og bónar bíla

Krakkarnir í Djarfi, unglingasveiti Björgunarsveitarinnar tóku að sér þrif og bón á bílum í fjáröflunarskyni. Er verið að vekja upp starfsemi unglingasveitarinnar sem hefur ekki verið mikil undanfarin ár og er þetta liður í því að fá fjármagn til að geta eflt starfsemina. Verðandi björgunarsveitarmenn stóðu sig með príði og máttu lítið vera að því að tala við ljósmyndara 625.is þegar hann kíkti við í dag. Við vonum bara að þetta framtak sé komið til að vera, því ekki vantaði "viðskipavinina" sem vildu láta þrífa og bóna bílana fyrir sig.
Myndir í myndaalbúmi

Þessa stúlkur voru á fullu við þrifin, þrátt fyrir mikla þreytu eftir að hafa vakað stóran hluta af nóttinni á unda (en sólarhingsball félagsmiðstöðvarinnar var nóttina á undan)

11.02.2010 17:15

Fleki Ferðafélagsins Trölla

Á nýrri heimasíðu Ferðafélagsins Trölla segir frá því að "Fleka leikurinn" sé komin í gang aftur. Eins og undanfarin ár snýst leikurinn um að giska á hvaða dag og klukkan hvað 40 kg steinn dettur niður um ísinn á Ólafsfjarðarvatni. Sá sem er næstur dag og tíma vinnur glæsilegan United 1 TB sjónvarpsflakkara. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Ferðafélagins.

Flekinn góði á vatninu (myndin fengin af vef Ferðafélagsins Trölla)

11.02.2010 16:58

Fundur VG á Höllinni

Í hádeginun í dag héldu þeir Björn Valur Gíslason, þingmaður og Steingrímur J. Sigfússon ráðherra fund með áhugasömum um landsmálefnin. Miklar umræður mynduðust um kvótamál og framkvæmdir ríkissins ásamt öðrum málefnum. Myndir má finna í myndaalbúmi.

Steingrímur J. Sigfússon

11.02.2010 16:40

Tilkynning til fyrirtækja í Ólafsfirði vegna öskudags

Eftirfarandi tilkynning barst frá Grunnskóla Ólafsfjarðar vegna öskudags:
---

Góðan dag

Í næstu viku rennur upp hinn árlegi öskudagur en þá hafa nemendur Grunnskóla Ólafsfjarðar, ásamt yngri börnum, heimsótt fyrirtæki og stofnanir í bænum og glatt starfsfólk með söng sínum.

Samkvæmt skóladagatali sem samþykkt var síðastliðið vor var ákveðið að kenna til hádegis og munum við fá heimsókn frá Jóhanni Breiðfjörð sem verður með kennslu í tæknilegó fyrir alla aldurshópa.  

Nemendur munu því heimsækja fyrirtæki eftir hádegi þennan dag og syngja og þiggja eitthvert góðgæti í staðinn.

Með þessum pósti er reynt að láta sem flesta er tengjast fyrirtækjum og stofnunum vita af þessari breytingu og endilega látið berast ef þið sjáið að einhvern vantar á þennan lista.

Með von um dagurinn verði skemmtilegur hér eftir sem hingað til.

Kveðja góð,

Starfsfólk G.Ó.

Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar