|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Færslur: 2009 Desember17.12.2009 17:37Sorpvísur625.is fékk í dag sendar þrjár vísur tengdar sorphirðu. Eru fleiri hvattir til að gera slíkt hið sama (þarf ekki endilega að vera um sorphirðu) Skrifað af Gísli Rúnar 17.12.2009 17:31Framkvæmdir við íþróttamiðstöðinaÁfram var haldið að steypa tækjaklefann við íþróttahúsið í dag. Nú var verið að steypa veggina. Skrifað af Gísli Rúnar 17.12.2009 17:27JólsveinaboltiKrakkarnir í 7. flokki hjá Leiftri fengu skemmtilega heimsókn á æfingu í dag. Þangað mættu tveir jólasveinar og spiluðu við þau fótbolta. Augljóst var að sveinarnir höfðu ekki mikið æft sig en krakkarnir höfðu mjög gaman af þessu uppátæki. Myndir í myndaalbúmi. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 17.12.2009 17:25Nýtt gámasvæði í Ólafsfirði tekið í notkunÍ dag var formlega tekið í notkun nýtt gámasvæði í Ólafsfirði. Einnig tóku starfsmenn Íslenska Gámafélagsins brúnu tunnuna í bænum og var gaman að sjá hvernig tunnurnar röðuðust eftir götum bæjarins. Myndir í myndaalbúminu. Opnun gámasvæðiðsins er alla vrika daga nema fimmtudag frá kl. 13-17 og laugardaga frá 10-14. Ástæða þess að lokað er fimmtudaga er að þá er starfsmaður Gámafélagsins að taka sorptunnur í bænum. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 16.12.2009 20:31ForeldraboltiForeldrar barna í Leiftri voru komin á sparkvöllinn í dag með krökkunum. Teknar voru tækniæfingar og leikur spilaður á milli barna og foreldra. Þetta er svo sem ekki frásögufærandi nema að í dag er 16. desember og hefði verið nær, miðað við almanakið, að fjalla um að foreldrar skíðabarna væru á skíðum með þeim. Myndir í myndaalbúminu ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 16.12.2009 20:23Tölur dagsins í lukkuleiknumLukkutölur í dag 16. des. eru: A: 738 B:393 Lukkutölur í dag 15. des. eru: A:432 B:229 Athugið að ef þið veljið "Aðsent" flokkinn hér til hægri þá sjáið þið allar færslur sem tengjast lukkuleiknum. Skrifað af Gísli Rúnar 15.12.2009 17:10JólatrjáasalaGróðrarstöðin Sólskógar verður með jólatráasölu við Tjarnarborg föstudaginn 18. desember milli 16-20. Seldur verður Normansþinur, Blágreni og greinar. Einnig verða veitingar seldar í Jólahúsinu við Tjarnarborg. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 11.12.2009 16:36Tölurnar í lukkuleiknumHér kemur helgarskammturinn af lukkuleikstölunum: Skrifað af Gísli Rúnar 11.12.2009 12:25Mogomusic gefur eitt Jólalag í jólagjöfMogoMusic í Ólafsfirði (Maggi Hildar) hefur ákveðið að gefa öllum sem vilja eitt jólalag í jólagjöf. Það er gaman að segja frá því að hann gerir þetta á Degi íslenskrar tónlistar sem er einmitt í dag. Lagið heitir: Á Jólunum Söngur Gunnlaugur Helgason. Lag: Magnús G Ólafsson. Texti: Guðrún Pálína Jóhannsdóttir.
Bassi og raddir Gunnlaugur Helgason. Píanó og Orgel Stefán Þórsson. Kassa og rafgítarar Magnús G Ólafsson. Skrifað af Gísli Rúnar 11.12.2009 12:20Sorphirðu vísurÆtli það sé ekki óhætt að segja að fáar kaffistofur hafi verið undanskildar því að ræða sorpmál hér í Ólafsfirði á undanförnum vikum. Nú þegar búið er að taka upp nýtt þriggja tunnu kerfi. Þessar tvær vísur urðu til á bæjarskrifstofunni og eru allir sem eiga góðar skemmtilegar vísur (ekki síst um sorpmál) hvattir til að senda hingað inn. Það má taka það fram til að fyrirbyggja misskilning að í litla græna dallinn fer lífrænt sorp sem fer svo í brúnu tunnuna. Að lokinni máltíð ég leifarnar set Í litla dallinn græna. Í hann má fara allt sem ég ét, Í Fjallabyggð tunnurnar rokka Að finna út saman er fróðlegt og gaman hvernig flokka á götótta sokka Skrifað af Gísli Rúnar 10.12.2009 12:58Framkvæmdir við Múlatind - iðnaðarhurð óskastBifreiðaverkstæðið Múlatindur er að stækka við sig. Undanfarna daga hafa þeir verið að reisa grindina fyrir húsinu. Vantar þeim iðnaðarhurð að stærðinni 330*350. Ef þið vitið um einhvern sem gæti átt slíka og vildi losna við hana er hægt að hafa samband við Steina Magg í síma: 848-4367. Skrifað af Gísli Rúnar 10.12.2009 12:51Ólafsfirðingar tóku þátt í ofurgönguOfurganga SKA var haldin á Akureyri sl. helgi. Ofurgangan er skíðagöngukeppni þar sem markmiðið er að ganga sem flesta kílómetra á 5 klst. Nokkrir Ólafsfirðingar kepptu undir nafni Skíðafélags Ólafsfjarðar og sigraði Sigurbörn Þorgeirsson keppnina með því að fara 77,7 km á þessum 5 klst. Nánari upplýsingar um gönguna má finna á http://vasa2000.blogcentral.is/. Hér eru úrslit keppninnar:
Skrifað af Gísli Rúnar 10.12.2009 12:47Tölurnar í lukkuleiknumLukkutölurnar 9. og 10. des: 9.des A: 150 9.des B: 605 10.des A: 427 10.des B: 190 Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||