|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Þjónusta05.02.2012 22:08Námskeið í skíðagönguFimmtudaginn 9.febrúar hefst námskeið í skíðagöngu fyrir fullorðna hjá skíðafélagi Ólafsfjarðar. Farið verður yfir undirstöðuatriðin í skíðagöngu og mun Kristján Hauksson leiðbeina. Námskeiðið hefst eins og fyrr segir 9.febrúar kl. 20:00 og verður í 5-6 skipti, allt eftir þörfum og áhuga. Möguleiki er að fá leigð skíði, skó og stafi á vægu verði en námskeiðið sjálft kostar 4.000 kr. Skráning og nánari upplýsingar fást hjá Kristjáni í síma 892-0774 eða netf. krihau@simnet.is Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2012 12:55Námskeið í hestanuddiHelgina 25. - 26. febrúar næstkomandi á Siglufirði, ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 -16 á laugardeginum, með bóklegum tíma og byrjar kl. 10 á sunnudeginum með verklegum tíma. Námskeiðið kostar kr. 19.200 og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 6.000 við skráningu. Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19. febrúar. Skrifað af Gísli Rúnar 26.01.2012 08:13Skóla- og frístundaakstur fellur niður í dagSkóla- og frístundaakstur fellur niður í dag, fimmtudaginn 26. janúar er fram kemur á heimasíðu Fjallabyggðar. Enda er þetta spurning hvort nokkur eigi að vera að ferðast á þessum tíma. Meðfylgjandi mynd er af vef vegagerðarinnar og sýnir færð á vegum um landið. Skrifað af Gísli Rúnar 12.01.2012 11:16Breytingar í Símaskrá 2012 fyrir ÓlafsfjörðKnattspyrnufélag Fjallabyggðar óskar eftir breytingum í símaskránna sem síðast kom út árið 2008. Stefnt er að útgáfu fyrir janúarlok. Tekið er við tilkynningum á kf@kfbolti.is Skrifað af Gísli Rúnar 11.01.2012 22:00Skóla- og frístundaaksturFjallabyggð hefur ákveðið að framlengja núverandi aksturstöflu um tvær vikur. Taflan verður því óbreytt til og með 27. janúar nk. sjá aksturstöfluna hér: http://www.fjallabyggd.is/static/files/.pdf/1325590996-akstur_vetur_2011_2012_03.01.12_v01.pdf Skrifað af Gísli Rúnar 09.01.2012 23:32Zumba námskeiðZumba Fitness námskeið verður haldið í Ólafsfirði helgina 20.-22. janúar næstkomandi. Einföld spor, mikil brennsla, skemmtileg tónlist og frábær félagsskapur. Námskeiðið verður haldið í íþróttahúsinu. Tímarnir verða samkvæmt eftirfarandi stundarskrá Föstudaginn 20. Janúar kl: 18:00-19:00 Laugardaginn 21. Janúar kl: 10:00-11:00 Sunnudaginn 22. Janúar kl: 10:00-11:00 Verð fyrir námskeiðið er 4.000.- öll helgin Frekari upplýsingar og skráning í síma 8689390 eða í Email zumba-loa@visir.is Skrifað af Gísli Rúnar 15.12.2011 12:44Ertu í vandræðum með jólagjöfina?Ef þú ert í vanda finnur þú lausnina í sparisjóðunum í Fjallabyggð. Gjafakort Sparisjóðsins er einföld, skemmtileg og þægileg gjöf sem gleður og hægt er að nota í verslunum um allan heim til að kaupa það sem hugurinn girnist. Þú velur upphæðina - þiggjandinn velur gjöfina. Skrifað af Gísli Rúnar 04.11.2011 12:58Svör við snjómoksturspurningumÁ miðvikudaginn kom frétt hér á 625.is með fyrirsögnina "Bærinn ófær fram eftir degi" Ármann Viðar Sigurðsson (armann@fjallabyggd.is) Skrifað af Gísli Rúnar 15.10.2011 18:25Ljósleiðari í bæinnTengir Hf vinnur nú að því að leggja ljósleiðara frá Dalvík til Ólafsfjarðar og svo áfram til Siglufjarðar og tengir þar með Fjallabyggð við
ljósleiðaranet Tengis í Eyjafirð. Það er ekki oft sem bæjarbúar sjá "hjáleið" skilti á Aðalgötunni, en í þetta sinn er það líklega algjörlega þess virði. ![]() Búið að koma ljósleiðara fyrir yfir Aðalgötuna og steypa aftur fyrir. Myndir í myndaalbúmi og einnig hægt að sjá myndir á siglo.is frá framkvæmdum á Siglufirði. Skrifað af Gísli Rúnar 19.09.2011 23:50Body PumpEftirfarandi auglýsing barst 625.is, um er að ræða Budy Pump tíma í íþróttahúsinu: Skrifað af Gísli Rúnar 09.09.2011 12:55Margir þættir á N4 frá ÓlafsfirðiN4 hafa verið sérstaklega duglegir undanfarið að fjalla um málefni Fjallabyggðar á síðustu mánuðum, eru þar a.m.k. þrír þættir frá Ólafsfirði. Þessi þættir eru: Annars hvetjum við fólk að fylgjast með áhugaverðum þáttum á N4, enda eiga þeir mikinn heiður skilinn fyrir frábært starf í að miðla efni um norðurland. Skrifað af Gísli Rúnar 08.06.2011 23:39Generalprufa á hvalaskoðunÍ kvöld var farin generalprufa með bátum Norðursiglingar sem munu sinna hvalaskoðun hér frá Ólafsfirði í sumar. Samsiglt var á Hvalaskoðunarbátnum Knerri og skútunni Hildi. Báðir
þessir bátar voru áður gerðir út frá Ólafsfirði en Knörrinn hét þá Hrönn
og Hildur hét Múli. Þó veðrið hafi ekki verið eins og best verður á kosið og lítið um hvali (enda farið stutt í þetta sinn) þá skemmtu menn sér vel og var gaman að fá að kynnast bátunum sem munu sinna þessu verkefni í sumar. Bæjarstjórn Fjallabyggðar var boðin í ferðina en komst ekki þar sem bæjarstjórnarfundur dróst á langinn, veltu menn mikið fyrir sér hvort einhverjr bæjarfulltrúar hafi ekki treyst sér í siglinguna og rætt vel og lengi um málin á fundi. En þeir mættu að sjálfsögðu að fundi loknum og tóku á móti bátunum þegar þeir komu aftur i land þar sem Norðursigling og Hótel Brimnes buður upp á létta veitingar að siglingu lokinni. Myndavélin var að sjálfsögðu með í ferð og eru komnar myndir í myndaalbúmið. Eru allir hvattir til að kynna sér verkefnið á heimasíðu Norðursiglingar sem hefur sinnt Hvalaskoðunum frá Húsavík í ein 15 ár. ![]() Skrifað af Gísli Rúnar 08.06.2011 09:31Frístundaakstur í sumarÍ dag, miðvikudaginn 8. júní breytast áætlunarferðir Suðurleiða í Fjallabyggð. Tímasetningar ferðanna hafa verið sniðnar að æfingatíma KF í sumar og mun rútan því ferðast á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar þannig að iðkendur KF komist á réttum tíma á æfingar. Íbúar Fjallabyggðar geta einnig nýtt sér rútuna sem ferðakost sé nægt pláss í henni eftir að allir iðkendur KF eru komnir um borð, en eins og gefur að skilja verða þeir að ganga fyrir. Hérna má finna nýja tímatöflu yfir rútuferðirnar í sumar. Hérna má finna æfingatöflu KF sumarið 2011. Skrifað af Gísli Rúnar 10.05.2011 14:45sýning á verkum nemenda Menntaskólans á TröllaskagaLaugardaginn 14. maí kl. 14:00 - 16:00 verður sýning á verkum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga. Nemendur verða með ferðakynningu þar sem þau kynna ferðahugmyndir á Tröllaskaga og hægt verður að ræða við þau um viðfangsefnið. Einnig verður sýning nemenda í fagurlistum og listljósmyndum á portrettmyndum og verk sem hafa verið unnin í úrgangslist. Skrifað af Gísli Rúnar 19.04.2011 17:04Helgihald um páskanaHelgihald um bænadaga og páska í Ólafsfirði: 21. apríl - Skírdagur Messa kl. 16:00 - Altarisganga Fermdir verða: Patrekur Þórarinsson, Hafnargötu 22, Siglufirði Vilhjálmur Reykjalín Þrastarson, Bylgjubyggð 4, Ólafsfirði 22. apríl - Föstudagurinn langi Lestur Passíusálmanna hefst kl. 11:00 Ólafsfirðingar á öllum aldri lesa Kaffi og konfekt í safnaðarheimilinu Kvöldvaka við krossinn kl. 20:30 Lesið úr píslarsögunni Gretar Björnsson les Passíusálm Fermingarbörn flytja sjö orð Krists á krossinum 24. apríl - Páskadagur Hátíðarguðsþjónusta kl. 9:00 Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir Kaffi og páskaegg í safnaðarheimilinu Hátíðarguðsþjónusta á Hornbrekku kl. 14:00 Hátíðarsöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar sungnir
Kór Ólafsfjarðarkirkju syngur við allar athafnirnar Organisti Ave Kara Tonisson
Þangað er gott að koma og gefa sér tíma til að biðja, íhuga og þakka Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|