|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|||
28.09.2011 12:45HjólabrautirByrjað er á gerð hjólabrauta í Ólafsfirði, áhugasamir hjólagarpar höfðu frumkvæði að því að fá leyfi fyrir gerð hjólabrautar á svo kölluðu "Frímerki" í Ólafsfirði. Eftir grenndarkynningu þar sem engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmdina var ákveðið að hefjast handa, hólar verða gerðir úr timburkurli sem til fellur úr því timbri sem kemur á gámsvæðið og ekki verður nýtt í moltugerð. Verkefnið er samvinnuverkefni hjólakappa frá báðum stöðum, ákveðið var að byrja á þessari braut og stefna svo á uppbyggingu á Siglufirði, þar er líka horft til skíðasvæðisins um að byggja þar upp s.k. Downhill brautir. Það eru brautir sem gjarnan eru byggðar á skíðasvæðum og eru nokkurskonar brunbrautir fyrir hjól. Sambærilegar brautir eru í Hlíðarfjalli og í Skálafelli. Myndir komnar í myndaalbúmið. Texti aðsendur
Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 1590 Gestir í dag: 231 Flettingar í gær: 1023 Gestir í gær: 186 Samtals flettingar: 901539 Samtals gestir: 181136 Tölur uppfærðar: 19.5.2012 19:51:31 |
Höfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|
||