|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 September21.09.2009 12:46Gunnlaug fær Silfur í Nýsköpunarkeppni GrunnskólanemaVið sögðum frá því hér um daginn að Gunnlaug Ásgeirsdóttir (Ásgeirs Loga og Stínu) hafi tekið þátt í nýsköpunarkeppni Grunnskólanema og var valin úr hópi 2.700 ásamt 43 öðrum hugmyndum til að taka þátt í vinnusmiðju. Gunnlaug fór suður nú um helgina og fékk silfur verðlaun fyrir hugmynd sína, sokkaíklæðarann í flokknum "slysavarnir". Hægt er að lesa meira um keppnina á www.nkg.is Verðlaunahafar í nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda 2009, mynd fengin af www.nkg.is Skrifað af Gísli Rúnar 19.09.2009 15:07Réttir625 kíkti í réttir nú rétt í þessu (við Kálfsá). Verið var að setja kindurnar á bíla og koma þeim í burtu. Myndir komnar í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 18.09.2009 14:37Framkvæmdir við SundlaugFramkvæmdir við eru að hefjast við sundlaugina. Um er að ræða uppgröft fyrir tækjaklefa, uppsteypu tækjaklefa og standsetningu á sundlaugargarði við sundlaugina.Þýðir þetta að báðir pottarnir verða ekki notaðir í vetur. Hægt verður að fara í sund, vaðlaugina og gufu. Ekki hefur þetta áhrif á ræktina eða íþróttasalinn. Reikna má með því að töluvert ónæði verði af framkvæmdunum í vetur. Við munum fylgjast með framgangi mála og koma með fleiri myndir þegar framkvæmdir verða lengra komnar. Skrifað af Gísli Rúnar 18.09.2009 14:32Fjallað um framhaldsskólannRúv fjallaði um framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð og ræddi við krakkana í Ólafsfirði um málið í aðalfréttatíma Ríkissjónvarpsins sl. þriðjudag. Hægt er að horfa á fréttina hér: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497751/2009/09/15/13/ Skrifað af Gísli Rúnar 17.09.2009 13:21Eldur í bílUm klukkan tíu í morgun var slökkvilið Fjallabyggðar (Ólafsfjarðarmegin) kallað út. Um var að ræða eld í bíl sem var staðsettur í múlanum. Engin slys urðu á fólki en bíllinn (sem var að koma með brauð í bæinn) er talinn ónýtur. Þessi frétt birtist á vef mbl.is í hádeginu: Eldur kviknaði í litlum sendibíl sem átti leið um Ólafsfjarðarmúla í morgun. Bíllinn var staddur Dalvíkurmegin við göngin þegar eldurinn kom upp. Lögreglunni var tilkynnt um brunann klukkan 9.54 og fór slökkvilið frá Ólafsfirði á vettvang. Einn maður var í bílnum og mun hann hafa sloppið óskaddaður. Bíllinn mun vera mjög illa farinn að sögn lögreglunnar á Akureyri. Nú er verið að sækja bílinn upp í Ólafsfjarðarmúla og verður hann fluttur til byggða með vörubíl. Skrifað af Gísli Rúnar 15.09.2009 19:28Tónleikar sauðfjárbænda í HringveriÍ fyrra ákváðu sauðfjárbændur í bænum að gera sér glaðan dag/kvöld í Hringveri eftir langar og strangar göngur. Tókst svo vel til og skemmtu menn sér svo vel að leikurinn verður endurtekinn á laugardaginn en þá verða skemmtilegir "tónleikar" í Hringveri frá kl. 10-01. Stúlli og Dúi munu spila til klukkan eitt. Skrifað af Gísli Rúnar 14.09.2009 21:39Aðalgatan hefur verið hreinni!Ekki er falleg Aðalgatan þessa dagana. A.m.k. ekki sá hluti hennar sem verið er að keyra efni eftir, í snjóflóðavarnargarðinn fyrir ofan Hornbrekku. Mikil drulla kom með bílunum í rigningum síðustu daga og þegar hún þornar er fínt ryk og möl sem situr eftir. Þessar myndir er teknar fyrir utan hjá Steina Ásgeirs (Aðalgötu 35) til vesturs og til austurs. Eins og sést er fín möl/ryk í kantinum (Horft til vesturs að gangnamuna) Horft til austurs eftir Aðalgötu Skrifað af Gísli Rúnar 14.09.2009 21:32Fleiri framkvæmdirÞessar myndir voru teknar í kvöld. Eins og fram hefur komið á síðunni er bílaverkstæðið Múlatindur að stækka við sig og er að koma mynd á grunninn. Einnig er verið að vinna í nýju gámasvæði við hafnarvogina. Skrifað af Gísli Rúnar 09.09.2009 21:3250 km/klst á AðalgötunniGlöggir bæjarbúar hafa tekið eftir því að umtalsvert af nýjum skiltum hafa litið dagsins ljós í sl tvo daga. Verið er að setja skilti við gatnamót á Aðalgötunni. En eins og fram hefur komið á síðunni þá hefur verið ákveðið að Aðalgatan verði með hámarkshraðann 50 km/klst en restin af bænum 35 km/klst. Skrifað af Gísli Rúnar 09.09.2009 21:18Framkvæmdir í FjallabyggðÝmsar framkvæmdir eru í gangi í Fjallabyggð þessa dagana. Verið er að klæða Höllina, undirbúa að steypa gangstéttir og fleira til. Myndirnar tala sínu máli Skrifað af Gísli Rúnar 09.09.2009 17:11Leikfélagið setur upp sýninguAðalfundur Leikfélags Ólafsfjarðar fer fram í húsi þeirra í strandgötu kl. 20:00 fimmtudaginn 10. september nk. Þar verður rætt starf vetrarins, en það stendur til að fá Guðmund Ólafsson (Gumma Fjólu) til að leikstýra verki í vetur. Allir þeir sem hafa áhuga á að starfa með leikfélaginu í vetur eru hvattir til að mæta. Skrifað af Gísli Rúnar 06.09.2009 20:11SlökkviliðsnámskeiðBrunamálastofnun hélt námskeið á Siglufirði um helgina. Námskeiðið stóð frá föstudegi til sunnudags. Slökkviliðsmenn frá Fjallabyggð og fleiri stöðum tóku þátt í námskeiðinu. Um var að ræða verklegt og bóklegt námskeið. Myndir komnar inn í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 06.09.2009 19:40Meistarmóti Íslands 11-14 ára í FrjálsumNú eru komnar inn myndir af Íslandsmeisturum félagsliða frá Meistarmóti Íslands 11-14 ára. UMSE er Íslandsmeistari í þessum flokki og er það fyrsta landsbyggðarliðið sem vinnur þetta mót í fjöldamörg ár. Einnig er þetta í fyrsta skipti sem UMSE nær þessum titli. UMSE liðið er samansett úr Ólafsfirðingum, Dalvíkingum, Ströndungum,Hörgdælingum, Arnarneshreppskrökkum, Eyfirðingum,Svalbarðsströnd og einn er frá Grenivík. Þessir krakkar vinna sem eitt lið og einn maður. Mótið fór fram á Höfn Í hornafirði 15-16 ágúst. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 05.09.2009 21:53Haustið komiðHaustið skráði sig formlega inn í nótt/morgun. Þegar bæjarbúar vöknuðu var heldur kuldalegt um að litast og var frost á bílum bæjarins. Þetta átti þó eingögnu við þá sem vöknuðu fyrir hádegi, því veðrið í dag var alveg frábært, sól og blíða. Skrifað af Gísli Rúnar 05.09.2009 21:46Hestamönnum kynnt skipulag hesthúsahverfisEftirfarandi tilkynning barst 625.is: Hestamenn Ólafsfirði Fundarboð
Fundur verður haldinn í Tuggunni mánudaginn 07.09.2009 kl 20.00.
Fundarefni: Valur Hilmarsson fer yfir Skipulag í hesthúsahverfi og hugmyndir vegagerðar um lokafrágang á svæðinu.Áríðandi er að sem flestir mæti.
Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1590 Gestir í dag: 231 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901539 Samtals gestir: 181136 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|