|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Færslur: 2009 Júní30.06.2009 23:07Þjóðlagahátíðin á SiglufirðiJá við erum að tala um Siglufjörð. Ég mun koma með einhverjar fréttir tengdar Siglufirði, sérstaklega menningarviðburði á borð við þennan, enda Siglufjörður nátengdur Ólafsfirði. Um er að ræða flotta hátíð sem ég hvet sem flesta að kíkja á. Dagskrána má finna inn á http://festival.fjallabyggd.is/ Skrifað af Gísli Rúnar 30.06.2009 15:06Frjálsar íþróttirFékk þessa frétt senda frá Ara frjálsíþróttakennara um daginn: (var þá ekki kominn með síðuna) 21.maí var 5. bætingarmót UMSE og UFA haldið á Laugum. Þar setti Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir Íslandsmet í sleggjukasti 12 ára stelpna þegar hún kastaði 24.22m. Það kepptu hvorki fleiri né færri en 9 sleggjukastarar frá UMSE á þessu móti en sleggjukast er ný grein hér í Eyjafirðinum og byrjuðu krakkar frá UMSE að æfa sleggjuna síðastliðið haust og hafa gert í vetur. Á Ólafsfirði hefur þessi grein orðið mjög vinsæl og eru 4 krakkar sem æfa hana nokkuð stíft og 2-3 til viðbótar sem grípa í hana öðru hverju. Um síðust helgi (þ.e. 23. maí) var haldið Íslandsmeistaramót í fjölþraut og áttu Ólafsfirðingar einn keppanda, Gunnlaugu Helgu Ásgeirsdóttur. Hún er 14 ára og keppti í flokki 15-16 ára meyja. Gunnlaug varð í 4. sæti af 7 keppendum með 2753 stig. Gunnlaug þótti standa sig það vel á þessu móti að henni var boðið að taka þátt í Norðulandamótinu í fjölþraut sem haldið verður á Íslandi að þessu sinni 13-14 júní. Gunnlaug fékk einnig þær fréttir frá nýráðnum unglingalandsliðsþjálfara að hún verður tekin inn í úrvalshóp unglinga 16 ára og yngri nú í haust fyrir árangur sinn í hástökki frá síðasta ári þegar hún stökk 1,56m í hástökki. En reglurnar fyrir úrvalshópanna eru þær að unglingar verða að vera á 15. ári til að verða teknir inn en Gulla náði lágmörkum þegar hún var einungis 13 ára. Skrifað af Gísli Rúnar 30.06.2009 11:34Haukur RúnarssonStrákurinn Rúnars og Lísu (Hauks og Jónínu) hefur verið nefndur Haukur. Fær því Haukur Sig. nafna og óskum við ykkur til hamingju með það. (og Rúnar þegar þú lest þetta þá máttu senda mér mynd) :-) Skrifað af Gísli Rúnar 30.06.2009 09:40Steyptar undirstöður undir sumarhús.Í gær var unnið við að styepa undirstöður undir sumarhús Guðmundar Sigurðssonar, sem verið er að hefja byggingu á í Hólkotslandinu. Það er Haukur Sigurðsson, bróðir eigandans sem er verktaki og á myndunum má sjá hann og starfsmenn og tæki BM Vallár. Það var K. Haraldur Gunnlaugsson sem sendi okkur þessa frétt og myndir, takk fyrir það Halli. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 30.06.2009 00:01Tröppurnar lagaðar á bæjarskrifstofunniNáði þessari mynd af Friðrik (Eggerts og Hafdísar) við að brjóta upp tröppurnar á bæjarskrifstofunni (var hvort sem er ekki vinnufriður inni fyrir hávaða). Enda voru tröppurnar vel slitnar og bara tímaspursmál hvenær einhver myndi meiða sig í þeim. Skrifað af Gísli Rúnar 29.06.2009 23:55Krakkarnir veiða síliÉg átti leið fram hjá Tjörninni í dag (þegar einn ungur sem ég þekki víst kallaði)... og ég smellti af nokkrum myndum í leiðinni. Það voru þeir bræður Ingimar og Kristófer sem voru með leikjanámskeiðið á Tjörninni að veiða síli. (þjóðarsport Ólafsfirðinga) ég skellti myndunum í albúm undir myndalbúm. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 27.06.2009 10:57Mótorkrossið í dagEins og fram hefur komið þá er bikarmót í mótorkross á vegum Mótorhjóla & snjósleðaíþróttasamband Íslands. Fór og náði myndum af æfingu í morgun. Skrifað af Gísli Rúnar 26.06.2009 10:07Bylgjan sendir út frá ÓlafsfirðiBylgjan sendir út frá Ólafsfirði í dag og á morgun. Það voru þau Gulli Helga og Kolla í borgunútvarpinu sem störtuðu deginum. Lenti ég sjálfur í viðtali (sem íþrótta- og tómstundafulltrúi og vegna blúshátíðar, smá sambland). Steini Ásgeirs, forseti bæjarstjórnar spjallaðir svo um bæjarlífið, Thiago tók svo lagið í lok þáttar. Fylgis með Bylgjunni um helgina, eftir hádegi í dag verður svo áfram bein útsending, Hemmi og Svansí verða svo í bana stuði á morgun. Útsendingin er á eftri hæð Tjarnarborgar (félagsmiðstöðin). Ekki skemmdi fyrir í morgun þegar Hlynur Guðmunds, Hótelstjóri mætti á svæðið með nýbakaðar lummur og ís. mmmmmmm.......... Skrifað af Gísli Rúnar 26.06.2009 10:00Flotbryggja við HólkotseyriÉg fékk fyrstu aðsendu fréttina í morgun. Það var hann K. Haraldur Gunnlaugsson sem sendi mér myndir og smá texta, takk fyrir það Halli. Myndirnar eru í myndaalbúminu Skrifað af Gísli Rúnar 24.06.2009 15:00Bikarmót í mótorkrossiBikarmót í mótorkross á vegum Mótorhjóla & snjósleðaíþróttasamband Íslands verður laugardaginn 27. júní nk. í ný endurbættri og lengdri braut Ólafsfirðinga. Keppt verður í sex flokkum þar á meðal kvennaflokki. Tímataka hefst kl. 9:30. Keppnin byrjar svo kl. 11:30 með keppni í kvennaflokki. Reiknað er með að mótinu ljúki um kl. 15:00. Hægt er að skoða dagskránna hér. http://www.fjallabyggd.is/skrar/.pdf/mx-bikarmot_2009.pdf Skrifað af Gísli Rúnar 24.06.2009 12:44Nýjasti ÓlafsfirðingurinnJæja, þá var nýjasti Ólafsfirðingurinn okkar að fæðast. Rúnar og Lísa (Hauks og Jónínu) voru nú rétt fyrir hádegi að eignast strák. Er þetta annað barn þeirra. Til Hamingju með nýja gullmolann. Skrifað af Gísli Rúnar 23.06.2009 17:04Framkvæmdir við knattspyrnuvöllÉg rakst á Magga Þorgeirs í morgun. Hann var að klára frágang við knattspyrnuvöllinn. Búið er að grafa upp gamla stígin og skipta um efni í honum. Með góðum frágangi ætti að vera hægt að nýta þessa leið mun meira. Þetta auðveldar t.d. íbúum á hornbrekku leiðina niður í bæ til muna. Þ.e. þeir geta losnað við að labba brekkuna upp að hornbrekku, þar sem nú núna er búið að taka brekkuna sem var hornbrekkumegin og gera hana meira aflíðandi. Skrifað af Gísli Rúnar 23.06.2009 15:55Blúshátíðin í ÓlafsfirðiBlúshátíðin verður haldin í 10. skiptið um næstu helgi (26. og 27. júní). Dagskráin er stórglæsisleg að vanda. Bylgjan sendir út frá Ólafsfirði um helgina, þ.e föstudag og laugardag. Hvet því alla til að stilla á Bylgjuna strax á föstudagsmorgni. Skrifað af Gísli Rúnar 22.06.2009 22:06Leikjanámskeiðyngsta kynslóðin var á leikjanámskeiði í dag. Það er íþróttafélagið Leiftur sem stendur fyrir leikjanámskeiðinu með þá bræður Ingimar og Kristófer í fararbroddi. Ég skellti nokkrum myndum í myndaalbúmið. Krakkarnir fóru í ratleik, langstökk og grettukeppni svo eitthvað sé nefnt.
Skrifað af Gísli Rúnar 21.06.2009 21:31Skák og mátLoksins er búið að setja upp taflmennina sem gerðir voru fyrir mörgum árum síðan. Þeir eru staðsettir sunnan við Tjarnarborg, en þegar hellulagt var á sínum tíma var búið til taflborð í leiðinni. Krakkar jafnt sem fullorðnir hafa haft gaman af þessu. Nú er bara að skella sér í bæinn og taka eins skák. Skrifað af Gísli Rúnar
Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|