625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Menning

28.10.2009 11:11

Fréttir frá Fjallabyggð

Á heimasíðu Fjallabyggðar er sagt frá spjallborði sem búið er að koma upp um viðburði í Fjallabyggð. Þarna gefst bæjarbúum tækifæri á að spjalla saman og koma með athugasemdir sem tengjast þessum hátíðum.
Fréttin á Fjallabyggd.is

Einnig er sagt frá almennum fundum sem verða haldnir varðandi hundahald í Fjallabyggð. Siglufirði fimmtudaginn 29. október kl. 20.00 í Ráðhúsinu (2. Hæð)
Ólafsfirði miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20.00 í Tjarnarborg.

Fundarefni:
Hundalaus svæði í sveitarfélaginu.
Aðrar almennar reglur um hundahald.
Frétttin fá Fjallabygg.is



27.10.2009 10:50

Miðasala hafin á BarPar

Eins og fram hefur komið hjá okkur mun Leikfélag Ólafsfjarðar frumsýna leikverkið BarPar eftir Jim Cartwright í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar (Gumma Fjólu).
Miða er hægt að panta hjá Helanu í síma 845-3216.

Allar sýningar verða í Tjarnarborg og hefjast þær allar kl. 20:00

30. október (frumsýning)
1. nóvember
5. nóvember
6. nóvember
8. nóvember

ATH. takmarkað sætaframboð á hverri sýningu vegna uppsetningar á leikmynd.

26.10.2009 09:15

Gísli Hvanndal gerir myndband við lagið Álfa

Gísli Hvanndal Jakobsson hefur gert myndband við lagið Álfa eftir Magnús Þór Sigmundsson. Er þetta fyrsta video sem Gísli Hvanndal gerir og setur út sjálfur með smá hjálp vinar, Sigurðar óla Konráðssonar. En myndbandið er gert hjá Sigurði Óla Konráðssyni í glæsilegri tölvu með glæsilegum forritum. Lagið var tekið upp í MogoMusic í Ólafsfirði http://www.mogo.is/

Hægt er að sjá myndbandið hér: http://www.youtube.com/watch?v=Tu8MLAaNkqI

Gísli Hvanndal (mynd fengin af Facebook)

22.10.2009 22:28

Vetrardagsskemmtun aflýst

Búið er að aflýsa vetrardagsskemmtuninni sem átti að vera á laugardaginn í Tjarnarborg. Þátttaka varð því miður ekki nægileg.

19.10.2009 22:59

BarPar frumsýnt eftir 11 daga

Leikfélag Ólafsfjarðar hefur undanfarnar vikur æft verkið BarPar og verður það fumsýnt föstudaginn 30. október. Þessar myndir voru teknar á æfingu í kvöld.


Þura og Guðbjörn


Ekki má gleyma mönnunum á bak við tjöldin

Aðrar sýningar verða:
1. nóvember
5. nóvember
6. nóvember
8. nóvember

19.10.2009 17:31

Vetrardagsskemmtun í Tjarnarborg

Laugardaginn 24. október (fyrsta vetrardag) verður söngskemmtun með Kántrý þema í Tjarnarborg.
Matur, skemmtun og ball og kostar kr. 5.900.- (miði bara á ballið kostar 2.000)
Húsið opnar kl. 19:30 og stendur ballið til 02:00. Veislustjóri verður Guðmundur Ólafsson (Gummi Fjólu).  Hljómsveit Magnúsar Ólafssonar leikur fyrir dansi og ýmsir úrvalssöngvarar úr Fjallabyggð koma fram.

Miðasala fer fram í Tjarnarborg miðvikudaginn 21. okt. kl. 19-21 og fimmtudaginn 22. okt. kl. 20-21 (aðeins þessa tvo daga)

Matseðillinn:
Heitreyktur piparlax, piparosta tortilla, litlar saltfiskbollur í sætum chilli, kjúklingabringur í mangó, chutney, hægeldaður lambavöðvi og heilsteiktur grísahryggur :dijon timian:

meðlæti: parmesan brauð, smjör, gular baunir, rauðkál, salat, rauðvínssósa og kryddjurtakartöflur.

Góða skemmtun :-)

19.10.2009 12:52

Hausttónleikum Tónskólans frestað

Hausttónleikum Tónskóla Ólafsfjarðar sem vera áttu 20. og 21. október hefur verið frestað. Stefnt verður að því að halda þá í nóvember. Mikil veikindi undanfarið munu vera ástæðan.

15.10.2009 16:22

Söngkeppni Grunnskólanna frestað

Áætlað var að árleg söngkeppni Grunnskóla Ólafsfjarðar yrði n.k. laugardag, 17. október. Í ljósi þess að nú eru veikindi í skólanum mikil, bæði hjá yngri og eldri nemendum, hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta keppninni um óákveðinn tíma. Veikindatilfellum fjölgar dag frá degi og þykir því ekki skynsamlegt að safna svo mörgu fólki saman á einn stað á sama tíma vegna hættu á flensusmiti. Að auki eru talsvert margir keppendur veikir nú þegar.
frétt fengin af heimasíðu Grunnskóla Ólafsfjarðar: http://barnaskoli.olafsfjordur.is

15.10.2009 16:12

Papar og lögin hans Gylfa Ægis

Papar hafa ákveðið að fara tónleikaferð um landið og með þeim í för er Gylfi Ægis sjálfur og Bubbi Morthens. Þeir verða á Siglufirði í kvöld og miðgarði annað kvöld.

Þetta er svo sem ekki frétt mikið tengd Ólafsfirði, nema hvað að við eigum orðið einn meðlim Papanna. Gulli Helga (Helga og Róslaugar) spilar á bassann með Pöpunum. Þeir sem hafa fylgst með Gulla undanfarin ár (hann hefur spilað í ýmsum útfærslum með Magga Hildar) vita hversu góður tónlistarmaður er þarna á ferðinni. Það er bara gaman af því að "strákurinn okkar" sé kominn í eina vinsælustu hljómsveit Íslands.

Það er hægt að lesa nánar um tónleikaferð Papanna á heimasíðu Prime

14.10.2009 10:14

Hausttónleikar Tónskólans

Tónskóli Ólafsfjarðar verða með hausttónleika þar sem fram komanemendur tónskólans með fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, verða þeir á eftirfarandi stöðum:

Hornbrekka:
Þriðjudaginn 20. október kl. 14:00
Miðvikudaginn 21. október kl. 14:00

Ólafsfjarðarkirkja:
Þriðjudaginn 20. október kl. 18:00

02.10.2009 22:57

Ómar Ragnarsson í Tjarnarborg 3. október

Ómar Ragnarsson verður ásamt fylgdarliði í Tjarnarborg, Laugardaginn 3. október og opnar húsið kl. 20.30.  Miðasala er við innganginn. Verði aðgöngumiða er stillt í hóf kr.2500.  Ólafsfirðingar og nærsveitarmenn geta rifjað upp gamla og góða stemmingu frá því fyrir hálfri öld síðan. Auðvitað fljóta með glens og spaugileg atriði frá skemmtunum Ómars í gegnum tíðina.

Ómar skemmti í fyrsta sinn utan höfuðborgarsvæðis í Ólafsfirði á sínum tíma.Nú rúmum 800 héraðsmótum og Sumargleðiskemmtunum síðar ætlar Ómar að halda upp á þetta sérstaka afmæli og heiðra Ólafsfirðinga með hátíðarskemmtun í Tjarnarborg, laugardaginn 3. október nk. Hann hefur þegar rifjað upp fyrstu skemmtun sína í Reykjavík.  Athugið; Aðeins þessi eina skemmtun í boði.

29.09.2009 13:08

Bátsmannstríóið á Siglufirði gefur út disk

Hvað er lífið? er nafn á nýjum geisladiski sem Bátsmannstríóið hefur gefið út. Bátsmannstríóið er frá Siglufirði (hinum hluta Fjallabyggðar)
Á diskinum eru 14 lög og textar eftir ýmsa höfunda, lög á borð við Þórður , Hún hring minn ber, Undir dalanna sól , Siglufjarðardraumur og fleiri perlur sem allir að þekkja.
Diskurinn kostar 2.000 kr og fæst sendur með gíróseðli. Hafið samband við Svein Björnsson í síma 467-1665.

29.09.2009 00:03

Æfing hjá Leikfélaginu

Leikfélag Ólafsfjarðar æfir stíft þessa dagana verkið BarPar eftir Jim Cartwright. Guðmundur Ólafsson (Gummi Fjólu) leikstýrir verkinu. Stefnir leikfélagið á frumsýningu 30. október nk. Myndir frá æfingu í kvöld komnar inn í myndaalbúmið.

15.09.2009 19:28

Tónleikar sauðfjárbænda í Hringveri

Í fyrra ákváðu sauðfjárbændur í bænum að gera sér glaðan dag/kvöld í Hringveri eftir langar og strangar göngur. Tókst svo vel til og skemmtu menn sér svo vel að leikurinn verður endurtekinn á laugardaginn en þá verða skemmtilegir "tónleikar" í Hringveri frá kl. 10-01. Stúlli og Dúi munu spila til klukkan eitt.


09.09.2009 17:11

Leikfélagið setur upp sýningu

Aðalfundur Leikfélags Ólafsfjarðar fer fram í húsi þeirra í strandgötu kl. 20:00 fimmtudaginn 10. september nk. Þar verður rætt starf vetrarins, en það stendur til að fá Guðmund Ólafsson (Gumma Fjólu) til að leikstýra verki í vetur.
Allir þeir sem hafa áhuga á að starfa með leikfélaginu í vetur eru hvattir til að mæta.

Flettingar í dag: 1590
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901539
Samtals gestir: 181136
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar