625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Aðsent

07.12.2009 17:10

Tölur dagsins í lukkuleiknum

Lukkutölur dagsins
 
7.des A:  736
7.des B:  8

07.12.2009 12:03

Tölurnar í lukkuleiknum

Hér eru þær tölur sem komnar eru í lukkuleik foreldrafélags Leifturs:
1.des A 331
1.des B 63
2.des A 632
2.des B 731
3.des A 325
3.des B 218
4.des A 205
4.des B 101
5.des A 278
5.des B 380
6.des A 528
6.des B 357

05.12.2009 19:59

Tölur dagsins í lukkuleiknum

lukkurtölur dagsins:
5. des A:  278
5. des B:  380

04.12.2009 12:48

Tölur dagsins í Lukkuleiknum

4.des A: 205
4.des B: 101

03.12.2009 12:50

Tölur dagsins í lukkuleiknum

Lukkutölur 3. desember
A:  325
B:  218

16.11.2009 20:01

Leikmenn að skrifa undir samninga við KS/Leiftur

Eftirfarandi fréttatilkynning barst 625.is:
----
Nú á dögunum gekk  KS/Leiftur frá samningum við 4 leikmenn.
Þorvaldur Sveinn sem kom frá KA nú á dögunum skrifaði undir samning við KS/Leiftur til tveggja ára. Þorvaldur hóf feril sinn hjá Leifri en hann lék með liðinu bæði úrvalsdeildinni sem og
evrópukeppni með félaginu á sínum tíma.
Síðan skrifuðu Ingimar og Kristófer Hlynssynir undir tveggja ára samning við KS/Leiftur. Þeir voru lánaðir á síðasta tímabili til Þórs Akureyri en hafa nú snúið aftur og leika með KS/Leiftri næstu tvö árin.
Síðan skrifaði Halldór Guðmundsson markmaður einnig undir tveggja ára samning við KS/Leiftur. Halldór spilaði flesta leiki liðsins á síðasta ári þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára. Halldór ásamt Ingimar og Kristófer eru gríðarlega efnilegir leikmenn sem eiga eftir að láta mikið af sér kveða á næstu árum fyrir KS/Leiftur.

Frá vinstri: Ingimar, Halldór, Þorvaldur og Kristófer

09.11.2009 16:59

Skilti fyrir allar stærðir

625.is fékk senda þessa skemmtilegu mynd. Nú virðist ekki skipta máli hvaða stærð bílstjóri eða bíllinn er, það ættu allir að sjá skiltið þegar þeir koma akandi niður Hornbrekkuveginn.

Mynd: Magnús A Sveinsson

03.11.2009 12:50

Kynning á sorpmálum

Fréttatilkynnning frá Íslenska Gámafélaginu:
---
Dagana 5.-8. nóvember næstkomandi munu ráðgjafar frá Íslenska Gámafélaginu heimsækja alla íbúa í Fjallabyggð og veita faglega ráðgjöf og svara þeim spurningum sem kunna að koma upp varðandi breytingar á sorphirðu.

Áður verður búið að dreifa handbók um nýtt fyrirkomulag sorphirðu í Fjallabyggð. Mjög mikilvægt er að varðveita vel sorphirðuhandbókina. Hún veitir almennar upplýsingar um flokkun, hvernig kerfið virkar og aðrar gagnlegar upplýsingar. Til að fræðslan verði sem skilvirkust bendum við íbúum á að kynna sér bæklinginn áður en ráðgjafar Íslenska Gámafélagsins koma í heimsókn.

Einnig verður hægt að fá ráðgjöf í síma 577 5757 eða með því að senda tölvupóst á netfangið igf@igf.is.

Við hlökkum til að sjá þig,

Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins

23.10.2009 09:43

Halldór og Ingimar á Landsliðsæfingu

Um helgina fara þeir Halldór Guðmundsson (Gumma Garðars og Þuru) og Ingimar  Hlynsson (Helgu Ingimars og Hlyns) á Landsliðs æfingu í fótbolta. Báðir eru þeir uppaldir Leiftursmenn og vonandi að þeir komi til með að standa sig vel um helgina og tryggja sig þar með í U19 ára landslið okkar.
 
Myndirnar eru fengnar af Facebook síðum þeirra.

29.09.2009 13:08

Bátsmannstríóið á Siglufirði gefur út disk

Hvað er lífið? er nafn á nýjum geisladiski sem Bátsmannstríóið hefur gefið út. Bátsmannstríóið er frá Siglufirði (hinum hluta Fjallabyggðar)
Á diskinum eru 14 lög og textar eftir ýmsa höfunda, lög á borð við Þórður , Hún hring minn ber, Undir dalanna sól , Siglufjarðardraumur og fleiri perlur sem allir að þekkja.
Diskurinn kostar 2.000 kr og fæst sendur með gíróseðli. Hafið samband við Svein Björnsson í síma 467-1665.

06.09.2009 19:40

Meistarmóti Íslands 11-14 ára í Frjálsum

Nú eru komnar inn myndir af Íslandsmeisturum félagsliða frá Meistarmóti Íslands 11-14 ára. UMSE er Íslandsmeistari í þessum flokki og er það fyrsta landsbyggðarliðið sem vinnur þetta mót í fjöldamörg ár. Einnig er þetta í fyrsta skipti sem UMSE nær þessum titli. UMSE liðið er samansett úr Ólafsfirðingum, Dalvíkingum, Ströndungum,Hörgdælingum, Arnarneshreppskrökkum, Eyfirðingum,Svalbarðsströnd og einn er frá Grenivík. Þessir krakkar vinna sem eitt lið og einn maður. Mótið fór fram á Höfn Í hornafirði 15-16 ágúst.

05.09.2009 21:26

Nýsköpunarkeppni Grunnskólanema

Gunnlaug Ásgeirsdóttir (Ásgeirs Loga og Stínu) tók þátt í nýsköpunarkeppni Grunnskólanema og hefur nú verið valin úr hópi 2.700 ásamt 43 öðrum hugmyndum til að taka þátt í vinnusmiðju nú um helgina. 

Markmið Vinnusmiðjunnar er að hver keppandi fái tækifæri til að útfæra
hugmynd sína nánar, útbúa plakat, líkan eða framsetningu sem lýsir
hugmyndinni best. Að því starfi loknu tekur verðalaunanefnd við og metur
hvaða  einstaklingar komast á verðlaunapall.

Hugmyndin sem Gulla kom með var sokkaíklæðari. Gaman verður að fylgjast með hvernig gengur hjá Gullu að "þróa" vöruna sína. Hægt er að fylgjast með gangi mála á http://www.nkg.is/

31.08.2009 20:16

Flottur regnbogi - framhald

Sagt var frá flottum regnboga hér á síðunni fyrir nokkru, það voru nokkrir strákar sem lögðu leið sína í að ná honum. Þessi mynd barst 625.is frá Sigujóni Magnússyni, en strákarnir voru að reyna að ná í regnbogann þegar hann smellti þessari mynd af þeim. Ætli það sé nokkuð hægt að komast nær því að ná í regnbogann.

31.08.2009 12:15

Fréttir af frjálsum

625.is fær reglulega sendar fréttir af gangi máli hjá frjálsíþróttaþjálfara UMSE, en eins og fram hefur komið hér á síðunni þá eru nokkrir krakkar frá Ólafsfirði að æfa með þeim. T.a.m. þá náði Leó Pétur (Magga og Rutar) tveimur bronsverðlaunum á íslandsmeistaramóti 15-22 ára nú um helgina, hér er pósturinn frá Ara þjálfara í heild:
---
Hér er árangurinn af mótinu um helgina ( Íslandsmeistaramót 15-22 ára )

Við fengum 4 silfur og 5 brons á þessu móti og enduðum í 7. sæti af 22 félögum í heildarstigakeppninni

Þeir sem fóru voru

Anton Orri Grenivík ( silfur og brons)

Jónas,    2 silfur og eitt brons
Kristján  2 silfur og eitt brons
Daníel Godsk Samherjum
Fjóla Björg Samherjum   ( Silfur )
Hrafn Logi Samherjum
Hermann Samherjum    ( brons )

Guðlaug Jana Smáranum ( eitt silfur )
Steinunn Erla Smáranum

Harpa Konráðs Reyni

Snorri Eldjárn Dalvík ( silfur og 2 brons)

Leó Pétur Ólafsfirði ( 2 brons )

12 krakkar

Ágætur árangur náðist nú um helgina hjá unglingunum og mikið um bætingar.

VIð fengum 4 silfur  5 brons

Hrafn Logi Sigmundsson Samherjum átti góða helgi og bætti sig í 100m ( 12,20 sek) og 200m ( ) og í 300m grind ( 45,00 sek ) og náði þar lágmarki í úrvalshóp

Hermann Sæmundsson Samherjum bætti sig í 100m og 200m og komst í úrvalshóp í 300m grind (44,52 sek ) og varð í 3. sæti í þeirri grein

Kristján Godsk Rögnvaldsson Samherjum varð 2. í 400m

Jónas Godsk Rögnvaldsson varð 2. í 300m grind og stórbætti sig í þeirri grein ( 43,32 sek ) og komst í úrvalshóp, Jónas var mjög ferskur um helgina og hljóp vel og bætti sig í ,200m,300m grind og í 400m boðhlaupinu hljóp hann ,,splittið,, á 53,05 sek sem er 3 sekúndna bæting hjá honum 

Snorri Eldjárn Hauksson Dalvík varð 3. í 300m grind og stóð sig vel á sínu fyrsta móti með UMSE

Guðlaug Jana Smáranum varð í 2. sæti í kringlu og bætti sig ( 25,37m )

Fjóla Björg Heiðarsdóttir Samherjum varð í 2. sæti í sleggjukasti

Leó Pétur Ólafsfirði átti góða helgi og varð 3. í sleggjukasti og kastaði 40,30m sem er bæting og hann varð 3. í spjótkasti með 44,62 m

Boðhlaupssveitirnar okkar í ungkarlaflokki gerðu góða hluti. Ungkarlarnir urðu í 3. sæti í 4x100m boðhlaupi En þar voru Anton Orri Grenivík, Kristján Godsk og Jónas Godsk Samherjum og Snorri Eldjárn Dalvík,. Þeir hlupu á 47,15 sek

Svo fengu þessir sömu drengir silfur í 4x400m boðhlaup og hlupu í þessari röð Anton,Snorri,Kristján og Jónas á síðasta spretti sem var frábær hjá honum en þeir bræður Kristján og Jónas átu upp forskotið sem A-sveit ÍR var kominn með og munaði bara 2 sekúndum á fyrsta og öðru sæti. tími þeirra var 3;41,16 mín sem er bæting hjá UMSE og líklega héraðsmet

UMSE varð í 7. sæti af 21 liði í heildarstigakeppninni og hefur okkur oft gengið betur en fínn árangur hjá 12 krökkum


Kveðja Ari

31.08.2009 07:57

Veiðifélagið Hlunkarnir

Veiðifélagið Hlunkarnir héldu í gæs 29. ágúst sl. Alls veiddu þeir 42 grágæsir þennan morgun í Skagafirðinum. Veiðifélagið Hlunkarnir samanstendur af Rögnvaldi Reginskyttu Jónssyni og Andra stórskyttu Víglundssyni. Þeir nota hleðslu frá Rögnvaldi en  að þeirra sögn er" veiðitímabilið of stutt til að treysta einhverju öðru" :-)
Rögnvaldur Jóns sendi þessar myndir af "Hlunkunum"




Flettingar í dag: 1590
Gestir í dag: 231
Flettingar í gær: 1023
Gestir í gær: 186
Samtals flettingar: 901539
Samtals gestir: 181136
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar