|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 September30.09.2009 21:57Jón Hrói keppir með íslenska landsliðinu í Áströlskum fótboltaJón Hrói Finnsson (Þróunarstjóri Fjallabyggðar) fer með fyrsta landsliði Íslands í áströlskum fótbolta til Samobor Króatíu á morgun til að taka þátt í EU Cup 2009. Jón Hrói kynntist áströlskum fótbolta í Danmörku árið 1995 og spilaði með "Farum Lions" fram til ársins 1996. Þá fluttist hann til Íslands aftur vegna atvinnutilboðs rétt áður en liðið spilaði til úrslita og vann danska meistaratitilinn. Jón sér enn dálítið eftir því, sérstaklega í ljósi þess að yngri bróðir hans getur státað af meistaratitlinum en ekki hann! Hann fluttist til Danmerkur aftur árið 1997 og gekk fljótlega eftir það til liðs við Aarhus Bombers, og spilaði með því liði fram til ársins 2004. Jón Hrói spilaði með Danska landsliðinu árin 1996, 2001, 2002 og 2003, þar á meðal á Atlantic Alliance Cup árið 2001 og á International Cup í Ástralíu árið 2002. Hann hefur spilað 95 deildar- og landsleiki í fullri lengd og auk þess um 50 leiki í hraðkeppnum þar sem spilaðir eru styttri leikir. Hér er hægt að sjá lekferil Jóns Hróa Bróðir Jóns, Páll Tómas Finnsson er einnig í landsliðinu. Hann hefur orðið danskur meistari með "Farum Lions" árið 1996 og franskur meistari árið með "Paris Cockerels" 2009. Hann spilaði með danska landsliðinu 1996-2008 og var valinn í heimsliðið á International Cup 2009 í Ástralíu. Skrifað af Gísli Rúnar 30.09.2009 21:44Nú er það svart, það er allt hvíttÍ morgun þegar bæjarbúar vöknuðu var frekar kuldalegt um að litast. Snjóað hafði og allt orðið hvítt. Skrifað af Gísli Rúnar 29.09.2009 13:11Hefndin er sætVið sögðum frá því hér á síðunni fyrr í vikunni að þjálfarar Leifturs hafi vakið nokkra krakka með hávaða og látum. Krakkarnir sem lentu þar fyrir verknaði þeirra ákváðu að svara fyrir sig. Þau tóku á það ráð að plasta bílinn þeirra bræðra og lét Ingimar þá falla þau orð að "nú væru þau búin að byrja stríð sem ekki væri hægt að vinna" Skrifað af Gísli Rúnar 29.09.2009 13:11Fréttir af HéðinsfjarðargöngumSiglfirski fréttavefurinn sksiglo.is greindi frá fundi Samfylkingarmanna sem fram fór í gær, en þar var m.a. samgönguráðherra, Kristján Möller. "Varðandi göngin sagði Kristján Möller að Vegagerðin væri í gjörgæslu og hefði hnífurinn víða komið niður. Þar að auki hefur hrun íslensku krónunnar komið mjög illa niður á þeim verktökum sem koma að Héðinsfjarðargöngum og að á tímabili hafi útlit verið fyrir að samningar næðu ekki fram að ganga. Í dag náðist hinsvegar loksins sá áfangi að endursamið var við bæði Metrostav og Háfell um að vinna áfram að verkinu. Varðandi verklok kom lítið fram annað en það að verkáætlun mun liggja fyrir næstkomandi fimmtudag en dagsektir fyrir verkið hafa hinsvegar verið færðar aftur um tvo og hálfan mánuð, eða til 30. september 2010. Ljóst er því að um enn eina seinkunina er að ræða." texti er tekinn úr frétt á Siglfirska fréttavefnum www.sksiglo.is: Skrifað af Gísli Rúnar 29.09.2009 13:08Bátsmannstríóið á Siglufirði gefur út diskHvað er lífið? er nafn á nýjum geisladiski sem Bátsmannstríóið hefur gefið út. Bátsmannstríóið er frá Siglufirði (hinum hluta Fjallabyggðar) Skrifað af Gísli Rúnar 29.09.2009 00:16Búið að steypaNú er búið að steypa gangstéttina við norðurenda Hlíðarvegs. Skrifað af Gísli Rúnar 29.09.2009 00:03Æfing hjá LeikfélaginuLeikfélag Ólafsfjarðar æfir stíft þessa dagana verkið BarPar eftir Jim Cartwright. Guðmundur Ólafsson (Gummi Fjólu) leikstýrir verkinu. Stefnir leikfélagið á frumsýningu 30. október nk. Myndir frá æfingu í kvöld komnar inn í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 28.09.2009 14:12Umsjónarmaður félagsstarfs 16-20 áraFjallabyggð auglýsir laust starf: Laust er til umsóknar starf umsjónarmanns félagsstarfs 16-20 ára ungmenna í Ólafsfirði. Vinnutími yrði 2,5 klst. á þriðjudagskvöldum (þar af er 0,5 klst. í frágang og undirbúning). Laun eru greidd skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Um tímabundið starf sem er á þróunarstigi, er að ræða og því möguleiki á því að starfið breytist um næstu áramót. Starfið felst í viðveru og samstarfi við ungmennin um félagsstarfsemi þeirra. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2009. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar og á vef sveitarfélagsins og skal umsóknum skilað á bæjarskrifstofur Fjallabyggðar að Ólafsvegi 4, Ólafsfirði. Nánari upplýsingar veitir Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 464-9200 eða á bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði. http://www.fjallabyggd.is/is/news/atvinna_-_felagsstarf_ungmenna_i_olafsfirdi/ Skrifað af Gísli Rúnar 25.09.2009 17:45Framkvæmdir við Brimnes"Bóndinn" á Brimnesi (Sigurjón Magnússon) er að breyta innkeyrslunni inn að húsinu hjá sér. En eins og margir vita þá endurgerði hann upp gamla ættaróðalið fyrir nokkrum árum á Brimnesi. Nýja aðkeyrslan að húsinu Búið að loka gömlu innkeyrslunni og á að græða upp bakka þar. Skrifað af Gísli Rúnar 25.09.2009 17:38"Vakning"Lokahóf yngri flokka Leifturs fór fram í Tjarnarborg í gær, í tilefni dagsins ákváðu þeir bræður Ingimar og Kristófer (Helgu Ingimars og Hlyns) að vekja nokkur börn í bænum og til að vera vissir um að þau myndu ekki sofa yfir sig (Lokahófið var kl. 18:00 þennan sama dag). Á þessari slóð má sjá hvernig þeir vöktu verðandi knattspyrnustjörnur Íslands. http://leiftur.blogcentral.is/blog/2009/9/25/myndbandid-goda/ Skrifað af Gísli Rúnar 24.09.2009 16:57Snjóflóðavarnargarðurinn fyrir ofan HornbrekkuMargir hafa velt fyrir sér hvaða áhrif snjóflóðavarnargarðurinn fyrir ofan Hornbrekku munu hafa á umhverfið þegar hann verður klár. Það getur verið erfitt að átta sig á því að vinnusvæðið fyrir ofan Hornbrekku eigi eftir að líta aftur þokkalega út, enda um mikið rask að ræða. Þessar myndir ættu að sýna nokkurn vegin hvernig þetta mun koma til með að líta út. Það er hins vegar alveg ljóst að um gríðarlegt mannvirki er að ræða og því hverfur þetta aldrei alveg inn í landslagið. Einnig er hér mynd af stóra og litla bola á Siglufirði, en hönnun þeirra þykir hafa tekist einstaklega vel enda falla þeir vel í landslagið. Stóri og Litli Boli á Siglufirði Skrifað af Gísli Rúnar 23.09.2009 17:42Lokahóf yngri flokka LeiftursTilkynning frá Leiftri: Veitt verðaverðlaun Nú er um að gera fyrir foreldra, ömmur og afa, frænkur og frændur, bræður og systur að mæta og berja Knattspyrnustjörnur framtíðarinnar augum og eiga með þeim góða stund. Skrifað af Gísli Rúnar 23.09.2009 17:34Framkvæmdir við SundlaugÁrni Helga heldur áfram að grafa við Sundlaugina, vel gengur að moka upp eins og sést á þessum myndum. Skrifað af Gísli Rúnar 23.09.2009 17:25Gangstétt í HlíðarvegiNú er verið að undirbúa það að steypt verði gangstétt við norðurenda Hlíðarvegsins. Alltaf hefur vantað að klára þessa stétt út götuna og verið að bæra úr því núna. Einnig verður bætt einum ljósastaur við endann. Horft til suðurs út Hlíðarveg Horft til Norðurs við norðurenda Hlíðarvegs Skrifað af Gísli Rúnar 21.09.2009 13:03Stígurinn við knattspyrnuvöll malbikaðurVerið var að Malbika stíginn við Knattspyrnuvöllinn í hádeginu. Með þessu móti lagast til muna aðgengi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur til og frá Hornbrekku. Búið að var að taka mesta hallan við Hornbrekku þannig að brekkan er mjög aflíðandi. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1590 Gestir í dag: 231 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901539 Samtals gestir: 181136 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|