625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Íþróttir

30.09.2009 21:57

Jón Hrói keppir með íslenska landsliðinu í Áströlskum fótbolta

Jón Hrói Finnsson (Þróunarstjóri Fjallabyggðar) fer með fyrsta landsliði Íslands í áströlskum fótbolta til Samobor Króatíu á morgun til að taka þátt í EU Cup 2009. Jón Hrói kynntist áströlskum fótbolta í Danmörku árið 1995 og spilaði með "Farum Lions" fram til ársins 1996. Þá fluttist hann til Íslands aftur vegna atvinnutilboðs rétt áður en liðið spilaði til úrslita og vann danska meistaratitilinn. Jón sér enn dálítið eftir því, sérstaklega í ljósi þess að yngri bróðir hans getur státað af meistaratitlinum en ekki hann! Hann fluttist til Danmerkur aftur árið 1997 og gekk fljótlega eftir það til liðs við Aarhus Bombers, og spilaði með því liði fram til ársins 2004. Jón Hrói spilaði með Danska landsliðinu árin 1996, 2001, 2002 og 2003, þar á meðal á Atlantic Alliance Cup árið 2001 og á International Cup í Ástralíu árið 2002. Hann hefur spilað 95 deildar- og landsleiki í fullri lengd og auk þess um 50 leiki í hraðkeppnum þar sem spilaðir eru styttri leikir. Hér er hægt að sjá lekferil Jóns Hróa

Bróðir Jóns, Páll Tómas Finnsson er einnig í landsliðinu. Hann hefur orðið danskur meistari með "Farum Lions" árið 1996 og franskur meistari árið með "Paris Cockerels" 2009. Hann spilaði með danska landsliðinu 1996-2008 og var valinn í heimsliðið á International Cup 2009 í Ástralíu.


25.09.2009 17:38

"Vakning"

Lokahóf yngri flokka Leifturs fór fram í Tjarnarborg í gær, í tilefni dagsins ákváðu þeir bræður Ingimar og Kristófer (Helgu Ingimars og Hlyns) að vekja nokkur börn í bænum og til að vera vissir um að þau myndu ekki sofa yfir sig (Lokahófið var kl. 18:00 þennan sama dag). Á þessari slóð má sjá hvernig þeir vöktu verðandi knattspyrnustjörnur Íslands.
http://leiftur.blogcentral.is/blog/2009/9/25/myndbandid-goda/ 

23.09.2009 17:42

Lokahóf yngri flokka Leifturs

Tilkynning frá Leiftri:

Lokahóf yngri flokka Leifturs verður haldið fimmtudaginn 24. September KL 18:00 Í Tjarnarborg.

Veitt verðaverðlaun
Farið verður yfir sumarið í máli og myndum
Léttar veitingar
Frumsýnt myndband

Nú er um að gera fyrir foreldra, ömmur og afa, frænkur og frændur, bræður og systur að mæta og berja Knattspyrnustjörnur framtíðarinnar augum og eiga með þeim góða stund.
Með kveðju
Stjórn Íþróttafélagsins Leifturs og Þjálfarar

7. flokkur Leifturs á Nikulásarmóti í sumar.

06.09.2009 19:40

Meistarmóti Íslands 11-14 ára í Frjálsum

Nú eru komnar inn myndir af Íslandsmeisturum félagsliða frá Meistarmóti Íslands 11-14 ára. UMSE er Íslandsmeistari í þessum flokki og er það fyrsta landsbyggðarliðið sem vinnur þetta mót í fjöldamörg ár. Einnig er þetta í fyrsta skipti sem UMSE nær þessum titli. UMSE liðið er samansett úr Ólafsfirðingum, Dalvíkingum, Ströndungum,Hörgdælingum, Arnarneshreppskrökkum, Eyfirðingum,Svalbarðsströnd og einn er frá Grenivík. Þessir krakkar vinna sem eitt lið og einn maður. Mótið fór fram á Höfn Í hornafirði 15-16 ágúst.

05.09.2009 21:46

Hestamönnum kynnt skipulag hesthúsahverfis

Eftirfarandi tilkynning barst 625.is:

Hestamenn Ólafsfirði

Fundarboð

Fundur verður haldinn í Tuggunni mánudaginn 07.09.2009 kl 20.00.

Fundarefni:

Valur Hilmarsson fer yfir  Skipulag í hesthúsahverfi og hugmyndir vegagerðar um lokafrágang á svæðinu.Áríðandi er að sem flestir mæti.


Í framhaldi um kl 21.00 verður félagsfundur  Gnýfara haldinn. Farið verður yfir gang mála og skipað í nefndir.


Stjórn Gnýfara

05.09.2009 21:14

Skotfélag Ólafsfjarðar kaupir kastvélar

Skotfélag Ólafsfjarðar hefur ekki farið varhluta af hamförum á skotsvæðinu í Ólafsfirði undanfarin ár, bæði aurskriður og snjóflóð. Hafa Skotfélagsmenn því ákveðið að gera svæðið auðveldara til fluttnings, sem sagt uppsettningar og niðurtöku. Keyptar hafa verið 5 litlar 12v kastvélar sem settar verða á kerrur og vellinum breitt í sporting völl. Einnig hefur Sotfélagið komið sér upp nýrri "heimasíðu", slóðin þangað er www.sko.blog.is


05.09.2009 21:09

KS/Leiftur - Hamar á Ólafsfjarðarvelli

Á morgun (sunnudag) kl. 16:00 fer fram leikur KS/Leiftur við Hamar á Ólafsfjarðarvelli.
Svo fékk 625.is senda umfjöllun um leikinn við Tindastól frá Þorvaldi Þorsteins (Steina og Gullu):
---

Stólarnir byrjuðu betur en okkar strákar og voru einkum hættulegir eftir föst leikatriði enda með mjög hávaxið lið. Eftir eina slíka sókn skoruðu þeir fyrsta markið á 20 mín. Var það eftir aukaspyrnu sem var skölluð áfram og Tindastólsleikmaður fékk boltann nokkuð frír og setti hann nokkuð laglega í markið hjá Halldóri.
Stólarnir voru sterkari eins og áður sagði í fyrri hálfleik en fengum við samt tvö ágæt færi til að jafna en allt kom fyrir ekki.
Seinni hálfleikur var mun betri og strákarnir ákváðu greinilega á hálfleik að reyna að spila boltanum meira á milli sín. og gekk það vel. þegar leið á seinni hálfleik fórum við að færa liðið okkar framar og vorum að skapa nokkuð mikið af ágætum færum. En við það opnaðist líka vörnin og varði Halldór markmaður mjög vel í tvígang og hélt okkur vel inní leiknum.
En þegar 20 mín voru eftir fékk raggi boltan inn í vítateig og þar var hann felldur og vítaspyrna augljóslega dæmd.  Raggi skoraði sjálfur úr vítaspyrnunni mjög örugglega þrátt fyrir að markmaður þeirra hafi farið í rétt horn átti hann ekki séns.
Jafntefli voru ágæt úrslit fyrir okkur því það hefði tryggt okkur veruna í 2. deild að ári. En þrátt fyrir það vildu strákarnir meira og Guðjón skoraði glæsinlegt mark þegar leiktíminn var alveg að verða liðin klukkan sýndi 92 mín. Hann fékk boltan innfyrir eftir sendingu frá Ragga og afgreiddi færið mjög vel. Við gríðarlegan fögnuð áhorfenda sem voru bara nokkuð margir frá okkur.  Grétar bragi var líka búinn að fá tvö mjög góð færi áður en Guðjón skoraði en hann skorar bara næst :)
En gríðarlega góður sigur sem setur okkur í mjög þægilega stöðu fyrir næstu 3 leiki. En þar ætla okkar strákar að klára mótið með stæl og klifra ofar í töfluna því þar eigum við að sjálfsögðu heima.
Að lokum hvetjum við alla til að mæta á leikinn á Sunnudag við Hamar síðasti leikurinn á ólafsfirði þetta árið. Því endilega að hvetja alla til að mæta. ÁFram KS/Leiftur.

kv. Þorri

31.08.2009 12:15

Fréttir af frjálsum

625.is fær reglulega sendar fréttir af gangi máli hjá frjálsíþróttaþjálfara UMSE, en eins og fram hefur komið hér á síðunni þá eru nokkrir krakkar frá Ólafsfirði að æfa með þeim. T.a.m. þá náði Leó Pétur (Magga og Rutar) tveimur bronsverðlaunum á íslandsmeistaramóti 15-22 ára nú um helgina, hér er pósturinn frá Ara þjálfara í heild:
---
Hér er árangurinn af mótinu um helgina ( Íslandsmeistaramót 15-22 ára )

Við fengum 4 silfur og 5 brons á þessu móti og enduðum í 7. sæti af 22 félögum í heildarstigakeppninni

Þeir sem fóru voru

Anton Orri Grenivík ( silfur og brons)

Jónas,    2 silfur og eitt brons
Kristján  2 silfur og eitt brons
Daníel Godsk Samherjum
Fjóla Björg Samherjum   ( Silfur )
Hrafn Logi Samherjum
Hermann Samherjum    ( brons )

Guðlaug Jana Smáranum ( eitt silfur )
Steinunn Erla Smáranum

Harpa Konráðs Reyni

Snorri Eldjárn Dalvík ( silfur og 2 brons)

Leó Pétur Ólafsfirði ( 2 brons )

12 krakkar

Ágætur árangur náðist nú um helgina hjá unglingunum og mikið um bætingar.

VIð fengum 4 silfur  5 brons

Hrafn Logi Sigmundsson Samherjum átti góða helgi og bætti sig í 100m ( 12,20 sek) og 200m ( ) og í 300m grind ( 45,00 sek ) og náði þar lágmarki í úrvalshóp

Hermann Sæmundsson Samherjum bætti sig í 100m og 200m og komst í úrvalshóp í 300m grind (44,52 sek ) og varð í 3. sæti í þeirri grein

Kristján Godsk Rögnvaldsson Samherjum varð 2. í 400m

Jónas Godsk Rögnvaldsson varð 2. í 300m grind og stórbætti sig í þeirri grein ( 43,32 sek ) og komst í úrvalshóp, Jónas var mjög ferskur um helgina og hljóp vel og bætti sig í ,200m,300m grind og í 400m boðhlaupinu hljóp hann ,,splittið,, á 53,05 sek sem er 3 sekúndna bæting hjá honum 

Snorri Eldjárn Hauksson Dalvík varð 3. í 300m grind og stóð sig vel á sínu fyrsta móti með UMSE

Guðlaug Jana Smáranum varð í 2. sæti í kringlu og bætti sig ( 25,37m )

Fjóla Björg Heiðarsdóttir Samherjum varð í 2. sæti í sleggjukasti

Leó Pétur Ólafsfirði átti góða helgi og varð 3. í sleggjukasti og kastaði 40,30m sem er bæting og hann varð 3. í spjótkasti með 44,62 m

Boðhlaupssveitirnar okkar í ungkarlaflokki gerðu góða hluti. Ungkarlarnir urðu í 3. sæti í 4x100m boðhlaupi En þar voru Anton Orri Grenivík, Kristján Godsk og Jónas Godsk Samherjum og Snorri Eldjárn Dalvík,. Þeir hlupu á 47,15 sek

Svo fengu þessir sömu drengir silfur í 4x400m boðhlaup og hlupu í þessari röð Anton,Snorri,Kristján og Jónas á síðasta spretti sem var frábær hjá honum en þeir bræður Kristján og Jónas átu upp forskotið sem A-sveit ÍR var kominn með og munaði bara 2 sekúndum á fyrsta og öðru sæti. tími þeirra var 3;41,16 mín sem er bæting hjá UMSE og líklega héraðsmet

UMSE varð í 7. sæti af 21 liði í heildarstigakeppninni og hefur okkur oft gengið betur en fínn árangur hjá 12 krökkum


Kveðja Ari

26.08.2009 22:13

Sundlaugapartý/Lokahóf Leifturs

Lokahóf barnastarfs Leifturs fór fram með sundlaugarpartý og grilli í gær. Myndir komnar inn í myndaalbúmið.

17.08.2009 16:53

Frjálsar íþróttir

625.is fékk þetta sent frá Ara frjálsíþróttaþjálfara, en eins og komið hefur fram á síðunni þá eru krakkar frá Ólafsfirði að æfa og keppa með UMSE:
----
Um helgina fór fram Meistarmót Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum. Mótið fór fram á Höfn í Hornafirði og 29 keppendur frá UMSE skráðir til leiks. Lið UMSE gerði sér lítið fyrir og sigraði Stigakeppni mótsins með afgerandi hætti. Einnig urðu 11 ára stelpur og 12 ára stelpur stigameistarar í sínum aldursflokkum. Þá urðu 13 ára piltar og 13 ára telpur í öðru sæti í stigakeppninni og 14 ára piltar í 3. sæti. Þetta verður að teljast hreint frábær árangur hjá okkar krökkum

UMSE endaði með 489 stig

Eftirtaldir unnu til verðlauna í einstökum greinum á mótinu:

Thea Imani Sturludóttir varð Íslandsmeistari í 60 m. hlaupi 12 ára stelpna     Fagraskógi Arnarneshreppi Búsett í Rvk
Ólöf Rún Júlíusdóttir varð í 2 sæti i 100 m. hlaupi 13 ára telpna              Engihlíð Dalvíkurbyggð
Maciej Magnús Szymkowiak varð í 2. sæti í 100 m. hlaupi 13 ára pilta            Dalvík
Thea Imani Sturludóttir varð Íslandsmeistari í 800 m. hlaupi 12 ára stelpna     Fagraskógi
Sveit UMSE 11 ára stelpna varð Íslandsmeistari í 4*100 m. boðhlaupi

Júlina Gunnarsdóttir Dalvík, Lotta Karen Svalbarðsströnd, Aþena Marey Dalvík, Sigrún Sunna Stóra-Duhnhaga Hörgárbyggð

Sveit UMSE 12 ára stelpna varð Íslandsmeistari í 4*100 m. boðhlaupi

Erla Vilhjálmsdóttir Ólafsfirði,Thea Imani Smáranum, Dagbjört Svalbarðströnd, Katrín Birna Vignisdóttir Litlu-Brekku Smáranum

Sveit UMSE 13 ára telpna varð Íslandsmeistari í 4*100 m. boðhlaupi

Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir Grenivík, Kara Gautadóttir Ólafsfirði, Júlía Ósk Júlísudóttir Dalvík, Ólöf Rún Júlíusdóttir Reyni

Sveit UMSE 13 ára pilta varð í 2. sæti í 4*100 m. boðhlaupi

Arnaldur Starri, Einar Hákon, Benedikt Línberg Æskunni Svalbarðsströnd, Macej Zymkowiak Dalvík

Júlíana Björk Gunnarsdóttir varð í 3. sæti í hástökki 11 ára stelpna      Dalvík
Thea Imani Sturludóttir varð Íslandsmeistari í hástökki 12 ára stelpna    Smáranum
Maciej Magnús Szymkowiak varð í 2. sæti í hástökki 13 ára pilta           Dalvík
Thea Imani Sturludóttir varð Íslandsmeistari í langstökki 12 ára stelpna    Smáranum
Maciej Magnús Szymkowiak varð í 3. sæti í langstökki 13 ára pilta        Dalvík
Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir varð í 2. sæti í kúluvarpi 12 ára stelpna    Ólafsfirði
Maciej Magnús Szymkowiak Íslandsmeistari í kúluvarpi 13 ára pilta          Dalvík
Þorsteinn Ægir Óttarsson varð í 2. sæti í kúluvarpi 14 ára pilta           Samherjum Eyjafjarðarsveit
Júlíana Björk Gunnarsdóttir varð í 3. sæti í spjótkasti 11 ára stelpna     Dalvík
Karl Vernharð Þorleifsson varð Íslandsmeistari í spjótkasti 11 ára stráka    Dalvík
Thea Imani Sturludóttir varð Íslandsmeistari í spjótkasti 12 ára stelpna    Smárinn
Þorsteinn Ægir Óttarsson varð í 2. sæti í spjótkasti 14 ára pilta           Samherjum
Ólöf Rún varð í 3.´sæti í hástökki og kúluvarpi 13 ára stelpna              Reyni

14.08.2009 10:18

Hestadagar í Ólafsfirð

Það verður víst nóg um að vera um helgina, Leiftursævintýrið, tvö árgangamót og svo eru hestadagar einnig þessa sömu helgi. Þessar upplýsingar um mótið fann ég á heimasíðu Glæsis, sem er hestamannafélagið á Siglufirði.

H e s t a d a g a r 
 

Gnýfara, Svaða, Glæsis og annara hestamanna á Tröllaskaga verða haldnir í Ólafsfirði dagana  14. - 16. ágúst 2009. 

Dagskrá: 

Föstudaginn 14. ágúst er tekið á móti gestum á félagsvæði Gnýfara og verður framreidd súpa frá kl. 18 - 22. 

Laugardaginn 15. verður hefðbundinn sameiginlegur útreiðartúr hestamanna, ásamt kaffi, grilli og góðri stund. 



Myndin er fengin af heimasíðu Glæsis, http://glaesir.fjallabyggd.is/

13.08.2009 17:34

Leiftursævintýrið um helgina

Eins og fram hefur komið þá er Leiftursævintýrið núna um helgina. Ég fékk sendar þrjár gamlar myndir af því tilefni. Nánar um ævintýrið hér http://www.leiftur.is/leifturaevintyri.htm
  

08.08.2009 15:29

Myndir frá Pæjumótinu komnar inn

Nú eru komnar inn myndir af pæjumótinu frá því í gær. Ég náði (að ég held) myndum af öllum flokkum KS/Leifturs. Um er að ræða
7. flokk A og B
6. flokk C
5. flokk A og C
4. flokk A og B
ATH. það þarf að fletta yfir á næstu síðu í myndaalbúminu til að sjá 4. flokk A

Það getur verið að einhverjar myndir séu ekki alveg undir réttu albúmi, ég reyndi að skipta þeim upp eftir flokk. Allar ábendingar varðandi það eru vel þegnar.

Það er hægt að vista myndirnar inn í tölvuna hjá ykkar í mjög góðum gæðum og setti ég viljandi ekkert vatnsmerki á myndirnar. Ykkur er sem sagt frjálst að vista þær myndir sem ykkur langar að eiga.

07.08.2009 22:48

Myndir af pæjumótinu

Ég tók myndir af öllum flokkum KS/Leiftur í dag á pæjumótinu. Ég er að vinna myndirnar sem eru rúmlega 500 talsins og má reikna með þeim um nú um helgina hér inn á síðuna. Á meðan getið þið hlegið af hinum frábæra post-it bíl sem ég sá á Siglufirði.

03.08.2009 11:35

Fréttir af frjálsum íþróttum

Ari frjálsíþróttaþjálfari hefur verið mjög duglegur að senda okkur fréttir af krökkunum sínum, en hann er þjálfari UMSE og krakkarnir frá Ólafsfirði hafa verið að æfa hjá honum. Þau voru að sjálfsögðu að keppa á landsmóti UMFÍ á Sauðárkrók um helgina. Hér er fréttin frá Ara:
--------
Við fórum 15 sinnum á verðlaunapall með 4 gull, 7 silfur og 4 brons

Köstin áttu vel við okkur núna

Þorsteinn Ægir Óttarsson umf. Samherjum sigraði í kúluvarpi pilta 14 ára og varð 2. í spjótkasti

Thea Imani Sturludóttir Umf Smáranum sigraði í hástökki og reyndi við Íslandsmetið í flokki 12 ára og yngri en felldi naumlega

Steinunn Erla Davíðsdóttir Umf Smáranum var í sigursveit í 4x100m boðhlaupi 15-16 ára meyja

13 ára stelpusveitin okkar sigraði síðan í 4x100m boðhlaupi en í þeirri sveit voru Guðbjörg Sveinsdóttir Grenivík, Kara Gautadóttir Ólafsfirði, Júlía Ósk Júlíusdóttir Dalvík og Ólöf Rún Júlíusdóttir Reyni.

Ólöf vann til silfurverðlauna í 80m hlaupi telpna 13 ára

Aðrir sem komust á pall voru

Guðmundur Smári Daníelsson Umf Samherjum í kúluvarpi 11 ára

Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir Ólafsfirði varð 2. í kúluvarpi 12 ára

Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir Ólafsfirði varð 3. í hástökki 14 ára

Sveinborg Katla Daníelsdóttir Samherjum varð 3. í spjótkasti 14 ára

Leó Pétur Magnússon Ólafsfirði varð 3. í kringlukasti 15-16 ára

Harpa Konráðsdóttir Reyni varð 3. í 100m og 4x100m 17-18 ára

Arna Baldvinsdóttir Smáranum varð 2. í kringlukasti og 3. í spjótkasti 17-18 ára

4x100m boðhlaupssveit 17-18 ára drengja verð í 2. sæti en í henni voru Snorri Eldjárn Hauksson Dalvík , Hrafn Logi Sigmundsson og Jónas Godsk Rögnvaldsson Samherjum ásamt Friðbirni frá HSÞ

5x80 m sveit 11 ára stelpna varð í 2. sæti´en þar voru Lotta Karen Helgadóttir Æskunni, Þóra Björk Stefánsdóttir Smáranum, Júlíana Björk Gunnarsdóttir Dalvík og Erla Marí Sigurpálsdóttir Ólafsfirði

Sem sagt 21 keppandi frá UMSE fór á pall

Til hamingju krakkar

Flettingar í dag: 1590
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901539
Samtals gestir: 181136
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar