625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

09.08.2010 17:10

Meira frá þorrablóti vetrarins

Nú er hægt að sjá annað myndband frá þorrablótinu í vetur. Í þetta sinn eru það Mundavísur sem urðu fyrir valinu, en þar er það Sturla Sigmundsson í gerfi Vals Hilmars, umhverfis- og garðyrkjufræðing að syngja um ýmsa byrjunarerfiðleika sem tengjast nýju sorphirðunni sem var tekin upp í vetur.
Hér má sjá myndbandið og svo kemur textinn hér fyrir neðan:

Mundavísur

Mundi minn láttu ekki rusla dalla ergja þig
þó að þú hafir ei galla á það ekki að við um mig.
Rusl og drasl verður að flokka annars býsna illa fer
...og Mundi megum við Maggi ekki koma og hjálpa þér.

Mundi inn, elsku Mundi minn.

Ekki tók Mundi tiltali og vildi ekki hlusta á rök.
Allt í eina tunnu hann setti fannst það ekki koma að sök.
Þarna var mælirinn fullur Mundi hlýða verður þú
...og Mundi, þú veist það vel að við Maggi höfum á þér trú.

Mundi inn, elsku Mundi minn.

Núna fór loksins að birta
Smátt og smátt hann byrjaði
í kringum húsið fór hann að snyrta, flokka og skila kyrjaði
Og nú er allt hreint og fagurt rusla tunnurnar hefur þrjár.
... og mundi þú veist að nú eru ekki allar ferðirnar til fjár.

Mundi inn, elsku Mundi minn.

Flettingar í dag: 399
Gestir í dag: 128
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800616
Samtals gestir: 160847
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:53:53

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar