625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Færslur: 2009 Október

30.10.2009 12:49

Sr. Sigríður Guðmarsdóttir fær dæmdar bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslensku þjóðkirkjuna til að greiða sr. Sigríði Guðmarsdóttur rúmlega 1,6 milljónir króna í bætur en talið var að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar skipað var í embætti sendiráðsprests í Lundúnum árið 2003. 
Sr. Sigríður var prestur í Ólafsfirði um skeið.
Nánar má lesa um þetta á mbl.is: http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/10/29/prestur_faer_daemdar_baetur/

Sr. Sigríður Guðmarsdóttir (mynd fengin af vef mbl.is)

29.10.2009 17:32

Uppselt á frumsýningu BarPar

Eins og fram hefur komið hér þá á að frumsýna BarPar á morgun, föstudag. Uppselt er á frumsýninguna. Aðrar sýningar verða:

1. nóvember
5. nóvember
6. nóvember
8. nóvember

Allar sýningar verða í Tjarnarborg og hefjast þær allar kl. 20:00

ATH. takmarkað sætaframboð á hverri sýningu vegna uppsetningar á leikmynd.

29.10.2009 12:10

Umferðarkönnun

Háskólinn á Akureyri, í samvinnu við Vegagerðina, mun standa fyrir umferðarkönnun á Ólafsfjarðarvegi, milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar og á Siglufjarðarvegi við Ketilás, fimmtudaginn 29. október og laugardaginn 31. október n.k. Könnunin stendur yfir frá kl. 08:00 - 23:00 báða dagana.


Tilgangur með könnuninni er að kanna umferðarmynstur á utanverðum Tröllaskaga yfir sumartímann og öðlast þekkingu á ferðavenjum einstaklinga á svæðinu Einnig fást upplýsingar um umferð á milli einstakra staða og landsvæða, sem síðar gætu nýst við almenna áætlanagerð. Um er að ræða hluta af rannsóknarverkefni um áhrif Héðinsfjarðarganga á samfélag og byggð.

Framkvæmd umferðarkönnunarinnar verður með þeim hætti að allar bifreiðir, sem koma að könnunarstað, verða stöðvaðar og bílstjórar spurðir nokkurra spurninga.

Vonast er til að vegfarendur, sem leið eiga um könnunarstaðina, taki starfsmönnum Háskólans vel og jafnframt er beðist velvirðingar á töfum sem kunna að hljótast af þessum sökum.

Frétt fengin á www.siglo.is

28.10.2009 11:11

Fréttir frá Fjallabyggð

Á heimasíðu Fjallabyggðar er sagt frá spjallborði sem búið er að koma upp um viðburði í Fjallabyggð. Þarna gefst bæjarbúum tækifæri á að spjalla saman og koma með athugasemdir sem tengjast þessum hátíðum.
Fréttin á Fjallabyggd.is

Einnig er sagt frá almennum fundum sem verða haldnir varðandi hundahald í Fjallabyggð. Siglufirði fimmtudaginn 29. október kl. 20.00 í Ráðhúsinu (2. Hæð)
Ólafsfirði miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20.00 í Tjarnarborg.

Fundarefni:
Hundalaus svæði í sveitarfélaginu.
Aðrar almennar reglur um hundahald.
Frétttin fá Fjallabygg.is



27.10.2009 10:50

Miðasala hafin á BarPar

Eins og fram hefur komið hjá okkur mun Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýna leikverkið BarPar eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar (Gumma Fjólu).
Miða er hægt að panta hjá Helanu í síma 845-3216.

Allar sýningar verða í Tjarnarborg og hefjast þær allar kl. 20:00

30. október (frumsýning)
1. nóvember
5. nóvember
6. nóvember
8. nóvember

ATH. takmarkað sætaframboð á hverri sýningu vegna uppsetningar á leikmynd.

27.10.2009 10:41

Ný flökunarvél um borð í Sigurbjörg ÓF - 1

Vélfag ehf afhenti nú á dögunum flökunarvél um borð í Sigurbjörgina. Magnús A Sveinsson hefur sett saman myndasyrpu af viðburðinum. Hana má sjá hér

26.10.2009 11:57

Fréttir af krökkunum í frjálsum

Um helgina voru æfingabúðir hjá landsliðsúrtaki unglinga 22 ára og yngri í frjálsum íþróttum. Þar voru boðuð Gunnlaug Helga (Ásgeirs Loga og Stínu) og Leó Pétur (Magga Kollu og Rutar) og mætti Gulla.

Á lokahófi frjálsra hjá UMSE fékk Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir (Ásgeirs Loga og Stínu) verðlaun fyrir Íslandsmetin tvö sem hún setti í sumar. Íslandsmetin voru sett í sleggjukasti. Gunnlaug Helga var valinn frjálsíþróttamaður Umf. Svarfdæla.

Allir sem voru í 11-14 ára liði UMSE sem varð Íslandsmeistari félagsliða í sumar fengu boli með áletrunni ,, Íslandsmeistarar utanhús 2009,, það voru Sibba, Gulla, Hulda, Erla Vilhjálms, Erla Marý og Kara Gautadóttir.

Annars er undibúningstímabilið í fullum gangi núna og styttist í fyrsta mótið sem verður 7. nóvember í Boganum og verður fyrir 11 ára og eldri.

26.10.2009 09:25

Björgunarsveitin Tindur á Landsæfingu Landsbjargar

Á heimasíðu Björgunarsveitarinnar er sagt frá því að um 500 manns mættu á landsæfing Slysavarnarfélagsins Landbjargar sem haldin var laugardaginn 24.október á Reykjanesi. Björgunarsveitin Tindur átti 4 fulltrúa á æfingunni, Axel Pétur Ásgeirsson, Kjartan Helgason og Kristján Hauksson voru skráðir í almenn verkefni og leitartækni. Tómas Einarsson og hundurinn Krummi tóku svo þátt í hundaverkefnum.
Myndir og nánari fréttir af landsæfingunni má finna á heimasíðu Tinds: http://www.landsbjorg.is/tindur/

Þeir sem hafa áhuga á því að kynna sér starfsemi Björgunarsveitarinnar geta mætt í húsnæði Sveitarinnar (ská á móti Úrval) á þriðjudagskvöldum, en þá er sveitin með vinnu- og æfingakvöld.


Frá Landsæfingunni. Mynd fengin af heimasíðu Björgunarsveitarinnar

26.10.2009 09:15

Gísli Hvanndal gerir myndband við lagið Álfa

Gísli Hvanndal Jakobsson hefur gert myndband við lagið Álfa eftir Magnús Þór Sigmundsson. Er þetta fyrsta video sem Gísli Hvanndal gerir og setur út sjálfur með smá hjálp vinar, Sigurðar óla Konráðssonar. En myndbandið er gert hjá Sigurði Óla Konráðssyni í glæsilegri tölvu með glæsilegum forritum. Lagið var tekið upp í MogoMusic í Ólafsfirði http://www.mogo.is/

Hægt er að sjá myndbandið hér: http://www.youtube.com/watch?v=Tu8MLAaNkqI

Gísli Hvanndal (mynd fengin af Facebook)

23.10.2009 09:43

Halldór og Ingimar á Landsliðsæfingu

Um helgina fara þeir Halldór Guðmundsson (Gumma Garðars og Þuru) og Ingimar  Hlynsson (Helgu Ingimars og Hlyns) á Landsliðs æfingu í fótbolta. Báðir eru þeir uppaldir Leiftursmenn og vonandi að þeir komi til með að standa sig vel um helgina og tryggja sig þar með í U19 ára landslið okkar.
 
Myndirnar eru fengnar af Facebook síðum þeirra.

22.10.2009 22:28

Vetrardagsskemmtun aflýst

Búið er að aflýsa vetrardagsskemmtuninni sem átti að vera á laugardaginn í Tjarnarborg. Þátttaka varð því miður ekki nægileg.

22.10.2009 12:52

Þorvaldur Sveinn í KS/Leiftur

KS/Leiftur hefur fengið varnarmanninn Þorvald Svein Guðbjörnsson til liðs við sig að nýju frá KA. Þorvaldur hóf feril sinn hjá Leifri en hann lék með liðinu í úrvalsdeildinni á sínum tíma. Eftir síðasta tímabil fór Þorvaldur frá KS/Leiftri í KA þar sem hann lék tólf leiki í fyrstu deildinni í sumar.

Fyrir utan Þorvald skrifuðu sex ungir og efnilegir leikmenn undir tveggja ára samning við KS/Leiftur nú á dögunum.
Þeir eru: Halldór Ingvar Guðmundsson markmaður, Birgir Hrafn Sæmundsson, Arnar Geir Ásgeirsson, Gabríel Reynisson, Grétar Bragi Hallgrímsson og Halldór Logi Hilmarsson.

Þetta eru framtíðar leikmenn félagsins sem léku töluvert mikið með KS/Leiftri á síðasta ári.


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

22.10.2009 12:28

Sigvaldi Einarsson, heiðursfélagi G.Ó

Lokahóf Golfklúbbs Ólafsfjarðar var haldið, í UÍÓ húsinu, föstudaginn 25. september. Þar var Sigvaldi Einarsson gerður að heiðursfélaga. Sigvaldi hefur verið félagsmaður frá árinu 1976 og hefur starfað lengi vel sem stjórnarmaður, sem formaður um árabil, ásamt því að vinna sem vallarstarfsmaður í nokkur ár. Færði Golfklúbburinn Sigvaldi þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Golfklúbbs Ólafsfjarðar. Hann fékk afar fallegan skjöld því til staðfestingar.

Á heimasíðu G.Ó er sagt frá þessu, einnig var sumarstarfið gert upp.
Heimasíða G.Ó: http://golf.is/pages/klubbasidur/golfklubburolafsfjardar/


Sigvaldi (myndin fengin af Facebook síðu hans)

22.10.2009 12:11

Kynningarfundur um sorpmál

Kynningarfundur um sorpmál í Fjallabyggð var haldinn í Tjarnarborg sl. þriðjudag. Þar kynntu starfsmenn frá Íslenska Gámafélaginu (ÍG) þær breytingar sem framundan eru í sorpmálum í Fjallabyggð. Um er að ræða svo kallað þriggja tunnu kerfi. Á flokkarinn.is er hægt að kynna sér það kerfi nánar. En í grófum dráttum munum við þurfa að flokka allt sorp í þrjár tunnur, græn sem er fyrir endurvinnanlegt (t.d. pappír, pappa,. mjólkufernur og plast), brún tunna fyrir lífrænt (t.d. matarafganga) og svo er síðasta tunnan sem er grá ætluð fyrir allt annað, þ.e. það er ekki endurvinnanlegt.

Á milli 30-40 manns mættu á fundinn og kom margt áhugavert þar fram. Á næstu dögum munu bæjarbúar frá inn um lúguna hjá sér bækling með ítarlegum upplýsingum um þetta kerfi. Svo munu starfsmenn ÍG fara í öll hús í byrjun nóvember og fara yfir þetta með hverjum og einum. Þeir verða tilbúnir til að aðstoða við að finna lausnir flokkunarmálum, hvort sem það er innandyra við eða utandyra.

Tunnurnar sjálfar verða í eigu ÍG sem leigur sveitarfélaginu tunnurnar. Bæjarbúar munu sem sagt ekki þurfa að verða sér sjálf út um tunnurnar. Eldri tunnur sem fyrir eru þurfa að finna sér annan tilgang (t.d. sem söfnunarstaður undir flöskur og dósir).
Tunnun verður dreyft um miðjan nóvember og mun þetta kerfi taka gildi 1. desember nk.

ÍG lagði áherslu á það að ef fólkhefði spurningar þegar líður á þá er hægt að hafa samband við þá í síma 577-5757 eða á gamur@gamur.is

Það má einnig taka það fram að þessi leið mun ekki bara verða margfalt umhverfisvænni en sú sem fyrir var farin heldur mun hún kosta sveitarfélagið minni pening á ári. Þetta skýrist af því að það er mjög dýrt að urða allt sorp án þess að flokka það.


Frá fundinum

19.10.2009 22:59

BarPar frumsýnt eftir 11 daga

Leikfélag Ólafsfjarðar hefur undanfarnar vikur æft verkið BarPar og verður það fumsýnt föstudaginn 30. október. Þessar myndir voru teknar á æfingu í kvöld.


Þura og Guðbjörn


Ekki má gleyma mönnunum á bak við tjöldin

Aðrar sýningar verða:
1. nóvember
5. nóvember
6. nóvember
8. nóvember
Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 127
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800611
Samtals gestir: 160846
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:59:31

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar