|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Október10.10.2009 10:14Bandýlið fær sektirLið Krúsó (Valberg/Kristbjörg/Samkaup-Úrval) átti frábæra hugmynd að búningum á síðasta bandýmóti. Þeir komu sem steinaldarfjölskyldan Flinstones. Ekki væri þetta frásögu færandi nema að þau voru á bíl sem var "knúinn með eigin vélarafli". Bíllinn hefur staðið fyrir utan netaverkstæðið frá því í vor. Í sumar var heilbrigðiseftirlitið á staðnum að biðja fólk um að fjarlægja gamla bíla, ekki varð þessi "kaggi" úttundan, enda löngu komin til ára sinna (fyrst hann er nú frá steinaldartímabilinu). Skrifað af Gísli Rúnar 09.10.2009 16:01Íbúðir til leigu eða sölu hjá FjallabyggðFjallabyggð auglýsir á vef sínum eftirfarandi húsnæði til leigu eða sölu:
Ólafsvegur 30, íbúð 201, Ólafsfirði Íbúðin er 114.3 ferm. 5 herbergja, í fjölbýlishúsi Húsaleiga er 66.783 Íbúðin er laus Ólafsvegur 30, íbúð 203, Ólafsfirði Ólafsvegur 28, íbúð 104, Ólafsfirði Bylgjubyggð 57, Ólafsfirði Aðalgata 52, Ólafsfirði Umsóknarfrestur vegna leigu er til og með 24. október 2009 Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Fjallabyggðar eða í símum: Skrifað af Gísli Rúnar 08.10.2009 14:02Jóni Hróa fagnaðVel var tekið á móti landsliðsmanni okkar í Áströlskum fótbolta, eins og venja er þegar landslið gerir það gott á erlendri grundu. Eins og fram hefur komið hér á síðunni þá gerði Jón Hrói "okkar" Finnsson góða hluti með Íslenska landsliðinu í Áströlskum fótbolta í Króatíu sl. helgi. Vinnufélagar hans á bæjarskrifstofunni tóku að sjálfsögðu vel á móti honum, þetta minnti einna helst á þegar tekið var á móti "strákunum okkar", nema það vantaði nokkur þúsund upp á fjöldann. Gleðin og stoltið var hins vegar ekkert minna en þá. Skrifað af Gísli Rúnar 08.10.2009 10:54Búið að opna Múlagöngin afturÓlafsfjarðargöng (Múlagöng) voru opnuð aftur í morgun en þeim var lokað í um ellefuleytið í gærkvöld eftir að grjót úr klæðningu féll á veginn. Bifreið var ekið inn í grjóthrúguna en ökumaðurinn slapp sem betur fer ómeiddur. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þurfti að fjarlægja eitt vörubílshlass af grjóti áður en að göngin voru opnuð. Skrifað af Gísli Rúnar 08.10.2009 09:47Ólafsfirðingar þurfa að borga fyrir fréttablaðiðBreytingar verða gerðar á dreifingu Fréttablaðsins í lok mánaðarins. Verður blaðinu áfram dreift frítt á þéttbýlisstöðum á suðvesturhorninu og á Akureyri en á öðrum stöðum á landinu mun blaðið fást í lausasölu á kostnaðarverði. Þetta þýðir væntanlega að fréttablaðið verði til sölu í Ólafsfirði. Það verður enga að síður að teljast til aukinnar þjónustu við bæjarbúa, því Fréttablaðið var hætt að koma til Ólafsfjarðar því þar búa svo fáir! Frétt mbl.is um málið má finna hér Mynd: mbl.is/Arnaldur Skrifað af Gísli Rúnar 08.10.2009 09:33Hrun í Ólafsfjarðargöngummbl.is sagði frá því í morgun að steypuklæðning hafi hrunið úr Múlagöngunum í gærkveldi. (Þeir tala reyndar um Ólafsfjarðragöng en göngin heita Múlagöng) Frétt mbl.is: Steypuklæðning í Ólafsfjarðargöngum hrundi niður á ellefta tímanum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að göngin lokuðust. Einn bíll skemmdist töluvert þegar hann keyrði á brotna klæðninguna en engin slys urðu á fólki. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru nú við störf í göngunum en ekki er vitað hvenær þau verða opnuð á ný. Samkvæmt lögreglunni á Akureyri var lengi vel óttast að meiri steypuklæðning gæfi sig og hryndi niður. Eina færa leiðin nú til Ólafsfjarðar sé yfir Lágheiði, sem er talsverður krókur, þar sem gamli Múlavegurinn er lokaður. Skrifað af Gísli Rúnar 08.10.2009 09:23Félagsráðgjafi hjá FjallabyggðNýr starfsmaður hefur hafið störf við félagsþjónustuna.Starfsmaðurinn heitir Júlía Sæmundsdóttir og er félagsráðgjafi að mennt. Júlía tók formlega til starfa þriðjudaginn 6. október og verður hún með starfsaðstöðu á bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði. Skrifað af Gísli Rúnar 07.10.2009 22:02Nýtt myndbandÞað er alveg óhætt að segja að "lífið" í bænum hafi aukist með tilkomu framahaldsskóla í Ólafsfirði. Krakkarnir eru dugleg að "dunda sér" við hitt og þetta. Í síðustu viku sögðum við frá falinni myndavél sem tengdist húsasorpi. Nú ákváðu þau að bleyta aðeins í bæjarbúum og mynduðu að sjálfsögðu allt. Myndbandið má sjá hér. Skrifað af Gísli Rúnar 07.10.2009 20:18Vitnað í hús í Ólafsfirði í kvöldfréttum stöðvar 2Í frétt stöðvar 2 í kvöld þar sem fjallað var um skuldir ríkisins var vitnað í íbúðaverð húseignar í Ólafsfirði. Talað er um að skuldir ríkisins á næsta ári verði það miklar að ef hún deilist jafnt á alla Íslendinga þá verði skuldin 5,5, milljónir króna á haus. Fyrir það fé væri hægt að kaupa fallegt timburhús í Ólafsfirði. Skrifað af Gísli Rúnar 06.10.2009 22:54Fjallabyggð vinnur að fjárhagsáætlunargerð 2010Fjallabyggð er að auglýsa eftir að þeir einstaklingar og félagasamtök sem hafa hug á að sækja um styrki eða framlög vegna starfsemi ársins 2010 er bent á að senda inn umsóknir til bæjaryfirvalda í síðasta lagi 19. október n.k. Skrifað af Gísli Rúnar 05.10.2009 13:25Sorphirða í FjallabyggðEftirfarandi frétt birtist á vef Fjallabyggðar í síðustu viku og því ljóst að breytingar verða á sorpmálum Ólafsfirðinga (og Siglfirðinga). --- Í lok ágúst voru opnuð tilboð í sorphirðu í Fjallabyggð, tilboð bárust frá þremur aðilum og nokkur frávikstilboð frá þeim þar að auki. Ákveðið hefur verið að ganga að tilboði Íslenska gámafélagsins ehf í sorphirðu og sorpeyðingu í Fjallabyggð og er félagið þegar komið með sýna gáma til Siglufjarðar og taka við á Ólafsfirði núna á allra næstu dögum. Skrifað af Gísli Rúnar 04.10.2009 19:08Íslendingar góðir í áströlskum fótboltaVið sögðum frá því hér á síðunni að Jón Hrói Finnsson væri úti í Króatíu að keppa í Áströlskum fótbolta með íslenska landsliðinu. Árangur þeirra verður að teljast glæsilegur en Ísland sigraði lið Ítalíu, Frakklands og liðið Krossfarar Evrópusambandsins (e. EU Crusaders), en tapaði fyrir Þýskalandi og Hollandi sem lenti í öðru sæti í keppninni. Ísland vann við þetta hinn svokallaða Bowl Cup bikar og kom mjög á óvart í keppninni. mbl.is fjallaði um málið í dag og má skoða það nánar hér. Skrifað af Gísli Rúnar 03.10.2009 16:38Það snjóar í ÓlafsfirðiÞað heldur áfram að snjóa og það er orðið frekar vetrarlegt í Ólafsfirði þessa stundina. Skrifað af Gísli Rúnar 02.10.2009 23:01Fjallabyggð keppir í útsvari 21. nóvemberFjallabyggð mun taka á móti Akranesi 21. nóvember nk. Liðið er að þessu sinni skipað Guðmundi Ólafssyni leikar, Þórarni Hannessyni kennara og Ingu Eiríksdóttur kennara. Í ár erum við því með sömu liðskipan og á fyrsta árinu. Akranesliðið er skipað þeim Eiríki Jónssyni, Reyni Jónssyni og Sigríði Jónsdóttur. Skrifað af Gísli Rúnar 02.10.2009 22:57Ómar Ragnarsson í Tjarnarborg 3. októberÓmar Ragnarsson verður ásamt fylgdarliði í Tjarnarborg, Laugardaginn 3. október og opnar húsið kl. 20.30. Miðasala er við innganginn. Verði aðgöngumiða er stillt í hóf kr.2500. Ólafsfirðingar og nærsveitarmenn geta rifjað upp gamla og góða stemmingu frá því fyrir hálfri öld síðan. Auðvitað fljóta með glens og spaugileg atriði frá skemmtunum Ómars í gegnum tíðina. Ómar skemmti í fyrsta sinn utan höfuðborgarsvæðis í Ólafsfirði á sínum tíma.Nú rúmum 800 héraðsmótum og Sumargleðiskemmtunum síðar ætlar Ómar að halda upp á þetta sérstaka afmæli og heiðra Ólafsfirðinga með hátíðarskemmtun í Tjarnarborg, laugardaginn 3. október nk. Hann hefur þegar rifjað upp fyrstu skemmtun sína í Reykjavík. Athugið; Aðeins þessi eina skemmtun í boði. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1598 Gestir í dag: 234 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901547 Samtals gestir: 181139 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 20:13:52 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|