625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Stjórnmál

09.12.2011 17:00

Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árum

Karl Eskill Pálsson, sjálfstætt starfandi fjölmiðlamaður sendi okkur þess frétt um veiðigjald, en slíkt gjald hefur að sjálfsögðu áhrif á sjávarbæi eins og Ólafsförð og Siglufjörð:
---

Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnsonar á Alþingi 

Veiðigjald á þessu fiskveiðiári hefur verið ákveðið 13,3% af framlegð útgerða. Miðað við óbreyttar forsendur um afla, framlegð og þorskígildisstuðla sem notaðar eru við útreikning á áætluðu veiðigjaldi á þessu fiskveiðiári og boðaða hækkun veiðigjaldsins upp í 27% af framlegð fyrirtækjanna má áætla að veiðigjaldið fiskveiðiárið 2012-2013 verði ríflega 9 milljarðar króna.

"Þessi stórfellda gjaldtaka af útgerðunum, sem allt bendir til að muni hækka fjórtánfalt á aðeins sjö árum, kemur fyrst og fremst til með að veikja landsbyggðina, þar sem langflestar útgerðirnar eru," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal.

"Um 90% allra aflaheimilda eru á landsbyggðinni, þar sem sjávarútvegurinn er víða kjölfestan í atvinnulífinu. Ég veit ekki alveg hvernig þetta rímar við áform stjórnvalda um að efla byggð í landinu en þingmenn stjórnarflokkanna geta vafalítið útskýrt þetta fyrir kjósendum," segir Einar.


20.09.2011 22:00

Nýr meirihluti

Eins og við sögðum frá í síðustu viku þá sprakk meirihlutasamstarf Framsóknar og sjálfstæðismanna vegna ágreinings um skólamál. Samningur um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks, Samfylkingarfélags Ólafsfjarðar og T-lista í Bæjarstjórn Fjallabyggðar var undirritaður í gær með fyrirvara um samþykki félaga þeirra sem að framboðunum standa.

Það er því hugsanlega einhverra breytinga að vænta í nefndarskipan en þessi nýji meirihluti styður áfram  núverandi bæjarstjóra og því ekki um slíka breytingu að ræða.

14.09.2011 21:58

Bæjarpólitíkin

Bæjarbúar hafa rætt bæjarmálin mikið í dag og velt því fyrir sér stöðunni, en Í morgun birtist grein frá Sólrúnu Júlíusdóttur á siglo.is þar kemur fram að hún hafi sagt sig úr  Framsóknarfélagi Fjallabyggðar, ástæðan er ágreiningur vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Grunnskóla Fjallabyggðar.

Á bæjarstjórnarfundi í dag var eftirfarandi bókun lögð fram af meirihluta bæjarfulltrúa:

"Vegna yfirlýsingar Sólrúnar Júlísdóttur í dag um að hún styðji ekki uppbyggingu Grunnskóla Fjallabyggðar leggjum við bæjarfulltrúar í Fjallabyggð fram eftirfarandi bókun.

Á síðasta kjörtímabili hóf bæjarstjórn Fjallabyggðar vinnu við að móta framtíðarskipan skólamála í sveitarfélaginu eftir opnun Héðinsfjarðarganga. Um fá mál hefur verið fjallað jafn ítarlega hjá bænum síðustu árin og að þeirri vinnu hafa komið fulltrúar bæjarstjórnar, hagsmunaaðilar og utanaðkomandi ráðgjafar.

Frá upphafi hefur legið fyrir að nauðsynlegt yrði að fara í nýframkvæmdir og/eða verulegar endurbætur á skólahúsnæði, jafnt í Ólafsfirði sem á Siglufirði. Mikil sátt hefur verið um alla þessa vinnu í bæjarstjórn þar til fyrir örfáum vikum. Markmið bæjarstjórnenda er að reka áfram fyrsta flokks grunnskóla í Fjallabyggð með jöfnu skólahaldi í báðum byggðarkjörnum þannig að ferðatíðni nemenda úr báðum byggðarkjörnum verði sem jöfnust.

Fyrirhugaðar framkvæmdir.

Kostnaður við nýbyggingu og búnaðarkaup á Ólafsfirði er um 200 milljónir kr. og skólahúsnæðið á að vera tilbúið til afnota 1. september 2012. Kostnaður við nýbyggingu og búnað á Siglufirði er einnig áætlaður um 200 milljónir kr. og stefnt er að útboði á þeim áfanga árið 2012 og að skólahúsnæðið verði tilbúið til notkunar fyrir skólaárið 2013/2014. Verði ekki farið í nýbyggingu á Siglufirði þarf að fara í verulegar endurbætur á húsnæði grunnskólans við Hlíðarveg sem kosta álíka mikið og fyrirhuguð viðbygging. Eftir stæði að grunnskólinn yrði rekinn í tveimur húsum á Siglufirði með tilheyrandi kostnaði og óhagræði í skólastarfi. Óbreytt ástand í húsnæðismálum á Siglufirði er ekki valkostur. Það hefur legið fyrir allan tímann.

Framkvæmdir við Menntaskólann á Tröllaskaga kosta 15 milljónir kr.

 

Sparnaður og fjármögnun

Handbært fé Fjallabyggðar um síðustu áramót var 270 milljónir kr. Áætlaður byggingarkostnaður við umræddar framkvæmdir við Grunnskóla Fjallabyggðar er um 415 milljónir kr. og eru þá breytingar á núverandi húsnæði menntaskólans inn í þeirri tölu. Reiknað er með því að sá kostnaður skili sér með rekstrarsparnaði á 10 árum. Áætlaður sparnaður í rekstri við að fækka skólahúsnæði um eina byggingu er talinn vera um 12 m.kr. á ári eða um 120 m.kr. á 10 árum. Áætlaður sparnaður í launum kennara og skólastjórnunar er talinn vera um 25 m.kr. á ári eða um 250 m.kr. á 10 árum. Sparnaður við húsvörslu og ræstingu er um 5 m.kr. á ári eða um 50 milljónir kr. á 10 árum. Heildarsparnaður er því um eða yfir 420 m.kr. á 10 árum. Þá er gert ráð fyrir ítrustu mönnun grunnskólans.

 Undirritaðir leggja áherslu á að fullur stuðningur er við störf núverandi bæjarstjóra og hefur hann áfram óskorað umboð meirihluta bæjarfulltrúa Fjallabyggðar til sinna starfa.

Bjarkey Gunnarsdóttir, Helga Helgadóttir, Ingvar Erlingsson,

Magnús A. Sveinsson, Ólafur H. Marteinsson, Þorbjörn Sigurðsson

07.05.2011 17:44

Sjálfstæðismenn með fund

Eftirfarandi fréttatilkynning barst 625.is:
---
Sjálfstæðisfólk í Fjallabyggð ath.

Formaður og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson og Ólöf Nordal verða með hádegisfund á Brimnes hótel  þriðjudaginn 10. maí frá kl. 12:00 - 13:00. 

Staðan í landsmálunum.
Súpa og brauð.

Mætum vel og stundvíslega.

Sjálfstæðisfélögin í
Fjallabyggð.

30.11.2010 21:55

Snjómokstur boðinn út

Á fundi bæjarráðs fyrir viku var samþykkt að bjóða út snjómokstur í Fjallabyggð ekki síðar en frá og með 1. febrúar 2011.
Eftir það var svo eftirfarandi samþykkt:
"Bæjarráð felur bæjarstjóra/deildarstjóra tæknideildar að aðlaga mannahald þjónustumiðstöðva að breyttum verkefnum eftir að samþykkt hefur verið að bjóða snjómokstur út.
Markmiðið er að þegar aðlögun er lokið verði fastir starfsmenn 5.
Komi til uppsagna munu þær miðast við 31/12/2010."

Eru því allar líkur á að einhverjum starfsmönnum þjónustumiðstöðvar (áhaldahúss) verður sagt upp, enda fleiri í vinnu þar í dag en fimm.

Þess má geta að minnihlutinn lagðist gegn þessari tillögu og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Á síðasta kjörtímabili var unnin ítarleg úttekt á starfsemi þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar og samþykkt í bæjarstjórn að tilhögun á snjómokstri yrði óbreytt frá því sem verið hefur, þar sem ólíklegt þótti að útboð snjómoksturs skilaði bæjarfélaginu aukinni hagræðingu.
Ekki hafa verið lögð fram nein reikningsleg gögn sem styðja þessa ákvörðun meirihlutans nú og teljum við því eðlilegt að halda þeirri stefnu sem fyrir liggur auk þess sem við teljum að með einkavæðingu á snjómokstri muni þjónusta við íbúa versna, líkt og hefur sýnt sig hjá sveitarfélögum þar sem snjómokstur hefur verið boðinn út.
Fulltrúar S og T- lista geta ekki samþykkt uppsagnir starfsmanna þjónustumiðstöðvar á sama tíma og bæjarstjórn hefur sent frá sér harðorð mótmæli vegna niðurskurðar og uppsagna  á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar.
Að framansögðu óskum við eftir skriflegum rökstuðningi vegna þeirrar ákvörðunar að bjóða snjómoksturinn út og að verkefni þjónustumiðstöðvar verði skilgreind enn frekar." 

"Tvíburamokstur" þessi aðferð hefur verið notuð lengi í Ólafsfirði, spurning hvort hún heyri sögunni til?

12.10.2010 17:34

Áskorun til íbúa Fjallabyggðar

Eftirfarandi áskorun barst frá bæjarstjórn Fjallabyggðar:
---
Borgarafundur um fyrirhugaðan niðurskurð fjárveitinga til Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar,verður haldinn miðvikudaginn 13. október kl. 21:00 á Allanum, Siglufirði.

Umræðuefnið er niðurskurður fjárveitinga og fyrirhugaðar breytingar á þjónustu við bæjarbúa.
Bæjarstjórn Fjallabyggðar skorar á alþingismenn að koma til fundarins og ræða málin milliliðalaust við bæjarbúa.

Mætum og sínum samstöðu í verki.

08.10.2010 16:50

Ályktun frá Framsóknarfélagi Fjallabyggðar

Eftirfarandi ályktun barst frá Framsóknarfélagi Fjallabyggðar. Var ályktunin samþykkt á almennum félagsfundi 7. október 2010
---
Framsóknarfélag Fjallabyggðar fordæmir þá ákvörðun Ríkisstjórnar
Íslands að færa í auknu mæli rekstur heilbrigðisstofnana frá hinum
dreifðu byggðum.  Aldrei áður hefur verið vegið jafn nærri íbúum
smærri sveitarfélaga landsins hvað heilbrigðisþjónustu varðar.

Á meðan landsbyggðinni blæðir er fyrirhugað að hefja framkvæmdir við
byggingu nýs hátæknisjúkrahúss fyrir marga tugi milljarða, en
sjúkrahús á landsbyggðinni munu standa auð takist stjórnvöldum
ætlunarverk sitt.

Kostnaður á hvert legurými er a.m.k. tvöfalt hærri á
hátæknisjúkrahúsum en á sjúkrahúsum á landsbyggðinni.  Kostnaður við
sjúkraflutninga mun margfaldast, þjónusta mun skerðast og lífskjör í
hinum dreifðu byggðum versna verulega, auk þeirra fjölda starfa sem
flutt eru úr byggðalögunum.

Framsóknarfélag Fjallabyggðar fordæmir áherslur ríkisstjórnar
Samfylkingar og Vinstri grænna í heilbrigðismálum.

14.06.2010 17:03

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar

Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjarstjórnar verður haldinn í ráðhúsinu á Siglufirði þriðjudaginn 15. júní kl. 17.00. Þar verður m.a. kynntur samstarfssamningur B- og D- lista kjörtímabilið 2010-2014 og kosið í nefndir og stjórnir sveitarfélagsins.

Á heimasíðu Fjallabyggðar má lesa pistil frá bæjarstjóra um störf fráfarandi bæjarstjórnar.

30.05.2010 00:57

Lokatölur í Fjallabyggð

Ný hafa lokatölur verið birtar á vef Rúv. Engar breytingar urðu frá fyrstu tölum, þ.e. hvað varðar fulltrúafjölda. Lokaniðurstaðan er því þessi;

T listi - 1 fulltrúi - 184 atkvæði 14,9%

S listi - 3 fulltrúar - 334 atkvæði 27%

D listi - 3 fulltrúar - 404 atkvæði 32,6%

B listi - 2 fulltrúar - 316 atkvæði 25,5%

Bæjarfulltrúar verða þá eftirafrandi:

Framsóknarflokkurinn:
Ingvar Erlingsson
Sólrún Júlíusdóttir

Samfylkingin

Egill Rögnvaldsson
Helga Helgadóttir
Jón Hrói Finnsson

Sjálfstæðisflokkurinn:

Þorbjörn Sigurðsson
Guðrún Hauksdóttir
Ólafur H Marteinsson

T-listinn:
Bjarkey Gunnarsdótti

Bæjarfulltrúar raðast því svona inn:
  1. Þorbjörn Sigurðsson (D)
  2. Egill Rögnvaldsson (S)
  3. Ingvar Erlingsson (B)
  4. S. Guðrún Hauksdóttir (D)
  5. Bjarkey Gunnarsdóttir (T)
  6. Helga Helgadóttir (S)
  7. Sórún Júlíusdóttir (B)
  8. Ólafur Helgi Marteinsson (D)
  9. Jón Hrói Finnsson (S)

Kristinn Gylfason (B) var næsti maður inn á eftir Jóni Hróa


29.05.2010 22:54

Fyrstu tölur

Fyrstu tölurnar eru komnar í hús frá Fjallabyggð: (tölur fengnar af kosningavef Rúv)
Framsóknarflokkurinn: 2 (24,6%)
Samfylkingin: 3 (25,3%)
Sjálfstæðisflokkurinn: 3 (33,6%)
T-listinn: 1 (16,6%)

Búið að telja 724 atkvæði, á kjörskrá voru 1.579

Bæjarfulltrúar yrðu þá eftirafrandi ef þetta fylgi stendur: (ekki þarf fylgið að breytast mikið til að menn færast á milli, D-listi þarf tvö atkvæði til að ná inn fjórða manni á kostnað S-lista, þá kæmi Magnús A Sveinsson í stað Jóns Hróa Finnssonar)

Framsóknarflokkurinn:
Ingvar Erlingsson
Sólrún Júlíusdóttir

Samfylkingin

Egill Rögnvaldsson
Helga Helgadóttir
Jón Hrói Finnsson

Sjálfstæðisflokkurinn:

Þorbjörn Sigurðsson
Guðrún Hauksdóttir
Ólafur H Marteinsson

T-listinn:
Bjarkey Gunnarsdóttir

26.05.2010 17:43

Dagskrá Samfylkingar fram að kosningum

Dagskrá Samfylkingarinnar í Ólafsfirði í vikunni
Miðvikudagur kl. 20: Opið hús í Kiwanishúsinu við Strandgötu.
Fimmtudagur kl. 12: Súpufundur á höllinni. Frambjóðendur kynna stefnuna.
Föstudagur kl. 20: Kvöldvaka í húsi Félags eldri borgara. Tónlistaratriði og söngur.
Laugardagur: Dagskrá í húsi Félags eldri borgara

Kl. 10-15 heitt á könnunni.
Kl. 15-18 Kosningakaffi.
Kl. 20-?? Kosningavaka


Samfylkingin bíður einnig upp á akstur á kjörstað. Hringið í síma 8654324, 8684704 eða 8409330 og við komum um hæl!

Hægt er að sjá dagskrána á dagatali Samfylkingarinnar í Fjallabyggð á http://xs.is/fjallabyggd.

26.05.2010 17:40

Kosningaskrifstofur D-lista

Kosningaskrifstofan sjálfstæðismanna á Siglufirði flytur í Dótakassa Gunna Júl við Gránugötu á miðvikudag og verður opin frá kl 4 til 6. Frambjóðendur verða á staðnum og veitingar að hætti hússins !
Sími 467 1154
Kosningaskrifstofan Ægisgötu 10, Listhúsið, í Ólafsfirði verður opin frá kl. 8 til 10 á kvöldin út vikuna.
Símar 867 5414 og 861 6650

25.05.2010 20:18

Ný skoðanakönnun

Nú hefur verið sett upp ný skoðanakönnun. Við könnum hug ykkar fyrir komandi kosningar.
Niðurstöður síðustu könnunar eru þær að mikill meirihluti lesenda eru búsettir Ólafsfirðingar eða rúmlega helmingur. Alls tóku 225 þátt. Við erum að fá um 200 heimsóknir á dag og núna  eru vinir á Facebook orðnir 573. Takk fyrir innlitið.
Spurt var:

Ég er:

Búsett/ur í Ólafsfirði

54,67%

Brottfluttur Ólafsfirðingur

26,67%

Annað

18,67%

25.05.2010 12:48

Kosningaskrifstofa B-lista og akstur á kjörstað

Kosningaskrifstofur B-listans í Fjallabyggð verða í Sandhól og Suðurgötu 4. Frambjóðendur verða á staðnum. þær verða opnar sem hér segir:
Ólafsfjörður: Sandhóll á fimmtudag og föstudag frá kl. 20-22. Sími 863-0240
Siglufjörður: Suðurgata 4. Virka daga frá kl 16-18 og 20-22. Sími: 467-1880

Kosningakaffi verður frá klukkan 14:30-17:30 á kjördag og verða kosningaskrifstofur opnar frá kl 10-20. Konsingarvaka eftir það.

B-listinn bíður upp á akstur á kjördag, sími 467-1880 / 863-0240

23.05.2010 20:16

Heimasíður framboða í Fjallabyggð

Framboðin í Fjallabyggð eru öll komin með heimasíður, á þessum síðum er hægt að kynna sér stefnu framboðana fyrir kosningarnar næstkomandi laugardag.

Framsóknarflokkurinn: http://xb-fjallabyggd.123.is/
Samfylkingin:  http://xs.is/fjallabyggd
Sjálfstæðisflokkurinn: http://www.fjallabyggd.xd.is/
T-listinn: http://fjallabyggdarlistinn.123.is

Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar