625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2010 Apríl

29.04.2010 22:37

Frábær árangur hjá skíðafólki í vetur

Á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er gerður upp veturinn og helsti árangur á mótum talin upp. Alpagreinarkeppendur fengu 12 gull, 7 silfur, 13 brons. Göngukeppendur fengu 23 gull, 15 silfur og 19. brons. Stórkostlegur árangur.
Nánar um alpagreinar hér
Nánar um gönguna hér

Minnum einnig á framhaldsaðalfund skíðafélagins 5. maí nk. kl. 20:00 í skíðaskálanum.


Frá verðlaunaefhendingu á skíðamóti Íslands í vetur

29.04.2010 20:51

Styttist í bandýmótið

Nú þegar rétt rúm vika er til stefnu í bandýmótið er spenna í bænum að aukast, leynifundir hér og þar í bænum. Fylgist með fréttum á heimasíðu Bandývinafélagsins.

29.04.2010 20:45

Hörður Már gengur í raðir KS/Leifturs

Eftirfarandi barst frá KS/Leiftri:
---
Gamla kempan Hörður Már Magnússon, hennar Jónu Gullajóns hefur ákveðið að leika með KS/Leiftri í annarri deildinni í sumar.

Hörður Már spilaði eins og flestir vita með Leiftri frá 1997 - 2001 þá hélt hann til HK og lék með þeim til 2008.

Þessi 38 ára gamli sóknar og miðjumaður tók fram skóna með Carl í fyrrasumar en hann lék með liðinu í VISA-bikarnum, meðal annars gegn FH í 32-liða úrslitunum.
 leika með þeim í sumar.

Hörður Már, Jóna og fjölskylda koma til með að dvelja í Ólafsfirði í júlí.

Hörður kemur til með að styrkja liðið mikið.

29.04.2010 12:23

Nýr framboðslisti - T-listi

Eftirfarandi fréttatilkynning barst 625.is:
---

T- listi Fjallabyggðar er nýtt framboð sem breiður hópur fólks stendur að og hefur áhuga á að gera Fjallabyggð að betri bæ fyrir íbúana á komandi árum. Við teljum að með aðkomu fólks sem hefur hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi eigi Fjallabyggð bjarta framtíð.

Listann skipa:

1

Bjarkey Gunnarsdóttir

Náms- og starfsráðgjafi

2

Sigurður Hlöðversson

Tæknifræðingur

3

Guðrún Unnsteinsdóttir

Kennari

4

Róbert Haraldsson

Kennari

5

Ingvi Óskarsson

Hitaveitustjóri/rafvirki

6

Bergþór Morthens

Myndlistamaður/framhaldsskólakennari

7

Kristín Guðmundsdóttir

Iðjuþjálfi

8

Katrín Sigmundsdóttir

Háskólanemi

9

Ingimundur Loftsson

Sjómaður

10

Arnheiður Jónsdóttir

Landfræðingur

11

Þormóður Sigurðsson

Iðnverkamaður

12

Hörður Þór Hjálmarsson

Pípulagnameistari

13

Úlfar Agnarsson

Verkamaður

14

Guðný Róbertsdóttir

Kennari

15

Baldur L. Jónsson

Verkamaður

16

Sveinn Þorsteinsson

Húsasmiður

17

Inga Eiríksdóttir

Markaðs-og kynningarfulltrúi

18

Svanfríður Halldórsdóttir

 

Framkvæmdastjóri

29.04.2010 12:20

Norrænar sumarbúðir og aðalfundur Norrænafélagsins

Norræna félagið í Ólafsfirði  og Norræna félagið í Reykjavík auglýsa norrænar  sumarbúðir í Hillerød í Danmörku  28. júni - 4. júli fyrir krakka á aldrinum 12- 14 ára.

Fyrirhugað er að halda kynningarfund í Gagnfræðaskólahúsinu fimmtudaginn 6. maí  kl. 20:00

Áhugasömum er bent á heimasíðu sumarbúðanna www.nordlejr.dk , valmöguleiki sommerlejr.

Einnig veitir Kristín Davíðsdóttir  upplýsingar í síma 660-3956

Aðalfundur Norrænafélagsin verður haldinn á undan kynningunni, kl. 19.00

Fyrir hönd Norrænafélagsins í Ólafsfirði

Jón Hrói og Kristín D

29.04.2010 12:15

Flekinn á vatninu

Nú fer hver að verða síðastur til að taka þátt í ágiskunarleik Trölla á Ólafsfjarðarvatni. Ísinn er farinn að láta á sjá og þátttakan í leiknum hefur aukist til muna. 
Hægt er að taka þátt á heimasíðu Trölla. Einnig er hægt að taka þátt í versluninni Valberg ehf.
Gjaldið er nú komið í 1.000 kr og hækkar í 1.500 kr 1.maí. Glæsilegur flakkari í boði fyrir þann sem kemst næst því að giska á hvenær 40 kg steinn bráðnar í gegnum ísinn á Ólafsfjarðarvatni.


Flekinn góði

29.04.2010 07:35

Trimmbraut í Skeggjabrekkudal

Á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er sagt frá því að búið sé að gera trimmbraut frá Golfskálanum í Skeggjabrekkudal og inn í dal. Veðrir er frábært og tilvalið að skella sér út í góða veðrið.

28.04.2010 20:50

Vor í lofti

Það má með sanni segja að vorið sé á leiðinni. krakkarnir farnir að leika sér á Tjörninni og endurnar okkar byrjaðar að stoppa umferð. Myndirnar voru teknar í morgun þegar endurnar voru búnar að koma sér vel fyrir á aðalgötunni og seinni partinn þegar nokkrir krakkar voru á bátum á Tjörninni.
Fleiri myndir af Tjarnarbuslinu er að finna í myndaalbúminu.
Gleðilegt sumar :-)



28.04.2010 20:40

Fyrstu tjaldgestirnir

Já það er rétt, fyrstu tjaldgestirnir sáust hér á mánudaginn. Myndin er tekin á mánudagskvöldið og þegar menn mættu til vinnu á þriðjudagsmorgni voru tjaldbúar enn á staðnum. Líklegt er að þarna hafi verið fjallaskíðamenn þar sem það sást til skíðaklossa við tjaldið.

Frekar kuldalegt :-)

28.04.2010 19:55

Lágheiðin mokuð

Verið er að moka Lágheiðina, mokað er báðum megin frá. Reiknað er með að heiðin opni fyrir helgi. Hægt er að fylgjast með gangi mála á heimasíðu Vegagerðarinnar og í síma 1777.

28.04.2010 19:41

Haförn í Ólafsfirði

Ungur haförn heiðraði Ólafsfirðinga með nærveru sinni skömmu fyrir hádegi í dag. Gísli Kristinsson, sem tók meðfylgjandi myndir, segir mjög sjaldgæft að hafernir sjáist í firðinum og hann hafi reyndar aðeins einu sinni heyrt um það. 

Það var Svavar B. Magnússon sem sá fuglinn fyrstur. Þá kom hann fljúgandi inn yfir bæinn og settist síðan á flugvöllinn - rétt framan við vinnubúðirnar við munna Héðinsfjarðarganganna. Síðan flaug örninn fram eftir vatninu og settist á bakkann þar sem Ólafsfjarðará rennur í vatnið. Þar tók Gísli myndirnar, af um það bil 300 metra færi. "Hann var frekar styggur og flaug lengra fram sveitina þegar ég reyndi að komast nær honum," sagði Gísli í samtali við mbl í dag (textin fenginn úr frétt á mbl.is)

Myndirnar tók Gísli Kristins (Kidda og Lólóar)







28.04.2010 12:05

Brot úr degi Júlla Magg

Magnús A Sveinsson sendi okkur myndband þegar hann myndaði löndum hjá "trillikallinum" okkar, Júlla Magg. Myndbandið var tekið þegar hann landar við Ólafsfjarðarhöfn 18. apríl sl.
myndbandið má finna hér: http://vimeo.com/11116690

26.04.2010 21:43

Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram lista

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Fjallabyggð samþykkti á fundi sínum þann 25. apríl eftirfarandi lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 29. maí.

1          Þorbjörn Sigurðsson, hafnarvörður.

2          Guðrún Hauksdóttir, verkakona.

3          Ólafur H. Marteinsson, framkvæmdastjóri.

4          Magnús A. Sveinsson, verkefnisstjóri fjarvinnslu.

5          Margrét Ósk Harðardóttir, bankastarfsmaður.

6          Kristín B. Davíðsdóttir, kennari.

7          Elín Þorsteinsdóttir, innanhússarkitekt.

8          Júlía Poulsen, verslunarmaður.

9          Sandra Finnsdóttir, bankastarfsmaður.

10       Hólmfríður Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari.

11       Gústaf Daníelsson, framkvæmdastjóri.

12       Sverrir Gunnarsson, sjómaður.

13       Arndís Jónsdóttir, þjónustufulltrúi.

14       Óskar Sigurbjörnsson, fv. skólastjóri.

15       Jón Andrjes Hinriksson, útibússtjóri.

16       Kristján Hauksson, netagerðameistari.

17       Þorsteinn Ásgeirsson, aðalbókari.

18       Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri.

22.04.2010 08:00

Samfylkingin leggur fram lista

Samfylkingin ákvað á fundi sínum í gær lista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hér í Fjallabyggð:

1. Egill Rögnvaldsson, bæjarfulltrúi
2. Helga Helgadóttir, þroskaþjálfi
3. Jón Hrói Finnsson, stjórnsýslufræðingur
4. Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir, skrifstofumaður
5. Guðmundur Gauti Sveinsson, deildarstjóri
6. Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri
7. Guðrún Árnadóttir, ráðgjafi
8. Sæbjörg Ágústdóttir, stuðningsfulltrúi
9. Þrúður Sigmundsdóttir, sjúkraliði
10. Ægir Bergsson, verkamaður
11. Jón Árni Konnráðsson, lögreglumaður
12. Hilmar Elefsen, vélvirki
13. Nanna Árnadóttir, þjónustufulltrúi
14. Jakob Kárason, bakarameistari
15. Kristjana Sveinsdóttir, skrifstofumaður
16. Ólína Þórey Guðjónsdóttir, starfsmaður Iðju-dagvistar
17. Rögnvaldur Ingólfsson, húsvörður
18. Regína Guðlaugsdóttir, íþróttakennari

22.04.2010 07:59

Framsóknarflokkurinn leggur fram lista

Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram lista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hér í Fjallabyggð:

1. Ingvar Erlingsson
2. Sólrún Júlíusdóttir
3. Kristinn Gylfason
4. Ásdís Pálmadóttir
5. Rósa Jónsdóttir
6. Óskar Þórðarson
7. Ásgrímur Antonsson
8. Haraldur Björnsson
9. Elín Jónsdóttir
10. Margrét Jónsdóttir
11. Sveinn Zophoníasson
12. Þorgeir Bjarnason
13. Katrín Freysdóttir
14. Jósteinn Snorrason
15. Berglind Friðriksdóttir
16. Gurrý Anna Ingvarsdóttir
17. Aðalbjörg Þórðardóttir
18. Birkir Jón Jónsson
Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 127
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800611
Samtals gestir: 160846
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:59:31

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar