|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Nóvember11.11.2009 12:39SpilavistÍþróttafélagið Leiftur stendur fyrir spilavist öll þriðjudagskvöld í UÍÓ húsinu (húsið við knattspyrnuvöllin). Byrjað er að spila kl. 20:00 og eru allir velkomnir. Það kostar kr. 600 að vera með og er veitt verðlaun fyrir besta og versta skor kvöldsins í báðum kynjaflokkum. Skrifað af Gísli Rúnar 09.11.2009 19:45Ný skoðanakönnunVið spurðum hér á síðunni hversu vel fólki þætti sameiningin hafa tekist. rúm 50% finnst hún hafa gengið ill eða mjög illa, tæp 18% finna engan mun og rúm 30% finnst hafa tekist vel eða mjög vel til.
Nú er ný skoðanakönnun komin í loftið. Það væri gaman að fá að vita hvernig þið fréttuð af þessari síðu, endilega að taka þátt. Einnig ef þið hafið ábendingar um það hvernig við getum látið vita af síðunni. Við fengum ábendingu um að setja síðuna á facebook og umferðin tvöfaldaðist. En Facebook vinir 625 eru orðnir á fjórða hundraðið. Skrifað af Gísli Rúnar 09.11.2009 16:59Skilti fyrir allar stærðir625.is fékk senda þessa skemmtilegu mynd. Nú virðist ekki skipta máli hvaða stærð bílstjóri eða bíllinn er, það ættu allir að sjá skiltið þegar þeir koma akandi niður Hornbrekkuveginn. Mynd: Magnús A Sveinsson Skrifað af Gísli Rúnar 07.11.2009 21:01Hrekkjavökuball hjá félagsmiðstöðinni625.is kíkti við nú rétt í þessu á hrekkjavökuball hjá félagsmiðstöðinni. Myndir komar í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 07.11.2009 16:19Tindur gefur út "Harmleikur í Héðinsfirði"Bókaútgáfan Tindur gefur út fyrir jólin bókina "Harmleikur í Héðinsfirði" eftir Margréti Þóru Þórsdóttur. Bókin fjallar um mannskæðasta flugslys sem orðið hefur á Íslandi, þegar Douglas vél Flugfélags Íslands fórst í hlíðum Hestsfjalls í Héðinsfirði 29. maí 1947 og með henni 25 manns, þar af 3 börn. Lítið hefur verið fjallað um slysið þar til nú en höfundur bókarinnar, Margrét Þóra Þórsdóttir, hefur viðað að sér ýmsum nýjum upplýsingum. Ljóst er að hér er á ferð átakanleg saga um grimm örlög Nánar um bókina HÉR Skrifað af Gísli Rúnar 05.11.2009 17:42Næstu sýningar á BarParÍ kvöld (fimmtudag) verður 3. sýning á BarPar hjá Leikfélagi Ólafsfjarðar. Sýningin hefst kl. 20:00 og er í Tjarnarborg. Þær sýningar sem eru eftir er svo á föstudaginn og sunnudaginn (sama tímasetning). Skrifað af Gísli Rúnar 04.11.2009 22:57Jólabærinn ÓlafsfjörðurVið sögðum frá því hér í gær að fundur hafi verið haldinn um jólahús og aðventuna, hér er bréfið sem verður sent í öll hús í kvöld. Jólamarkaðurinn verður laugardaginn 28. nóvember frá kl. 14:00-18:00 (ath. hann verður ekki 26. nóvember eins og áður var auglýst). Skráning á markaðinn stendur yfir hjá fræðslu- og menningarfulltrúa (Karítas) í síma 464-9200 eða á karitas@fjallabyggd.is Kveikt verður á jólatrénu þennan dag og hefst dagskrá kl. 16:00. Ný jólahús við Tjarnarborg verða formlega tekin í notkun. Boðið verður uppá kakó og piparkökur.
Jólahúsin:
Aðventudagskráin: Ólafsfirðingar eru orðnir þekktir fyrir vel skreyttan bæ. Látum ekki deigan síga í ár og skreytum fyrir 28. nóvember! Karítas Skarphéðinsdóttir Neff Fræðslu-og menningarfulltrúi Skrifað af Gísli Rúnar 04.11.2009 17:17Neyðarkall BjörgunarsveitannaFrá Björgunarsveitinni
--- Fimmtudaginn 5.nóvember hefst sala á Neyðarkallinum í fjáröflunarskyni fyrir björgunarsveitir landsins. Björgunarsveitin Tindur mun ganga í hús í Ólafsfirði dagana 5. til 8. nóvember auk þess að selja neyðarkallinn fyrir utan Samkaup/Úrval á fimmtudag og föstudag. Neyðarkallinn kostar 1.500 kr og rennur hluti söluverðisins beint til BSV Tindur. Við vonumst til að fólk taki vel á móti okkur nú eins og áður og styðji sína heimasveit í þessari árlegu fjáröflun björgunarsveita landsins. Skrifað af Gísli Rúnar 04.11.2009 12:34Framkvæmdir við Sundlaugina í ÓlafsfirðiÍ vikunni var skrifað undir samning við GJ smiði um byggingu tækjarýmis og aðrar frakvæmdir við sundlaugina í Ólafsfirði. Um er að ræða nauðsynlega framkvæmd vegna breytinga á hreinsibúnaði sundlaugarinnar.
Þegar vitað var að þessi framkvæmd yrði á dagskrá varið ákveðið að teikna upp framtíðarskipulag á svæðinu. Þar má nefna nýja heita potta, rennibraut, lendingarlaug og nýbyggingu undir líkamsrækt. Þær framkvæmdir sem er verið að gera í þessari lotu og hefur verið samið við GJ smiði um er bygging tæknirýmis, frágangur girðingar, steypa upp potta og lendingarlaug. Tæknirýmið verður hannað þannig að það er hugsað sem undirstaða fyrir rennibrautina, þannig að í næsta áfanga þarf bara að koma rennibrautinni fyrir þar sem búið verður að gera grunninn fyrir hana. Áætlað er að þetta svæði verði tekið aftur í notkun fyrir sumarið. Hérna má sjá grunnmynd af svæðinu eins og það mun koma til með að líta út í framtíðinni Skrifað af Gísli Rúnar 03.11.2009 22:18Gefins skrifborðBjörgunarsveitin Tindur hefur verið að breyta og lagfæra aðstöðu sína við Aðalgötu undanfarna þriðjudaga. Nú eru tvö afgangs skrifborð sem sveitin mun ekki nota og verður hent ef enginn vill taka þau. Þeir sem hafa áhuga á borðunum geta haft samband við Tomma Einars í síma 863-3119 Borðin tvö Skrifað af Gísli Rúnar 03.11.2009 12:50Kynning á sorpmálumFréttatilkynnning frá Íslenska Gámafélaginu: Áður verður búið að dreifa handbók um nýtt fyrirkomulag sorphirðu í Fjallabyggð. Mjög mikilvægt er að varðveita vel sorphirðuhandbókina. Hún veitir almennar upplýsingar um flokkun, hvernig kerfið virkar og aðrar gagnlegar upplýsingar. Til að fræðslan verði sem skilvirkust bendum við íbúum á að kynna sér bæklinginn áður en ráðgjafar Íslenska Gámafélagsins koma í heimsókn. Einnig verður hægt að fá ráðgjöf í síma 577 5757 eða með því að senda tölvupóst á netfangið igf@igf.is. Við hlökkum til að sjá þig, Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins Skrifað af Gísli Rúnar 03.11.2009 12:48Aðalfundi Skíðafélagsins frestaðAðalfundi Skíðafélags Ólafsfjarðar sem vera átti 4. nóvember, hefur verið frestað til 18. nóvember. 03.11.2009 12:17Fundur um jólahús og aðventunaHaldinn var fundur með hinum ýmsum félögum og samtökum þar sem kynntar voru hugmyndir um jólahús sem áætlað er verði sett upp við planið hjá Tjarnarborg. Einnig voru ræddar ýmsar hugmyndir um hvað hægt sé að gera á aðventunni, þar voru nefndar hugmyndir á borð við námskeið í laufabrauðsgerð, hangikjötsgerð og jólasveinanámskeið. Bæjarbúar mega búast við bréfi um þessi mál og fleiri þar sem málið verður kynnt betur. Við munum birta bréfið hér á síðunni þegar það verður tilbúið. Reiknað er með að húsin verði smíðuð í sjálfboðavinnu (en búið er að kaupa efnið), stefnt er að því að byrjað verði að vinna við smíði á húsunum fimmtudaginn 5. nóvember en öll hjálp verður vel þegin (þetta mun koma nánar fram í bréfinu). Skrifað af Gísli Rúnar 03.11.2009 11:52Aðalfundur Skíðafélags ÓlafsfjarðarAðalfundur Skíðafélags Ólafsfjarðar verður haldinn á miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í Skíðaskálnum við Tindaöxl og eru venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá. Skrifað af Gísli Rúnar 02.11.2009 18:31Ljósmyndanámskeið í ÓlafsfirðiÞórhallur Jónsson ljósmyndari og eigandi Pedromynda á Akureyri hélt námskeið fyrir notendur Canon EOS myndavéla. Þátttaka var með ágætum en 9 manns mættu á námskeiðið hjá honum. Námskeiðið var haldið heima hjá Gísla Kristins og Röggu Vestmann (Þórhalldur er mágur Röggu). Þeir sem voru á námskeiðinu voru mjög ánægðir með það og mæla hiklaust með því. Þórhallur er alltaf reglulega með námskeið á Akureyri og er hægt að fylgjast með því hvenær þau eru á www.pedromyndir.is, einnig eru pedromyndir á Facebook. Þórhallur (og já myndin á að vera svona, enda var þetta eitt af því sem kennt var á námskeiðinu þegar verið var að fræðast um ljósop myndavélarinnar) Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|