625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Maí

30.05.2010 12:21

Pallar smíðaðir

Ljósmyndari 625.is kom við hjá Helgu Ingimars og Hlyn Guðmunds í gær. Er verið að smíða þennan fína sólpall. Þegar ljósmyndarinn fór að líta í kringum sig var ljóst að margir í nágreninu voru í svipuðum hugleiðingum. Myndir í myndaalbúminu.

miklar pælingar í gangi

30.05.2010 12:11

Snjór í Múlanum

Nú þegar maí er á enda er mestur snjór að hverfa. Þó er töluverður snjór eftir þar sem snjóflóðin stóru fóru í Múlanum í vetur. Vel mannhæðastórir skaflar eru enn við veginn þar sem flóðið fór yfir. Myndirnar eru teknar sl. föstudag, 28. maí.



30.05.2010 11:42

Skólaslit Tónskóla Ólafsfjarðar

Sl. fimmtudag var Tónskóla Ólafsfjarðar slitið í síðasta sinn. Á næsta ári mun Tónskóli Ólafsfjarðar sameinast Tónlistarskóla Siglufjarðar í einn nýjan skóla; Tónskóla Fjallabyggðar. Magnús G. Ólafsson skólastjóri Tónskóla Ólafsfjarðr til margra ára hefur verið ráinn skólastjóri nýja skólans.
Myndir í myndaalbúmi
Hér er ræða Magnúsar frá skólaslitunum:
---

Ég ætla að byrja á að bjóða ykkur velkomin á þessi skólaslit Tónskóla Ólafsfjarðar.

Tónskóli Ólafsfjarðar er 45 ára gamall á þessu ári og verður þetta í síðasta skiptið sem skólanum verður slitið undir nafninu Tónskóli Ólafsfjarðar.  Fyrir 45 árum voru innan við 20 nemendur í skólanum og einn kennari, Magnús Magnússon en hann var einnig fyrsti skólastjóri Tónskólans. Margir hafa kennt við tónskólann í gegnum árin og oft var erfitt að manna skólann. En með bættum samgöngu og þá sérstaklega með tilkomu Múlaganga hafa síðustu 20 ár skólans verið farsæl.

Eigið húsnæðið hefur okkur vantað alla sögu skólans og hefur skólinn verið á mörgum stöðum í bænum. Má þar nefna út í Leikfélagshúsi, Tjarnarborg, Barnaskólahúsinu og að lokum í Sigurhæðum (neðri hæð bókasafns) þar sem tónskólinn hefur haft aðstöðu síðust árin.

Í fyrsta skiptið er ég bjartsýnn að húsnæðismál skólans leysist með nýrri fræðslustefnu Fjallabyggðar og að skólinn verði kominn í gott og varanlegt húsnæði innan tveggja ára.

 

Í dag eru 5 kennarar auk skólastjóra við störf í Tónskólanum, en að það eru þau Ave Tonison sem kennir á Harmonikku,  píanó og hljómborð. Thiago Trinsi Silveira sem kennir á gítar, bassa og trommur. Pál Barnsa Szabó sem kennir á þverflautu, saxafón og kornnett.  Susanna Bithey sem kennir á fiðlu. Tim Knappett sem kennir á píanó og fiðlu ásamt því að kenna forskóla og tónmennt í grunnskólanum. Það er gott fyrir skólann að hafa fast starflið, vel menntaða og góða kennarar.

Töluverð breytingar verða á tónlistarkennslu í haust með tilkomu Héðinsfjarðarganga, því þá mun nýr skóli taka til starfa Tónskóli Fjallabyggðar. Tónlistarskóli Siglufjarðar og Tónskóli Óllafsfjarðar verða sameinaðir í einn öfluga skóla með um 160 nemendum. Sama blandast kennaralið beggja skólanna afar vel, en á Siglufirði eru 4 starfandi tónlistarkennarar, Elías Þorvaldsson, Þorsteinn Sveinsson, Guðrún Ingimundardóttir og Rodrigo J. Thomas. Eina breytingin sem verður á starfsliði skólans fyrir næsta vetur er að Pál Barnsa Szabó, hefur sagt upp stöðu sinni við skólann og vil ég nota tækifærið og þakka honum fyrir vel unnin störf.

83 nemendur hófu nám við Tónskóla Ólafsfjarðar á haustönn 2009. 

Þar af eru 19 í forskóla og 64 í hljóðfæranámi. Kennt var á flest öll hljóðfæri en Píanó og gítarinn er vinsælustu hljóðfærin, eins og þau hafa verið síðustu árin.

Tónleikahald var með miklum ágætum þennan veturinn. Svínaflensan sett að vísu strik í reikninginn í október en þá var ákveðið að aflýsa 3 tónleikum en þá var mikið um veikindi hjá nemendum skólans.

Alls vorum við með sex tónleika á Hornbrekku, eina tónleika í Ólafsjarðarkirkju og tvenna hér í félagheimilinu Tjarnarborg, jóla- og vortónleika.

Nemendur skólans tóku þátt í tveimur tónlistarkeppnum á starfsárinu Músíktilraunum og Nótunni sem er uppskeruhátíð tónlistarskóla á landinu. Stóðu nemendur sig með stakri prýði og voru skólanum og bæjarfélaginu til mikils sóma. Einnig vil ég þakka foreldrum nemendanna og kennurum fyrir aðstoðina við þessar keppnir.

Nemendur sem hafa stundað nám við Tónskóla Ólafsfjarðar, eiga oft erfitt með að fóta sig í tónlistarnámi þegar í framhaldskóla á Akureyri er komið. Brottfall nemenda frá Ólafsfirði síðustu árin hafa verið 95% - 100% eftir 15 ára aldur. Margir  hæfileikaríkir krakkar, sem náð hafa góðum árangri í tónlist í heimabyggð, hafa flosnað upp í tónlist.

Framhaldsskólaaldurinn er í rauninni besti aldurinn  til tónlistarnáms. Líkamlegur styrkur á þar mikinn þátt, á mörgum hljóðfærum, ásamt nýjum áherslum í tónlist sem kemur með þroska unglingsins.

Nýr Menntaskóli í Fjallabyggð mun styrkja Tónskólann og tónlistarlíf almennt og gerir nemendum kleyft að stunda tónlistarnám lengur hér í heimabæ sínum.

Kennarar og nemendur fara nú í sumarfrí, ég ætla að vona að sumarið verði gott og farsælt hjá öllum, nemendurnir halda áfram að æfi sig í sumar, svo hittumst við hress og kát í haust. Tónskóla Ólafsfjarðar er slitið.

30.05.2010 00:57

Lokatölur í Fjallabyggð

Ný hafa lokatölur verið birtar á vef Rúv. Engar breytingar urðu frá fyrstu tölum, þ.e. hvað varðar fulltrúafjölda. Lokaniðurstaðan er því þessi;

T listi - 1 fulltrúi - 184 atkvæði 14,9%

S listi - 3 fulltrúar - 334 atkvæði 27%

D listi - 3 fulltrúar - 404 atkvæði 32,6%

B listi - 2 fulltrúar - 316 atkvæði 25,5%

Bæjarfulltrúar verða þá eftirafrandi:

Framsóknarflokkurinn:
Ingvar Erlingsson
Sólrún Júlíusdóttir

Samfylkingin

Egill Rögnvaldsson
Helga Helgadóttir
Jón Hrói Finnsson

Sjálfstæðisflokkurinn:

Þorbjörn Sigurðsson
Guðrún Hauksdóttir
Ólafur H Marteinsson

T-listinn:
Bjarkey Gunnarsdótti

Bæjarfulltrúar raðast því svona inn:
  1. Þorbjörn Sigurðsson (D)
  2. Egill Rögnvaldsson (S)
  3. Ingvar Erlingsson (B)
  4. S. Guðrún Hauksdóttir (D)
  5. Bjarkey Gunnarsdóttir (T)
  6. Helga Helgadóttir (S)
  7. Sórún Júlíusdóttir (B)
  8. Ólafur Helgi Marteinsson (D)
  9. Jón Hrói Finnsson (S)

Kristinn Gylfason (B) var næsti maður inn á eftir Jóni Hróa


29.05.2010 22:54

Fyrstu tölur

Fyrstu tölurnar eru komnar í hús frá Fjallabyggð: (tölur fengnar af kosningavef Rúv)
Framsóknarflokkurinn: 2 (24,6%)
Samfylkingin: 3 (25,3%)
Sjálfstæðisflokkurinn: 3 (33,6%)
T-listinn: 1 (16,6%)

Búið að telja 724 atkvæði, á kjörskrá voru 1.579

Bæjarfulltrúar yrðu þá eftirafrandi ef þetta fylgi stendur: (ekki þarf fylgið að breytast mikið til að menn færast á milli, D-listi þarf tvö atkvæði til að ná inn fjórða manni á kostnað S-lista, þá kæmi Magnús A Sveinsson í stað Jóns Hróa Finnssonar)

Framsóknarflokkurinn:
Ingvar Erlingsson
Sólrún Júlíusdóttir

Samfylkingin

Egill Rögnvaldsson
Helga Helgadóttir
Jón Hrói Finnsson

Sjálfstæðisflokkurinn:

Þorbjörn Sigurðsson
Guðrún Hauksdóttir
Ólafur H Marteinsson

T-listinn:
Bjarkey Gunnarsdóttir

26.05.2010 17:43

Dagskrá Samfylkingar fram að kosningum

Dagskrá Samfylkingarinnar í Ólafsfirði í vikunni
Miðvikudagur kl. 20: Opið hús í Kiwanishúsinu við Strandgötu.
Fimmtudagur kl. 12: Súpufundur á höllinni. Frambjóðendur kynna stefnuna.
Föstudagur kl. 20: Kvöldvaka í húsi Félags eldri borgara. Tónlistaratriði og söngur.
Laugardagur: Dagskrá í húsi Félags eldri borgara

Kl. 10-15 heitt á könnunni.
Kl. 15-18 Kosningakaffi.
Kl. 20-?? Kosningavaka


Samfylkingin bíður einnig upp á akstur á kjörstað. Hringið í síma 8654324, 8684704 eða 8409330 og við komum um hæl!

Hægt er að sjá dagskrána á dagatali Samfylkingarinnar í Fjallabyggð á http://xs.is/fjallabyggd.

26.05.2010 17:40

Kosningaskrifstofur D-lista

Kosningaskrifstofan sjálfstæðismanna á Siglufirði flytur í Dótakassa Gunna Júl við Gránugötu á miðvikudag og verður opin frá kl 4 til 6. Frambjóðendur verða á staðnum og veitingar að hætti hússins !
Sími 467 1154
Kosningaskrifstofan Ægisgötu 10, Listhúsið, í Ólafsfirði verður opin frá kl. 8 til 10 á kvöldin út vikuna.
Símar 867 5414 og 861 6650

25.05.2010 20:18

Ný skoðanakönnun

Nú hefur verið sett upp ný skoðanakönnun. Við könnum hug ykkar fyrir komandi kosningar.
Niðurstöður síðustu könnunar eru þær að mikill meirihluti lesenda eru búsettir Ólafsfirðingar eða rúmlega helmingur. Alls tóku 225 þátt. Við erum að fá um 200 heimsóknir á dag og núna  eru vinir á Facebook orðnir 573. Takk fyrir innlitið.
Spurt var:

Ég er:

Búsett/ur í Ólafsfirði

54,67%

Brottfluttur Ólafsfirðingur

26,67%

Annað

18,67%

25.05.2010 12:48

Kosningaskrifstofa B-lista og akstur á kjörstað

Kosningaskrifstofur B-listans í Fjallabyggð verða í Sandhól og Suðurgötu 4. Frambjóðendur verða á staðnum. þær verða opnar sem hér segir:
Ólafsfjörður: Sandhóll á fimmtudag og föstudag frá kl. 20-22. Sími 863-0240
Siglufjörður: Suðurgata 4. Virka daga frá kl 16-18 og 20-22. Sími: 467-1880

Kosningakaffi verður frá klukkan 14:30-17:30 á kjördag og verða kosningaskrifstofur opnar frá kl 10-20. Konsingarvaka eftir það.

B-listinn bíður upp á akstur á kjördag, sími 467-1880 / 863-0240

25.05.2010 12:30

Umfjöllun um síðasta leik KS/Leifturs

Á laugardaginn áttust við KS/Leiftur og Víkingur Ólafsvík í 2. deild karla. Leikurinn var háður á Ólafsfjarðarvelli sem kemur mjög vel undan vetri. Smá norðan gola var er leikurinn hófst en annars voru aðstæður allar eins og þær best gerast til knattspyrnu iðkunar.

Vikingsmenn mættu grimmari til leiks og stjórnuðu leiknum fyrstu mínúturnar en án þess þó að skapa sér nein dauðafæri. M.a. fengu þeir 3 horn spyrnur á fyrstu 10 mínútunum en náðu ekki að gera sér mat úr því.  KS/Leiftur áttu einnig nokkur hálffæri einkum eftir eina hornspyrnu þegar skot Agnars Sveinssonar hafnaði í varnarmanni.

Það var svo á 23 mínútu sem gestirnir komust yfir, Vikingur fékk innkast  á miðjum vallarhelmingi KS/Leifturs og fengu nægjan tíma til þess að athafna sig og gefa fyrir, sem endaði með mjögóðri fyrirgjöf frá Artjom leikmanni Vikinga af vinstri kanti, Aleks náði að smeigja sér á milli miðvarða KS/Leifturs og stangaði knöttinn í markið, glæsilegt mark hjá Aleks.

Vikingar héldu áfram að pressa nokkuð á KS/Leiftur og áður nefndur Aleks fékk fínt færi en Örlygur Þór Helgason varnarmaður KS/Leifturs gerði vel með að komast í veg fyrir skotið og varnaði því að Víkingar næðu ekki að auka foristuna.

Undir lok fyrri hálfleiks sóttu KS/Leifturs menn í sig veðrið vel studdir að áhorfendum á Ólafsfjarðarvelli, sem létu mjög vel í sér heyra í leiknum.  En þrátt fyrir pressuna náðu þeir ekki að jafnametin og staðan því 0-1 í hálfleik Víking í vil.

Stuðningsmenn KS/Leifturs hafa væntanlega vonast eftir því að liðið kæmi betur stefnt í seinni hálfleikinn á myndi ná að nýta sér að spila með goluna í bakið. En Vikingar náðu að auka foristuna eftir að Þorsteinn Már Ragnarsson náði að prjóna sig í gegnum vörn KS/Leifturs og renna boltanum fram hjá Nezir í mark KS/Leifturs, vel gert hjá Þorsteini en að samaskapi hefðu heimamenn átt að geta gert mun betur í að koma boltanum í burtu.

Vikingar voru þarna komnir í nokkuð þægilega stöðu og virtust líklegir til að landa stigunum 3 nokkuð auðveldlega. 

Hörður Már kom inná í lið KS/Leifturs og hann var ekki lengi að láta til sín taka því nokkrum mínútum síðar nær hann að leika auðveldlega á  varnarmann Vikinga og senda boltan fyrir sem hafnaði í hendi Bega varnar manns Vikings og vítaspyrna dæmd. Ragnar Hauksson skorðaði svo nokkuð auðveldlega úr spyrnunni og KS/Leiftur komið inn í leikinn.  Adam var ekki lengi í paradís fyrir heimamenn því einungis 4 mínútum síðar fengu Vikingur nokkuð ódýrt víti þegar boltinn virtist fara í hönd Sigurbjörns Hafþórssonar sem var liggjandi eftir klafs við sóknarmenn Víkinga. Markmaður KS/Leifturs varði vítaspyrnu Brynjars Kristmundssonar vel og staðn því ennþá 1-2.  Vikingsmenn náðu þó að bæta fyrir vítaspyrnuna á 80 mínútu þegar Þorsteinn Már Ragnarsson slapp einn í gegnum vörn KS/Leifturs og chippaði yfir markmann heimamanna. Vörn KS/Leifturs var heldur illa á verði þarna.

Fleira markvert gerðist ekki í leiknum og Vikingar lönduðu nokkuð sanngjörnum sigri á Ólafsfjarðarvelli.

23.05.2010 20:16

Heimasíður framboða í Fjallabyggð

Framboðin í Fjallabyggð eru öll komin með heimasíður, á þessum síðum er hægt að kynna sér stefnu framboðana fyrir kosningarnar næstkomandi laugardag.

Framsóknarflokkurinn: http://xb-fjallabyggd.123.is/
Samfylkingin:  http://xs.is/fjallabyggd
Sjálfstæðisflokkurinn: http://www.fjallabyggd.xd.is/
T-listinn: http://fjallabyggdarlistinn.123.is

22.05.2010 09:39

Almennur fundur um andlega sjálfsvörn

Almennur fundur um andlega sjálfsvörn verður í Tjarnarborg þriðjudaginn 25. maí kl. 19.30. Fjallað verður um grundvöll góðrar geðheilsu og tæknilegar aðferðir við að komast í gegnum erfiðleika, andlegt áreiti og neikvæðar hugsanir.

Fyrirlesari er Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar.

Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

20.05.2010 20:00

KS/Leiftur - Vikingur Ólafsvík

Næsti leikur Ks/Leifturs verður á móti Víking. Leikurinn verður laugardaginn 22. maí kl. 14:00 á Ólafsfjarðarvelli. Upphitun á Hótelinu hefst klukkan 12:00 þar sem m.a. leikmenn verða kyntir fyrir stuðningsmönnum, fríar veitingar verða handa börnum og fullorðnum, andlitsmálning fyrir börnin og ársmiðar verða afhentir.

20.05.2010 19:55

Framsókn opnar heimasíðu

B-listinn í Fjallabyggð hefur opnað heimasíðu vegna komandi bæjarstjórnarkosninga, slóðin er http://xb-fjallabyggd.123.is/

19.05.2010 17:40

Kynning á skólaakstri og almenningssamgöngum í Snæfellsbæ

Magnús Þór Jónsson skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar mun vera með kynningu fyrir foreldra og aðra íbúa um fyrirkomulag og reynslu af skólaakstri í Snæfellsbæ. Kynningin verður á Siglufirði, fimmtudaginn 20. maí kl. 17.00 í Ráðhúsinu og föstudaginn 21. maí kl. 17.00 í Tjarnarborg.  Magnús mun einnig verða með kynningu fyrir eldri nemendur í skólunum.
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar