625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Kaup og sala

09.12.2011 17:02

Skiptimarkaður með skíðavörur

Skíðafélag Ólafsfjarðar og Skíðafélag Siglufjarðar ætla að prufa að standa fyrir markaði þar sem fólk getur komið með skíðabúnað sem ekki er þörf fyrir á heimilinu og reynt að losa sig við fyrir einhvern pening og einnig að kaupa búnað á góðu verði.

Hugmyndin er að fólk mæti á svæðið og sjái sjálft um að reyna að díla með búnaðinn.

Markaðurinn verður í Eining/Iðju húsinu á Siglufirði sunnudaginn 11. desember.

Við hvetjum fólk eindregið til að mæta og reyna að gera góð kaup.

Þetta er hugsað bæði fyrir alpagreinar- og göngubúnað, fullorðinsgræjur og barnagræjur.

15.11.2011 13:45

Hús til sölu

Til sölu er Hlíðarvegur 41 í Ólafsfirði.

Upplýsingar í síma 467-2343 og 8400426

Myndir og upplýsingar um eignina eru að sjá inná byggd.is eða fasteignir.is

Hlíðarvegur 41


19.03.2011 10:44

Parhús til leigu/sölu

Eftirfarandi barst 625.is,
---
180 fm. parhús á tveimur hæðum í Ólafsveginum er til sölu eða leigu

Fullbúið húsgögnum (ef þess er óskað)

Leigist í lengri eða skemmri tíma

Leiguverð kr. 68.000 (með rafm./hita)

Áhugasamir hringið í Hrafn s. 6617999

Sjá frekar myndir á www.facebook.com hulda sveins (house for rent ..)

04.12.2010 21:47

Eldvarnarbúnaður yfirfarinn

Um helgina og næstu daga munu félagar í fræðslu- og menningarnefnd slökkviliðsis fara í hvert hús í Ólafsfirði og selja rafhlöður í reykskynjara og annan eldvarnarbúnað. Hefur þetta verið gert undanfarin ár og má segja að eldvarnarmál í Ólafsfirði hafi batnað til muna eftir þetta átak. Ólafsfirðingar hafa tekið þessu einstaklega vel og er þessi heimsókn fyrir jólin orðin fastur liður hjá mörgum heimilum.

29.10.2010 07:45

Markaður á Siglufirði

Eftirfarandi barst frá Kvennasmiðjunni á Siglufirði:
---
Markaður af bestu gerð
 
Helgina 30. og 31 okt frá kl 14:00 - 17:00
verðum við með markað í Danna upplýsingarmiðstöð ( Rauðkutorgi)
Til sölu verður allt milli himins og jarðar, t.d. fatnaður, gler-leirvörur, þæfðar ullarvörur, leikföng og margt fleira.
Sjón er sögu ríkari, hlökkum til að sjá sem flesta.
 
Kvennasmiðjan
p.s verðum með heitt á könnunni og með því.

26.10.2010 17:35

Flóamarkaður

Nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga ætla að halda flóamarkað 20.-21. nóvember nk. og eru að leita að dóti til að selja þar. Markaðurinn er til styrktar nemendafélaginu Trölla (nemendafélaginu í menntaskólanum) Það dót sem selst ekki fer til rauða krossins.

Áhugasömum er bent á að hafa samband í síma 846-9848 eða á saeunn_durgur@hotmail.com  

Skilafrestur á dóti er 15. nóvember.

14.02.2010 17:26

Óskað eftir gömlum myndavélum

625.is barst eftirfarandi:
---
Óska eftir að fá keyptar eða gefins gamlar myndavélar (filmuvélar), þurfa ekki endilega að vera í lagi.
Trausti Gylfason, s: 896-4369

17.01.2010 17:08

Skíðagallar óskast keyptir

Við auglýstum hér í morgun eftir skautum. Ekki stóð a viðbrögðunum og er Axel kominn með skauta. Þar sem þetta virkaði svona vel óskar hann eftir gönguskíðagöllum, annarsvegar á 10 ára strák sem er ca 140 cm á hæð og hinsvegar á 7 ára stelpu sem er ca 130 cm á hæð, hann hefur áhuga á að fá þessar flíkur keyptar. Síminn hjá Axel Pétri er 660 3958.

Ef þið hafið áhuga á að selja eitthvað eða vantar eitthvað er hægt að senda póst og við getum komið því á framfæri hér á síðunni.

17.01.2010 11:56

Óskað eftir skautum

Óskað er eftir karlmannsskautum, nr. 43 eða 44 sem annaðhvort mætti fá lánaða eða keypta á sannngjörnu verði.  
Ef þú átt slíka skauta vinsamlegast hafðu samband við Axel Pétur.
Síminn hjá honum er 660 3958
Í þessu samhengi má taka það fram að á vatninu er búið að vera frábært skautafæri undanfarna daga. Þessi frétt hefur verið vistuð undir "kaup og sala" En þangað fara allar fréttir sem tengjast því að kaupa eða selja eitthvað.
    Flettingar í dag: 379
    Gestir í dag: 123
    Flettingar í gær: 1228
    Gestir í gær: 347
    Samtals flettingar: 800596
    Samtals gestir: 160842
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

    Vafraðu um

    Höfundur síðu

    Nafn:

    Gísli Rúnar Gylfason

    Farsími:

    863-4369

    Heimilisfang:

    Hlíðarvegur 8

    Staðsetning:

    Ólafsfjörður - hvað annað!

    Um:

    áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

    Tenglar