625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Ágúst

29.08.2010 11:47

Skemmtilegt sjónarspil

Það er víst óhætt að segja að á Íslandi sé náttúran margbreytileg. Í gær voru skemmtileg ský á ferðinni.


26.08.2010 22:10

Súlan í Ólafsfirði

Súlan EA 300, eitt kunnasta og farsælasta aflaskip íslenska fiskveiðiflotans, sigldi í síðasta sinn frá Akureyri í gærmorgun. Við skoðun í vor kom í ljós tæring í botntönkum og ekki talið hagkvæmt að fara í viðgerð á svo gömlu skipi. Þess vegna var það selt í brotajárn til Belgíu. Áður en skipið fer út hefur það viðkomu í Ólafsfirði að taka brotajárn (kemur einnig við í Bolungarvík og Neskaupsstað)
Hér má sjá frétt um málið á vef vikudags.

Súlan við Ólafsfjarðarhöfn (myndina tók Trausti Gylfason)

26.08.2010 22:05

Næsti Leikur hjá KS/Leiftri og lokhóf yngri flokka

KS/Leiftur tekur á móti ÍH á Ólafsfjarðarvelli Laugardaginn 28. ágúst.kl: 14:00

Með sigri tryggir KS/Leiftur sér sæti í 2. deildinni aftur að ári.


Lokahóf yngri flokka Leifturs verður á sunnudag 29. ágúst klukkan 13:00 í Tjarnaborg, allir iðkendur hvattir til að mæta og taka endilega mömmur, pabba, ömmur og afa með.

25.08.2010 17:28

Starf hjá Grunnskóla Fjallabyggðar

Eftirfarandi auglýsingu er að finna á heimasíðu Fjallabyggðar
---
Skólaliða vantar í 85% starf við Grunnskóla Fjallabyggðar. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Skólaliðastarfið er blandað starf sem felur í sér gæslu í skólabíl og á göngum skólans ásamt ræstingu á skólahúsinu við Hlíðarveg, Siglufirði. Skólaliðinn byrjar starfið í Ólafsfirði kl. 8.15 og sinnir gæslu í skólaakstri til Siglufjarðar. Hann lýkur starfsdeginum með því að sinna gæslu í skólaakstri til Ólafsfjarðar að skóladegi loknum. Nánari upplýsingar gefur skólastjóri 845-0467 eða í gegnum netfangið jonina@fjallaskolar.is  og aðstoðarskólastjóri 844-5819 eða í gegnum netfangið rikey@fjallaskolar.is  

Skólastjóri

24.08.2010 12:50

Gamla hraðfrystihúsið málað

Eigendur gamla hraðfrystihússins (H.Ó) hafa undanfarna daga verið að mála húsið. Hér má sjá fyrir og eftir myndir.

Húsið var farið að láta á sjá


Mikill munur á húsinu eftur að það var málað :-)

23.08.2010 23:50

Menntaskólinn á Tröllaskaga byrjaður

Fyrsti skóladagur nemenda við Menntaskólan á Tröllaskaga var í dag. Skólinn var formlega settur í fyrsta sinn á laugardaginn. Fjöldi fólks kom saman í Tjarnarborg og við skólann við setningarathöfn. Skólanum voru færða ýmsar gjafir, t.d. gáfu nágrannasveitarfélögin flest málverk, Háfell gaf og kom fyrir stórum steini úr Héðinsfjarðargöngum og Rammi hf. gaf skólanum peningagjöf upp á eina milljón króna. 

Steinninn úr Héðinsfjarðargöngum frá Háfell


Frá setningunni 

23.08.2010 23:40

Foreldrafundir Grunnskólans

Kynningarfundir fyrir foreldra um skipulag nýja skólans sem til stóð að halda 24. og 25. ágúst verða færðir til. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk Ólafsfirði verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Tjarnarstíg. Fundur fyrir foreldra nemenda í 1.-10. bekk á Siglufirði verður mándaginn 30. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Hlíðarveg. Á fundunum verður farið yfir skipulag starfsstöðva skólans og skólaakstur fyrir nemendur í unglingadeild.

23.08.2010 23:40

Opnun Sundlaugarinnar

Íþróttamiðstöðin í Ólafsfirði verður opin sem hér segir næstu viku (ath. búið er að opna sundlaug og vaðlaug):
Mánudag-fimmtudag: 6:45-11:00 og 16:00-20:00
Föstudag: 6:45-11:00 og 16:00-18:00
Laugardag og sunnudag: 10:00-14:00

22.08.2010 13:45

Snjór í fjöllum

Þá er vetur konungur farinn að minna á sig. Fyrsti snjórinn er mættur í fjöllin.

21.08.2010 13:20

Sundlaugin opnar

Sunnudaginn 22. ágúst mun sundlaugin í Ólafsfirði verða opin frá kl. 10:00 - 13:00. Búið er að koma sundlauginni og vaðlauginni í gagnið. Enn er verið að vinna við framkvæmdir á svæðinu og verður því ekki full opnun í næstu viku. Opnun næstu viku verður auglýst nánar á morgun, en búast má við að hún verði opnuð á morgnana og svo aftur um miðjan dag.
Enn er unnið við að flísaleggja pottana. Eru þeir á lokastigi og ættu að komast í gagnið mjög fljótlega.

19.08.2010 21:42

Berjadagar hefjast á morgun

Listamenn eru nú teknir til við æfingar fyrir tónleikar Berjadaga í Fjallabyggð, en upphafstónleikar hátíðarinnar verða annað kvöld, föstudag í Ólafsfjarðarkirkju kl. 20.

Myndin er tekin á æfingu í morgun af Barokksveit Berjadaga, en þar er leikið á upprunaleg hljóðfæri sem gestum gefst tækifæri til að skoða ásamt nokkrum fornum nótnahandritum frá 17. öld.


19.08.2010 10:26

Sögustund og listasmiðja barna

Berjadagar hefjast á morgun í Ólafsfirði. Glæsileg dagskrá er skipulögð alla helgina.
Vakin er athygli á að allir eru velkomnir á sögustund Herdísar Egilsdóttur á Hornbrekku á morgun Föstudaguinn 20. ágúst, á upphafsdegi Berjadaga 2010. Þar mun Herdís segja sögu sína "Edda týnist í eldgosinu". Að lokinn sögustundinni verður listasmiðja barna þar sem börnin munu umbreyta söguefninu á myndrænan hátt. Þetta er hugsað fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri. Öll börn eru hjartanlega velkomin að taka þátt í sögustundinni og listasmiðjunni.

Dagskrá Berjadaga má finna á heimasíðu Berjadaga.

18.08.2010 21:39

Fugl fyrir milljón

Enn er möguleiki á að næla sér í eina milljón fyrir ljósmynd af fugli. "Fugl fyrir milljón" stendur enn yfir. Myndina verður að taka fyrir 1. september en skilafrestur er til 5. september. Margir fleiri vinningar verða í boði en þessi milljón, t.d. gistingu í bústað hjá Brimnes hóteli, myndavélabúnað og fuglaskoðunarferð.
Það er því til mikils að vinna, eina þátttökuskilyrði er að vera viðskitpavinur á Brimnes Hóteli (gisting eða mat) 
Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á www.fuglfyrirmilljon.com

Myndir af heimasíðu fuglfyrirmilljon.com

16.08.2010 19:15

Menntaskólinn á Tröllaskaga settur í fyrsta sinn

Menntasskólinn á Tröllaskaga verður settur í fyrsta sinn nk. laugardag. Bæjarbúum er boðið að taka þátt. Eftirfarandi boðsbréf hefur verið gefið út af skólameistara Menntaskólans á Tröllaskaga:
---

Ágætu íbúar Fjallabyggðar

Laugardaginn 21. ágúst verður Menntaskólinn á Tröllaskaga settur í fyrsta sinn. Það er okkur sönn ánægja að bjóða ykkur að taka þátt í þessum gleðidegi með okkur.


Dagskrá:

14:00 Setningarathöfn í Tjarnarborg, Ólafsfirði


15:00 Menntaskólinn á Tröllaskaga:

    Gjöf frá Háfelli, steinn úr Héðinsfjarðargöngum afhjúpaður.

    Sr. Sigríður Munda blessar skólahúsið

    Skólinn formlega settur af skólameistara.

    Opið hús með kaffi, ástarpungum ásamt ís fyrir börnin.


Virðingarfyllst

Lára Stefánsdóttir

skólameistari

16.08.2010 19:10

Umfjöllun KS/Leiftur vs Völsungur

Eftirfarandi umfjöllun barst 625.is:
---
Það var frábært fótboltaveður á Ólafsfirði í gær þegar heimamenn tóku á móti Völsungum á mjög góðum velli sem þó var nokkuð blautur og átt iþað eftir að setja nokkuð mark sinn á leikinn.
Fyrir leikinn voru leikinn voru liðin jöfn með 22 stig og nokkuð ljóst að það lið sem myndi vinna
leikinn yrði að öllum líkindum öruggt með sæti sitt í deildinni að ári.

Leikurinn var vart byrjaður þegar leikmenn Völsungs fengu víti eftir að boltinn skaust upp í hendi
heimamanna af 1 meters færi, heimamenn ekki sáttir með annars ágætan dómara leiksins Jóhannes Valgeirsson, Hrannar Björn Steingrímsson steig á vítapunktinn og sendi Nezir í marki heimamanna í vitlaust horn og skoraði því örugglega.  Gestirnir komnir yfir og leikurinn vart byrjaður. Síðan eftir 10 mín fengu heimamenn vítaspyrnu er boltinn spýttist í hönd gestana eftir fyrirgjöf frá Ingimari ungum kanntmanni heimamanna. Völsungar ekki sáttir með þessa vítaspyrnu frekar en heimamenn með þá fyrri, en línan virtist vera sett, sem reyndar átti ekki eftir að halda það sem eftir lifði leiks, enda kannski vítaspyrnukvótinn búinn í leiknum. Milan Lazarevic steig á punktinn fyrir heimamenn og skoraði örugglega fram hjá Steinþóri markmanni völsungs, með mjög öruggri vítaspyrnu.

Bæði lið voru að reyna að spila fótbolta í framhaldi af þessari fjörugu byrjun heimamenn meira upp kantana á meðan Völsungur reyndi að sækja meira í gegnum Andra Val upp miðja vörn heimamanna.  Milan var mjög ógnandi í liði heimamanna og fór hann oft mjög illa með hægri bakvörð gestana en þó náðu heimamenn ekki að nýta sér það. Því Völsungur komst yfir á um 40 mín þegar þeir gjörsamlega slátruðu vörn heimamanna með góðu spili sem endaði með því að
Jón hafsteinn Jóhannsson fékk góða sendingu fyrir markið og var einn og óvaldaður í markteig heimamanna og  átti ekki í erfiðleikum með að renna boltanum í netið. Vel að verki staðið hjá gestunum. Heimamenn vildu fá tvö víti í viðbót í fyrrihálfleik þegar boltinn hrökk í hendi gestana en línan sem sett var í upphafi hélt ekki allan leikinn og voru heimamenn nokkuð ósáttir með það.  Sérstaklega í annað skiptið er Agnar Þór Sveinsson átti skot sem virtist vera á leið í markið en boltinn fór í hendi varnamanna Völsungs og í horn.  Væntanleg hefði átt að dæma víti þar.

Síðari hálfleikur var nokkuð jafn og heimamenn reyndu hvað þeir gátu til að jafna og fengu nokkuð af hálffæru til þess en náðu ekki að skapa sér nógu góð færi á síðasta vallarhelmingnum þrátt fyrir álitlegar sóknir. Gestirnir fengu einnig sín færi einkum aukaspyrnu sem Hallgrímur Már tók þegar um 15 mín voru til leiksloka en Nesir í marki heimamann gerði vel með að verja.  Leikurinn fjaraði hægt út og Völsungar lönduðu góðum sigri á Ólafsfjarðarvelli þeim firsta í all mörg ár, og geta tryggt sig endanlega með sigri á miðvikudag þegar þeir taka á móti Víði, KS/Leiftur þarf að öllum
líkindum nokkur stig í viðbót úr síðustu leikjum til að tryggja sig endilega í deildinni.
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar