|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2010 Febrúar27.02.2010 12:11Skyndihjálp hjá Djarfi625.is kíkti við á skyndhjálparnámskeið hjá unglingadeild Björgunarsveitarinnar í morgun. Unglingasveitin heitir Djarfur en Björgunarsveitin Tindur. Harpa Jóns sá um kennsluna enda orðin vel vön og menntuð í slíkum fræðum. Það er mikilvægt að þessir unglingar læri undirstöðuatriði í skyndihjálp og björgun, enda sá hópur sem mun taka við björgunarsveitinni í framtíðinni. Getur verið erfitt að sitja á "skólabekk" á laugardagsmorgni. Harpa Hlín Skrifað af Gísli Rúnar 26.02.2010 18:03Íbúafundur vegna breyttrar sorphirðuÍslenska Gámafélagið mun halda íbúafund varðandi breytt fyrirkomulag í sorphirðu í sveitarfélaginu. Á fundinum verður m.a. kynntur árangur af verkefninu ásamt því að íbúm gefst kostur á að taka þátt í umræðum. Fundirnir verða haldnir sem hér segir:Í Ólafsfirði mánudaginn 1. mars kl. 20:00 Á Siglufirði þriðjudaginn 2. mars kl. 20.00 Skrifað af Gísli Rúnar 26.02.2010 17:52Bæjarlistamaður FjallabyggðarEftirfarandi barst frá Fjallabyggð: --- Menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir umsóknum og /eða rökstuddum ábendingum um bæjarlistamann Fjallabyggðar 2010 Markmiðið með því að tilnefna bæjarlistamann ár hvert er að hvetja og auka áhuga á listsköpun og bæta menningarlíf íbúa. Um leið er það viðurkenning bæjaryfirvalda að sköpun og list skipti samfélagið máli. Loks er slík nafnbót auglýsing á listamanninum og sveitarfélaginu. Styrkur til bæjarlistamanns 2010 nemur kr. 250.000. Umsóknir skulu berast fyrir 17. mars 2010 til Karítasar Skarphéðinsdóttur Neff, fræðslu- og menningarfulltrúa, Ólafsvegi 4, 625, Ólafsfirði, sími 464 9200. Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Fjallabyggðar 1.gr. 2. gr. 4. gr. 5.gr. 6. gr. 7. gr. Samþykkt á 44. fundi bæjarstjórnar 15. desember 2009 Skrifað af Gísli Rúnar 25.02.2010 19:16Bandýmótið verður 8. maíJæja, þá er það ákveðið. Bandýmót verður haldið 8. maí. Mótið verður sem sagt 8. maí og verður nánar greint frá tilhögun seinna. Nú er bara að fara að hanna búninga og semja og æfa innkomur og kynningar. Skrifað af Gísli Rúnar 25.02.2010 12:10Myndband frá KleifaberginuÁ bloggsíðu kleifabergsins má finna hlekk á myndband frá síðasta túr Kleifabergsins þegar þeir voru á Ufsaveiðum. Myndbandið má finna hér. Skrifað af Gísli Rúnar 24.02.2010 22:03SlysavarnarskemmtuninÁrshátíð Slysavarnardeildar kvenna í Ólafsfirði verður haldin laugardaginn 27. febrúar. Miðasala verður öllum opin og fer hún fram í Tjarnarborg fimmtudagskvöld kl. 20:00-22:00. ATH. ef ekki seljast a.m.k. 60 miðar verður hátíðinni aflýst. Skrifað af Gísli Rúnar 24.02.2010 17:46Fréttir af knattspyrnuFengum sendar fréttir áf því hvað sé framundan hjá KS/Leiftri: ---- Búið er að draga í bikarkeppni KSÍ. KS/Leiftur sitja hjá í fyrstu umferð og koa svo inn í 2. umferð og spila þá heima í ólafsfirði við við Magna eða Tindastól (sem takast á í fyrstu umferð) Leikurinn verður þann 18. maí. kl. 19:00. Síðan koma úrvalsdeildarliðin strax í 3ju umferð þ.e.a.s. 32 liða þannig að ef KS/Leiftur vinnur leikinn þann 18. maí er ekki ólíklegt að þeir keppi við úrvalsdeildarlið. Annars byrjar deildarbikarinn síðan nú um miðjan mars og þá má segja að undurbúningur fyrir sumarið hefjist að fullu, þó svo að strákarnir séu fyrir löngu byrjaðir að æfa af krafti. sunnudaginn 14. mars kl. 20:00 verður svo leikur KS/Leiftur - Völsungur í Boganum. Skrifað af Gísli Rúnar 24.02.2010 12:05SkólahreystiEftirfarandi barst 625.is: --- Þriðjudaginn 2. mars verður haldin skólahreystikeppni í íþróttahúsinu kl.13:00. Þar etja kappi nemendur í eldri bekkjum grunnskólans auk þess sem nemendur frá Dalvíkurskóla koma og reyna með sér. Þetta er forkeppni til að velja fulltrúa þessara skóla fyrir landshlutakeppnina sem verður 11.mars á Akureyri kl.15:00. Keppt verður í hraðabraut auk þess sem keppt er í upphífingum, dýfum, armbeygjum og fitnessgreip. Keppnisrétt hafa allir nemendur í 8. 9. og 10. bekk. Þar að auki keppa tveir bestu nemendur af báðum kynjum í 6. og 7. bekk í hraðabrautinni. Allir eru velkomnir til að fylgjast með á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis. Kveðja, Mæja og Valla. Skrifað af Gísli Rúnar 22.02.2010 21:06Aðalfundur GnýfaraAðalfundur hestamannafélagsins Gnýfara verður haldinn í Tuggunni, félagshúsi hestamanna laugardaginn 27. febrúar kl. 14:00. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf. Skrifað af Gísli Rúnar 21.02.2010 11:29Yukigassen myndirÞað eru komnar inn myndir frá Yukigassen leiknum á vatninu í morgun. Því miður þá fór að snjóa mikið og því ekki til myndir af keppninni sjálfri. Myndirnar eru frá því að verið var að búa til völlinn. ![]() yukigassen völlurinn að verða klár Skrifað af Gísli Rúnar 21.02.2010 09:47Skíðasvæðið hugsanlega opnað í dagÁ heimasíðu Skíðafélagsins er sagt frá því að Það verður opið á morgun sunnudag frá kl 13:00 til kl: 17:00 ef ekkert kemur upp á. Einnig má lesa fréttir af árangri skíðamanna nú um helgina á heimasíðu félagsins Skrifað af Gísli Rúnar 20.02.2010 14:18Yukigassen (snjókast) á ÓlafsfjarðarvatniFerðafélagið Trölli ætlar að prófa að setja upp Yukigassen völl og skella sér í snjókast. Mæting út á Ólafsfjarðarvatn sunnudaginn 21. febrúar kl. 10:00. Mikilvægt er að börn komi í fylgd með fullorðnum, taka með sér skóflur, hlý föt, hjálm, hlífðargleraugu og góða skapið. Fyrir þá sem ekki vita er Yukigassen mikið stundað í japan og er í raun snjókast milli tveggja liða á leikvelli og fylgt er ákveðnum reglum. Draumur ferðafélagsins er að halda fyrstu Yukigassen keppni á Íslandi um páskana og þurfum við því að taka smá æfingu og ætlum okkur að gera það á sunnudaginn. Þetta verður því sennilega í fyrsta skipti sem settur er upp svona völlur á Íslandi og vonandi verður mæting nægilega góð til að ná í tvö eða fleiri lið. Hér má sjá smá sýnishorn af Yukigassen á youtube. Yukigassen Skrifað af Gísli Rúnar 20.02.2010 11:51Það snjóarÞað snjóar heldur betur í Ólafsfirði í dag (myndin tekin um 11:30 í morgun) Skrifað af Gísli Rúnar 20.02.2010 09:50SnjómoksturSnjómokstur í Fjallabyggð hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga. Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni vissar breytingar í þjónustumiðstöðvum Fjallabyggðar (áhaldahúsunum). Starfsemi þjónustumiðstöðva verður sameinuð í eina stofnun og verkefni þjónustumiðstöðva í Ólafsfirði og á Siglufirði samræmd og umfang starfseminnar minnkað. Í nýrri þjónustumiðstöð er gert er ráð fyrir sjö stöðugildum sem þýðir fækkun um fjögur stöðugildi frá því sem nú er. Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|