|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2010 Mars31.03.2010 12:46Sjónvarpsþáttur um skíðamót ÍslandsÁ heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er sagt frá því að laugardaginn 3. apríl kl: 17:45 verður sýndur í Ríkissjónvarpinu ríflega 1 klukkustundar þáttur um Skíðamót Íslands 2010, sem haldið var í Ólafsfirði og á Dalvík sl. helgi. Skrifað af Gísli Rúnar 31.03.2010 08:49Aðalfundur BjörgunarsveitarinnarAðalfundur Björgunarsveitarinnar Tindur verður haldinn í Tindasel miðvikudaginn 31.mars kl. 20:00. Á dagskrá eru venjubundin aðalfundarstörf. Skrifað af Gísli Rúnar 30.03.2010 12:55PáskabingóPáskabingó Leifturs verður haldið í Tjarnarborg klukkan 20:00, miðvikudaginn 31. mars. Glæsilegir vinningar í verðlaun. Verð á spjaldi er 500kr Skrifað af Gísli Rúnar 30.03.2010 12:50Siglingaklúbburinn Jókerinn stofnaðurÞriðjudaginn 6. apríl n.k. verður haldinn stofnfundur Siglingaklúbbsins Jókers í Fjallabyggð. Fundurinn veður haldinn í kaffistofu bílasmiðju Sigurjóns Magnússonar ehf. Og hefst kl. 20:00. Allt áhugafólk um siglingaíþróttir er hjartanlega velkomið. Dagskrá: 1. Kynning á undirbúningi að stofnun félagsins og hugmyndir að starfseminni. 2. Kosning fundarstjóra og ritara. 3. Lög félagsins borin upp til samþykktar. 4. Kosning stjórnar 5. Önnur mál Undirbúningsnefndin Skrifað af Gísli Rúnar 30.03.2010 12:45Myndir frá skíðamóti ÍslandsNú eru komnar myndir inn frá skíðamóti Íslands sem fram fór um helgina. Einnig er að finna myndir á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar. Úrslit helgarinnar er að finna á heimasíðu mótsins. Skrifað af Gísli Rúnar 29.03.2010 19:38Þórgunnur ráðin skólastjóri BorgarhólsskólaÞórgunnur Reykjalín hefur verið ráðin skólastjóri Borgarhólsskóla Um leið og við bjóðum Þórgunni velkomna til starfa þökkum við öðrum umsækjendum þann áhuga sem þeir sýndu starfinu. Skrifað af Gísli Rúnar 25.03.2010 14:15Skíðamót Íslands 2010Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Dalvíkur eru mótshaldarar á Skíðamóti Íslands 2010, sem haldið er núna um helgina 26. - 29. mars, og til að gera umgjörð mótsins flottari og veglegri þá ætla bæjaryfirvöld að draga íslenska fánann að húni í bænum þá daga sem keppt er á mótinu. Mótshaldarar hvetja bæjarbúar til að gera slíkt hiða sama, þetta kemur til með að setja mikinn svip á bæinn á meðan skíðamótið stendur yfir. Á heimasíðu mótsins eru nánari upplýsingar um mótið um helgina. Skrifað af Gísli Rúnar 24.03.2010 12:20Leiklestur, ljóð og söngurEftirfarandi barst 625.is:
Gumma Fjólu og félögum úr Leikfélagi Ólafsfjarðar að kvöldi Skírdags í Tjarnarborg og laugardaginn 3 apríl. Leiklestur, ljóð og söngur. Kósýkvöld með kertaljósi og kaffi eða glæru í glasi. Skrifað af Gísli Rúnar 24.03.2010 12:15Göngum til gleðiEftirfarandi barst 625.is: --- Ferðafélagið Trölli mun standa fyrir göngu í kringum Ólafsfjarðarvatn á föstudaginn langa. Lagt verður af stað frá Hótelinu kl. 10:00. Björgunarsveitin verður á sveimi og tekur göngugarpa uppí ef þörf er á. Nánar auglýst síðar Skrifað af Gísli Rúnar 24.03.2010 12:10Starf flokksstjóra hjá vinnuskóla FjallabyggðarBúið er að auglýsa starf floksstjóra vinnuskóla laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 16. apríl. Sjá nánar á heimasíðu Fjallabyggðar. Skrifað af Gísli Rúnar 24.03.2010 11:16Aðalfundur LeiftursAðalfundur Íþróttafélagsins Leifturs verður haldinn kl. 20:00 í kvöld, miðvikudaginn 24. mars í UÍÓ húsinu við knattspyrnuvöllinn í Ólafsfirði. Skrifað af Gísli Rúnar 22.03.2010 18:50Aðilar í Fjallabyggð fá styrki frá Menningarráði EyþingsSex styrkir frá Menningarráði Eyþings fóru í verkefni sem sveitarfélagið, einstaklingar og félög í Fjallabyggð fengu. Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu styrk: Fjallabyggð, til að halda Grænlenska menningarviku barna og unglinga í nóvember. Jassklúbbur Ólafsfjarðar til að vera með blússkóla - ,,bryggjublús" á blúshátíðinni í byrjun júlí. Ljóðasetrið Glói fékk styrk til að láta hanna og prenta veggspjöld á Ljóðasetrið. Ljóðahátíðin Glóð á Siglufirði. Fríða Gylfadóttir fékk styrk í ,,Fjallabyggðartrefilinn" sem tengja á Ólafsfjörð og Siglufjörð við opnun Héðinsfjarðarganga. Þjóðlagahátíðin á Siglufirði Skrifað af Gísli Rúnar 22.03.2010 18:45Fundur um fjölpólistískan framboðslistaEftirfarandi barst 625.is: --- Áhugafólk um fjölpólistískan framboðslista í Fjallabyggð Boðað er til fundar í Sandhóli þriðjudaginn 23. mars kl. 20. Allir þeir sem hafa áhuga á að bjóða fram krafta sína, með framboði og/eða vilja til nefndarsetu, eru hvattir til að mæta. Með því að taka þátt gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og þróun sveitarfélagsins okkar á næsta kjörtímabili. Flest höfum við skoðanir á þessum málum, nú er tækifæri til að koma þeim á framfæri. Áhugafólk Skrifað af Gísli Rúnar 22.03.2010 18:28IRONY á Músíktilraunum"IRONY var algerlega sér á parti í keppninni. Hér voru komnir kornungir nemendur úr Tónlistarskólanum á Ólafsfirði. Sviðsframkoman því mjög útskriftarleg en lögin voru fín, það fyrra einkar grípandi og það seinna enn betra, hetjuleg og dramatísk snið sem hefði sómt sér vel í ROCKYMYND." Einnig má finna myndir á heimasíðu Tónskólans. Hljómsveitin IRONY ásamt Thiago Trinsi (myndin er fengin af síðu Tónskólans) Skrifað af Gísli Rúnar 21.03.2010 18:54Ólafsfirðingar gerðu það gott á UnglingameistaramótinuEins og fram hefur komið hér á síðunni voru gönguskíðakrakkarnir að gera það gott á Unglingameistaramóti Íslands sem haldið var á Siglufirði um helgina. Myndir frá verlaunaafhendingunni á laugardag kominn í myndaalbúmið. Einnig má finna myndir á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar. Önnur úrslit eru sem hér segir: Stórsvig 13 - 14 ára Svig 13-14 ára. Úrslitin er hægt að skoða á heimasíðu Skíðaráðs Reykjavíkur
Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 394 Gestir í dag: 127 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800611 Samtals gestir: 160846 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:59:31 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|