|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Júlí30.07.2009 16:50Swingdans- og tónlistarhátíð í Tjarnarborg ÓlafsfirðiFrétt af www.fjallabyggd.is : ----- Alþjóðleg Swingdans- og tónlistarhátíð verður í Tjarnarborg Ólafsfirði. Vakin verður upp millistríðsárastemning og spilað verður alvöru gullaldar swing jazz á borð við Ellu Fitzgerald, Louise Armstrong, Duke Ellington, Count Basie, Benny Goodman o.s.frv. Swingdanshátíðin á Íslandi á sér eingöngu stað í Reykjavík og í Ólafsfirði kl. 21 - Tónleikar með bandarísku hljómsveitinni Cangelosi Cards Hljómsveitin kemur við á Íslandi í Evrópuferð sinni Laugardagur 8. ágúst kl.19 - Yfir 100 dansarar frá 21 landi koma saman og dansa kl. 21 - Tónleikar með hljómsveit Hauks Gröndals Allir velkomnir Nú er tækifærið til að koma og dansa eða bara að hlusta á frábæra tónlistarmenn! www.arcticlindy.com Skrifað af Gísli Rúnar 29.07.2009 13:46Helena saumarHelena Jónsdóttir hefur sett upp heimasíðu þar sem hægt er að skoða það handverk sem hún hefur upp á að bjóða. Slóðin á síðuna hennar er, http://saumaskapur.123.is/. Skrifað af Gísli Rúnar 29.07.2009 13:38Frjálsar íþróttir - íslandsmetFékk aðsent frá Ara frjálfsíþróttakennara: Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir frá Ólafsfirði setti tvö Íslandsmet í flokki 12 ára og yngri, fyrst bætti hún eigið Íslandsmet með 2 kg sleggju þegar hún kastaði 26,16 m og bætti eigið met um nærri tvo metra, síðan kastaði hún 3 kg sleggjunni og stórbætti Íslandsmet 12 ára og yngri með þeirri sleggju um tæplega sex metra ---- Fréttin í heild: 7. bætingarmót UMSE/UFA ( sleggjukastshlutinn) fór fram á Dalvík í dag og það er óhætt að segja að þar varð metaregn í rigningunni Eir Starradóttir frá Svalbarsðeyri setti tvö Íslandsmet í flokki 13-14 ára. Fyrst setti hún Íslandsmet í sínum aldurflokki með kvennasleggjunni ( 4kg) þegar hún kastaði 29,90 m og bætti Íslandsmetið um 57 cm. Næst keppti hún með 3 kg sleggjuna og kastaði henni frábærlega en lengst kastaði hún 37,90 m sem var frábært kast og bætti hún Íslandsmetið um 1,7 m Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir frá Ólafsfirði setti einnig tvö Íslandsmet í flokki 12 ára og yngri, fyrst bætti hún eigið Íslandsmet með 2 kg sleggju þegar hún kastaði 26,16 m og bætti eigið met um nærri tvo metra, síðan kastaði hún 3 kg sleggjunni og stórbætti Íslandsmet 12 ára og yngri með þeirri sleggju um tæplega sex metra
Það má vekja athygli á því að á morgun miðvikudag verður 1. bætingarmót Umf Svarfdæla haldið á Dalvík og verða þessar stelpur aftur í eldlínunni og ætla að sjálfsögðu að reyna bæta eigin met. Mótið hefst klukkan 12:20 og er sleggjan á dagskrá kl 14:00 Skrifað af Gísli Rúnar 28.07.2009 20:55Starf félagsráðgjafa og Námuvegur 2 til söluStarf félagsráðgjafa hefur verið auglýst laust til umsóknar hjá Fjallabyggð. Sjá nánar hér http://www.fjallabyggd.is/is/news/felagsradgjafi_oskast/ Einnig er búið að auglýsa Námuveg 2 til sölu sjá hér http://www.fjallabyggd.is/is/news/idnadar-_og_geymsluhusnaedi_til_solu/ Námuvegur 2: Myndin er fengin af vef Fjallabyggðar, www.fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 27.07.2009 22:01síldarævintýrið á SiglufirðiÞað hefur víst ekki farið fram hjá neinum að Verslunarmannarhelgin er næstu helgi. Síldarævintýrið á Siglufirði verður á sínum stað. Það er Jassklúbbur Ólafsfjarðar sem hefur tekið að sér framkvæmd á Síldarævintýrinu í ár (Jassklúbburinn hefur alltaf séð um Blúshátíðina í Ólafsfirði). Það verður margt að gerast fyrir alla fjölskylduna, enda er Síldarævintýrið hugsað fyrst og fremst sem fjölskylduskemmtun. Það er hægt að kynna sér dagskrá síldarævintýrisins hér. Skrifað af Gísli Rúnar 26.07.2009 14:01AtvinnaAuglýst hefur verið starf umsjónarmanns félagsmiðstöðvarinnar í Ólafsfirði frá og með 1. september nk. sjá nánar hér http://www.fjallabyggd.is/is/news/felagsmidstoin_tunglid_olafsfirdi_-_atvinna/ Skrifað af Gísli Rúnar 24.07.2009 20:37Myndir frá HallaHalli hefur verið duglegur að senda inn myndir. Hann er greinilega búinn að koma víða við með myndavélina upp á síðkastið og sendi hann nokkrar myndir héðan og þaðan. Myndirnar eru komnar undir myndaalbúm. Takk kærlega fyrir sendinguna Halli. ATH. það er skýringartexti við hverja mynd. Skrifað af Gísli Rúnar 23.07.2009 22:48C.S.I ÓlafsfjörðurFékk sent rétt í þessu stórkoslegan þátt af C.S.I Ólafsfjörður. Það eru tveir efnilegir leikarar/leikstjórar sem gerður þennan þátt. Það eru þau Sveinn Andri Jóhannsson og Snólaug Anna Traustadóttir. Takk fyrir þessa sendingu og gangi ykkur vel með þetta. Slóðin á þáttinn er http://www.youtube.com/watch?v=sD0SI8IDys4 Skrifað af Gísli Rúnar 23.07.2009 13:51Snjór í fjöllumÞað var heldur betur kuldalegt að líta út um gluggan í morgun. Það hafði snjóað í fjöllin. Meðfylgjandi myndir voru teknar um kl. 10 í morgun. Skrifað af Gísli Rúnar 22.07.2009 15:32Sigurjón Magnússon skilar 6 sjúkrabílumÍ morgun sendi Sigurjón Magnússon ehf 6 síðustu bílana í 20 bíla samningi við Rauðakross Íslands. RKÍ er búinn að auglýsa annað útboð og er aldrei að vita nema Sigurjón nái fleiri bílum þar. Myndirnar voru teknar í morgun áður en bílarnir fóru af stað. Skrifað af Gísli Rúnar 21.07.2009 18:52SkoðanakönnunAlls kusu 108 í fyrstu skoðanakönnunni. Spurt var hvort viðkomandi myndi notfæra sér þessa síðu. Niðurstöðurnar voru ekki af verri endanum, en alls sögðust 92,59% að þeir myndu nota þessa síðu, þar af voru tæp 38% sem eru ekki búsettir í Ólafsfirði. Nú er komin ný könnun. En ákveðið var í vetur að lækka hámarkshraða í bænum í 35 km/klst. Hins vegar snérist Skipulagsnefndin hugur og ákvað að hækka hraðan í 50 km/klst. á Aðalgötunni. Þið megið endilega segja ykkar skoðun á þessu undir athugsemdun. Skoðanakönnunin: Er 625 síða sem þú munt nota já (bý í Ólafsfirði) nei (bý í Ólafsfirði) já (bý ekki í Ólafsfirði) nei (bý ekki í Ólafsfirði) 108 hafa kosið Skrifað af Gísli Rúnar 20.07.2009 16:33Nikulásarmót - fullt af myndumÞað eru komnar fullt af myndum (og í raun allt of margar) í myndaalbúmið. Þær verða þarna í einhvern tíma og svo verður eitthvað af þeim tekið út (þær taka svo mikið pláss). En ef þið vilið fá þessar myndir þá sendið mér bara línu á gislirunar4@gmail.com Skrifað af Gísli Rúnar 18.07.2009 10:34Myndir af NikulásarmótiNú eru fyrstu myndirnar komnar inn frá Nikulásarmótinu í knattspyrnu sem fram fer um helgina. Fleiri munu fylgja í kjölfarið í dag og á morgun. Myndirnar sem er komnar inn eru frá leik 7. flokks KS/Leifturs í gær ásamt nokkrum almennum myndum frá mótinu. Skrifað af Gísli Rúnar 14.07.2009 22:12Nikulásarmótið um helginaUm helgina fer fram Nikulásarmótið í knattspyrnu. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk (bæði kyn). Í ár er smá breyting á mótinu, en nú verður byrjað að keppa á föstudeginum. Allt er að verða klárt, hins vegar má alltaf bæta við hjálparhöndum. Ef þú hefur áhuga á að aðstoða þá er endilega að setja sig í samband við Leiftursmenn, sem eru þessa dagana meira og minna í UÍÓ húsinu. Upplýsingar um mótið má finna á www.nikulas.is og svo eru upplýsingar fyrir heimakeppendur á www.leiftur.blogcentral.is Skrifað af Gísli Rúnar 13.07.2009 18:42Þjóðdansahópurinn Den Toppede HøneÞjóðdansahópurinn Den Toppede Høne frá Hillerød í Danmörku ætlar að sýna dansa fyrir bæjarbúa á morgun, þriðjudag. Fyrst ætla hópurinn að mæta upp á Dvalarheimilið Hornbrekku kl. 15:30. Svo kl. 16:00 ætla hann að dansa á svæðinu sunnan Tjarnarborgar í Ólafsfirði ef veður leyfir. Íbúar og aðrir sem tök hafa á eru hvattir til að fjölmenna. Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 394 Gestir í dag: 127 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800611 Samtals gestir: 160846 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:59:31 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|