625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Janúar

31.01.2010 23:00

Fundur um viðburði í Ólafsfirði

625.is minnir á fundinn um viðburði í Ólafsfirði 2010:
---
Fundur vegna viðburða í Ólafsfirði árið 2010 verður haldinn mánudaginn 1. febrúar nk. á Brimnes Hóteli kl.20:00.
 
Þeir viðburðir sem eru á þessu ári verða til umræðu og fulltrúar fyrir þau eru endilega beðnir að mæta og kynna það sem er komið í gang hjá ykkur. Viðburðirnir eru t.d.
 
Bandýmót
Páska dagskrá
Sjómannadagshelgin
Blúshátíð
Nikulásarmót
Berjadagar
17 júní
Jólamarkaður

Forsvarsmenn annarra viðburða, stóra og smáa eru einnig hvattir til að mæta. Einnig verða ræddar hugmyndir að öðrum viðburðum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, aðstoða við einhverja viðburðina, ert með nýjar hugmyndir eða jafvel bara forvitinn um hvað er að gerast skaltu endilega mæta á fundinn. Allir velkomnir.

30.01.2010 15:49

Þorrablótið í kvöld

Þorrablót kvennfélagsins fer fram í Tjarnarborg í kvöld. Uppselt er á þorrablótið (um 220 manns) en hægt verður að kaupa sig sérstaklega inn á ballið um kvöldið. Tvöföld áhrif spila fyrir dansi til kl. 02:00 (Gulli, Maggi, Matti Matt og Halli Gulli), þetta eru því sömu strákarnir og spiluðu annan í jólum þegar Paparnir áttu að spila en komust ekki allir vegna veðurs... fengu þá viðurefnið "Platarnir".
Góða skemmtun :-)

30.01.2010 15:44

Framkvæmdir og sólaljós

Nú þegar sól hækkar á lofti eru framkvæmdir í fullum gangi í íþróttamiðstöðinni. Við smelltum af nokkrum myndum í gær þegar bæjarstarfsmenn og verktakar voru að verki við íþróttamiðstöðina. Einnig smelltum við nokkrum myndum af sólinni, en hún er þessa dagana að byrja að kíkja í bæinn og sumir því farnir að paka pönnukökur samkvæmt gamalli hefð. Myndir í myndaalbúminu.

29.01.2010 12:05

Söngkeppni Samfés á netinu

Félagsmiðstöðin Tunglið sendir keppendur í söngkeppni Samfés. Fyrst þarf að fara í gegnum landshlutakeppni á Akureyri og fara fimm keppendur áfram í aðalkeppnina í Reykjavík. Keppnin hefst kl. 19:00 í kvöld og verður hægt að hlusta á hana á voice.is
Keppendur eru Jóhanna Lilja Pálmarsdóttir og Guðrún Stefanía Jakobsdóttir.

Jóhanna og Guðrún í undankeppninni sem haldin var í félagsmiðstöðinni í Ólafsfirði.

27.01.2010 12:27

Allir á fullu að prjóna trefilinn

Nú eru fjölmargir byrjaðir að prjóna trefilinn sem á að ná milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Við sögðum frá þessu hér fyrr í mánuðinum.
Fjölmargir staðir hafa komið upp prjónakörfum. T.d. má finna tilbúna prjóna og garn á heilsugæslunni, Hornbrekku, Samkaup-Úrval, Sparisjóðnum og Hárgreiðslustofunni hjá Hófý. Aðrir sem vilja taka þátt er bent á að það er hægt að nálgast garn á bæjarskrifstofunni (frítt).

Það er listakonan Fríða á Siglufirði sem átti hugmyndina og má finna upplýsingar á síðunni hennar til að útskýra verkefnið nánar, nú síðast skrifaði hún leiðbeiningar til að taka allan vafa um hvernig trefillinn skyldi prjónaður:
---
Af vef Fríðu:
Athygli mín var vakin á því að það var ekki á hreinu hjá fólki hvað ætti að prjóna langt, hvaða garn mætti nota og hversu breiður trefillinn ætti að vera.
Svo það sé enginn misskilningur með það, þá má prjóna eins langt og hver vill. Óskin er sú að hver bútur sé um 2 metrar og yfir. En ekki skilyrði.
Það má nota allt garn. Ístex styrkja okkur rausnarlega með lopa og við ráðleggjum öllum að nota hann því hann er jú bestur vegna þess sem við ætlum að gera við trefilin eftir vígsluna. Ég banna engum að nota eitthvað annað, sumir eru jú með ofnæmi fyrir lopanum og mér þætti leitt ef það ætti að stoppa fólk í að geta verið með.
Að lokum þá verða allir bútar að vera 20 cm breiðir. Litir, munstur, aðferð er frjáls. Vona að þá sé öllum vafa eytt. Ef ekki þá hvet ég ykkur til að hafa samband og ég reyni að leysa úr því.



Myndin er fengin af vef Fríðu www.frida.is

26.01.2010 17:30

Málverk eftir Freyju Dönu

Freyja Dana (dóttir Kristjáns H Jónssonar og Ástu Helgadóttur) hefur að undanförnu verið að mála eftir mynd sem hún fann hér á 625.is
Myndin var tekin við réttir hér í Ólafsfirði sl. haust. Ef einhverj kann deili á "fyrirsætunni" væri gaman að vita hver þetta er og hver sé eigandi.
Nánari upplýsingar um Freyju Dönu má finna á www.freyjadana.is

Myndin er 60x80 og er þykkur rammi 4,5 cm.


Upprunalega myndin var tekin þegar réttað var sl. haust.

25.01.2010 17:15

Skólar sameinaðir

Á fundi bæjarstjórnar 21. janúar sl. varsamþykkt að sameina fræðslustofnanir á Siglufirði og Ólafsfirði.  Í þeim felst að Tónskóli Ólafsfjarðar og Tónlistarskóli Siglufjarðar verði sameinaðir í eina stofnun, Leikskólarnir Leikhólar og Leikskálar í eina stofnun og  Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar í eina stofnun. Við það verða þrjár fræðslustofnanir í Fjallabyggð í stað sex eins og nú er, þ.e. Tónskóli Fjallabyggðar, Leikskóli Fjallabyggðar og Grunnskóli Fjallabyggðar. Stefnt er að því að stofnanirnar taki til starfa að hausti 2010.
Nánar um sameiningu fræðslustofnana má lesa hér

Það er því ljóst að árið 2010 verður viðburðarríkt í sögu Fjallabyggðar. Héðinsfjarðargöng, sveitarstjórnarkosningar og sameining fræðslustofnana. Einnig er verið að skoða starfsemi þjónustumiðstöðva (áhaldahúsa).

Barnaskólahúsið

25.01.2010 17:14

Nikulásarmótið 2010

Eftirfarandi barst frá Leiftri:

NIKULÁSARMÓT LEIFTURS

Ólafsfirði 9. - 11. Júlí. 2010.

Í ár er Nikulásarmótið 20 ára og verður það haldið með glæsilegasta móti, mótið hefst um hádegi á föstudegi og lýkur um miðjan dag á sunnudag.
Undanfarin ár hefur aðsókn á mótið aukist til mikilla muna og hefur það aldrei verið stærra en í fyrra, því er um að gera fyrir félög að vera snemma í því að skrá inn þáttöku sína á mótinu..!

*Þátttökugjald er krónur 8.000- fyrir hvern einstakling.

Frítt er fyrir einn þjálfara með hverju liði.

Innifalið í þátttökugjaldi er m.a. mótsgjald,  gisting,  morgunmatur, hádegisverður, kvöldmatur, grillveisla og  sundmiðar.

Spilað er í A,B og C, liðum (7, 6, og 5 flokki) og er félögum heimilt að senda lið í alla flokka .

Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki,  auk þess fá allir keppendur verðlaunapening.

 Aukaverðlaun verða veitt fyrir háttvísi og framkomu.
Leiftur gefur síðan hverjum þátttakanda góða gjöf.

Þátttökutilkynningu þarf að staðfesta eigi síðar en 15. júní 2010.
Staðfestingargjald  er kr. 5.000- fyrir hvert lið.

Hlökkum til að hitta ykkur öll hress og kát á NIKULÁSARMÓTI

Einnig er hægt að fá upplýsingar á : leiftur@simnet.is

Mótanefnd

24.01.2010 18:07

Skíðastaðagangan 2010

Í gær fór fram Skíðastaðagangan 2010 á Akureyri. Gangan sem er aldursflokkaskipt var mjög fjölmenn og voru 110 þátttakendur. Boðið var upp á 3 vegalengdir, 24 km, 8 km og 4 km. Ólafsfirðingar stóðu sig vel að vanda og lönduðu nokkrum titilum.
sjá úrslit hér

22.01.2010 16:33

Þorrinn hefst

Samkvæmt gömlu tímatali þá byrjar Þorrinn alltaf á föstudegi á bilinu 19.-25. janúar. Nú fara íslendingar að halda sín árlegu Þorrablót. Leikskólinn lét ekki sitt eftir liggja og hélt veglega Þorraveislu í morgun. Krökkunum fannst flestum þetta bara fínasti matur. Svo voru þau öll búin að föndra þessu fínu "þorrahatta" og tóku þetta allt mjög hátíðlega.

22.01.2010 12:11

Opið bréf frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar

Eftirfarandi bréf barst frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar og er ætlað bæjarbúum:
---

Snjóframleiðsla í Tindaöxl  í Ólafsfirði. 

Ágæti bæjarbúi/atvinnurekandi. 

Áhugamenn um bætt aðgengi að skíðaiðkun í Ólafsfirði eru að skoða þá möguleika að framleiða snjó í neðrihluta skíðasvæðis í Tindaöxl ásamt því að bæta hluta göngusvæðis næst skíðaskála.

Við  skíðamenn í Ólafsfirði finnum verulega fyrir því snjóleysi sem hefur hrjáð okkur með verulegri fækkun iðkenda skíðafólks og þá sérstaklega barna.

Við höfum á undanförnum árum verið í ágætu samstarfi við Skíðafélag Dalvíkur og keyrt börnum þangað á æfingar, en það verður að segjast að þó það hafi gefist vel fyrir þá sem eru áhugasamastir eru, er ekki það sama að segja um almenna skíðaiðkun og sérstaklega hafa yngstu börnin verið afskipt.

Það sem er sérstakt fyrir  Ólafsfjörð er hvað gott aðgengi er að skíðasvæðinu, sem er nánast í miðbæ Ólafsfjarðar og þar af leiðandi hefur skíðaiðkun verið mikil í firðinum svo eftir hefur verið tekið. 

Skíðafélagið hefur fengið tilboð í tvær snjóbyssur frá Neskaupstað sem aldrei hafa veri settar upp þar vegna skorts á vatni í Oddskarði.

Byssurnar eru boðnar okkur fyrir 3.000.000.- (þrjár milljónir) ásamt slöngum köplum og öðrum fylgihlutum , sem er lítið brot af verði nýrra byssu, en það má reikna með að ný byssa kosti um 4.5 millj. í dag, auk fylgihluta.  

Dalvíkingar og Akureyringar hafa góða reynslu af snjóframleiðslu og hafa Dalvíkingar t.d. haldið sínu skíðasvæði opnu í allan vetur þegar ekki hefur tekist að hafa opið einn dag í Ólafsfirði.

Dalvíkingar hafa lagt um 50. millj. í svæðið hjá sér og fjármagnað það með styrkjum frá fyrirtækjum og einstaklingum t.d. gaf Sparisjóður Svarfdæla tvær byssur, en fjórar byssur eru á skíðasvæðinu og eru þær reknar með rekstrarstyrk frá 18 fyrirtækjum á Dalvík. 

Við áhugmenn um þetta erum ekki að fara að framleiða snjó í allt skíðasvæðið heldur neðra svæði að staur fjögur, en það er mjög vel til þess fallið vegna þess hvað það er gróið og aðgengilegt fyrir börn.  

Það er von okkar að fyrirtæki þitt taki vel í þessa hugmynd og styrki þannig og efli skíðaíþróttina í Ólafsfirði. 

Kær kveðja f.h. áhugamanna  

21.01.2010 19:14

Norðurljósin

Í gær mátti sjá norðurljósin í Ólafsfirði. Ljósmyndari 625.is varð að játa á sig vankunnáttu og náði ekki góðum myndum, enda um frumraun á norðurljósamyndum að ræða. Hins vegar fór mun vanari maður af stað í gær, en á síðu Gísla Kristins má sjá mjög flottar myndir af norðurljósunum frá því í gær (og eldri myndir) 
Einnig hefur Maggi Sveins verið duglegur að mynda norðurljósin í gegnum tíðina, sjá hér

21.01.2010 18:55

Þorrablót kvenfélagsins Æskunnar

Hið árlega þorrablót Kvenfélagsins Æskunnar verður haldið laugardaginn 30. janúar nk. í Tjarnarborg
Hljómsveitin Tvöföld áhrif spilar fyrir dansi... stóra spurningin er bara, hverjir eru í Tvöföld áhrif?
Búið er að skipa sveitina, en strákarnir sem komu saman á annan í jólum ballinu þegar Paparnir komust ekki ætla að koma saman aftur. Þetta eru þeir Magnús Ólafs, Gulli Helga, Matti Matt  og Halli Gulli.

Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 19:30, ballið er svo til kl. 02:00

Miðasala fer fram í Tjarnarborg miðvikudaginn 27. janúar kl. 19-21. Einnig er hægt að panta miða í síma 866-2562 (Hafdís)
Miðaverð:
Matur,skemmtun og dansleikur: kr. 6.000.-
Dansleikur: kr. 2.500.-

21.01.2010 18:46

Lágheiðin

Færðin á Lágheiðinni er fljót að breytast. Nú seinni partinn hafði rignt á heiðinni og var því svellið búið að blotna og orðið mun hálla en í morgun. Vegagerðin hefur ekki skráð hana ófæra aftur heldur varar við flughálku. Ef það verður hlítt í veðri næstu daga eru líkur á að klakinn klárist að hluta, en á mörgum stöðum vatnar lítið upp á að hann klárist. Hálkan er frekar meiri brekkuna niður Ólafsfjarðarmeginn.

21.01.2010 18:00

Viðburðir í Ólafsfirði 2010

Fundur vegna viðburða í Ólafsfirði árið 2010 verður haldinn mánudaginn 1. febrúar nk. á Brimnes Hóteli kl.20:00.
 
Þeir viðburðir sem eru á þessu ári verða til umræðu og fulltrúar fyrir þau eru endilega beðnir að mæta og kynna það sem er komið í gang hjá ykkur. Viðburðirnir eru t.d.
 
Bandýmót
Páska dagskrá
Sjómannadagshelgin
Blúshátíð
Nikulásarmót
Berjadagar
17 júní
Jólamarkaður

Forsvarsmenn annarra viðburða, stóra og smáa eru einnig hvattir til að mæta. Einnig verða ræddar hugmyndir að öðrum viðburðum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, aðstoða við einhverja viðburðina, ert með nýjar hugmyndir eða jafvel bara forvitinn um hvað er að gerast skaltu endilega mæta á fundinn. Allir velkomnir.

Nánari upplýsingar veita Hlynur Guðmunds eða Gísli Rúnar Gylfason.
Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar