625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Íþróttir

21.07.2010 16:43

Íþróttaskóli

Fyrirhugað er að fara  af stað með Íþróttaskóla fyrir börn fædd 2002-1998. Það verður mikið að gera hjá krökkunum og frábær dagskrá fyrir alla. Íþróttaskólinn stendur yfir frá 26. júlí - 6.ágúst og kostar tímabilið 5000.kr Innifalið í verði: Bolir merktir Íþróttaskólanum, Viðurkenningarskjal, grillveisla, frábær dagskrá og góður félagsskapur. Skólinn stendur yfir frá 9-11 á morgnana og hittast alltaf allir við Ú.Í.Ó húsi, þó með nokkrum undantekningum. Skráning er hafin í síma 822-3578 og 857-5291 eða tölvupóstinum leiftur@simnet.is. Leikskóla börn verða sótt ef Þess er óskað og skilað til baka að loknu námskeiði.
Fótbolta æfingar hjá 7.flokki verða klukkan 11:00 - 12:00 þessa daga sem um ræðir.

Drög að dagskrá með fyrirvara um breytingar

Eldri: Árgangar 1998 og 2001
yngri: Árgangar 2002 - 2006

=======================================
Mánudagurinn 26.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Hjólað í Fjöruna og Leikir
Eldri: Fjallganga og leikir
=======================================
Þriðjudagurinn 27.Júlí (09.00-11.00)
Yngir:Leikir, Golf,Knattspyrna

Þriðjudagurinn 27.Júlí(20.00-Morguns)
Eldri:Útilega (Tjaldað og gist)
=======================================
Miðvikudagurinn 28.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Veiðiferð, Taka með sér háfa
Eldri: Veiðiferð, taka með veiðistöng!
=======================================
Fimmtudagurinn 29.Júlí (09.00-11.00)
Yngri: Fjallganga
Eldri: Golf og Leikir
=======================================
Þriðjudagurinn 3.Ágúst (09.00-11.00)
Allir:Ratleikur/Óvissuferð
=======================================
Miðvikudagur 4.Ágúst (09.00-11.00)
Allir: Heimsókn í sveitina!
=======================================
Fimmtudagurinn 5. Ágúst (09.00-11.00)
Allir: Blautur dagur
-Vatnsrennibraut
-Sápuhokkí
-Slökkviliðið kíkir við
=======================================
Föstudagurinn 6.Ágúst (09.00-11.00)
Allir:Frjálsar Íþróttir, Grill og Slútt

Sjáumst hress í Íþróttaskólanum, Matti,Ingimar,Kristófer og Kristín

20.07.2010 12:18

4. flokkur kvenna spilar í Svíþjóð

4. flokkur kvenna lagði af stað laugardaginn 17. júlí áleiðis til Gautaborgar, þar sem liðið er að taka þátt í Gothia-cup í knattspyrnu. Með í för eru stúlkur frá KS og Leiftri.
10- 0 sigur vannst í fyrsta leik hjá stúlkunum gegn frekar slöku liði Alvsborgs FF. Allar stóðu þær sig með prýði en í dag kl. 13:00 að sænskum tíma spila þær gegn FC Djursholm. Veðrið hefur leikið við stúlkurnar en um 20 stiga hiti var í gær með léttum skúr á meðan á leiknum stóð og fannst stúlkunum það bara fínt. Liðið upplifði svolítið sérkennilega tilfinningu þegar 52 þúsund manns öskruðu og klöppuðu er liðið gekk inná leikvanginn við opnunarhátiðinna og er það nokkuð víst að þetta kvöld mun seint gleymast hjá liðinu.

Fréttin unnin úr efni á heimasíðu KS, en þar er einnig að finna myndir úr ferðinni.

Myndin fengin af vef KS

20.07.2010 12:02

KS/Leiftur náði í þrjú dýrmæt stig

Meistaraflokkur karla náðu í þrjú dýrmæt stig á laugardag gegn Víði. Lokatölur 2-0, sömu lokatölur og urði í fyrsta leiknum í vor gegn Víði. Gabríel skoraði sitt þriðja mark í tveim leikjum með skalla eftir aukaspyrnu frá Eiríki í fyrri hálfleik.  Hörður Már skoraði seinna markið á lokamínútu leiksins eftir að hafa sloppið í gegnum vörn gestanna.  Eftir góðan leik gegn Hetti s.l. miðvikudag þá áttu heimamenn ekki sinn besta leik, en gerðu nóg til að næla sér í öll þrjú stigin sem voru í boði. Nú er liðið komið með 20 stig og heldur fimmta sætinu í deildinni. Næsti leikur er laugardaginn 24. júlí á Ólafsvík gegn toppliði deildarinnar og sá leikur mun eflaust segja til um það hvort að liðið ætli að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna.

15.07.2010 15:58

Lýsing á leik KS/Leifturs gegn Hetti

Það var norðan gola og kalt í veðri þegar KS/Leiftur tók á móti Hetti frá Egilsstöðum.
Ekki var að sjá á Ólafsfjarðarvelli að rúmlega 800 keppendur hafi verið að spila þar
um helgina því völlurinn lítur ótrúlega vel út.
Leikurinn átti svo sannarlega eftir að standa undir væntingum en að meðaltali hafa verið
skoruð yfir 4 mörk í leikjum KS/Leifturs í sumar en nokkuð færri mörk í leikjum Hattar.
Heimamenn byrjuðu betur þrátt fyrir að spila á móti golunni og strax eftir 15 mín voru heimamenn
búnir að setja tvö mörk á gestina, fyrst var það Sigurbjörn Hafþórsson sem komst í gegnum
um nokkuð flata vörn gestana og átti ekki í teljandi vandræðum með að setja boltan fram hjá Þóri
Guðnasyni sem stóð í marki Hattar, þetta var á 10 mín og strax 4 mínútum síðar hafði Gabríel Reynisson
skallað í mark Hattar eftir glæsilega sendingu frá Aron Inga, algjörlega óverjandi fyrir Þóri í marki Hattar.
Eftir þessa óskabyrjun heimamanna vöknuðu gestirnir og fóru að halda boltanum betur og voru sérstaklega
hættulegir eftir innköst og hornspyrnur sem þeir fengu töluvert mikið af í fyrri hálfleik. Minnstu munaði
að þeir næðu að jafna minnka muninn á 20. mín eftir vel framkvæmda hornspyrnu skaut Högni Helgason
framhjá úr nokkuð góðu færi. Hann átti þó eftir að bætu um betur því á 30. mín fengu Hattar menn
aðra hornspyrnu og náðu að minnka muninn eftir þvögu í teig heimamanna datt boltinn fyrir Högna sem þrumaði
boltanum í netið. Heimamenn hefðu sjálfsagt geta gert betur í að koma boltanum frá en að sama skapi var
þetta flott framvkæmd horn spyrnja frá Hattar mönnum sem eins og áður sagði voru sérstaklega hættulegir
í föstumleik atriðum.  Aðeins 5 mín eftir mark Hattar stakk Gabríel hægri bakvörð Hattar og brást ekki heimamönnum
í upplögðu færi og jók muninn aftur í tvömörk. En Gabríel var að spila sinn fyrsta leik sem framherji fyrir KS/Leiftur
í sumar og nýtti hann svo sannaralega sénsinn.  Eitt mark átti ennþá eftir að bætast við í fyrri hálfleik
og voru það Hattar menn sem minnkuðu aftur muninn í eittmark þegar Stefán Þór hamraði aukaspyrnu í netið
af um 25 metrafæri. Nezhir í marki KS/Leifturs hefði nú sjálfsagt viljað verja boltan en skotið var gríðarlega fast
frá Stefáni og vel af verki staðið hjá honum.  En staðan því 3-2 og hálfleik hreint ótrúlegur fyrri hálfleikur.
Heimamenn gerðu tvær breytingar í hálfleik og virtist það skila ágætis árangri því heimamenn náðu að haldaboltanum
betur í seinni hálfleik og náðu að auka við forustuna þegar Þórður Birgisson vann skalla bolta eftir aukaspyrnu frá Agnari
Sveinssyni og flykkaði boltanum yfir Þórð í marki Hattar, þetta var á 65  mín. Heimamenn enn og aftur komnir í nokkuð
þægilega stöðu. Minnugir þess að hafa verið 3-2 yfir á móti Hamri helgina áður gáfu KS/Leifturs menn í frekar en að bakka
og skilaði það sér í öruggum sigri heimamanna. Hattar menn virkuðu frekar þungir í seinnihálfelik og náðu ekki að
skapa sér nein færi af ráði. Á meðan heimamenn hefðu getað bætt við mörkum einkum í lokinn þegar Hattar menn
freistuðu þess að færa liðið  framar.
Hattarmenn hafa örugglega spilað betri leik heldur en í kvöld, markmaður þeirra Þórir Guðnason virtist spila hálf haltur
megnið af seinni hálfleik sem þó virtist ekki skipta öllu máli, en lið Hattar er ungt og á góðum degi geta þeir væntanlega
unnið hvaða lið sem er. Heimamenn virkuðu mjög sprækir sérstaklega í síðari hálfleik og lönduðu nokkuð öruggum sigri í kvöld.

14.07.2010 22:32

Myndir frá Nikulásarmóti

Myndir eru komnar í myndaalbúmið frá leikjum 7. flokk C á Nikulásarmótinu.

Eins og sést hér á þessari mynd sem tekin var á fimmtudegi fyrir mót, þá var heldur blautt. En það rættist sem betur fer úr veðri þessa helgi og tjaldsvæðið þornaði að mestu.

12.07.2010 12:08

KS/Leiftur - Höttur

KS/Leiftur - Höttur

Ólafsfjarðarvöllur

Miðvikudagur 14. júlí.

kl: 20:00

Miðaverð kr. 1000

Ársmiðahafar munið eftir árskortunum

Að meðaltali voru skoruð um 2 mörk í leik á HM hjá KS/Leiftri hafa verið skoruð rúmlega 4 mörk að meðaltali í sumar. J

Allir á völlinn

Áfram KS/Leiftur

 

05.07.2010 22:22

Lýsing á leik KS/Leifturs við Hvöt

Eftirfarandi lýsing á leik KS/leifturs við Hvöt á Sigufjarðarvelli barst 625.is:
---
Sex mörk litu dagsins ljós, nokkur gul spjöld, þrjú víti, mikil barátta og mikil spenna.

KS/Leiftur komust yfir á 8. mínútu með sannkölluðu glæsi-marki, Milan fékk þá boltann fyrir utan teig og setti hann með hnitmiðuðu skoti í mark andstæðinganna, óverjandi fyrir markmann Hvatar. Mínútu síðar sleppur framherji Hvatar í gegnum vörn heimamanna og Nezir markmaður brýtur á honum og víti dæmt.  Jón Kári skoraði af öryggi úr vítinu.  Á tuttugustu mínútu sleppur Jón Kári í gegnum vörnina og Nezir ver vel frá honum, boltinn virtist vera í höndum Nezirs, en hann nær ekki að halda honum og Jón Kári potar boltanum yfir línuna. Hörður Már sleppur í gegnum vörn  Hvatar og stendur af sér tæklingu inní teig en markmaður Hvatar ver frá honum. Staðan í hálfleik 1-2 fyrir Hvöt.

KS/Leiftur byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og pressuðu lið Hvatar. Á 51. mínútu sleppur Hörður Már í gegn og hann er felldur af markmanni Hvatar. Dómari leiksins dæmir umsvifalaust víti, en á einhvern óskiljanlegan hátt gefur hann markmanninum ekki rautt spjald. Þarna var dómarinn ekki að fara eftir knattpyrnulögunum... Milan skoraði af öryggi  sitt annað mark úr vítinu. Nú stefndi í spennandi leik, Raggi Hauks og Halldór Logi komu inná á 55. mínútu og KS/Leiftur hélt áfram að pressa. En eins og köld vatnsgusa dæmir dómarinn víti á KS/Leiftur. Einn varnarmanna KS/Leifturs er að taka á móti bolta á vítateigsjaðrinum undir engri pressu og boltinn hrekkur í hönd hans, mjög ódýrt víti og aftur er dómari leiksins að sleppa því að fara eftir knattspyrnulögunum. Jón Kári fullkomnaði þrennu sína með öruggu víti.

KS/Leiftur hélt áfram að pressa og á 71. mínútu skorar Raggi Hauks gott mark eftir vel útfærða sókn heimamanna. Næstu mínútur á eftir fengu KS/Leiftur góð tækifæri til að klára leikinn. Kristján varnarmaður á skalla sem markmaður Hvatar ver glæsilega í horn, Raggi á skalla úr ákjósanlegu færi sem rétt fer yfir markið. Inn vildi boltinn ekki.

Hvatarmenn áttu svo síðustu mínúturnar og var mark dæmt af þeim á lokasekúndunum eftir að brotið hefði verið á Nezir inní markteig.

Frábær skemmtun fyrir áhorfendur og líklega sanngjörn úrslit, því hvorugt liðið átti skilið að tapa þessum leik. Dómari leiksins átti ekki sinn besta dag, en gerði sitt besta, hann þyrfti að skoða knattspyrnulögin betur og fara eftir þeim, eins og ætlast er til.

KS/Leiftur eru nú með 14 stig í 5.-6. sæti deildarinnar. Næstu leikur liðsins er í Hveragerði n.k. föstudag.

Byrjunarlið KS/Leiftur

Nezir

Heiðar-Arnar-Kiddi-Eiríkur

Milan- Aggi-Steini-Ingimar-Höddi

Bjössi.

Ónotaðir varamenn: Dóri - Gabríel - Kristófer

Áfram KS/Leiftur

28.06.2010 12:38

Fréttir af frjálsum íþróttum

Ari þjálfari í frjálsum hefur verið duglegur að senda okkur upplýsingar um hvernig gengur hjá krökkunum. Nú sendi hann okkur upplýsingar hvernig gekk á sumarleikum HSÞ þar sem kepptu 168 keppendur á öllum aldri og frá mörgum félögum. Þar á meðal UMSE, UFA HSÞ, UMSS , ÍR og ÚÍA
---

Ólafsfjörður:
Gunnlaug sigraði í hástökki og 2. í 80m grind, Gunnlaug bætti sig mikið í spjótkasti ( 2. sæti)varð 3. í þrístökki, langstökki , kúlu og 300m grind . Leó sigraði í spjótkasti 17-18 ára og kringlukasti og varð annar í sleggjukasti og kúlu . Erla Marí Sigurpálsdóttir sigraði í spjótkasti og varð önnur í sleggjukasti. Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir sigraði í sleggjukasti með yfirburðum og kastaði 31,23 m.

22.06.2010 23:54

Hola í höggi

Fram kemur á heimasíðu Golfklúbbs Ólafsfjarðar að Svavar Berg Magnússon, kylfingur úr Golfklúbbi Ólafsfjarðar, fór holu í höggi á 3. braut á Skeggjabrekkuvelli 14. júní sl.

Hann var að vonum ánægður með afrekið, en hann lék einn af sínum bestu hringjum.

Svavar B. Magnússon að hengja upp myndir af sýningu sinni frá því sl. sumar, en þess má geta að fréttin um ljósmyndasýninguna var fyrsta frétt á 625.is (á eftir tilkynningu um að síðan væri komin í loftið)

17.06.2010 23:54

Reiðnámskeið

Eftirfarandi barst frá Hestamannafélaginu Gnýfara:
---
Vegna erfiða aðstæðna á félagsvæði Gnýfara verður fyrirhugað reiðnáskeið flutt frá Ólafsfirði til Dalvíkur.

Námskeiðið verður 21-28 júní í Hringsholti

Reiðnámskeiðið er fyrir börn og unglinga. Leiðbeinandi er Sveinbjörn Hjörleifsson. Verð kr. 12.900. Systkinaafsláttur. Skráning og nánari upplýsingar fást í síma 466-1679 eða
í farsímum 861-9631 og 616-9629. síðasta lagi laugardagskvöld 19 júní.

Þeir aðilar sem vilja koma með sína hesta geta fengið pláss fyrir þá á Dalvík.

Stjórn Gnýfara

Æskulýðsnefnd

16.06.2010 00:04

Fullt af myndum

Þrjú ný myndaalbúm voru að birtast á síðunni.

Vinnuskólakrakkarnir eru byrjuð og setur það alltaf svip á bæinn þegar þau hefja störf. Myndir frá þeirra störfum í dag.

Slökkviliðsmenn voru að undirbúa 17. júní hátíðarhöldin í gærkveldi og byrjuðu að setja upp vatnsrennibrautina. Myndir komnar inn frá því.

Skotfélag Ólafsfjarðar hefur unnið hörðum höndum undanfarið við að græja nýjan völl upp á skotsvæði. Myndir frá því í gærkveldi þegar þeir voru að prófa völlinn. En hann verður opnaður formlega 17. júní kl. 11.00. Bæjarbúar eru hvattir til að mæta og prufa völlinn, að sjálfsögðu frítt.

Allar myndir er að finna í myndaalbúminu.


Kakkarnir voru ekki lengi að stilla sér upp í myndatöku

06.06.2010 22:40

Ks/Leiftur dottið út úr bikarnum

Eftirfarandi lýsng á bikarleik Ks/Leifturs við Keflavík fékk 625.is 3. júní sl. :
---

KS/Leiftur heimsótti besta lið Íslands heim í kvöld.  fyrirfram búist við markaleik þar sem Keflvíkingar myndu láta finna fyrir sér.

Strax í upphafi leiks byrjaðu Keflvíkingar að sækja og góð sókn þeirra endaði á skoti frá Ómari Karli en fast skot hans fór yfir markið. Keflvíkingar sóttu mikið mun meira og voru skiljanlega mun meira með boltann. Á 10. mínútu átti Andri Steinn gott skot á markið eftir laglegan undirbúning frá Guðmundi Steinarssyni en Andri Steinn átti mjög góðan leik hjá Keflvíkingum í kvöld.

Skömmu síðar átti Guðmundur Steinarsson magnaða fyrirgjöf eftir gott upphlaup á Harald Frey sem var í upplögðu martækifæri en skalli hans rataði ekki á markið. Á 20. mínútu vann Andri Steinn boltann á miðjunni, hljóp sjálfur upp völlinn og átti skot að marki sem Nezir Ohran í marki KS/Leifturs átti í erfiðleikum með og missti boltann en sem betur fer fyrir hann þá rúllaði boltinn í stöngina og framhjá.
Fyrsta sókn KS/Leifturs manna kom svo eftir rétt tæpan hálftíma leik þegar Eiríkur Magnússon átti sendingu á Þórð Birgisson sem tók hann viðstöðulaust á lofti en skot hans fór framhjá.
Magnús Þórir átti svo gott upphlaup skömmu síðar og sendi fyrir á Guðmund Steinarsson en skalli hans var slakur og átti Ohran í markinu ekki í teljandi erfiðleikum með að verja.

Á 41. mínútu átti Guðmundur annan skalla, nú eftir sendingu frá Herði Sveinssyni en KS/Leifturs menn náðu að bjarga á línu.

KS/Leifturs mönnum var því létt þegar blásið var til loka fyrri hálfleiks þar sem staðan var enn markalaus 0-0..

En það var ekki langt liðið á seinni hálfleik þegar Hólmar Örn átti laglegan sprett upp miðjuna og þrumaði að marki en boltinn skall í stönginni.

KS/Leifturs menn fengu svo aukaspyrnu á 54. mínútu sem gamla kempan Hörður Már Magnússon tók. Góð aukaspyrna hans var þó varin af Árna í markinu.

En á 63. mínútu náðu Keflvíkingar loksins að brjóta ísinn. Guðjón Árni hljóp upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir, Nezir Ohran misreiknaði fyrirgjöfina sem endaði á fjærstöng þar sem Magnús Þórir Matthíasson beið átekta og skoraði af öryggi.

Keflvíkingar hættu ekki að sækja þrátt fyrir að vera komnir marki yfir og skömmu eftir markið kom önnur fyrirgjöf frá Guðjóni Árna sem rataði á Magnús Þórir sem gerði vel í að leggja boltann fyrir lappirnar á Hólmari Erni Rúnarssyni sem á óskiljanlegan hátt sendi boltann yfir.

Magnús Þórir sendi svo fyrir á Hörð Sveinsson á 73. mínútu en laflaust skot hans var varið af Nezir Ohran.

Undir lokin settu KS/Leiftur pressu á Keflavíkurliðið og uppskára tvö góð færi. Það fyrra var á 86. mínútu þegar Þorsteinn Þorvaldsson átti skot að marki en Árni Freyr átti ekki í teljanlegum erfiðleikum með það. Það síðara var þó mun hættulegra en eftir mikinn darraðadans í vítateig Keflavíkur lyfti Þórður Birgisson sér upp og tók hjólhestaspyrnu og aðeins snilldar markvarsla Árna Freys kom í veg fyrir að KS/Leiftur næðu að knýja fram framlengingu.

En leiknum lauk með enn einum eins marks sigri Keflavíkur og þeir því komnir áfram í 16 liða úrslitin. KS/Leiftur áttu þó góðan leik og þá sérstaklega Nezir Ohran markmaður þeirra.

02.06.2010 22:52

Lokahóf Skíðafélagsins

625.is kíkti við á lokahóf skíðafélagsin 7. maí sl. (gleymdist að setja inn myndirnar)
Fullt af myndum komnar inn í myndaalbúmið, flestar eru reyndar frá því að krakkarnir voru að stökkva fyrir utan skíðaskálann.

02.06.2010 20:52

Baldur Ævar nýkominn heim frá Hollandi

Baldur Ævar Baldursson (Baldurs og Siggu) kom heim frá opna hollenska mótinu í frjálsum íþróttum mánudaginn með eitt gull og eitt brons í farteskinu.

Mótið fór fram í Emmen í Hollandi um síðastliðna helgi og var árangur Baldurs eftirfarandi:

  • Vann til gullverðlauna í kúluvarpi, kastaði 10,32 m.
  • Vann til bronsverðlauna í spjótkasti, kastaði spjótinu 28,76 m
  • Baldur náði ekki á verðlaunapall í langstökki, hann gerði 5 ógild stökk af 6 en það sem taldi var 4,75m. en Íslandsmet Baldurs í greininni í flokki T37 er 5,42m. og þá lengd fór hann síðast í Fuglshreiðrinu á Ólympíumóti fatlaðra í Peking árið 2008.

Baldur er einn fremsti íþróttamaðurinn sem við Ólafsfirðingar eigum í dag og hefur hann og mun halda áfram að keppa út um allan heim. Við munum halda áfram að fylgjast með árangri Baldurs Ævars í sumar.

625.is mætti í heimsókn hjá honum í dag og smellti af nokkrum myndum af honum og verðlaunagripum hans. Myndir í myndaalbúmi.

25.05.2010 12:30

Umfjöllun um síðasta leik KS/Leifturs

Á laugardaginn áttust við KS/Leiftur og Víkingur Ólafsvík í 2. deild karla. Leikurinn var háður á Ólafsfjarðarvelli sem kemur mjög vel undan vetri. Smá norðan gola var er leikurinn hófst en annars voru aðstæður allar eins og þær best gerast til knattspyrnu iðkunar.

Vikingsmenn mættu grimmari til leiks og stjórnuðu leiknum fyrstu mínúturnar en án þess þó að skapa sér nein dauðafæri. M.a. fengu þeir 3 horn spyrnur á fyrstu 10 mínútunum en náðu ekki að gera sér mat úr því.  KS/Leiftur áttu einnig nokkur hálffæri einkum eftir eina hornspyrnu þegar skot Agnars Sveinssonar hafnaði í varnarmanni.

Það var svo á 23 mínútu sem gestirnir komust yfir, Vikingur fékk innkast  á miðjum vallarhelmingi KS/Leifturs og fengu nægjan tíma til þess að athafna sig og gefa fyrir, sem endaði með mjögóðri fyrirgjöf frá Artjom leikmanni Vikinga af vinstri kanti, Aleks náði að smeigja sér á milli miðvarða KS/Leifturs og stangaði knöttinn í markið, glæsilegt mark hjá Aleks.

Vikingar héldu áfram að pressa nokkuð á KS/Leiftur og áður nefndur Aleks fékk fínt færi en Örlygur Þór Helgason varnarmaður KS/Leifturs gerði vel með að komast í veg fyrir skotið og varnaði því að Víkingar næðu ekki að auka foristuna.

Undir lok fyrri hálfleiks sóttu KS/Leifturs menn í sig veðrið vel studdir að áhorfendum á Ólafsfjarðarvelli, sem létu mjög vel í sér heyra í leiknum.  En þrátt fyrir pressuna náðu þeir ekki að jafnametin og staðan því 0-1 í hálfleik Víking í vil.

Stuðningsmenn KS/Leifturs hafa væntanlega vonast eftir því að liðið kæmi betur stefnt í seinni hálfleikinn á myndi ná að nýta sér að spila með goluna í bakið. En Vikingar náðu að auka foristuna eftir að Þorsteinn Már Ragnarsson náði að prjóna sig í gegnum vörn KS/Leifturs og renna boltanum fram hjá Nezir í mark KS/Leifturs, vel gert hjá Þorsteini en að samaskapi hefðu heimamenn átt að geta gert mun betur í að koma boltanum í burtu.

Vikingar voru þarna komnir í nokkuð þægilega stöðu og virtust líklegir til að landa stigunum 3 nokkuð auðveldlega. 

Hörður Már kom inná í lið KS/Leifturs og hann var ekki lengi að láta til sín taka því nokkrum mínútum síðar nær hann að leika auðveldlega á  varnarmann Vikinga og senda boltan fyrir sem hafnaði í hendi Bega varnar manns Vikings og vítaspyrna dæmd. Ragnar Hauksson skorðaði svo nokkuð auðveldlega úr spyrnunni og KS/Leiftur komið inn í leikinn.  Adam var ekki lengi í paradís fyrir heimamenn því einungis 4 mínútum síðar fengu Vikingur nokkuð ódýrt víti þegar boltinn virtist fara í hönd Sigurbjörns Hafþórssonar sem var liggjandi eftir klafs við sóknarmenn Víkinga. Markmaður KS/Leifturs varði vítaspyrnu Brynjars Kristmundssonar vel og staðn því ennþá 1-2.  Vikingsmenn náðu þó að bæta fyrir vítaspyrnuna á 80 mínútu þegar Þorsteinn Már Ragnarsson slapp einn í gegnum vörn KS/Leifturs og chippaði yfir markmann heimamanna. Vörn KS/Leifturs var heldur illa á verði þarna.

Fleira markvert gerðist ekki í leiknum og Vikingar lönduðu nokkuð sanngjörnum sigri á Ólafsfjarðarvelli.

Flettingar í dag: 1590
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901539
Samtals gestir: 181136
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar