|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|||||||||||||||||||||||||||||
Flokkur: Aðsent03.02.2011 21:43Tveir handboltaleikir í ÓlafsfirðiEins og við höfum sagt frá hér á síðunni þá hafa áhugamenn um handbolta verið að æfa saman og keppa í vetur. Um helgina munu þeir taka tvo æfingaleiki þegar Tröllaskagahraðlestin tekur á móti Austfjarðartröllunum frá Egilsstöðum. Þetta er viðburður sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Leikið verður föstudagskvöldið 4. febrúar í íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði kl 20:00 og laugardaginn 5. febrúar í íþróttamiðstöðinni í Ólafsfirði kl 13:00. Fyrstu 500 áhorfendur fá frítt inn! Skrifað af Gísli Rúnar 03.02.2011 13:48Opið hús hjá Leikskóla FjallabyggðarLeikskólarnir Leikhólar og Leikskálar verða með opið hús mánudaginn 7. febrúar í tilefni af degi leikskólans sem ber nú upp á sunnudegi 6. febrúar. Leikskólarnir eru opnir frá kl 8:00 til kl 16:00. Bæjarbúar eru hvattir til að koma í heimsókn og fylgjast með því frábæra starfi sem fram fer í leikskólanum. Foreldrar, ömmur, afar, systkini og aðrir bæjarbúar eru velkomir að skoða starf skólans, hitta kennara og börn í skemmtilegu spjalli. Dag leikskólans, 6. febrúar ber að þessu sinni upp á sunnudag. 6. febrúar er merkilegur dagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og var því fagnað í fyrra á 60 ára afmæli félagsins. Dagur leikskólans verður nú haldinn í fjórða sinn, leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskóla hafa á undanförnum árum, ásamt börnunum, gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við. Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2011 12:27Þorrablót KKSHið árlega Þorrablót Karlakórs Siglufjarðar verður haldið laugardaginn 19. febrúar 2011 í íþróttamiðstöð Fjallabyggðar á Siglufirði. Skrifað af Gísli Rúnar 29.01.2011 10:53Héðinsfjarðartrefillinn kemur heimHéðinsfjarðartrefillinn er nú að koma heim eftir langa fjarveru. Fjórir kassar komu í vikunni, en kassarnir eru 12 talsins. Eimskip hefur stutt Fríðu í flutningi á treflinum, fyrst til Akureyrar, svo suður til Reykjavíkur og nú heim. Ætlunin er að allir 12 kassarnir verði komnir heim í enda febrúar og þá ætlar Fríða að byrja að búta trefilinn niður. Ef það eru einhverjir sem gætu hugsað sér og sæu sér fært að hjálpa til við að undirbúa bútana undir sölu þá endilega að hafa samband við Fríðu annað hvort frida@frida.is eða í síma 896-8686. Sem fyrr er öll hjálp vel þegin. Það fer ekkert lítið fyrir treflinum Skrifað af Gísli Rúnar 24.01.2011 23:55Roðlaust og beinlaust í bíóÍslenska heimildarmyndin Roðlaust og beinlaust mun verða opnunarmynd hátíðarinnar Reykjavík Shorts and Docs sem haldin verður í Bíó Paríadís 27.-31. janúar. Myndin er eftir Ingvar Á Þórisson en hann hefur fylgst með áhöfninni á Kleifaberginu sem sýnir íslenska sjómenn í ólgusjó, hvunndagshetjur sem hafa fundið skemmtilega leið til að létta sér lífið með því að spila og syngja saman í samnefndri hljómsveit. Nánari upplýsingar um hátíðina má finna á heimasíðu hátíðarinnar: http://bioparadis.is/ Skrifað af Gísli Rúnar 18.01.2011 17:19Rammi kærir frávísun til HæstaréttarÍ morgun vísaði Héraðsdómur Reykjavíkur frá máli Ramma hf. gegn íslenska ríkinu. Málið varðar kröfu Ramma hf. um að viðurkennt verði með dómi að Jóni Bjarnasyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafi verið óheimilt að ákveða ekki þann heildarafla sem veiða má af úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2010/2011 með reglugerð. Rammi hf. hefur ákveðið að kæra frávísunina til Hæstaréttar. Skrifað af Gísli Rúnar 11.01.2011 23:29FrjálsíþróttaæfingarFrjálsíþróttaæfingar hefjast þriðjudaginn 18. jan 2011 Þjálfari eru Ari Jósavinsson Nýir iðkendur hvattir til að koma og prófa. Sjáumst sem flest. Uppl í síma: 866 2533 (Rut Páls) Skrifað af Gísli Rúnar 05.01.2011 12:23Héðinsfjarðartrefillinn til sýnis í ReykjavíkNú heldur Héðinsfjarðartrefillinn frægi í enn eitt ferðalagið. Um helgina liggur leiðin suður og verður sýndur í Ráðhúsinu í Reykjavík/austursal frá og með 10.-22. janúar. ![]() Frá vígslu Héðinsfjarðarganga. Fríða ásamt fríðu föruneyti. Skrifað af Gísli Rúnar 04.01.2011 17:50Aukavinningar í lukkuleiknumNokkrir aukvinningar voru í boði í lukkuleiknum. Hér eru aukatölurnar: Skrifað af Gísli Rúnar 30.12.2010 23:07Árshátíð slysavarnadeildar kvennaÁrshátíð slysavarnadeildar kvenna verður haldin 15.janúar nk. í Tjarnarborg. Það er því um að gera að taka daginn frá. Nánar auglýst þegar nær dregur. Skrifað af Gísli Rúnar 29.12.2010 12:10Skip Ramma hfSíðustu landanir á þessu ári hafa verið í gangi undanfarna daga. Mánaberg kom með 176 tonn af afla til Siglufjarðar fyrir jól og úr Sigurbjörgu var landað þar 153 tonnum í tveim löndunum í desember. Bæði skipin veiddu mest af þorski í síðustu veiðiferðum ársins. Auk þess kom rækjutogarinn Brettingur frá Flæmingjagrunni með 70 tonn af frosinni rækju til Siglufjarðar fyrir jólin og verður hún unnin í rækjuverksmiðjunni í byrjun nýs árs. Afli og aflaverðmæti skipa Rammans á árinu sem er að líða var sem hér segir:
Þess má geta að öll skip félagsins fóru í slipp á árinu. Fréttir af vef Ramma hf. Skrifað af Gísli Rúnar 27.12.2010 11:09Langar ykkur að leika í alvöru sjónvarpsauglýsingu?Eftirfarandi barst 625.is: Leitað er eftir fólki á aldrinum 10 til 12 ára og 17 til 20 ára. Eins er verið að leita eftir fólki á miðjum aldri til að leika foreldra og t.d kennara. Um er að ræða bæði stór og lítil hlutverk og svo hlýtur að vera gaman að kynnast því hvernig svona auglýsing verður til. Væri ekki gaman að sjá sig í auglýsingu í sjónvarpinu Tökur fara svo fram 20. til 23. janúar 2011. Skrifað af Gísli Rúnar 25.12.2010 11:49Alexía María á TopolinoSkíðasamband Íslands hefur valið þá keppendur sem eiga að keppa fyrir Íslands hönd á Topolino leikunum sem eru haldnir á Ítalíu. Meðal Keppenda er Alexía María Gestsdóttir (Gests og Steinu). Aðrir keppendur á Topolino 2011 eru Alexía María Gestsdóttir Ólafsfirði, Kristín Rut Gunnarsdóttir SKA, María Eva Eyjólfsdóttir Víking, Hjalti Isleifsson Breiðablik, Sigurður Hauksson IR og Arnar Ingi Kristgeirsson IR. Keppendur eru á aldrinum 13. og 14. ára og valið var samkvæmt árangri sl vetrar á UMÍ, Andrés og bikarstigum hjá eldri krökkunum og árangri á Andrés hjá yngri krökkunum. Leikarnir verða haldnir 17. - 19 mars 2011 í Folgaria á Ítalíu.Frétt af heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar Skrifað af Gísli Rúnar 23.12.2010 12:53Sparisjóðirnir í Fjallabyggð gefa Menntaskólanum á Tröllaskaga listaverkSparisjóður Ólafsfjarðar og Sparisjóður Siglufjarðar færðu Menntaskólanum á Tröllaskaga tvö listaverk að gjöf á dögunum í tilefni af opnun skólans. Sem kunnugt er hóf skólinn starfsemi nú í haust og er þar af leiðandi yngsti framhaldsskóli landsins. Skólinn starfar í Ólafsfirði og þrátt fyrir að hafa aðeins verið starfræktur í skamman tíma útskrifaði hann nú fyrir jólin fyrsta stúdentinn. Skrifað af Gísli Rúnar 21.12.2010 23:352-0 tap gegn úrvalsdeildarliði ÞórsEftirfarandi barst frá Knattspyrnufélagi Fjallabyggðar: Síðari hálfleikur var jafn þó svo að Þór hafi verið meira með boltann. Þór skoraði annað mark í miðjum seinni hálfleiknum og var það af ódýrari gerðinni, laust skot sem Nezir atti að verja, endaði í markinu. Leikurinn endaði 2-0 fyrir Þór. Fínn leikur hjá strákunum og á köflum í leiknum var ekki hægt að sjá hvort liðið væri að fara að spila í úrvalsdeildinni í vor. KF leikmenn máttu alveg vera rólegri þegar þeir voru með boltann, það vantar uppá formið hjá okkar mönnum, en baráttan var til fyrirmyndar. Fínn leikur miðað við að nú er desember. Liðið spilar sinn fyrsta leik í móti um miðjan janúar. Byrjunarlið KF Dóri-Halldór-Kiddi-Arnar-Kristófer-Ingimar-Andri-Gabríel-Doddi-Raggi-Bjössi Varamenn sem komu inná: Nezir-Aggi-Hilmar-Biggi Sæm Ónotaðir varamenn: Heiðar-Óðinn-Sævar-Óli Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1590 Gestir í dag: 231 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901539 Samtals gestir: 181136 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|
||||||||||||||||||||||||||||