|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|||
Flokkur: Framkvæmdir03.02.2012 00:55Framkvæmdir við grunnskólannEins og flestir bæjarbúar sjálfsagt vita þá er búið að ákveða að byggja við Grunnskólann við Tjarnarstíg (gamli Barnaskólinn). Við kíktum við í dag og tókum nokkrar myndir. Við munum að sjálfsögðu mynd reglulega á framkvæmdartímanum og birta hér á síðunni. Myndir í myndaalbúminu. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 15.10.2011 18:25Ljósleiðari í bæinnTengir Hf vinnur nú að því að leggja ljósleiðara frá Dalvík til Ólafsfjarðar og svo áfram til Siglufjarðar og tengir þar með Fjallabyggð við
ljósleiðaranet Tengis í Eyjafirð. Það er ekki oft sem bæjarbúar sjá "hjáleið" skilti á Aðalgötunni, en í þetta sinn er það líklega algjörlega þess virði. ![]() Búið að koma ljósleiðara fyrir yfir Aðalgötuna og steypa aftur fyrir. Myndir í myndaalbúmi og einnig hægt að sjá myndir á siglo.is frá framkvæmdum á Siglufirði. Skrifað af Gísli Rúnar 14.10.2011 22:30Kerfi fyrir snjóbyssurnarUm daginn tóku skíðafélagsmenn í Ólafsfirði sig saman og byrjuðu að koma fyrir kerfi fyrir snjóbyssurnar sem keyptar voru síðasta vetur. Það eru komnar nokkrar myndir á heimasíðu Síðafélagsins. Gulli Hall grefur og Baldur Ævar stjórnar eins og herforingi (eða er hann bara að kjafta í símann?) :-) Myndin er af heimasíðu Skíðafélagsins Skrifað af Gísli Rúnar 28.09.2011 12:45HjólabrautirByrjað er á gerð hjólabrauta í Ólafsfirði, áhugasamir hjólagarpar höfðu frumkvæði að því að fá leyfi fyrir gerð hjólabrautar á svo kölluðu "Frímerki" í Ólafsfirði. Eftir grenndarkynningu þar sem engar athugasemdir voru gerðar við framkvæmdina var ákveðið að hefjast handa, hólar verða gerðir úr timburkurli sem til fellur úr því timbri sem kemur á gámsvæðið og ekki verður nýtt í moltugerð. Verkefnið er samvinnuverkefni hjólakappa frá báðum stöðum, ákveðið var að byrja á þessari braut og stefna svo á uppbyggingu á Siglufirði, þar er líka horft til skíðasvæðisins um að byggja þar upp s.k. Downhill brautir. Það eru brautir sem gjarnan eru byggðar á skíðasvæðum og eru nokkurskonar brunbrautir fyrir hjól. Sambærilegar brautir eru í Hlíðarfjalli og í Skálafelli. Myndir komnar í myndaalbúmið. Texti aðsendur
Skrifað af Gísli Rúnar 05.08.2011 11:13Framkvæmdir í Ólafsfirðinú eru komnar myndir í myndaalbúmið frá nokkrum framkvæmdum sem hafa verið í gangi undanfarna daga og í sumar. ![]() Verið er að brjóta upp gangstéttina fyrir utan gamla pósthúsið og "Kaupfélagið" Skrifað af Gísli Rúnar 19.02.2011 18:50Hús í Strandgötunni rifiðVið sögðum frá því hér á síðunni að slökkvilið Fjallabyggðar hafi fengið að æfa reykköfun í húsi við Strandgötu, þar það ætti að fara að rífa húsið. Nú er búið að rífa húsið. Myndir komnar í myndaalbúmið frá niðurrifinu, þ.e. frá byrjun þess og þegar ljósmyndari kom aftur daginn eftir, var húsið farið og lítil ummerki um að þarna hafi nokkurntíma verið hús. Skrifað af Gísli Rúnar 10.12.2010 17:45Rennirautinni komið fyrirSíðustu daga hefur verið unnið að því að koma rennibrautinni fyrir við sundlaugina í Ólafsfirði. Myndir frá því í dag komnar í myndaalbúmið. Skrifað af Gísli Rúnar 30.11.2010 21:52Múlagöng lokuð næstu næturFram kemur á vef Vegagerðarinnar að vegna viðgerða verða Múlagöng lokuð næstu nætur, frá miðnætti og til kl. sex að morgni, fram á fimmtudag 2. desember. Skrifað af Gísli Rúnar 23.11.2010 07:45Umferðartafir í MúlagöngumVegna viðgerða verða umferðartafir í Múlagöngum frá kl. 8:00- 18:00 þriðjudaginn 23. nóvember, miðvikudaginn 24. nóvember og fimmtudaginn 25. nóvember. Frétt af vef Vegargerðarinnar Skrifað af Gísli Rúnar 20.10.2010 20:36Aðgengi að bókasafni lagaðSíðustu daga hefur verið unnið að því að lagafæra aðgangi við bókasafnið. Stéttin sem kemur verður upphituð sem og tröppurnar. Skrifað af Gísli Rúnar 18.10.2010 10:00Múlagöng lokuð í nóttMúlagöngin verða lokuð aðfaranótt þriðjudagsins 19. okbóber og næstu þrjár nætur þar á eftir. Við sögðum frá þessu í síðustu viku og var þar farið með ranga dagsetningu (en vikudagurinn var réttur). Þriðjudagurinn er ekki 23. október heldur 19. október og verður því göngin lokuð í nótt og næstu þrjár nætur. Skrifað af Gísli Rúnar 17.10.2010 14:38Tré flutt á milli garðaÍ gær flutti Sigurjón Magg þrjár stórar aspir úr görðum í bænum upp á Brimnes. Við flutninginn var notast við stórar vinnuvélar. Myndir komnar í myndaalbúmið. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 16.10.2010 10:42Bílskúr og bílaplanIngólfur og Svanborg eru að smíða bílskúr við hús sitt í Ólafsveginum. Það eru komnar inn myndir í myndaalbúmið frá því að planið var steypt fyrr í vikunni. ![]() Það er munur að hafa dælubíl og þurfa ekki að keyra öllu í hjólbörum. Skrifað af Gísli Rúnar 15.10.2010 16:00Múlagöng lokuð þrjár nætur í næstu vikuTilkynning frá Vegagerðinni: Múlagöng verða lokuð aðfaranótt þriðjudags í næstu viku 23. okt og næstu þrjár nætur þar á eftir. Frá kl. 24-06. Neyðarakstur fær að fara í gegn. Spurning hvort það eigi að laga skemmdirnar sem urðu á mánudaginn við flutninginn á jarðýtunni? Skrifað af Gísli Rúnar 11.10.2010 09:42Strákagöng lokuð í nóttVegna viðgerða í Strákagöngum við Siglufjörð verða þau lokuð í nótt, aðfaranótt þriðjudagsins 12. október, frá miðnætti til hálf sjö í fyrramálið. (frétt af vef vegagerðarinnar) Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|
||