625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

11.08.2010 08:36

KS/Leiftur

Næsti leikur KS/Leifturs verður á Ólafsfjarðarvelli á sunnudag klukkan 14:00, þegar Völsungur frá Húsavík kemur í heimsókn. Frítt verður á leikinn og hvetjum við alla Fjallbyggðinga til að mæta og hvetja okkar stráka. Leikir liðsins eru nær undantekningarlaust mikil skemmtun. Ekkert lið í efstu þremur deildum hefur boðið upp á jafn mörg mörk í sínum leikjum og KS/Leiftur eða að meðaltali rúm 4 mörk í leik. á meðan t.d. eru skoruð 2 mörk að meðaltali í leikjum hjá Keflavík  og 2,8 mörk að meðaltali í leikjum hjá KR.   Þannig að það má segja að mesta stuðið sé á leikjum KS/Leifturs í öllum deildum Íslandsmótsins.

---
Umfjöllun um síðasta leik:

Það var hart barist í frábærum knattspyrnuleik á Varmárvelli í kvöld. Þar mættust heimamenn í Aftureldingu og KS/Leiftur.

KS/Leiftur og Aftureldingarmenn þurfa á stigunum að halda til þess að forðast botnbaráttuna en ansi þétt er um liðin um miðja deild. Sigur í leiknum hefði því farið langt með að gulltryggja sæti í deildinni að ári.

Aðeins var liðið á fimmtu mínútu leiksins þegar fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. Þá skoraði Fannar Baldvinsson eftir sendingu frá Sævari Frey Alexanderssyni. Fannar gerði vel í því að elta uppi boltann inn fyrir vörnina og nýtti hann sér misskilning hennar og Nezir Ohran í marki KS/Leifturs.

Jafnræði var á liðunum eftir þetta og sköpuðu þau bæði færi til þess að skora annað mark leiksins upp úr þessu. Birgir Ragnarsson skaut í hliðarnet KS/Leifturs úr góðu færi og Eiríkur Magnússon átti gott skot að marki Aftureldingar sem Skarphéðinn Magnússon varði vel.

Annað mark leiksins kom hins vegar á 38. mínútu og það var af dýrari gerðinni.
Sókn Aftureldingar var þung á gestunum og varði Nezir til að mynda vel á marklínu en í aðdraganda þess barst boltinn til Atla Freys Gunnarssonar sem tekur bakfallsspyrnu í vítateignum. Boltinn fór til Arnórs Þrastasonar sem klippti boltann glæsilega niður í markhornið. Óverjandi fyrir Nezir og staðan 2-0 fyrir heimamenn.

KS/Leiftur fengu síðan algjöra gjöf rétt fyrir hálfleik þegar Gunnar Davíð Gunnarsson misreiknaði boltann í vörn Aftureldingar og Skarphéðinn Magnússon kom engum vörnum við þegar Milan Lazarovic potaði boltanum framhjá honum af stuttu færi. Mikilvægt fyrir gestina að skora mark stuttu fyrir hálfleik. 2-1.

Það tók síðan gestina aðeins sjö mínútur að jafna leikinn. Góð sending rataði á kassann á Þórð Birgisson og afgreiddi hann boltann glæsilega efst í fjærhornið. Staðan nú orðin 2-2 og galopinn leikur.

Þeir rauðklæddu létu sér ekki segjast þrátt fyrir mótspyrnuna því Alexander Davorsson skoraði mark eftir að hafa verið á vellinum í tíu mínútur, eða á 63. mínútu. Þá barst boltinn til hans eftir gott spil upp vinstri kantinn og hann lét vaða af 25 metra færi og söng boltinn í markvinklinum. Frábært mark og aftur voru KS/Leiftur lentir undir 3-2.

Einkenndist leikurinn nú af baráttu og var ljóst að gestirnir ætluðu ekki að sætta sig við tap í leiknum.

Þeir uppskáru jöfnunarmark á 83. mínútu þegar Þórður Birgisson skoraði sitt annað mark. Nú afgreiddi hann fyrirgjöf með tánni framhjá Skarphéðni í markinu. 3-3 og enn tími fyrir sjöunda markið!

Undir lokin hefðu KS/Leiftur svo getað stolið sigrinum en Skarphéðinn varði vel yfir markið í eitt skiptið af stuttu færi og annað skot gestanna rataði rétt framhjá markinu. Heimamönnum tókst heldur ekki að skora og niðurstaðan því jafntefli.  En bæði lið spiluðu skemmtilegan fótbolta í kvöld og buðu upp á frábæra skemmtun fyrir áhorfendur.

Eftir leikinn eru KS/Leiftur í 5. sæti deildarinnar með 22 stig eftir.

Flettingar í dag: 399
Gestir í dag: 128
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800616
Samtals gestir: 160847
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:53:53

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar