625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2009 Desember

29.12.2009 16:15

Jólamót Leifturs

Jólamót Leifturs var haldið 28. desember. Um er að ræða unga drengi sem eru/hafa eða munu kannski spila með Leiftri. Mótið er gert til að hafa gaman og fékk 625.is send úrslit mótsins ásamt helstu tilnefndingum:

Eftirfarandi barst:
---

Kæru meðlimir..
Þá er Jólaboltanum lokið þetta árið. Það voru 28 sem mættu þetta árið og var spilað hefðbundið 6 á móti 6 kerfi. Úrslitin og Viðurkenningar eru klárar og hefur nefndin talað.

1.sæti: Bláa liðið: Ásgeir Frímans,Kjartan Helga,Ingimar Elí,Kristófer Beck,Friðrik Örn,Kristófer Númi og Kolbeinn Arnbjörns.
Stig: 19 stig
Markatala: Skoruð 17 Fengin 3 = + 14

2.sæti: Græna liðið: Ingi Valur,Stefán Atli,Orri Rúnars,Stefán Gunnar,Óli Mey og Jón Árni
Stig 13 stig
Markatala: Skoruð 11 Fengin 9 = +2

3.sæti: Rauðir: Sigmundur Jóns,Albert Ara,Halldór Guðmunds,Axel Birgis,Viktor Freyr,Baldvin Gunnars.
Markatala: Skoruð 15 Fengin 10 = +5

4.sæti: Gula liðið: Heiðar Gunnólfsson,Lúðvík Rikka,Hilmir Óla,Konni Gotta,Jóhann Elísar,Kristinn"stinni" Sigurðsson og Helgi Már Guðmunds.
Stig: 5
Markatala: Skoruð 9 Fengin 14 = - 5

Eins og sést bersýnilega unnu bláir þetta og nokkuð sannfærandi og voru alíka góðir og Gulir voru lélegir!

Viðurkenningar mótsins.

Markakóngur: Kolli/Bláa liðið

Leikari mótsins: Ásgeir "drogba" Frímans/Bláa liðið

Bjartasta Vonin: Orri Rúnars/Grænaliðið

Tapsárasti: Heiddi Gunn/Gulaliðið

Markmaður mótsins: Kjartan Helga/Bláa liðið

Nýliðinn: Baldvin Gunnars

Sá Jákvæðasti: Abbi Ara

Mark mótsins: Ingimar(einróma)

Leikur mótsins: Rauðir Vs Gulir= 3-1 forysta Gula fór í 4-3 á mínútu!

Flottustu Búningarnir: Grænir fyrir grænu þröngu vestin

Samstuð mótsins: Stefán Gunnar vs Kolli

VONIN SEM BRÁST: INGI FREYR OG KRISTJÁN HAUKS (HVAR VORU ÞEIR)!!

Liðið: Bláir (Einnig einróma)

Klúður: 1-2 sæti Hilmir Óla og Ásgeir"drogba" Frímans

Leikmaður mótsins: Kolbeinn Arnbjörns..


Takk fyrir mótið, sjáumst að ári
Kveðja Nefndin!


Hér má finna tapsárasta leikmanninn, enda ekki vanur að tapa "sá gamli" :-)

29.12.2009 16:10

Stjórn Golfklúbbs Ólafsfjarðar 2010

Aðalfundur Golfklúbbs Ólafsfjarðar var haldinn í gær (28. des). Þar var kosið í stjórn félagsins. Allir þeir sem höfðu lokið stjórnarsetu gáfu kost á sér til áframhaldandi setu og er því stjórnin óbreytt milli ára. Félagsgjöld voru hækkuð á bilinu 5-10% (þó minnst á börn og unglinga), enda verður klúbburinn að koma til móts við hækkandi rekstarkostnað.

Stjórn G.Ó árið 2010:
Rósa Jónsdóttir, Formaður
Sigurbjörn Þorgeirsson, Varaformaður
Guðrún Unnsteinsdóttir, Gjaldkeri
Ásgeir H. Bjarnason, ritari
Skarphéðinn Aðalbjörnsson, meðstjórnandi

Björg Traustadóttir er varamaður stjórnar

28.12.2009 12:20

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar verður í Sandhól eins og undanfarin ár, opnunartími verður:

Mánudaginn 28. desember: 14-19
Þriðjudaginn 29. desember: 14-21
Miðvikudaginn 30. desember: 14-21
Fimmtudaginn 31. desember: 11-14 (Gamlársdagur)

28.12.2009 12:15

Sorp flokkun

Nú þegar Ólafsfirðingar flokka sorpið hafa margar spuringar vaknað. Á heimasíðu Fjallabyggðar má finna ýmis svör við því í hvaða tunnu hlutirnir eiga að fara.
625.is langar að benda á að jólapappírinn má fara í grænu tunnuna. Það þarf að setja hann sér í glæran poka og svo í grænu tunnuna.
Einnig má benda á að á ýmsum umbúðum er að finna mjög góðar leiðbeiningar um það hvort það sé hægt að endurvinna umbúðir. T.d. er að finna á Quality Street (Mackintosh's) leiðbeiningar um að bréfin utan af namminu sé hægt að jarðgera og því mega þau fara í brúnu tunnuna.

28.12.2009 12:10

Aðalfundur Golfklúbbs Ólafsfjarðar

Aðalfundur Golfklúbbs Ólafsfjarðar verður haldinn í UÍÓ húsinu mánudaginn 28. desember kl. 20:00.

26.12.2009 00:40

Annar í jólum

Það er margt að gerast annan í jólum í Ólafsfriði:

  • Jólaball Leifturs verður í Tjarnarborg kl. 15:00 (dansað í kringum jólatré, jólasveinar og fjör)
  • Herrakvöld Leifturs verður á Hótelinu frá 20:30-23:30
  • Dagurinn endar svo með Papaballi í Tjarnarborg. Húsið opnar kl. 23:00

24.12.2009 10:59

Gleðileg jól

Gleðilega Hátíð

625.is óskar lesendum, bæjarbúum og landsmönnum öllum Gleðilegra Jóla

24.12.2009 10:50

Jólaþorpið í "Barnaskólanum"

Það hefur verið hefð í Grunnskólanum (Barnaskólahúsinu) í nokkurn tíma að setja upp jólaþorp. 625.is kíkti við rétt fyrir jóin og tók mynd af þorpinu:
 

24.12.2009 10:34

Papaball í Tjarnarborg annan í jólum

Laugardaginn 26. desember (annan í jólum) verður haldið ball með hljómsveitinni Pöpum í Tjarnarborg í Ólafsfirði. Það má því segja að Gulli Helga og "strákarnir" séu enn og aftur komnir til að spila á balli í Ólafsfirði, (þó ekki Gulli og Maggi), en eins og fram hefur komið hér á síðunni þá spilar Gulli á bassa með Pöpunum. Forsala miða er í Úrval Ólafsfirði og kostar miðinn kr. 2.500.-

24.12.2009 10:04

Lukkuleikur - lokatölur

Hér koma lokatölur í lukkuleik Leifturs (birt með fyrirvara um innsláttarvillur)
1.des A 331 13.des A 24 Aukavinningur 1 156
1.des B 63 13.des B 502 Aukavinningur 2 537
2.des A 632 14.des A 11 Aukavinningur 3 350
2.des B 731 14.des B 26 Aukavinningur 4 116
3.des A 325 15.des A 432 Aukavinningur 5 456
3.des B 218 15.des B 229 Aukavinningur 6 209
4.des A 205 16.des A 738 Aukavinningur 7 157
4.des B 101 16.des B 393 Aukavinningur 8 295
5.des A 278 17.des A 655 Aukavinningur 9 348
5.des B 380 17.des B 747 Aukavinningur 10 478
6.des A 528 18.des A 600 Aukavinningur 11 87
6.des B 357 18.des B 458
7.des A 736 19.des A 654
7.des B 8 19.des B 420
8.des A 643 20.des A 27
8.des B 363 20.des B 327
9.des A 150 21.des A 225
9.des B 605 21.des B 576
10.des A 427 22.des A 185
10.des B 190 22.des B 177
11.des A 89 23.des A 273
11.des B 457 23.des B 531
12.des A 761 24.des A 60
12.des B 772 24.des B 80

23.12.2009 12:05

Jólapóstur Leifturs

Leiftur mun taka við pökkum fyrir jólasveinana í Tjarnarborg í dag frá kl. 17-23. Engin verðbólga eða kreppa hefur haft áhrif á verð þeirra, sama verð og undanfarin ár, 50 kall fyrir bréfið og 350 fyrir pakkann. Jólasveinarnir bera svo pakkana/bréfin út á aðfangadag milli 11-14.

Svo má ekki gleyma Þorláksmessuskötunni á Hótelinu og Höllinni í hádeginu og um kvöldið í dag.

21.12.2009 17:33

Herrakvöld Leifturs

Herrakvöld Leifturs verður 26. desember (annan í jólum) á hótelinu. Eftirfarandi barst frá Leiftri:

Herrakvöld Leifturs verður haldið á Hótel Ólafsfirði frá kl. 20:30-23:30 á 2. í jólum (26. des)
Rosaleg skemmtiatriði

  • Sverrir Mansa ekki verðandi leikmaður Leifturs verður veislustjóri af öðrum atriðum má nefna:
  • Kolbein Arnbjörnsson, verðandi leikari.
  • Ingi Freyr Hilmarsson, verðandi leikmaður í Norsku neðri deildunum.
  • Das brothers verðandi leikmenn Leifturs
  • Upprifjun frá Leiftursævintýrinu
  • Gítarleikur og söngur að hætti Ólafsfirðinga.
  • o.fl. skemmti atriði sem koma á óvart.

Aðgangseyri er 1500 innifalið í því er fordrykkur í boði Hótel Ólafsfjarðar.

Allir kallar ungir sem aldnir, Leiftursmenn, núverandi og fyrverandi (ef þeir eru til), eða bara þeir sem hafa gaman að söng, frábærum skemmtiatriðum og góðri kvöldstund í góðra manna hópi,  ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA OG HAFA GAMAN.  Góð upphitun fyrir Papa ballið á eftir (sem verður í Tjarnarborg)

LEIFTUR

21.12.2009 11:44

Græna tunnan tekin í Ólafsfirði 22. desember

Grænan tunnan verður tekin í Ólafsfirði þriðjudaginn 22. desemer, ekki 23. og 24. desember eins og áður hafði verið auglýst í sorphirðudagatali. (frétt af fjallabyggd.is)

19.12.2009 16:57

Tölur dagsins

Hér eru þær tölur sem eru komnar í lukkuleiknum:

1.des A 331 13.des A 24
1.des B 63 13.des B 502
2.des A 632 14.des A 11
2.des B 731 14.des B 26
3.des A 325 15.des A 432
3.des B 218 15.des B 229
4.des A 205 16.des A 738
4.des B 101 16.des B 393
5.des A 278 17.des A 655
5.des B 380 17.des B 747
6.des A 528 18.des A 600
6.des B 357 18.des B 458
7.des A 736 19.des A 654
7.des B 8 19.des B 420
8.des A 643 20.des A 27
8.des B 363 20.des B 327
9.des A 150 21.des A  
9.des B 605 21.des B  
10.des A 427 22.des A  
10.des B 190 22.des B  
11.des A 89 23.des A  
11.des B 457 23.des B  
12.des A 761 24.des A  
12.des B 772 24.des B  

18.12.2009 21:19

Skólameistari Framhaldsskólans

Alls bárust sjö umsóknir um starf skólameistara við Framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð (þ.e, Ólafsfirði) mennta- og menningarmálaráðherra mun skipa í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar nk. Umsækjendur voru:

Elías Gunnar Þorbjörnsson, meistaranemi (Sonur Önnu Maríu og Þorbjörns)
Jón Eggert Bragason, aðstoðarskólameistari við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ
Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Ólafsfjarðar
Lára Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri
Lind Völundardóttir, meistaranemi
Margrét Lóa Jónsdóttir, verkefnastjóri (Núverandi kennari við Framhaldsskólann í Ólafsfirði)
Pétur Ingi Guðmundsson, aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Flettingar í dag: 1598
Gestir í dag: 234
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901547
Samtals gestir: 181139
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar