625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Félagsstarf

01.02.2012 20:59

Aðalfundur Rauðakross deildar Ólafsfjarðar

Aðalfundur Rauðakross deildar Ólafsfjarðar verður haldinn í Rauðakrosshúsinu Aðalgötu 1 nh. fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 20:00

Dagskrá:
Venjubundin aðalfundarstörf
Félagsmenn og aðrir venunnarar velkomnir.

Stjórn Ólafsfjarðardeildar



31.01.2012 23:55

1X2 Getraunaleikur KF í Ólafsfirði

Getraunaleikur Knattspyrnufélags Fjallabyggðar er að byrja á laugardaginn (4.feb).

Nú er um að gera að taka þátt í skemmtilegum leik. Vinningar veittir fyrir 3 efstu sætin í riðlinum. 

Liðaskráningar á kf@kfbolti.is eða í síma 865 2325 (Heiðar) eða 660 4760 (Þorri).

Þátttökugjald er 5.000 kr. á hvert lið.

Skrifstofan verður opin milli kl.12-14 á laugardögum.

Frekari upplýsingar um leikinn má finna hér: http://kfbolti.is/frettir/getraunaleikurinn_hefst_aftur_laugardaginn_4feb

29.11.2011 21:14

Nýr getraunaleikur KF

Meistaraflokkur KF er að fara af stað með skemmtilegan getraunarleik sem allir geta tekið þátt í. Tippað er á leiki úr enska- og evrópuboltanum.  Leikurinn virkar þannig að aðilar tippa á leiki sem verða á tímabilinu frá 9. desember til 2. janúar. samtals 15 leikir. Þátttökugjald er kr. 1.500.-

Skilafrestur er 7.desember!!!

Verðlaunin eru ekki af verri endanum:

1.sæti: 25.000 krónur
2.sæti: 15.000 krónur
3.sæti: 10.000 krónur

Ef þátttakandi er með alla leiki rétta eru verðlaunin 50.000 + 1.vinningur samtals 75.000 krónur. Ef fleiri en einn eru með alla leiki rétta er einnig dregið um sigurvegara.
Velja skal eitt tákn 1, X eða 2

Ef einhverjar spurningar vakna um leikinn þá endilega hafið samband í síma 6605357 Þorri / 865-2325 Heiðar /Grétar 8916399

11.11.2011 22:10

Kökukeppni Neon

Í kvöld var haldin árleg kökukeppni félagsmiðstöðvarinnar Neons. Mikill metnaður var lagður í kökurnar í ár og klárlega einhverjir framtíðar bakarar í hópnum.
Myndir komnar í myndaalbúmið:


Kristín Margrét Halldórsdóttir Sigurvegari í flokknum: "besta bragðið"


Sigríður Alma Axelsdóttir og Erla Marý Sigurpálsdóttir sigurvegarar í flokknum: "flottasta kakan"

08.11.2011 23:29

UÍF boðar er til formannafundar

Á heimasíðu UÍF er boðað er til formannafundar 9. nóvember nk. kl. 18:30 í UÍÓ húsinu, Ólafsfirði.
Er þetta liður í að halda öllum aðildarfélögum UÍF upplýstum um gang mála.

Á fundinum munu drög að reglum um val á íþróttamanni Fjallabyggðar vera kynntar, en unnið hefur verið að nýjum reglum í samvinnu við Kiwanisklúbbinn á Siglufirði.

Afhent verður almannak þar sem helstu dagsetningar koma fram sem aðildarfélögum ber að hafa í huga og einnig verður óskað eftir hugmyndum aðildarfélaganna um dagskrárliði fyrir fyrirhugaða Vetrarleika.

Óskað er eftir að formaður aðildarfélags auk annars stjórnarmanns mæti á fundinn.

08.11.2011 20:34

Tíu Til Tólf ára starf Kirkjunnar

Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, ÆSKEY, í samstarfi við KFUM og KFUK á Norðurlandi stóð fyrir helgarsamveru fyrir TTT hópa úr kirkjum prófastsdæmisins og yngri deildir KFUM og KFUK í Ólafsfirði 5. og 6. nóvember sl. Fjölbreytt dagskrá var í boði og hófst hún uppúr hádegi á laugardegi og endaði með guðsþjónustu í kirkjunni klukkan ellefu á sunnudeginum.
Þegar við kíktum á hópinn á laugardaginn voru þau í leikjum í íþróttahúsinu og á leið í sund.
Myndir komnar í myndaalbúmið.

kraftmiklir krakkar :-)

11.10.2011 10:18

Kvæðamannafélag og þjóðdansafélag í Fjallabyggð

Fréttatilkyning:
---
Kynningar- og samráðsfundur verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 12. október kl. 17:00 í bláa húsinu á Siglufirði (Rauðku). Nokkur pör frá Vefaranum, þjóðdansafélagi Akureyrar stíga með okkur dans og svo verða örugglega kveðnar nokkrar vel valdar stökur. Þessi fundur er haldinn til þess að undirbúa stofnun Þjóðdansafélags og kvæðamannafélags í Fjallabyggð, en stofnfundurinn verður á fæðingardegi sr. Bjarna, föstudaginn 14. október kl. 20:00 í Þjóðlagasetrinu.


Nú er tækifæri fyrir alla þá sem hafa sótt kvæðamannanámskeið Þjóðlagaakademíunnar að rifja upp gamla takta, læra nokkra í viðbót og skemmta sér og öðrum í leiðinni. Þeir sem ekki hafa sótt kvæðamannanámskeið hafa nú tækifæri til að læra af hinum, en hafa ber í huga að í kvæðamennskunni kveður hver með sínu nefi.
Þetta er einnig tækifæri fyrir þá fjölmörgu sem lærðu þjóðdansana íslensku af Regínu Guðlaugs til að koma saman á ný og minnast unglingsáranna með léttri sveiflu. 


Hittumst hress í bláa-húsinu á kl. 17:00 á morgun.

Myndin heitir Landlegukvöld í ágúst og er eftir Örlyg Kristfinnsson, bæjarlistamann Fjallabyggðar

08.09.2011 23:30

Tómas í helgarferð til NSARDA

Á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Tinds er sagt frá því að Tómas Einarsson sem hefur þjálfað hundinn Krumma til leitar og eru þeir félagar t.d. á A útkallslista Landsbjargar.

Tómas flýgur til Bretlands á morgun ásamt félögum sínum hjá Leitarhundum SL og mun hópurinn m.a. fylgjast með æfingum hjá NSARDA.

NSARDA eða National Search and Rescue Dogs Assotiation eru nokkurskonar landssamtök leitarhunda í Bretlandi. Ætlar Björgunarsveitin að setja myndir og viðtal þegar Tómas snýr til baka úr ferðinni.
 

30.08.2011 17:38

Kynningarfundur unglingadeilda Björgunarsveitanna

Fimmtudaginn 1. september fara fram kynningarfundir hjá björgunarsveitunum í Fjallabyggð á unglingastarfi þeirra. Tvær björgunarsveitir eru í Fjallabyggð, Tindur í Ólafsfirði og Strákar á Siglufirði. Unglingadeildin í Ólafsfirði heitir "Djarfur" og unglingadeildin á Siglufirði heitir "Smástrákar".

Kynningarfundirnir eru í húsakynnum björgunarsveitanna kl. 20:00 á fimmtudaginn fyrir nemendur í 9. og 10. bekk.  Þó svo að um sé að ræða tvær björgunarsveitir stefna umsjónarmenn unglingadeildana á samvinnu í vetur.

Umsjónarmenn fengu að kynna starfsemina í Grunnskólanum í morgun.

02.08.2011 12:21

Sjálfboðalliða vantar á Pæjumótið

Nú nálgast Pæjumótið og vantar sjálfboðaliða til aðstoðar við mótið.

Eftirfarandi vaktir þarf að manna:

Föstudagur 05/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Ca. 17.00-21.00 í kvöldverð

Laugardagur 06/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Ca. 17.00-21.00 í kvöldverð

Sunnudagur 07/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Er þetta mjög gefandi og ánægjuleg reynsla að þjónusta ungu dömurnar

Allir áhugasamir:

Vinsamlegast sendið tölvupóst á snillingur@simnet.is með nafni, síma og þá vöktum sem kæmu til greina.

Einnig er hægt að senda sms á 899-2052 eða hafa samband eftir kl. 16.00

Með fyrirfram þökk,
Katrín Andersen.

06.06.2011 20:30

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar fær nýja heimasíðu

Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) hefur opnað nýja heimasíðu. Slóðin þangað er http://kfbolti.is/

18.05.2011 17:48

Aðalfundur Skíðafélags Ólafsfjarðar

Skíðafélag Ólafsfjarðar heldur aðalfund miðvikudaginn 18. maí í skíðaskálanum í Tindaöxl kl. 20:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins og er skorað á sem felsta að mæta.

Skíðafélagið leitar að fólki sem hefur áhuga á starfi félagsins til að bjóða sig fram í stjórn. Ljóst er að töluverð breyting verður í stjórn félagsins og vantar fólk til starfa.

11.04.2011 14:32

Páskabingó KF

Bingó verður haldið í Tjarnraborg mánudaginn 11. apríl kil. 20:00.
Meðal vinninga er flug fyrir 2 með Flugfélaginu Erni, gisting á hóteli við Bláa Lónið, úttekt í Samkaup, páskaegg og páskamatur.
Spaldið kostar 700 (þrjú spjöld á 1.800 og hvert spjald eftir það á kr. 500)

21.03.2011 10:10

Felixnámskeið í dag

Mánudaginn 21. mars verður boðið upp á námskeið í Felix í UÍÓ húsinu kl. 16.00 (áður auglýst 14.  mars - var frestað vegna veðurs)

Rúna H. Hilmarsdóttir umsjónaraðili Felix  leiðbeinir, fyrirlestur hefst kl. 16.30,

Hvert félag UÍF er hvatt til að mæta  með tvo fulltrúa á fyrirlesturinn.

Eftir fyrilesturinn stendur félögum til boða að fá leiðbeiningu um skýrskil.

Hvert félag verður að koma með tölvur til að vinna á.

Vinsamlega tilkynnið skráningu á námskeiðið á netfangið brynja@uif.is


Með von um góða þátttöku,
Stjórn UÍF

Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar