625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Stjórnmál

20.05.2010 19:55

Framsókn opnar heimasíðu

B-listinn í Fjallabyggð hefur opnað heimasíðu vegna komandi bæjarstjórnarkosninga, slóðin er http://xb-fjallabyggd.123.is/

18.05.2010 16:00

Samfylkingin opnar vefsvæði

Samfylkingin í Fjallabyggð hefur opnað vefsvæði á http://xs.is/fjallabyggd/. Þar er að finna upplýsingar um frambjóðendur, dagatal sem sýnir dagskrá Samfylkingarinnar fram að kosningum, greinar og fleira.

18.05.2010 15:20

Sjálfstæðisflokkurinn opna kosningaskrifstofu

Sjálfstæðiflokkurinn hefur opnað skrifstofu í Ólafsfirði. Skrifstofan verður í Lishúsinu (gamla heimaval/Glaumbæ).
Skrifstofur verða framvegis opnar kl. 17.00-19.00 virka daga og  13.00-16.00 um helgar.
Gestir og gangandi velkomna í kaffi og spjall.

Símar á skrifstofu eru 8675414 og 8616650
Einnig erum við búin að opna vefsíðu sem er http://www.fjallabyggd.xd.is/

11.05.2010 21:00

T-listinn opnar kosningaskrifstofu

Laugardaginn 15. maí kl. 15:00 opnar T-listinn kosningaskrifstofu í Kirkjuvegi 14 (Reykholti) í Ólafsfirði. Boðið uppá kaffi og meðlæti
Íbúar eru hvattir til að mæta og spjalla við frambjóðendur

http://fjallabyggdarlistinn.123.is
Símar skrifstofu 847-4331 og 845-2737

10.05.2010 20:46

Opið hús hjá Samfylkingunni í Ólafsfirði

Samfylkingin verður með opið hús í húsi Félags eldri borgara, miðvikudag 12. maí kl. 20.00. Frambjóðendur verða á staðnum, ræða við gesti og svara spurningum um stefnumálin. Lára Stefánsdóttir, skólameistari Menntaskólans á Tröllaskaga segir frá skólanum. Einnig mun skráðum félögum gefast kostur á að taka þátt í kosningu fulltrúa Norðausturkjördæmis í umbótanefnd Samfylkingarinnar.
Samfylkingin

01.05.2010 03:09

Framsókn opnar kosningaskrifstofu

Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu sunnudaginn 2. maí kl. 15.00 í Suðurgötu 4 á Silgufirð, kaffi og meðlæti í boði. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarlokksins og Birkir Jón Jónsson varaformaður verða á staðnum.
Hægt er að hafa samband við flokkinn á eftirfarandi hátt: Sími: 467-1880    Netfang: xbsiglo@simnet.is 

01.05.2010 01:13

Framboðsmál

625.is mun fjalla almennt um framboðsmál allra flokka. Er öllum framboðsflokkum boðið að senda inn upplýsingar um það sem flokkarnir eru að bjóða upp á hverju sinni, fundir, kynningar eða önnur mál tengd framboðum. Við erum nú þegar búin að kynna alla lista sem bjóða fram í Fjallbyggð. Öll mál tengd kosningunum í maí verða undir flokknum stjórnamál hér til vinstri á síðunni.

29.04.2010 12:23

Nýr framboðslisti - T-listi

Eftirfarandi fréttatilkynning barst 625.is:
---

T- listi Fjallabyggðar er nýtt framboð sem breiður hópur fólks stendur að og hefur áhuga á að gera Fjallabyggð að betri bæ fyrir íbúana á komandi árum. Við teljum að með aðkomu fólks sem hefur hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi eigi Fjallabyggð bjarta framtíð.

Listann skipa:

1

Bjarkey Gunnarsdóttir

Náms- og starfsráðgjafi

2

Sigurður Hlöðversson

Tæknifræðingur

3

Guðrún Unnsteinsdóttir

Kennari

4

Róbert Haraldsson

Kennari

5

Ingvi Óskarsson

Hitaveitustjóri/rafvirki

6

Bergþór Morthens

Myndlistamaður/framhaldsskólakennari

7

Kristín Guðmundsdóttir

Iðjuþjálfi

8

Katrín Sigmundsdóttir

Háskólanemi

9

Ingimundur Loftsson

Sjómaður

10

Arnheiður Jónsdóttir

Landfræðingur

11

Þormóður Sigurðsson

Iðnverkamaður

12

Hörður Þór Hjálmarsson

Pípulagnameistari

13

Úlfar Agnarsson

Verkamaður

14

Guðný Róbertsdóttir

Kennari

15

Baldur L. Jónsson

Verkamaður

16

Sveinn Þorsteinsson

Húsasmiður

17

Inga Eiríksdóttir

Markaðs-og kynningarfulltrúi

18

Svanfríður Halldórsdóttir

 

Framkvæmdastjóri

26.04.2010 21:43

Sjálfstæðisflokkurinn leggur fram lista

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Fjallabyggð samþykkti á fundi sínum þann 25. apríl eftirfarandi lista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 29. maí.

1          Þorbjörn Sigurðsson, hafnarvörður.

2          Guðrún Hauksdóttir, verkakona.

3          Ólafur H. Marteinsson, framkvæmdastjóri.

4          Magnús A. Sveinsson, verkefnisstjóri fjarvinnslu.

5          Margrét Ósk Harðardóttir, bankastarfsmaður.

6          Kristín B. Davíðsdóttir, kennari.

7          Elín Þorsteinsdóttir, innanhússarkitekt.

8          Júlía Poulsen, verslunarmaður.

9          Sandra Finnsdóttir, bankastarfsmaður.

10       Hólmfríður Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari.

11       Gústaf Daníelsson, framkvæmdastjóri.

12       Sverrir Gunnarsson, sjómaður.

13       Arndís Jónsdóttir, þjónustufulltrúi.

14       Óskar Sigurbjörnsson, fv. skólastjóri.

15       Jón Andrjes Hinriksson, útibússtjóri.

16       Kristján Hauksson, netagerðameistari.

17       Þorsteinn Ásgeirsson, aðalbókari.

18       Jónína Magnúsdóttir, skólastjóri.

22.04.2010 08:00

Samfylkingin leggur fram lista

Samfylkingin ákvað á fundi sínum í gær lista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hér í Fjallabyggð:

1. Egill Rögnvaldsson, bæjarfulltrúi
2. Helga Helgadóttir, þroskaþjálfi
3. Jón Hrói Finnsson, stjórnsýslufræðingur
4. Halldóra Salbjörg Björgvinsdóttir, skrifstofumaður
5. Guðmundur Gauti Sveinsson, deildarstjóri
6. Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri
7. Guðrún Árnadóttir, ráðgjafi
8. Sæbjörg Ágústdóttir, stuðningsfulltrúi
9. Þrúður Sigmundsdóttir, sjúkraliði
10. Ægir Bergsson, verkamaður
11. Jón Árni Konnráðsson, lögreglumaður
12. Hilmar Elefsen, vélvirki
13. Nanna Árnadóttir, þjónustufulltrúi
14. Jakob Kárason, bakarameistari
15. Kristjana Sveinsdóttir, skrifstofumaður
16. Ólína Þórey Guðjónsdóttir, starfsmaður Iðju-dagvistar
17. Rögnvaldur Ingólfsson, húsvörður
18. Regína Guðlaugsdóttir, íþróttakennari

22.04.2010 07:59

Framsóknarflokkurinn leggur fram lista

Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram lista vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hér í Fjallabyggð:

1. Ingvar Erlingsson
2. Sólrún Júlíusdóttir
3. Kristinn Gylfason
4. Ásdís Pálmadóttir
5. Rósa Jónsdóttir
6. Óskar Þórðarson
7. Ásgrímur Antonsson
8. Haraldur Björnsson
9. Elín Jónsdóttir
10. Margrét Jónsdóttir
11. Sveinn Zophoníasson
12. Þorgeir Bjarnason
13. Katrín Freysdóttir
14. Jósteinn Snorrason
15. Berglind Friðriksdóttir
16. Gurrý Anna Ingvarsdóttir
17. Aðalbjörg Þórðardóttir
18. Birkir Jón Jónsson

21.04.2010 17:54

Fundir Samfylkingar kl. 20 í kvöld

Fundir um framboðsmál Samfylkingarinnar í Fjallabyggð verða haldnir í Lionshúsinu á Siglufirði og í húsi Félags eldri borgara í Ólafsfirði í kvöld miðvikudag 21. apríl kl. 20. Á fundinum verður kynnt tillaga uppstillingarnefndar að framboðslista og málefni framboðsins rædd.

Stjórnir Samfylkingarfélaganna í Fjallabyggð

22.03.2010 18:45

Fundur um fjölpólistískan framboðslista

Eftirfarandi barst 625.is:
---
Áhugafólk um fjölpólistískan framboðslista í Fjallabyggð
 
Boðað er til fundar í Sandhóli þriðjudaginn 23. mars kl. 20.
Allir þeir sem hafa áhuga á að bjóða fram krafta sína, með framboði og/eða vilja til nefndarsetu, eru hvattir til að mæta.

Með því að taka þátt gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og þróun sveitarfélagsins okkar á næsta kjörtímabili. Flest höfum við skoðanir á þessum málum, nú er tækifæri til að koma þeim á framfæri.
 
Áhugafólk

04.03.2010 07:45

Fundur hjá Samfylkingunni

Eftirfarandi barst frá Samfylkingunni:
---
Fundur um komandi bæjarstórnarkosningar verður haldinn í húsi Félags eldri borgara í Ólafsfirði,fimmtudaginn 4. mars kl. 20.00
Á fundinum verður rætt um framboðsmál og stefnu Samfylkingarinnar í kosningum til bæjarstjórnar.
Þeir sem vilja hafa áhrif á bæjarmálin eru hvattir til að mæta.


11.02.2010 16:58

Fundur VG á Höllinni

Í hádeginun í dag héldu þeir Björn Valur Gíslason, þingmaður og Steingrímur J. Sigfússon ráðherra fund með áhugasömum um landsmálefnin. Miklar umræður mynduðust um kvótamál og framkvæmdir ríkissins ásamt öðrum málefnum. Myndir má finna í myndaalbúmi.

Steingrímur J. Sigfússon
Flettingar í dag: 1590
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901539
Samtals gestir: 181136
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar