|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
09.01.2012 21:10Jafntefli í 1. leik HleðslumótsinsLið Þórs2 og KF sættust á skiptan hlut í síðasta leik fyrstu umferðar Hleðslumótsins sem fram fór í Boganum í gær. Síðari hálfleikur var nokkuð svipaður þeim fyrri að því leytinu til að KF var nokkru sterkari aðilinn og tókst að skapa sér nokkur marktækifæri meðan sóknarleikur Þórs2 var heldur bragðdaufur. Á 57. mínútu fá Þórsarar dæmda vítaspyrnu eftir að varnarmaður KF hafði togað sóknarmann Þórs2 niður í vítateignum. Menn voru misjafnlega sáttir við þá ákvörðun en ekki skal deila við dómarann. Ingólfur Árnason steig á punktinn og jafnaði leikinn með góðri spyrnu. Hættulegasta færi KF-inga í síðari hálfleik fékk Þórður á 74. mínútu þegar hann slapp einn í gegnum varnarlínu Þórsara en Ari sá við honum í markinu. Í uppbótartíma leiksins fékk Þórður svo að líta beint rautt spjald fyrir kjaftbrúk. Leikmenn liðanna sættust á skiptan hlut og sitja því í 2. og 3. sæti B-riðils eftir fyrstu umferðina. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 805 Gestir í dag: 220 Flettingar í gær: 835 Gestir í gær: 227 Samtals flettingar: 812414 Samtals gestir: 164148 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 21:12:55 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|