|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Fræðslumál03.02.2012 00:55Framkvæmdir við grunnskólannEins og flestir bæjarbúar sjálfsagt vita þá er búið að ákveða að byggja við Grunnskólann við Tjarnarstíg (gamli Barnaskólinn). Við kíktum við í dag og tókum nokkrar myndir. Við munum að sjálfsögðu mynd reglulega á framkvæmdartímanum og birta hér á síðunni. Myndir í myndaalbúminu. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 06.12.2011 22:08Sýning nemenda MenntaskólansHaustsýning nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga verður haldin í skólanum laugardaginn 10. desember kl. 13:00 - 16:00. Á sýningunni verða málverk, ljósmyndir ásamt verkefnum um afþreyingu á Tröllaskaga.
Nemendur verða á staðnum til að ræða verk sín.
Sýningin er aðgengileg í skólanum á opnunartíma til 17. desember en þá er útskrift skólans. Heimild: www.mtr.is Skrifað af Gísli Rúnar 29.11.2011 21:22Kennsla í MTR fellur ekki niður þrátt fyrir ófærðKennarar Menntaskólans á Tröllaskaga láta ekki ófærð á sig fá og nýta tæknina til kennslu. Á heimasíðu MTR er sagt frá því að Óliver Hilmarsson, kennari hafi verið tepptur heima hjá sér í Skíðadal og í stað þess fella niður kennslu þá kenndi hann í gegnum Skype. Myndin var tekin síðdegis, í tíma í áfanganum "Inngangur að náttúruvísindum". Óliver situr heima hjá sér í Skíðadal og útskýrir landrekskenninguna í myndum og máli fyrir nemendum í skólastofunni í Ólafsfirði. Myndin er af vef MTR Skrifað af Gísli Rúnar 16.11.2011 21:42Dagur íslenskrar tunguÍ tilefni af degi íslenskrar tungu heldu nemendur Grunnskólans upp á daginn með skemmtilegri dagskrá í hádeginu í dag. Foreldrum var boðið að koma og fylgjast með. Nemendur 1.-6. bekkjar í lásu upp og fóru með ýmis ljóð og texta. Fyrr um morguninn hafði 6. bekkur farið í heimsókn á leikskólann og lesið fyrir krakkan þar. 7. bekkur fór yfir til Siglufjarðar þar sem hann sameinaðist með 7. bekk á Siglufirði í dagskrá þar sem farið var á Síldarminjasafnið og bókasafn Fjallabyggðar á Siglufirði. Myndir komnar í myndaalbúmið. Skrifað af Gísli Rúnar 08.11.2011 20:47Fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögðFyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð verður haldinn í Siglufjarðarkirkju mánudagskvöldið 21. nóvember kl. 20:00 Fyrirlesari er sr. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslumála á Biskupsstofu. Öll mætum við sorg og harmi í lífi okkar. Í fyrirlestrinum verður fjallað um ferli sorgarinnar, gerð grein fyrir þeim tilfinningum sem upp geta komið og úrvinnslu þeirra. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.
Skrifað af Gísli Rúnar 14.09.2011 21:58BæjarpólitíkinBæjarbúar hafa rætt bæjarmálin mikið í dag og velt því fyrir sér stöðunni, en Í morgun birtist grein frá Sólrúnu Júlíusdóttur á siglo.is þar kemur fram að hún hafi sagt sig úr Framsóknarfélagi Fjallabyggðar, ástæðan er ágreiningur vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Grunnskóla Fjallabyggðar. Á bæjarstjórnarfundi í dag var eftirfarandi bókun lögð fram af meirihluta bæjarfulltrúa: "Vegna yfirlýsingar Sólrúnar Júlísdóttur í dag um að hún styðji ekki uppbyggingu Grunnskóla Fjallabyggðar leggjum við bæjarfulltrúar í Fjallabyggð fram eftirfarandi bókun. Á síðasta kjörtímabili hóf bæjarstjórn Fjallabyggðar vinnu við að móta framtíðarskipan skólamála í sveitarfélaginu eftir opnun Héðinsfjarðarganga. Um fá mál hefur verið fjallað jafn ítarlega hjá bænum síðustu árin og að þeirri vinnu hafa komið fulltrúar bæjarstjórnar, hagsmunaaðilar og utanaðkomandi ráðgjafar. Frá upphafi hefur legið fyrir að nauðsynlegt yrði að fara í nýframkvæmdir og/eða verulegar endurbætur á skólahúsnæði, jafnt í Ólafsfirði sem á Siglufirði. Mikil sátt hefur verið um alla þessa vinnu í bæjarstjórn þar til fyrir örfáum vikum. Markmið bæjarstjórnenda er að reka áfram fyrsta flokks grunnskóla í Fjallabyggð með jöfnu skólahaldi í báðum byggðarkjörnum þannig að ferðatíðni nemenda úr báðum byggðarkjörnum verði sem jöfnust. Fyrirhugaðar framkvæmdir. Kostnaður við nýbyggingu og búnaðarkaup á Ólafsfirði er um 200 milljónir kr. og skólahúsnæðið á að vera tilbúið til afnota 1. september 2012. Kostnaður við nýbyggingu og búnað á Siglufirði er einnig áætlaður um 200 milljónir kr. og stefnt er að útboði á þeim áfanga árið 2012 og að skólahúsnæðið verði tilbúið til notkunar fyrir skólaárið 2013/2014. Verði ekki farið í nýbyggingu á Siglufirði þarf að fara í verulegar endurbætur á húsnæði grunnskólans við Hlíðarveg sem kosta álíka mikið og fyrirhuguð viðbygging. Eftir stæði að grunnskólinn yrði rekinn í tveimur húsum á Siglufirði með tilheyrandi kostnaði og óhagræði í skólastarfi. Óbreytt ástand í húsnæðismálum á Siglufirði er ekki valkostur. Það hefur legið fyrir allan tímann. Framkvæmdir við Menntaskólann á Tröllaskaga kosta 15 milljónir kr. Sparnaður og fjármögnun Handbært fé Fjallabyggðar um síðustu áramót var 270 milljónir kr. Áætlaður byggingarkostnaður við umræddar framkvæmdir við Grunnskóla Fjallabyggðar er um 415 milljónir kr. og eru þá breytingar á núverandi húsnæði menntaskólans inn í þeirri tölu. Reiknað er með því að sá kostnaður skili sér með rekstrarsparnaði á 10 árum. Áætlaður sparnaður í rekstri við að fækka skólahúsnæði um eina byggingu er talinn vera um 12 m.kr. á ári eða um 120 m.kr. á 10 árum. Áætlaður sparnaður í launum kennara og skólastjórnunar er talinn vera um 25 m.kr. á ári eða um 250 m.kr. á 10 árum. Sparnaður við húsvörslu og ræstingu er um 5 m.kr. á ári eða um 50 milljónir kr. á 10 árum. Heildarsparnaður er því um eða yfir 420 m.kr. á 10 árum. Þá er gert ráð fyrir ítrustu mönnun grunnskólans. Undirritaðir leggja áherslu á að fullur stuðningur er við störf núverandi bæjarstjóra og hefur hann áfram óskorað umboð meirihluta bæjarfulltrúa Fjallabyggðar til sinna starfa. Bjarkey Gunnarsdóttir, Helga Helgadóttir, Ingvar Erlingsson, Magnús A. Sveinsson, Ólafur H. Marteinsson, Þorbjörn Sigurðsson Skrifað af Gísli Rúnar 16.08.2011 14:44Innritun í Tónskóla FjallabyggðarFrá Tónskóla Fjallabyggðar. Innritun í Tónskóla Fjallabyggðar fer fram dagana 22 - 26 ágúst frá kl 09.00 - 15.00. Nemendur í Tónskóla Fjallabyggðar 2010 - 2011 þurfa að staðfesta áframhaldandi nám fyrir skólaárið 2011 - 2012. Hægt er að hafa samband í síma 464-9210, 4649132 eða 898-2516 og í tölvupósti tonskoli@fjallabyggd.is Nýjum nemendum sem sækja vilja nám við skólann vetur, er bent á heimasíðu skólans http://tonskoli.fjallabyggd.is og sækja þar um rafrænt, fara í valmynd og innritun og fylla þar út umsókn, fyrir veturinn 2011 - 2012. Skrifað af Gísli Rúnar 14.08.2011 23:13Grunnskólinn auglýsir eftir starfsmanniStarfsmann vantar í lengda viðveru skólabarna á aldrinum 6-8 ára. Nánar á heimasíðu Fjallabyggðar. Skrifað af Gísli Rúnar 07.06.2011 20:50Skólinn búinnGrunnskóla Fjallabyggðar var formlega slitið í fyrsta skiptið í dag. Miklar breytingar hafa orðið á skólamálum hér í Fjallabyggð undanfarið ár og mun bara breytast meira á næstu árum. Myndir komnar í myndaalbúmið frá skólasliti 1.-6. bekkjar í Ólafsfirði. ![]() 1. og 2. bekkur Skrifað af Gísli Rúnar 10.05.2011 14:45sýning á verkum nemenda Menntaskólans á TröllaskagaLaugardaginn 14. maí kl. 14:00 - 16:00 verður sýning á verkum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga. Nemendur verða með ferðakynningu þar sem þau kynna ferðahugmyndir á Tröllaskaga og hægt verður að ræða við þau um viðfangsefnið. Einnig verður sýning nemenda í fagurlistum og listljósmyndum á portrettmyndum og verk sem hafa verið unnin í úrgangslist. Skrifað af Gísli Rúnar 23.03.2011 22:13Árshátíð eldri deildar Grunnskóla FjallabyggðarVið kíktum við í dag þegar nemendur í efri deild Grunnskóla Fjallabyggðar voru að undirbúa árshátíðina sína sem fram fór í kvöld í Tjarnarborg. Kvöldið endar svo með diskói hjá nemendum. Myndir komnar í myndaalbúmið. ![]() undirbúningur í fullum gangi Skrifað af Gísli Rúnar 03.02.2011 13:48Opið hús hjá Leikskóla FjallabyggðarLeikskólarnir Leikhólar og Leikskálar verða með opið hús mánudaginn 7. febrúar í tilefni af degi leikskólans sem ber nú upp á sunnudegi 6. febrúar. Leikskólarnir eru opnir frá kl 8:00 til kl 16:00. Bæjarbúar eru hvattir til að koma í heimsókn og fylgjast með því frábæra starfi sem fram fer í leikskólanum. Foreldrar, ömmur, afar, systkini og aðrir bæjarbúar eru velkomir að skoða starf skólans, hitta kennara og börn í skemmtilegu spjalli. Dag leikskólans, 6. febrúar ber að þessu sinni upp á sunnudag. 6. febrúar er merkilegur dagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín og var því fagnað í fyrra á 60 ára afmæli félagsins. Dagur leikskólans verður nú haldinn í fjórða sinn, leikskólakennarar og annað starfsfólk leikskóla hafa á undanförnum árum, ásamt börnunum, gert daginn eftirminnilegan á margan hátt. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmála-ráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við. Skrifað af Gísli Rúnar 23.12.2010 12:53Sparisjóðirnir í Fjallabyggð gefa Menntaskólanum á Tröllaskaga listaverkSparisjóður Ólafsfjarðar og Sparisjóður Siglufjarðar færðu Menntaskólanum á Tröllaskaga tvö listaverk að gjöf á dögunum í tilefni af opnun skólans. Sem kunnugt er hóf skólinn starfsemi nú í haust og er þar af leiðandi yngsti framhaldsskóli landsins. Skólinn starfar í Ólafsfirði og þrátt fyrir að hafa aðeins verið starfræktur í skamman tíma útskrifaði hann nú fyrir jólin fyrsta stúdentinn. Skrifað af Gísli Rúnar 20.12.2010 22:57Snarl borið í öll húsEftirfarandi tilkynning barst 625.is: Með óskum um gleðileg jól og þökkum fyrir veittan stuðning Fh. 10. bekkjar. Bjarkey Gunnarsdóttir og Erla Gunnlaugsdóttir. Skrifað af Gísli Rúnar 16.12.2010 23:01Fjölmargar umsóknir á vorönn í Menntaskólann á TröllaskagaAlls sóttu 21 um skólavist á vorönn við Menntaskólann á Tröllaskaga. Þessi mikli fjöldi kom skólanum ánægjulega á óvart en flestir koma úr Siglufirði, þá Ólafsfirði en nokkrir koma annars staðar frá. Það verða því 86 nemendur sem hefja nám á vorönn 2011. Einnig kemur fram á heimasíðu Menntaskólans að laugardaginn 18. desember verður fyrsti stúdent skólans útskrifaður. Útskriftin fer fram í Ólafsfjarðarkirkju klukkan 14:00 og eru allir velkomnir. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|