|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
11.05.2012 14:14Vel heppnað íbúaþingUm 30 ungmenni komu saman á íbúaþingi sl. miðvikudag og ræddu um málefni ungs fólks í Fjallabyggð. Meðal umræðuefna var skólamál, umhverfismál, aksturs, menning íþróttir og tómstundir. Þingið var haldið að frumkvæði ungmennaráðs Fjallabyggðar og stefnir svo ungmennaráðið að kynna bæjrstjórn niðurstöður þingsins. Myndir komnar í myndaalbúmið. Að þessu tilefni er tilvalið að vísa í texta sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng sínum tíma: Ég held við ættum stundum að hlusta aðeins betur á hugrenningar þeirra sem erfa skulu land því kannski er næsta kynsklóð, kynslóðin sem getur komið fram með svörin þar sem sigldum við í strand lagið með Villa má hlusta á hér: ![]() Góðar umræður í gangi Skrifað af Gísli Rúnar 11.05.2012 12:37Sóknarmenn og þjálfari KFÁ miðvikudag birtum við kynningu á varnarmönnum KF fyrir sumarið í sumar og í gær birtum við kynningu á miðjumönnum félagsins. Þetta voru þeir leikmenn sem tóku þátt í fyrsta bikarleik KF í sumar, einnig á félagið mikið af ungum strákum í 3ja flokk sem væntanlega koma til með að banka á dyrnjar hjá m.fl. í sumar. En nú er komið að sóknarmönnum KF sumarið 2012 og þjálfara. Sigurbjörn Hafþórsson Þórður Birgisson Arnór Egill Hallsson Þjálfara KF þarf vart að kynna en hann er Lárus Orri Sigurðsson Skrifað af Gísli Rúnar 10.05.2012 07:30Miðjumenn KFÍ gær kynntum við varnarmenn og markmenn KF fyrir sumarið 2012 nú er komið að miðjumönnum KF, þó að stundum geti leikmenn spilað fleiri stöður þá er þetta líklegasta uppstillingin. Trausti Örn Þórðarson Páll Sindri Einarsson Pálmar Hafþórsson Heiðar Gunnólfsson Halldór Logi Hilmarsson Jóhann Örn Guðbrandsson Agnar Sveinsson Eiríkur Ingi Magnússon Gabríel Reynisson Skrifað af Gísli Rúnar 09.05.2012 23:29Kynning á leikmönnum KFNú þegar Íslandsmótið er að hefjast hjá meistaraflokki karla (n.k. laugardag á Húsavík) er gott fyrir íbúa Fjallabyggðar að kynna sér aðeins hverjir koma til með að sprikla á vellinum fyrir okkur í sumar. Í dag tökum við fyrir markverðina og varnarmennina í KF Markverðirnir verða tveir að berjast um stöðuna. Annars vegar Halldór Guðmundsson, fæddur 1992 og hinsvegar Hugi Jóhannesson sem fenginn hefur verið að láni frá KR, fæddur 1992 Halldór t.v. Hugi t.h. Í vörninni koma til með að spila Arnar Geir Ásgeirsson, fæddur 1991 og Kristján Vilhjálmsson, fæddur 1988 Magnús Blöndal, fæddur 1989 og Sigurjón Fannar Sigurðsson, fæddur 1990 og fyrirliðinn Milos Glogavac, fæddur 1980 Á morgun munum við svo birta miðjumenn KF tímabilið 2012, síðan á föstudag verður komið að sóknarleikmönnunum. Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 22:34Sauðburður í fullum gangiNú þegar sauðburður er í fullum gangi kíktum við í heimsókn í félagsbúið "Sex í Sveit", en þeir eru með aðstöðu í Burstabrekku. Nú þegar hafa þrjú lömb skriðið í heiminn, en þau verða á fjórða tug þegar þau eru öll komin og mun það gerast á næstu dögum. Myndir komnar í myndaalbúmið. ![]() Sætasta parið í bænum :-) Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 22:31KF áfram í bikarnumKF vann nokkuð þægilegan og öruggan sigur á Drangey nú í gærkvöldi, í fyrsta alvöru leik sumarsins. Nokkuð mikið var í húfi því sigur í þessum leik þýddi að sigurliðið tæki á móti Þór miðvikudaginn 16. maí.Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir KF því strax á 5 mín, gerðu leikmenn Drangey sig seka um mistök í vörninni og Sigurbjörn Hafþórsson komst inni í sendingu varnarmanna, hann rendi boltanum mjög óeigingjarnt á Arnór Egil Hallsson sem gat ekki annað en skorað og KF komið yfir, margir héldu eftir þessa byrjun að yrði því þægilegur dagur sem væri framundan fyrir okkar drengi. En það var nú ekki svo. Drangeyjar strákar komust hægt og bítandi inní leikinn án þess þó að skapa sér mikið af færum. En voru hreint ekki síðri það sem eftir lifði hálfleiksins. Lárus Orri þjálfari KF var ekki par sáttur með sína drengi í hálfleik. Hann lét þá vel heyra það og skilaði það sérágætlega inn í síðari hálfleikinn. En drengirnir úr skagafirðinum gáfust samt ekki upp og voru nokkuð hættulegir fram á við, alveg þangað til KF bætti við öðru marki en það eru pínu áhöld um hver skoraði það mark, því Magnús Blöndal átti fasta sendingu fram völlinn á félaga sinn Arnór Egil Hallsson sem virtist aðeins snerta boltann eða a.m.k. fipa markmanninn þannig að boltinn fór beint fram hjá honum og í autt markið. Eftir þetta mark tóku okkar drengir öll völd á vellinum og komu 3 mörk á síðustu 15 mínútum leiksins, fyrst var það Sigurjón Fannar Sigurðsson sem skoraði eftir góða hornspyrnu Eiríks Inga Magnússonar, því næst var komið að þætti Sigurbjörns Hafþórs, sem bætti við tveimur mörkum annars vegar eftir hörku skot frá Páli Einarssyni, sem er kominn að láni tilKF frá ÍA og síðan bætti hann við öðru marki sínu og 5. marki KF eftir hornspyrnu aftur var það Eiríkur Magnússonsem gaf fyrir. Drangeyjar menn skoruðu reyndar eitt mark undir lokinn og lokatölur því 5-1, nokkuð sannfærandi en samt erfiður sigur. Markmiði leiksins var þó náð en það var að komast áfram í næstu umferð og spila við Þórsara miðvikudaginn 16. maí en sá leikurverður væntanlega spilaður í Ólafsfirði, en nánar um það síðar. Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 13:08Kuldalegt í firðinumÞessi kuldalega mynd var tekin á farsíma í morgun, enda frekar kuldalegt þegar Ólafsfirðingar vöknuðu í morgun. Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 12:46Íbúaþing ungmenna í FjallabyggðÍbúaþing ungmenna í Fjallabyggð verður haldið í Tjarnarborg miðvikudaginn 9. maí kl. 17:00 Hvetjum ungt fólk á aldrinum 14-25 ára að mæta og láta í ljós skoðanir sínar Þú þarft ekki að vita neitt um pólitík, bara segja hvað ÞÉR finnst :-) Hvað finnst þér þurfa að leggja áherslu á í sveitarfélaginu? Hvað vantar? Rútuferðir í boði fyrir og eftir íbúaþingið (farið kl. 16:10 frá Siglufirði og til baka að þingi loknu) Þátttakendur fá svo Pizzu í lok þings
Ungmennaráð Fjallabyggðar Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 12:45Vísindaveisla í TjarnarborgHáskólalestin heimsækir Fjallabyggðdagana 11. og 12. maí. Fyrri daginn sækja nemendur í efstudeild Grunnskóla Fjallabyggðar námskeið í Háskóla unga fólksins, en síðari daginn, laugardaginn 12. maí verður mikil Vísindaveisla í Tjarnarborg, Ólafsfirði, skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna kl. 12 - 16. Þarna verður m.a. Sprengjugengið landsfrægaog magnað stjörnutjald, eldorgel, furðuspeglar, leikir, þrautirog margt fleira. Vísindaveislan er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Skrifað af Gísli Rúnar 07.05.2012 12:10Isabel Rock með sýningu í listhúsinuLaugardaginn 12. maí n.k., kl. 14:00, opnar Isabel Rock sýningu á verkum sýnum í Listhúsi í Fjallabyggð. Hún kemur frá Bretlandi og hefur dvalið í Listhúsi undanfarnar vikur og unnið að verkum sínum þar. Opnunartímar: Laugardagur 12. maí, 14:00-16:00 Sunnudagur 13. maí, 14:00-18:00 Laugardagur 19. maí, 14:00-18:00 Sunnudagur 20. maí, 14:00-18:00 Föstudagur 25. maí, 16:00-18:00 Vinsamlegast hafið samband í síma 8449538 sé óskað eftir að skoða sýninguna á öðrum tímum. Nánar um Isabel Rock http://www.listhus.com/artists/Isabel_Rock/ http://www.art1821.com/ http://isabelrock.blogspot.com/ Skrifað af Gísli Rúnar 05.05.2012 21:14Fyrsti alvöru leikur sumarsinsÞegar sumarið kemur bregða krakkar á leik. Það á einnig við um fótboltann. Meistaraflokkur karla leikur sinna fyrsta alvöru leik í sumar þegar bikarkeppni KSÍ hefst nú á sunnudag hjá KF. Þrátt fyrir að bæði Ólafsfjarðarvöllur og Siglufjarðarvöllir komi vel undan vetri eru þeir ekki klárir í leikinn sem verður nú á sunnudag og því þarf að spila leikinn í Boganum á Akureyri. Andstæðingar KF í þessum fyrsta alvöru leik eru ungir strákar úr Skagafirði. Vinni KF leikinn verður næsti leikur á móti Þór sem eins og margir vita fóru í úrslitaleikinn í bikarkeppninni í fyrra. Það er því mjög verðugt verkefni að taka vel á drengjunum frá Sauðárkróki í Boganum á sunnudag klukkan 18:00. Hvetjum alla stuðningsmenn KF til að mæta á leikinn í Boganum og styðja við bakið á okkar strákum í KF. Skrifað af Gísli Rúnar 27.04.2012 22:51Fjallabyggð full af öldungumÖldungamót verður haldið í Fjallabyggð og Dalvík
um helgina. Vel á annað hundar lið eru skráð til leiks og er gert ráð fyrir að vel yfir þúsund manns mæti á svæðið í kringum mótið. Mikið verður um að vera um helgina og er hægt að fylgjast með á heimasíðu mótins: http://www.trolli2012.is Þess má geta að íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar verða lokaðar föstudag til og með mánudags vegna mótsins. Opið verður i Ólafsfirði frá 14-18 þriðjudaginn 1. maí. Skrifað af Gísli Rúnar 27.04.2012 22:49Síðasta sýning á "sex í sveit"Leikfélag Ólafsfjarðar sýnir lokasýningu á hinum sprenghlægilega farsa Sex í sveit í Tjarnarborg laugardaginn 28. apríl kl. 21:00. Skrifað af Gísli Rúnar 27.04.2012 22:36Undanúrslitaleikur hjá KF í lengjubikarnumNú á laugardag kemur KF til með að spila við HK í undanúrslitum Lengjubikarsins. Leikurinn hefst klukkan 17:00 í Boganum Akureyri. Árangur KF fram til þessa í Lengjubikarnumhefur verið framar vonum og væri gaman ef KF myndi fara alla leið og spila til úrslita í næstu viku. Dómarar í leiknum verða Jan Eric Jessen og honum til aðstoðar verða Sverrir Gunnar Pálmason og Páll Valþór Stefánsson. Eitthvað er um meiðsli í herbúðum okkar manna og er öruggt að Þórður Þórðarsson kemur ekki til með að spila með KF, eins er óvist með Þórð Birgisson sem er búinn að vera markahæstur KF í Lengjubikarnum til þessa. Við hvetjum alla til að kíkja á strákan og styðja þá í baráttunni. Skrifað af Gísli Rúnar 27.04.2012 21:03Var sumarið ekki komið?Bæjarbúum brá heldur betur í brún þegar þeir vöknuðu í morgun. Margir töldu að það væri komið sumar, enda sumardagurinn fyrsti liðinn og búið minna vel á vorið undanfarið. ![]() kuldalegt :-) Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1590 Gestir í dag: 231 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901539 Samtals gestir: 181136 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|