|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2010 Júní29.06.2010 12:03Enn möguleiki á að skrá sig á blúsnámskeiðEnn er möguleiki á að skrá sig á blúsnámskeiðið sem Jassklúbbur Ólafsfjarðar stendur fyrir 1. og 2. júlí. Áhugasamir geta haft samband við Gísla Rúnar í síma 863-4369 eða Magnús Ólafsson í síma 898-2516. Leiðbeinendur eru: Birgir Baldursson, trommuleikari Skrifað af Gísli Rúnar 29.06.2010 07:39Útimarkaður á blúshátíðÚtimarkaðurinn á blúshátíð,með tilheyrandi tónlist og skemmtilegri stemningu verður á sínum stað kl. 14:00 laugardaginn 3. júlí. Skráning er hafin í síma 863-4369 (Gísli) eða á gislirunar4@gmail.com. borðið kostar kr. 1.500.- eins og undanfarin ár. Skrifað af Gísli Rúnar 28.06.2010 12:38Fréttir af frjálsum íþróttumAri þjálfari í frjálsum hefur verið duglegur að senda okkur upplýsingar um hvernig gengur hjá krökkunum. Nú sendi hann okkur upplýsingar hvernig gekk á sumarleikum HSÞ þar sem kepptu 168 keppendur á öllum aldri og frá mörgum félögum. Þar á meðal UMSE, UFA HSÞ, UMSS , ÍR og ÚÍA --- Ólafsfjörður: Gunnlaug sigraði í hástökki og 2. í 80m grind, Gunnlaug bætti sig mikið í spjótkasti ( 2. sæti)varð 3. í þrístökki, langstökki , kúlu og 300m grind . Leó sigraði í spjótkasti 17-18 ára og kringlukasti og varð annar í sleggjukasti og kúlu . Erla Marí Sigurpálsdóttir sigraði í spjótkasti og varð önnur í sleggjukasti. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir sigraði í sleggjukasti með yfirburðum og kastaði 31,23 m. Skrifað af Gísli Rúnar 28.06.2010 12:20Fréttir frá RammanumEftirfarandi frétt birtist á vef Rammans í morgun: Mánaberg ÓF 42 er á blönduðum veiðum á heimamiðum, Múlaberg SI 22 á rækjuveiðum úti fyrir Norðurlandi, Jón á Hofi ÁR 42 er á humarveiðum á Selvegsbanka og Fróði ÁR 38 landaði humri í Þorlákshöfn í morgun. Skrifað af Gísli Rúnar 25.06.2010 22:24FuglaskoðunarhúsJólahúsin koma að fleiri notum en bara við jólamarkað. Nú er búið að staðsetja eitt þeirra við Þóroddstaðatjörn. Nú nýtist húsið sem fuglaskoðunarhús og er húsið öllum opið og aðgengilegt. Á heimasíðu Arcticaves er að finna fréttir og myndir af fuglum og fuglatengdu efni. T.d. náði Gísli Kristinsson mynd af svölu sem gerði sér lítið fyrir og settist á þakið á fuglahúsinu. Fuglahúsið við Þóroddsstaðartjörn, mitt á milli tjarnar og vegs, appelsínugult að lit. Skrifað af Gísli Rúnar 25.06.2010 17:46625.is orðin árs gömulÞann 21. júní fyrir rúmu ári síðan var síðan sett í loftið. Heimsóknir á árinu voru tæplega 40 þúsund talsins. Það eru eru að koma á bilinu 150-200 gestir á hverjum degi. Facebook vinir 625.is eru orðnir 587 talsins. (þú finnur okkur þar undir "625.is - Lífið í Ólafsfirði" Skrifað af Gísli Rúnar 25.06.2010 17:25Slá eða ekki sláÍ framhaldi af frétt um mótmæli við slætti í vikunni þá eru hér myndir fyrir og eftir slátt af Gullatúninu og fyrir ofan tjörnina. Enn og aftur getur hver dæmt fyrir sig. ![]() ![]() Myndirnar er að finna stærri og í betri gæðum í myndaalbúminu Skrifað af Gísli Rúnar 25.06.2010 17:17Kiwanis gefur 1. bekk hjálmaEins og undanfarin ár gafu Kiwanismenn krökkum sem voru að klára 1. bekk nýja reiðhjólahjálma. Söfnuðu þeir hópnum saman við Tjarnarborg þar sem þau fengu hjálmana afhenta. Skrifað af Gísli Rúnar 24.06.2010 22:41MiðnæturgangaEftirfarandi frétt er að finna á heimasíðu ferðafélagsins Trölla: --- Jæja, loksins er komið að því. Fyrsta gönguferð félagsins verður á föstudaginn 25.júní. Mæting er við gömlu steypistöðina og verður gengið út á plan í Múlanum. Lagt verður af stað kl. 22:00 og vonandi verður veður gott og við fáum að njóta miðnætursólarinnar á planinu. Þessi ganga ætti að henta öllum og tilvalin fjölskylduganga, verðinu er einnig stillt í hóf eða 500 kr. fyrir 16 ára og eldri. --- Þess má geta að Múlinn hefur ekki verið greiðfærari fyrir gangandi vegfarendur í mörg ár. Sjálfboðaliðasamtökin SEEDS sem unnið hafa hér undanfarna viku á vegum Fjallabyggðar hafa rutt stíg upp á plan. Svona hefur verið gert upp í Múla (mynd af heimasíðu Trölla) Skrifað af Gísli Rúnar 23.06.2010 17:14Nýr bæjarstjóri í FjallabyggðSigurður Valur Ásbjarnarson var í morgun ráðinn bæjarstjóri í Fjallabyggð og mun hann hefja störf um næstu mánaðamót. Hann hefur síðustu 18 ár verið bæjarstjóri í Sandgerði og þar áður á Álftanesi. Sigurður Valur Skrifað af Gísli Rúnar 23.06.2010 17:11Mánabergið millilandarMánaberg ÓF-42 kemur til hafnar í Reykjavík í dag þar sem millilandað verður úr skipinu sem búið er að vera á karfaveiðum á Reykjaneshrygg sl. tvær vikurnar. Heildarafli er 443 tonn af úthafskarfa og söluverðmæti aflans er ca. 116 milljónir króna EXW. Að lokinni löndun fer Mánabergið á blandaðar veiðar innan landhelgi það sem eftir lifir veiðiferðar. Mánabergið (mynd af vef Ramma hf.) Skrifað af Gísli Rúnar 23.06.2010 12:12Blúshátíðin í Ólafsfirði 2.-3. júlíBlúshátíðin í Ólafsfirði verður haldin daga 2.-3. júlí nk. Við höfum sagt frá fyrirhuguðu blúsnámskeiði dagana fyrir hátíðina hér á síðunni. Dagskrána og nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu Jassklúbbs Ólafsfjarðar. Skrifað af Gísli Rúnar 22.06.2010 23:54Hola í höggiFram kemur á heimasíðu Golfklúbbs Ólafsfjarðar að Svavar Berg Magnússon, kylfingur úr Golfklúbbi Ólafsfjarðar, fór holu í höggi á 3. braut á Skeggjabrekkuvelli 14. júní sl. Hann var að vonum ánægður með afrekið, en hann lék einn af sínum bestu hringjum. ![]() Svavar B. Magnússon að hengja upp myndir af sýningu sinni frá því sl. sumar, en þess má geta að fréttin um ljósmyndasýninguna var fyrsta frétt á 625.is (á eftir tilkynningu um að síðan væri komin í loftið) Skrifað af Gísli Rúnar 21.06.2010 12:24Slætti mótmæltEinn bæjarbúi hafði samband við garðyrkju- og umhverfisfulltrúa Fjallabyggðar og mótmælti fyrirhuguðum slætti á brekkunni fyrir neðan Brekkugötu. Skrifað af Gísli Rúnar 17.06.2010 23:54ReiðnámskeiðEftirfarandi barst frá Hestamannafélaginu Gnýfara:
Námskeiðið verður 21-28 júní í Hringsholti Reiðnámskeiðið er fyrir börn og unglinga. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Hjörleifsson. Verð kr. 12.900. Systkinaafsláttur. Skráning og nánari upplýsingar fást í síma 466-1679 eða Þeir aðilar sem vilja koma með sína hesta geta fengið pláss fyrir þá á Dalvík. Stjórn Gnýfara Æskulýðsnefnd Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|