625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Júlí

29.07.2010 21:35

Síldarævintýrið á Siglufirði

Síldarævintýrið á Siglufirði hefst formlega í kvöld með kertamessu Þorvaldar Halldórssonar í siglufjarðarkirkju. Hátíðin í ár einstaklega glæsileg og hafa verið síldardagar undanfarna viku. Búið er að setja upp útvarp sem má finna á heimasíðuna. Dagskrá síldarævintýris má finna hér.

29.07.2010 21:26

Viðtal við þjálfara Ks/Leifturs

Viðtal við Róbert Jóhann Haraldsson, þjálfara Ks/Leifturs var birt á fótbolti.net nú á dögunum. Viðtalið má lesa hér.

23.07.2010 00:31

Kleifarbergið veiðir Lax og Tunglfisk

Á bloggsíðu Kleifabergsins er að finna myndir og annað skemmtilegt sem gerist um borð. Þar er sagt frá því að nýlega veiddust nokkrir Laxar og einn Tunglfiskur.
Bloggsíða Kleifans: http://kleifaberg.blogcentral.is/

Tunglfiskurinn ógurlegi (á bloggsíðunni er nánari skýring á fyrirbærinu)

23.07.2010 00:27

Sjóböð

625.is fékk sendar nokkrar myndir af ungum drengjum þegar þeir voru að stökkva af Sibbunni. Á myndunum eru Daníel Ísak, Jón Árni, og Ólafur Meyvant. Það er því nokkuð ljóst að þessir strákar hafa annan skilning á sjóböðum en margir aðrir. Myndir komnar í myndaalbúmið

21.07.2010 16:43

Íþróttaskóli

Fyrirhugað er að fara  af stað með Íþróttaskóla fyrir börn fædd 2002-1998. Það verður mikið að gera hjá krökkunum og frábær dagskrá fyrir alla. Íþróttaskólinn stendur yfir frá 26. júlí - 6.ágúst og kostar tímabilið 5000.kr Innifalið í verði: Bolir merktir Íþróttaskólanum, Viðurkenningarskjal, grillveisla, frábær dagskrá og góður félagsskapur. Skólinn stendur yfir frá 9-11 á morgnana og hittast alltaf allir við Ú.Í.Ó húsi, þó með nokkrum undantekningum. Skráning er hafin í síma 822-3578 og 857-5291 eða tölvupóstinum leiftur@simnet.is. Leikskóla börn verða sótt ef Þess er óskað og skilað til baka að loknu námskeiði.
Fótbolta æfingar hjá 7.flokki verða klukkan 11:00 - 12:00 þessa daga sem um ræðir.

Drög að dagskrá með fyrirvara um breytingar

Eldri: Árgangar 1998 og 2001
yngri: Árgangar 2002 - 2006

=======================================
Mánudagurinn 26.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Hjólað í Fjöruna og Leikir
Eldri: Fjallganga og leikir
=======================================
Þriðjudagurinn 27.Júlí (09.00-11.00)
Yngir:Leikir, Golf,Knattspyrna

Þriðjudagurinn 27.Júlí(20.00-Morguns)
Eldri:Útilega (Tjaldað og gist)
=======================================
Miðvikudagurinn 28.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Veiðiferð, Taka með sér háfa
Eldri: Veiðiferð, taka með veiðistöng!
=======================================
Fimmtudagurinn 29.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Fjallganga
Eldri: Golf og Leikir
=======================================
Þriðjudagurinn 3.Ágúst (09.00-11.00)
Allir:Ratleikur/Óvissuferð
=======================================
Miðvikudagur 4.Ágúst (09.00-11.00)
Allir: Heimsókn í sveitina!
=======================================
Fimmtudagurinn 5. Ágúst (09.00-11.00)
Allir: Blautur dagur
-Vatnsrennibraut
-Sápuhokkí
-Slökkviliðið kíkir við
=======================================
Föstudagurinn 6.Ágúst (09.00-11.00)
Allir:Frjálsar Íþróttir, Grill og Slútt

Sjáumst hress í Íþróttaskólanum, Matti,Ingimar,Kristófer og Kristín

20.07.2010 14:14

Það fiskast vel á nýja litinn

Sigurbjörg ÓF 1 er komið til Ólafsfjarðar eftir vel heppnaða veiðiferð í Barentshafið. Heildarafli var 646 tonn, mest þorskur og aflaverðmæti um 174 milljónir króna. Aflanum verður landað á morgun. Mánaberg ÓF 42 er á blönduðum veiðum á heimamiðum.

20.07.2010 12:18

4. flokkur kvenna spilar í Svíþjóð

4. flokkur kvenna lagði af stað laugardaginn 17. júlí áleiðis til Gautaborgar, þar sem liðið er að taka þátt í Gothia-cup í knattspyrnu. Með í för eru stúlkur frá KS og Leiftri.
10- 0 sigur vannst í fyrsta leik hjá stúlkunum gegn frekar slöku liði Alvsborgs FF. Allar stóðu þær sig með prýði en í dag kl. 13:00 að sænskum tíma spila þær gegn FC Djursholm. Veðrið hefur leikið við stúlkurnar en um 20 stiga hiti var í gær með léttum skúr á meðan á leiknum stóð og fannst stúlkunum það bara fínt. Liðið upplifði svolítið sérkennilega tilfinningu þegar 52 þúsund manns öskruðu og klöppuðu er liðið gekk inná leikvanginn við opnunarhátiðinna og er það nokkuð víst að þetta kvöld mun seint gleymast hjá liðinu.

Fréttin unnin úr efni á heimasíðu KS, en þar er einnig að finna myndir úr ferðinni.

Myndin fengin af vef KS

20.07.2010 12:10

Nýji völlur skotfélagins

Skotfélag ólafsfjarðar opnaði nýjan sportingvöll  þann 17 júní sl, skotvöll þar sem skotnar eru leirdúfur frá 5 kastvélum og er þetta nokkurskonar veiðivöllur. Síðan þá hefur verið mikið um að vera á honum og búið er að skjóta um 6.000 leirdúfur og er það um helmingi meira en skotfélagsmenn áttu von á. Völlurinn hefur verið vinnsæll af hópum í óvissuferðum ekki síður en skotmönnum að koma uppeftir og reyna hæfni sína.
Allar fyrirspurnir um völlin og starfsemi Skotfélags Ólafsfjarðar sendist á skotolo@gmail.com eða í síma 867-1375  /  773-3912.

Myndin var tekin við opnun vallarins 17. júní sl.

20.07.2010 12:02

KS/Leiftur náði í þrjú dýrmæt stig

Meistaraflokkur karla náðu í þrjú dýrmæt stig á laugardag gegn Víði. Lokatölur 2-0, sömu lokatölur og urði í fyrsta leiknum í vor gegn Víði. Gabríel skoraði sitt þriðja mark í tveim leikjum með skalla eftir aukaspyrnu frá Eiríki í fyrri hálfleik.  Hörður Már skoraði seinna markið á lokamínútu leiksins eftir að hafa sloppið í gegnum vörn gestanna.  Eftir góðan leik gegn Hetti s.l. miðvikudag þá áttu heimamenn ekki sinn besta leik, en gerðu nóg til að næla sér í öll þrjú stigin sem voru í boði. Nú er liðið komið með 20 stig og heldur fimmta sætinu í deildinni. Næsti leikur er laugardaginn 24. júlí á Ólafsvík gegn toppliði deildarinnar og sá leikur mun eflaust segja til um það hvort að liðið ætli að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna.

16.07.2010 09:49

Umhverfismál - aðsent

Eftirfarandi barst 625.is varðandi umhverfismál í Ólafsfirði:
---
Í dag sá ég tæki frá einu af fiskvinnslufyrirtækjum bæjarins losa sig við fiskúrgang fram af hafnargarðinum.
Ég fór og leit á verksummerkin og þau voru ekki glæsileg " dragúldin".
Ég veit að þetta er bannað með lögum og þetta þarf að stoppa. 
Þetta er ekki góð auglýsing fyrir einn vinsælasta stað  bæjarins, þarna koma bæjarbúar,ferðamenn og gamlir Ólafsfirðingar með börn og barnabörn til að kenna þeim að veiða fisk. 
Þetta er alveg ömurlegt ástand og ekki til að fá ferðamenn til að stoppa hér.
Hvar er nú umhverfisnefndin ?
Gunnar R Kristinsson



15.07.2010 15:58

Lýsing á leik KS/Leifturs gegn Hetti

Það var norðan gola og kalt í veðri þegar KS/Leiftur tók á móti Hetti frá Egilsstöðum.
Ekki var að sjá á Ólafsfjarðarvelli að rúmlega 800 keppendur hafi verið að spila þar
um helgina því völlurinn lítur ótrúlega vel út.
Leikurinn átti svo sannarlega eftir að standa undir væntingum en að meðaltali hafa verið
skoruð yfir 4 mörk í leikjum KS/Leifturs í sumar en nokkuð færri mörk í leikjum Hattar.
Heimamenn byrjuðu betur þrátt fyrir að spila á móti golunni og strax eftir 15 mín voru heimamenn
búnir að setja tvö mörk á gestina, fyrst var það Sigurbjörn Hafþórsson sem komst í gegnum
um nokkuð flata vörn gestana og átti ekki í teljandi vandræðum með að setja boltan fram hjá Þóri
Guðnasyni sem stóð í marki Hattar, þetta var á 10 mín og strax 4 mínútum síðar hafði Gabríel Reynisson
skallað í mark Hattar eftir glæsilega sendingu frá Aron Inga, algjörlega óverjandi fyrir Þóri í marki Hattar.
Eftir þessa óskabyrjun heimamanna vöknuðu gestirnir og fóru að halda boltanum betur og voru sérstaklega
hættulegir eftir innköst og hornspyrnur sem þeir fengu töluvert mikið af í fyrri hálfleik. Minnstu munaði
að þeir næðu að jafna minnka muninn á 20. mín eftir vel framkvæmda hornspyrnu skaut Högni Helgason
framhjá úr nokkuð góðu færi. Hann átti þó eftir að bætu um betur því á 30. mín fengu Hattar menn
aðra hornspyrnu og náðu að minnka muninn eftir þvögu í teig heimamanna datt boltinn fyrir Högna sem þrumaði
boltanum í netið. Heimamenn hefðu sjálfsagt geta gert betur í að koma boltanum frá en að sama skapi var
þetta flott framvkæmd horn spyrnja frá Hattar mönnum sem eins og áður sagði voru sérstaklega hættulegir
í föstumleik atriðum.  Aðeins 5 mín eftir mark Hattar stakk Gabríel hægri bakvörð Hattar og brást ekki heimamönnum
í upplögðu færi og jók muninn aftur í tvömörk. En Gabríel var að spila sinn fyrsta leik sem framherji fyrir KS/Leiftur
í sumar og nýtti hann svo sannaralega sénsinn.  Eitt mark átti ennþá eftir að bætast við í fyrri hálfleik
og voru það Hattar menn sem minnkuðu aftur muninn í eittmark þegar Stefán Þór hamraði aukaspyrnu í netið
af um 25 metrafæri. Nezhir í marki KS/Leifturs hefði nú sjálfsagt viljað verja boltan en skotið var gríðarlega fast
frá Stefáni og vel af verki staðið hjá honum.  En staðan því 3-2 og hálfleik hreint ótrúlegur fyrri hálfleikur.
Heimamenn gerðu tvær breytingar í hálfleik og virtist það skila ágætis árangri því heimamenn náðu að haldaboltanum
betur í seinni hálfleik og náðu að auka við forustuna þegar Þórður Birgisson vann skalla bolta eftir aukaspyrnu frá Agnari
Sveinssyni og flykkaði boltanum yfir Þórð í marki Hattar, þetta var á 65  mín. Heimamenn enn og aftur komnir í nokkuð
þægilega stöðu. Minnugir þess að hafa verið 3-2 yfir á móti Hamri helgina áður gáfu KS/Leifturs menn í frekar en að bakka
og skilaði það sér í öruggum sigri heimamanna. Hattar menn virkuðu frekar þungir í seinnihálfelik og náðu ekki að
skapa sér nein færi af ráði. Á meðan heimamenn hefðu getað bætt við mörkum einkum í lokinn þegar Hattar menn
freistuðu þess að færa liðið  framar.
Hattarmenn hafa örugglega spilað betri leik heldur en í kvöld, markmaður þeirra Þórir Guðnason virtist spila hálf haltur
megnið af seinni hálfleik sem þó virtist ekki skipta öllu máli, en lið Hattar er ungt og á góðum degi geta þeir væntanlega
unnið hvaða lið sem er. Heimamenn virkuðu mjög sprækir sérstaklega í síðari hálfleik og lönduðu nokkuð öruggum sigri í kvöld.

14.07.2010 22:32

Myndir frá Nikulásarmóti

Myndir eru komnar í myndaalbúmið frá leikjum 7. flokk C á Nikulásarmótinu.

Eins og sést hér á þessari mynd sem tekin var á fimmtudegi fyrir mót, þá var heldur blautt. En það rættist sem betur fer úr veðri þessa helgi og tjaldsvæðið þornaði að mestu.

14.07.2010 20:56

Snjóflóðavarnargarðurinn kláraður

Undanfarna daga hefur snjóflóðavarnargarðurinn verið að fá á sig rétta mynd. Verið er að klára verkið. Þegar hann veðrur gróinn er ljóst að hann mun falla nokkuð inn í umhverfið þó stór sé.

12.07.2010 12:08

KS/Leiftur - Höttur

KS/Leiftur - Höttur

Ólafsfjarðarvöllur

Miðvikudagur 14. júlí.

kl: 20:00

Miðaverð kr. 1000

Ársmiðahafar munið eftir árskortunum

Að meðaltali voru skoruð um 2 mörk í leik á HM hjá KS/Leiftri hafa verið skoruð rúmlega 4 mörk að meðaltali í sumar. J

Allir á völlinn

Áfram KS/Leiftur

 

08.07.2010 00:00

Kleifaberg ÓF með fullfermi

Á mbl.is er sagt frá frábærum túr Keifabergsins:
---

Fiskiskipið Kleifaberg ÓF-2 er væntanlegt til Reykjavíkur í kringum miðnætti á föstudagskvöld með fullfermi úr Barentshafinu. Gróflega áætlað er aflaverðmætið um 300 milljónir króna og fékkst aflinn á 18 veiðidögum. Siglingin af miðunum tekur um 5 sólarhringa og alls verður túrinn um 28 daga langur.

"Þetta hefur gengið mjög vel," sagði Skarphéðinn Aðalbjörnsson bátsmaður á Kleifaberginu. Afli upp úr sjó var um 1020 tonn og voru 99% þess sem fékkst þorskur.

Kleifabergið var aðallega að veiðum austur af gráa svæðinu svonefnda, sameiginlegu hafsvæði Norðmanna og Rússa, eða austur af Vardö í Noregi.

"Þetta var bara þokkalega góður fiskur og stór hluti unninn á Ameríku," sagði Skarphéðinn. Þá er fiskurinn verkaður í roðlaus flök og beinlaus og einnig roðlaus með beinum.

"Það er óhemju vinna að taka þetta magn á Ameríku," sagði Skarphéðinn.  Allt að 55 tonn fóru í gegnum vinnsluna á sólarhring. Í áhöfninni eru 26 manns. "Þetta er ekki gert nema með sameiginlegu átaki. Það eru hreinar línur. Það þarf að vera mjög góð áhöfn til að rúlla svona í gegn."

Kleifabergið fór eftir áramótin tvo túra í norsku lögsöguna. Skarphéðinn taldi líklegast að skipið fari næst til makrílveiða. Brim hf. gerir Kleifabergið út og skipstjóri í túrnum er Víðir Jónsson.

Allt pláss nýtt, myndin fengin af bloggi Kleifabergsins

  • 1
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar