|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
03.09.2010 07:20Vangaveltur625.is fékk senda eftirfarandi grein: --- Mætingin á leiki KS/Leifturs í sumar hefur verið þokkaleg en ekkert meira en það. Sú var tíðin að Leiftur spilaði í úrvalsdeild og þá voru gríðarlega margir á leikjum á Ólafsfjarðarvelli, en oft heyrðust óánægju raddir að það væru ekki neinir heimamenn í liðinu og til hvers ætti að mæta á völlinn þar sem ekki væru neinir heimamenn að spila. Nú undanfarin ár hefur KS/Leiftur nær eingöngu byggst upp á heimamönnum og lítið hefur séðst til þessara ágætu manna á vellinum, sömu manna og voru að gagnrýna Leiftur hvað mest. Því má vel velta sér upp úr því hvort fólk vill frekar byggja upp liðið eingöngu á heimamönnum eða byggja upp liðið á aðkomumönnum með hugsanlega betri árangri? Víkingur Ólafsvík hefur verið spútnik lið sumarsins hér á Íslandi og mikil stemming hefur náðst um liðið í Ólafsvík, m.a. mættu um 1000 manns á leik hjá þeim í bikarkeppninni á dögunum, en hvernig er það lið byggt upp? Þeir eru með 7 eða 8 útlendinga í sínu liði, svo hafa þeir fengið tvo leikmenn að láni frá Stjörnunni og tvo frá Víking Reykjavík. Það eru ekki margir heimamenn í því liði. Því veltir maður fyrir sér hvort það sé ekki bara árangurinn sem skiptir öllu máli? Við höfum valið að fara þá leið að spila nær eingöngu á heimamönnum eins og áður hefur komið fram og hvetjum við Fjallbyggðinga til þessa að arka á völlinn og kíkja á þessa stráka sem eru að leggja mikið á sig við æfingar og standa sig mjög vel á vellinum. Og síðast en ekki síst eru úr FJALLABYGGÐ. Virðingarfyllst Þorvaldur Þorsteinsson í m.fl. ráði KS/Leifturs Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 399 Gestir í dag: 128 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800616 Samtals gestir: 160847 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:53:53 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|