|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Ágúst31.08.2009 20:16Flottur regnbogi - framhaldSagt var frá flottum regnboga hér á síðunni fyrir nokkru, það voru nokkrir strákar sem lögðu leið sína í að ná honum. Þessi mynd barst 625.is frá Sigujóni Magnússyni, en strákarnir voru að reyna að ná í regnbogann þegar hann smellti þessari mynd af þeim. Ætli það sé nokkuð hægt að komast nær því að ná í regnbogann. Skrifað af Gísli Rúnar 31.08.2009 12:15Fréttir af frjálsum625.is fær reglulega sendar fréttir af gangi máli hjá frjálsíþróttaþjálfara UMSE, en eins og fram hefur komið hér á síðunni þá eru nokkrir krakkar frá Ólafsfirði að æfa með þeim. T.a.m. þá náði Leó Pétur (Magga og Rutar) tveimur bronsverðlaunum á íslandsmeistaramóti 15-22 ára nú um helgina, hér er pósturinn frá Ara þjálfara í heild: Skrifað af Gísli Rúnar 31.08.2009 07:57Veiðifélagið HlunkarnirVeiðifélagið Hlunkarnir héldu í gæs 29. ágúst sl. Alls veiddu þeir 42 grágæsir þennan morgun í Skagafirðinum. Veiðifélagið Hlunkarnir samanstendur af Rögnvaldi Reginskyttu Jónssyni og Andra stórskyttu Víglundssyni. Þeir nota hleðslu frá Rögnvaldi en að þeirra sögn er" veiðitímabilið of stutt til að treysta einhverju öðru" :-) Skrifað af Gísli Rúnar 29.08.2009 18:31Eyja 90 áraBjarney Bjarnadóttir (Eyja) varð 90 ára í gær 28. ágúst. Í tilefni dagsins bauð hún vistmönnum Hornbrekku og fjölskyldu upp á kaffi í dag. Sendum við henni hamingju óskir með árin 90. Skrifað af Gísli Rúnar 29.08.2009 18:2021 ár síðan aurskriður félluí gær, 28. ágúst voru 21 ár síðan aurskriðurnar féllu úr Tindaöxl niður í bæ. Gömul frétt af olafsfjordur.is sagði skemmtilega frá þessum atburði árið 2003, en þá voru 15 ár frá atburðinum. Fréttin af olafsfjordur.is: --- Í dag fimmtudaginn 28.08. 2003 eru 15 ár frá því að aurskriður féllu úr Tindaöxl og niður í bæ.
Það var mesta mildi að enginn skyldi slasast í þessum látum, en mikil umferð var til að skoða vatnavexti sem voru gríðarlegir. Það var eins og yfir hafsjó að líta í miðbænum.Skriður tóku m.a.með sér tvo bíla sem í voru fjölskyldur á ferð og er mesta mildi að engan sakaði nema bílana.
Þegar stytta tók upp hófst mikið hreinsunar- og viðgerðarstarf sem tók langan tíma og komu þá í ljós meiri skemmdir af völdum vatns en áður var talið. Fjöldi sjálfboðaliða tók þátt í hreinsunarstarfinu sem gekk ótrúlega vel með samheldni íbúa og velvildarmanna Ólafsfjarðar.
í kjölfar þessara náttúruhamfara voru grafnir skurðir í fjallinu fyrir ofan bæinn og virðast þeir hafa gefið góða raun og er talið að þeir hafi komið í veg fyrir fleiri skriðuföll síðar um haustið. Það hafa ekki fallið fleiri skriður á þessum stað og eiga skurðirnir töluverðan þátt í því. Það skal þó tekið fram að það hefur ekki rignt eins mikið undanfarin 15 ár og gerði haustið 1988. Skrifað af Gísli Rúnar 26.08.2009 22:13Sundlaugapartý/Lokahóf LeiftursLokahóf barnastarfs Leifturs fór fram með sundlaugarpartý og grilli í gær. Myndir komnar inn í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 25.08.2009 17:09Svavar gefur bænum myndirÚr fundargerð bæjarráðs:(sjá fundargerðina hér í heild) Skrifað af Gísli Rúnar 25.08.2009 12:04Ganga á Hvanndalabjarg625.is fékk sendar myndir (eru í myndaalbúmi) og upplýsingar um ferð sem farin var á Hvanndalabjargið sl helgi. --- Fjallabyggð stóð fyrir gönguviku nú fyrir helgi og var hluti af þeim ganga á Hvanndalabjarg. Gengið var á laugardagsmorgun frá Kleifum en því miður var mæting heldur slök en mikið af fólki að ganga á þessu svæði. Hópur af Bretum voru að ganga í Fossdal og einnig var fólk frá Akureyri að ganga á Hvanndalabjarg. "Hópurinn" á vegum Fjallabyggðar taldi heila 3 með fararstjóra. Engu að síður var ferðin frábær, sólin skein, nánast logn og þægilega hlýtt. Að ganga inn í Fossdal er frábær ganga fyrir alla fjölskylduna, auðveld leið, vel gróin og gengið eftir góðum stígum. Gangan upp á Hvanndalabjarg er hinsvegar frekar erfið upp bratta hlíðina. Hópurinn kom upp að Skötusjá eftir tveggja og hálfs klukkustundar göngu og horfðu niður gjánna sem er um 520m há, hrikalegt útsýni en nauðsynlegt fyrir þá sem bjargið klífa að kíkja þar niður. Áfram var haldið upp á bjargið en vegna snjóa var ekki þorandi að ganga yfir í Sýrdal eftir hinni hefðbundnu leið svo ákveðið var að ganga hærra til að sjá niður í Sýrdal og Hvanndali. Frábær ganga og fullt af fólki að njóta sýn í náttúrunni, mikið af berjum og útsýni ótrúlega flott. ![]() Kveðja, Kristján Hauksson Skrifað af Gísli Rúnar 24.08.2009 21:36SkoðanakönnunVið spurðum hér á síðunnu hvort fólk vildi frekar hafa 35 eða 50 km/klst á Aðalgötunni. Alls var kosið 90 sinnum og voru niðurstöður eftirfarandi. 35 km/klst. = 36,67% 50 km/klst. = 61,11% Alveg sama = 2,22% Skrifað af Gísli Rúnar 21.08.2009 11:59Framhaldsskóli í FjallabyggðÍ morgun mættu þeir nemendur sem ætla að hefja framhaldsnám í Ólafsfirði í vetur í nýja "námsverið". Námsverið verður staðsett í UÍÓ húsinu (Húsið við Knattspyrnuvöllinn). Margrét Lóa Jónsdóttir framhaldsskólakennari hefur verið ráðin umsjónarkennari framhaldsdeildarinnar í Ólafsfirði í vetur. Frétt um þetta birtist á vef Fjallabyggðar fyrr í vikunni Skrifað af Gísli Rúnar 21.08.2009 11:54Snjór í fjöllumÍ morgun þegar bæjarbúar vöknuðu blasti við heldur kuldaleg sjón. Fyrsti haustsnjórinn lét sjá sig í fjöllum. Myndin er tekin við norðurenda Hlíðarvegsins (Kleifarnar eru því aðeins lengra til vinstri við þessa mynd) Skrifað af Gísli Rúnar 20.08.2009 19:45Strákar á brimbrettiÍ dag voru fjórir strákar komnir saman til að vera á brimbrettum í fjörunni fyrir neðan Brimnes. Það eru komnar myndir í myndaalbúmið. Skrifað af Gísli Rúnar 19.08.2009 21:48Múlatindur stækkarBílaverkstæðið Múlatindur hefur hafið framkvæmdir vegna fyrirhugaðrar stækkunar á verkstæðinu. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum stækknunina á fundi 12. ágúst sl. og því allt komið á fullt. Þessi mynd var tekin þegar byrjað var að grafa við norðurhluta Múlatindsæ en ætlunin er að stækka sprautunarklefa verkstæðisins og hækka þakið. 625.is mun fylgjast með framgangi mála næstu vikurnar. Skrifað af Gísli Rúnar 19.08.2009 12:51BerjadagarBerjadagar verða haldnir í ellefta sinn 21.-23. ágúst hér í Ólafsfirði. Að vanda er það Örn Magnsússon sem sér um hátíðina. Dagskrána má sjá á heimasíðu berjadaga. Skrifað af Gísli Rúnar 18.08.2009 18:55Flottur regnbogiÞessi regnbogi birtist í rigningunni í gær. Ekki er víst hvort að gullpottur sé við Brimnes en það fóru nokkrir ungir drengir að athuga málið. Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|