625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Janúar

21.01.2010 12:50

Búið að sanda Lágheiðina

Lágheiðin var sönduð í gær og því aftur orðin "fær" Vegagerðin var búin að auglýsa heiðina ófæra vegna hálku. Færið yfir núna er mjög gott og nánast autt alla leið til Siglufjarðar, nema bara yfir heiðina sjálfa.

20.01.2010 12:53

Skiptimarkaður með notaðar skíðavörur

Búið er að setja upp síðu þar sem hægt er að óska eftir og auglýsa til sölu notaðar skíðavörur. Er það Jón Valgeir sem setti upp síðuna. Hugmyndin er sú að hægt er að senda honum póst og hann setur inn fréttina. Svo er hægt að hafa beint samand við þá sem eru að auglýsa, engin umboðslaun eða neitt slíkt, bara vefur sem kemur fólki í samband við hvort annað og auðveldar sölu og kaup á notuðum skíðavörum. Slóðin á síðuna er http://skiolskiptimarkadur.blogcentral.is/

20.01.2010 00:04

Lágheiðin "ófær"

Samkvæmt vef vegagerðarinnar er Lágheiði nú álitin ófær vegna flughálku og fólki er eindregið ráðið frá því að reyna að fara yfir heiðina. Um þetta var fjallað á mbl.is og visir.is í kvöld.

18.01.2010 12:40

Flughált á Lágheiðinni

Vegna hita undafarið hefur myndast flughálka á Lágheiðinni. Eru ferðalangar því beðnir að fara varlega yfir heiðina.

17.01.2010 17:08

Skíðagallar óskast keyptir

Við auglýstum hér í morgun eftir skautum. Ekki stóð a viðbrögðunum og er Axel kominn með skauta. Þar sem þetta virkaði svona vel óskar hann eftir gönguskíðagöllum, annarsvegar á 10 ára strák sem er ca 140 cm á hæð og hinsvegar á 7 ára stelpu sem er ca 130 cm á hæð, hann hefur áhuga á að fá þessar flíkur keyptar. Síminn hjá Axel Pétri er 660 3958.

Ef þið hafið áhuga á að selja eitthvað eða vantar eitthvað er hægt að senda póst og við getum komið því á framfæri hér á síðunni.

17.01.2010 14:54

Gámasvæðið

Nokkuð hefur borið á því að rusl er skilið eftur fyrir utan gámasvæðið. Er fólk vinsamlegast beðið um að kynna sér opnunartíma svæðisins og koma með það á opnunartíma.
opnunartími gámasvæðisins er:

  • Virka daga (nema fimmtudaga) frá klukkan 13:00 -17:00
  • Laugardaga frá kl. 10:00 - 14:00.
  • Lokað á sunnudögum.

 
Sorp hefur verið skilið fyrir utan gámasvæðið ef það er lokað, slíkt háttalag er ekki viðkomandi til framdráttar og eru þeir sem eiga í hlut vinsamlegast beðnir um að gera þetta ekki, þetta er sóðaskapur.

17.01.2010 14:45

Leikur á svelli

Þessir ungu drengir nýttu veðurblíðuna í dag og skemmtu sér á svellinu sem hafði myndast á Tjörninni.




17.01.2010 11:56

Óskað eftir skautum

Óskað er eftir karlmannsskautum, nr. 43 eða 44 sem annaðhvort mætti fá lánaða eða keypta á sannngjörnu verði.  
Ef þú átt slíka skauta vinsamlegast hafðu samband við Axel Pétur.
Síminn hjá honum er 660 3958
Í þessu samhengi má taka það fram að á vatninu er búið að vera frábært skautafæri undanfarna daga. Þessi frétt hefur verið vistuð undir "kaup og sala" En þangað fara allar fréttir sem tengjast því að kaupa eða selja eitthvað.

15.01.2010 19:03

Lágheiðin mjög góð

Vegfarandi hafði samband 625.is nú rétt í þessu og vildi hæla starfsmönnum Árna Heglasonar ehf fyrir vel unnin störf á Lágheiðinni. Viðkomandi sagði að það væri nánast "kassabílafæri", þyrfti kannski vetrardekk því það væri snjór á veginum. Hann sagði að moksturinn væri algjörlega til fyrirmyndar.
Hrós vikunnar fá því starfsmenna Árna Helga og að sjálfsögðu Fjallabyggð fyrir að láta moka.

15.01.2010 18:40

Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar

Söngkeppni félagsmiðstöðvarinnar fór fram sl. miðvikudag. Voru það þær Guðrún Stefanía Jakobsdóttir (Jakobs og Döggu) og Jóhanna Lilja Pálmarsdóttir (Pálmars og Stínu) sem sigruðu keppnina. Sungu þær lagið "Meðan ég sef"
Alls tóku fimm stúlkur þátt í ár og sungu þær í mismunandi hópum. Aðrir keppendur voru: Edda Heiðrún Úlfarsdóttir (Úlla og Helgu), Aldís Vala Gísladóttir (Gísla og Röggu) og Kristbjörg Hinriksdóttir (Hinna og Bylgju)
Guðrún og Jóhanna unnu sér inn keppnisrétt í landshlutakeppni Samfés, en þann 29. janúar senda allar félagsmiðstöðvar á norðurlandi keppendur frá sinni félagsmiðstöð. Fimm keppendur fá svo áfram keppnisrétt í söngkeppni Samfés sem fer fram í Laugardalshöllinni þann 6. mars nk.
Myndir af keppendum í myndaalbúminu

Jóhanna (til vinstri) og Guðrún (til hægri)

14.01.2010 23:36

Fjallabyggð prjónuð saman

Sagt er frá því á vef Fjallabyggðar að upp hafi komið sú hugmynd að prjóna trefil sem nær á milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Yrði sá trefill um 17 km. langur. Þarna er á ferðin klikkuð hugmynd, en enga að síður frábær hugmynd. 625.is hvetur alla til að taka þátt í verkefninu.
Fréttin í heild á Fjallabyggd.is:
---
Í Fjallbyggð keppist fólk nú við að prjóna. Karlar, konur og börn, aðfluttir og fráfluttir, gamalmenni og unglingar hafa tekið upp prjónana og keppast nú við að prjóna 17 km. langan trefil. Ætlunin er að nýta trefillinn til að tengja saman byggðarkjarnana alveg frá miðbæ Siglufjarðar í gegnum Héðinsfjarðargöng inn í miðbæ Ólafsfjarðar við vígslu gangana í lok september nk. þegar göngin verða formlega opnuð.
Hugmyndina að þessu frábæra framtaki á Fríða Gylfadóttir listamaður á Siglufirði og hefur hún staðið í ströngu síðustu daga við að koma verkefninu af stað.
Eftir að byggðakjarnarnir hafa verið tengdir saman er ætlunin að búta trefillinn niður í minni trefla, þæfa þá og sauma í þá merki Fjallabyggðar og selja til  styrktar góðgerðarmála.

Hugmyndir eru uppi, um að setja upp prjóna á helstu samkomustöðum sveitarfélagsins sem hægt verði að grípa í þegar tækifæri gefst. Það má því búast við að prjónað verði á biðstofum heilsugæslunnar, á hárgreiðslustofunum, öllum verslunum, í bakaríinu, í apótekinu, í frímínútum, hjá grunnskólunum, á bifreiðaverkstæðum, og kaffistofum út allt sveitarfélagið. 

Fríða hvetur allt prjónafólk á Siglufirði, Ólafsfirði og um land allt til að sameinast og senda inn búta eða bara garn. Litir, gerð garns eða prjónamunstur skiptir ekki máli, bútarnir þurfa bara að vera 20 cm. breiðir.
Áhugasamir geta haft samband við listamanninn í síma 896-8686.
Auk þess er hægt að senda búta og garn (sem er vel þegið) á skrifstofu sveitarfélagsins Gránugötu 24 580 Siglufirði eða Ólafsveg 4 625 Ólafsfirði.

14.01.2010 23:27

Lágheiðin opnuð

Búið er að opna Lágheiðina. Veðurspáin er góð og má því ætla að heiðin verði opin í einhvern tíma. Þórir Þórisson sagði í samtali við svæðisútvarpið að Fjallabyggð hafi tekið ákvörðun um að láta moka heiðina þar sem Vegagerðin væri ekki tilbúin til þess. Er þetta því liður í þjónustu við bæjarbúa að opna heiðina. Það var verktakinn Árni Helgason hf sem mokaði heiðina.

Myndin er fengin af vef Vegagerðarinnar kl. 23:30 þann 14. janúar 2009. Þar má sjá að á Lágheiðinni er merkt inn hálka og er hún því fær.

14.01.2010 23:19

Áhugamannafélag um fugla og fuglaskoðun heldur kynningarfund

Arctic Aves kynnir.
Áhugamannafélag um fugla og fuglaskoðun í Fjallabyggð verður með kynningarfund á
Hótel Ólafsfjarðar, mánudaginn 18. janúar kl 20:00.

Kynning á starfsemi félagsins og framtíðaráform.
Fyrirhugaðar framkvæmdir í Fjallabyggð.
Önnur mál.

13.01.2010 12:10

Gunnlaug Helga keppir á RIG

RIG (Reykjavík International) er alþjóðlegt mót í frjálsum sem sýnt verður í beinni útsendingu á RÚV Laugardaginn 16. janúar.
Tveir keppendur frá UMSE voru valdir að þessu sinni og eru það Steinunn Erla Davíðsdóttir sem mun keppa í 60m hlaupi og Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir sem mun keppa í hástökki. Gunnlaug mun hefja keppni klukkan 13:00 en Steinunn á að hlaupa klukkan 13:20. Útsending hefst klukkan 13:00
Gunnlaug Helga er ein af mörgum Ólafsfirðingum sem hafa æft og keppt með UMSE undanafarin misseri.

12.01.2010 19:10

Fréttir frá Rammanum

Rammi hf. er án efa einn stærsti vinnuveitandi í Fjallabyggð. Starfsemi hans er á Siglufirði, Ólafsfirði og Þorlákshöfn. Reglulegar fréttir um það hvað sé í gangi hjá Rammanum hverju sinni munu birtast hér á 625.is á næstunni, en eftirfarandi barst frá Rammanum nú í dag:
---
Í dag landa Siglunes SI 70 og Sigurborg SH 12 rækju á Siglufirði og hefst framleiðsla í rækjuverksmiðjunni þar því nú í vikunni. Múlaberg  SI 22  er í  stórum slipp á Akureyri nú í janúar.
 
Sigurbjörg  ÓF 1  er á þorskveiðum í Barentshafinu og Mánabergið  ÓF 42 veiðir í íslensku lögsögunni.  Þorlákshafnarbátarnir Jón á Hofi ÁR 42 og Fróði ÁR 48 afla hins vegar hráefnis fyrir vinnsluna þar.
Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar