|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Nóvember29.11.2009 13:42Piparkökur málaðar á leikskólanumKrakkarnir á leikskólanum buðu foreldrum með sér í dag að mála piparkökur sem krakkarnir voru búnir að baka í vikunni á undan (með aðstoð starfsfólks leikskólans). Myndir í myndaalbúminu. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 28.11.2009 21:59Ljósmyndasýning Gísla KristinsGísli Kristinsson áhugaljósmyndari (og bæjarverkstjóri) opnaði í dag ljósmyndasýningu í listhúsi Fjallabyggðar (þar sem Heimaval/Glaumbær var). Þeir sem ekki komust í dag þurfa ekki að örvænta því sýningin verður opin eftirfarandi næstu vikuna:
Skrifað af Gísli Rúnar 28.11.2009 21:49Jóladagur í ÓlafsfirðiÍ dag var mikil jólagleði í Ólafsfirði. Jólahúsin voru vígð og var jólamarkaður að hluta í þeim og inn í Tjarnarborg svo var kveikt á jólaténu. Fullt af myndum frá deginum í myndaalbúminu. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 28.11.2009 21:31Lukkuleiksmiðar foreldrafélagsinsÞeir sem hafa ekki enn tryggt sér lukkuleiksmiða geta núna um helgina nálgast þá hjá Rósu Jóns, Gullu Björk eða Kristjönu Margréti. Miðarnir er til styrktar íþróttabörnum í Ólafsfirði og eru fullt af flottum vinningum í boði. Miðinn kostar kr. 250.- Skrifað af Gísli Rúnar 28.11.2009 20:14Ungir og gamlir Leiftursmenn takast áÍ morgun áttust við í íþróttahúsinu á Ólafsfirði Ungir-Gamlir hjá meistaraflokki KS Leifturs (austurbær). Það er skemmst frá því að segja að ungir áttu aldrei breik í leiknum og voru yfirburðir Gömlu mannanna slíkir að hætt var að telja markamuninn á tímabili!!! Heiðar, Þorvaldur Sveinn, Albert og Viktor skipuðu lið meistaranna en ungu kjúllarnir voru Kristó, Ingimar, Kristófer og Halldór. Spurning hvort reynsaln hafi verið of sterkt vopn fyrir ungu guttana. Sigurliðið, ánægðir með árangurinn. Tapliðið frekar svekktir þessir strákar, gengur betur næst. Skrifað af Gísli Rúnar 27.11.2009 12:15Alexía á alþjóðlegt mót?Á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar er sagt frá því að Skíðasamband Íslands hefur valið 6 keppendur á aldrinum 13 - 14 ára sem eiga möguleika á að fara og keppa á alþjóðlegu móti í Topolino á næsta ári og eigum við ólafsfirðingar eina stúlku í þessum hópi, Alexíu Maríu Gestsdóttur (Steinu og Gests). Skrifað af Gísli Rúnar 27.11.2009 12:10Jólatréð við TjarnarborgEins og fram hefur komið hjá okkur þá er búið að koma jólahúsunum fyrir. Magnús A Sveinsson sendi 625.is þessar myndir þegar bæjarstarfsmenn voru að koma seríu fyrir á jólatrénu. Skrifað af Gísli Rúnar 26.11.2009 17:25Tré fært til upphaflegs eigandaÞegar Sigurjón Magnússon seldi Aðalgötu 37 fylgdu ströng skilyrði fyrir sölunni. En það var að ef tréð sem hann gróðursetti þar ætti að fara úr garðinu þá ætti hann rétt á því að fá það. Það kom svo að því að tréð átti að fara og stóðu kaupendurnir við gerðan samning. Sigurjón sótti tréð á dögunum og kom því fyrir á Brimnesi þar sem hann býr nú, stóra spurningin er svo hvort það hafi lifað "ferðalagið" af. Skrifað af Gísli Rúnar 26.11.2009 17:20TunnufestingarVélsmiðja Einars Ámunda hefur hannað tunnufestingar fyrir þær þrjár tunnur sem Fjallabyggð er að fara að taka í gagnið á næstunni. Áhugasamir geta haft samand við Einar Ámunda. Hér að neðan má sjá nokkrar útfærslur á festingunni (ástæðan fyrir því að einhver er með úrtekið í miðjunni er vegna þess að tvær tunnur eru með festingu í miðjunni sem þarf að komast fyrir og ein ekki) Er þetta fest á vegg eða í tunnuskýlin og krækjast tunnurnar upp á þetta og fjúka þar af leiðandi ekki í burtu. Hægt að fá þetta húðað og úr áli. Skrifað af Gísli Rúnar 26.11.2009 12:10Matti Sigvalda ráðinn aðstoðarþjálfari KS/LeiftursBúið er að ganga frá því að Matthías Sigvaldason (Sissa og Helgu) verður aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki KS/Leifturs í sumar, auk þess verður Matthías yfirþjálfari yngriflokka Leifturs. Matthías spilaði lengst af með Leiftri en hefur einnig spilað með Fjölni og Dalvík. Matti hefur komið nokkuð að þjálfun gerði m.a. 4. flokk karla hjá Leiftri að Íslandsmeisturum árið 1997. Það er alltaf gaman þegar "gamlir Ólafsfirðingar" koma á heimaslóðir aftur. Matti Skrifað af Gísli Rúnar 23.11.2009 17:29Snúningshringur við norðurenda HlíðarvegsHingað til hefur frágangur við norðurenda Hlíðarvegs ekki verið mjög góður. Þar sem um botnlanga er að ræða hefur það reynst erfitt að snúa bílunum við nema að fara inn á bílastæði húsanna í kring. Björn Ara tók sig til og keyrði og lagði til efni sjálfur til að hægt væri að snúa án þess að keyra inn á einkalóðir. Björn Ara að slétta úr efninu sem hann keyrði Nú er hægt að ná snúningnum án þess að þurfa að bakka. Skrifað af Gísli Rúnar 23.11.2009 12:50Jólahúsunum komið fyrirNú er búið að smíða jólahúsin og er búið að koma þeim fyrir við Tjarnarborg. Húsin verða notuð til að búa til jólamarkaðsstemningu þegar kveikt verður á jólatrénu 28. nóvember nk. Þá verður markaður í Tjarnarborg (og húsunum), kakó piparkökur verða á sínum stað og auðvitað mæta jólasveinarnir. Einnig er búið að koma fyrir einu stærra húsi og verður veitingastaðurinn Höllin með veitingar þar inni á meðan að á þessu stendur. Markaðurinn byrjar kl. 14:00 og stendur til 18:00. Kveikt verður á jólatrénu kl. 16:00. Myndir í myndaalbúminu ![]() Þegar jólatréð verður komið á sinn stað og búið að skreyta húsin verður þetta ótrúlega flott. Skrifað af Gísli Rúnar 21.11.2009 21:14Fjallabyggð áfram í ÚtsvariFjallabyggð lagði nú rétt í þessu Akranes í Útsvari, spurningarkeppni sveitarfélaga sem sýndur er í Ríkissjónvarðinu á laugardagskvöldum í vetur. Eins og fram hefur komið hér á síðunni var liðið skipað upprunalegum keppendum. Fjallabyggð keppir annað hvort rétt fyrir jól eða eftir áramót. Það eru tveir þættir eftir af þessari umferð og þá verður dregið í næstu umferð. Inga Eiríksdóttir, Guðmundur Ólafsson og Þórarinn Hannesson Skrifað af Gísli Rúnar 20.11.2009 00:49Stjórn Skíðafélags ÓlafsfjarðarÁ aðalfundi Skíðafélags Ólafsfjarðar 18. nóvember al. var ný stjórn félagsins kosin, einnig var kosið í Alpagreinanefnd og göngunefnd. Einnig var samþykkt lagabreytingar og verður reikningsár félagsins nú miðað við almanaksárið og aðalfundur skal haldin eigi síðar en 20.febrúar ár hvert. Þessi stjórn mun því starfa fram að næsta aðalfundi í febrúar og þar verða lagðir fram reikningar frá 1. september til 31. desember.
Stjórn Skíðafélagsins skipa: Sigurpáll Gunnarsson (Formaður) Aðalbjörg Snorradóttir Kristrún Þorvaldsdóttir Steinunn Gunnarsdóttir Kristín Davíðsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og þar sem enginn hefur boðið sig fram mun ný stjórn leita að fimmta manninum í stjórn.
Skrifað af Gísli Rúnar 20.11.2009 00:00Embætti skólameistara við framhaldsskóla við utanverðan EyjafjörðMenntamálaráðuneytið hefur nú auglýst laust til umsóknar embætti skólameistara við nýja framhaldsskólann við utanverðan Eyjafjörð.
Starfssvið Skólameistari mun leiða hugmyndavinnu, uppbyggingu og skipulagningu faglegrar starfsemi skólans í samstarfi við hagsmunaaðila en gert er ráð fyrir sveigjanleika og möguleikum til nýbreytni í starfsháttum skólans. Menntunar- og hæfniskröfur Leitað er eftir einstaklingi með stjórnunarreynslu, leiðtoga- og samskiptahæfni, reynslu af stefnumótunarvinnu og hæfileika til nýsköpunar. Ný lög um framhaldsskóla nr. 92/2008 fela framhaldsskólum aukna ábyrgð á skilgreiningu námsbrauta, þróun námsframboðs á mörkum skólastiga og fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Ráðning og kjör Um laun skólameistara fer eftir ákvörðun kjararáðs, sbr. lög um kjararáð, nr. 47/2006, með síðari breytingum. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og menningarmálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 15. desember 2009. Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Jónsdóttir, skrifstofustjóri upplýsinga- og þjónustusviðs í ráðuneytinu. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|