|
625.is Ólafsfjörður í nærmynd |
|
Flokkur: Atvinnulífið09.12.2011 17:00Veiðigjald útgerða hækkað úr 650 milljónum í 9 milljarða á sjö árumKarl Eskill Pálsson, sjálfstætt starfandi fjölmiðlamaður sendi okkur þess frétt um veiðigjald, en slíkt gjald hefur að sjálfsögðu áhrif á sjávarbæi eins og Ólafsförð og Siglufjörð: --- Veiðigjald, sem lagt er á útgerðir landsins, hefur fimmfaldast á undanförnum árum, úr 649 milljónum króna fiskveiðiárið 2005-2006 í rúmlega 3 milljarða króna fiskveiðiárið 2010-2011. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi á yfirstandandi fiskveiðiári hækki um 50% frá því síðasta og verði um 4,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Einars Kristins Guðfinnsonar á Alþingi Veiðigjald á þessu fiskveiðiári hefur verið ákveðið 13,3% af framlegð útgerða. Miðað við óbreyttar forsendur um afla, framlegð og þorskígildisstuðla sem notaðar eru við útreikning á áætluðu veiðigjaldi á þessu fiskveiðiári og boðaða hækkun veiðigjaldsins upp í 27% af framlegð fyrirtækjanna má áætla að veiðigjaldið fiskveiðiárið 2012-2013 verði ríflega 9 milljarðar króna. "Þessi stórfellda gjaldtaka af útgerðunum, sem allt bendir til að muni hækka fjórtánfalt á aðeins sjö árum, kemur fyrst og fremst til með að veikja landsbyggðina, þar sem langflestar útgerðirnar eru," segir Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. í Hnífsdal. "Um 90% allra aflaheimilda eru á landsbyggðinni, þar sem sjávarútvegurinn er víða kjölfestan í atvinnulífinu. Ég veit ekki alveg hvernig þetta rímar við áform stjórnvalda um að efla byggð í landinu en þingmenn stjórnarflokkanna geta vafalítið útskýrt þetta fyrir kjósendum," segir Einar. Skrifað af Gísli Rúnar 09.09.2011 12:55Margir þættir á N4 frá ÓlafsfirðiN4 hafa verið sérstaklega duglegir undanfarið að fjalla um málefni Fjallabyggðar á síðustu mánuðum, eru þar a.m.k. þrír þættir frá Ólafsfirði. Þessi þættir eru: Annars hvetjum við fólk að fylgjast með áhugaverðum þáttum á N4, enda eiga þeir mikinn heiður skilinn fyrir frábært starf í að miðla efni um norðurland. Skrifað af Gísli Rúnar 14.08.2011 23:13Grunnskólinn auglýsir eftir starfsmanniStarfsmann vantar í lengda viðveru skólabarna á aldrinum 6-8 ára. Nánar á heimasíðu Fjallabyggðar. Skrifað af Gísli Rúnar 10.05.2011 14:45sýning á verkum nemenda Menntaskólans á TröllaskagaLaugardaginn 14. maí kl. 14:00 - 16:00 verður sýning á verkum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga. Nemendur verða með ferðakynningu þar sem þau kynna ferðahugmyndir á Tröllaskaga og hægt verður að ræða við þau um viðfangsefnið. Einnig verður sýning nemenda í fagurlistum og listljósmyndum á portrettmyndum og verk sem hafa verið unnin í úrgangslist. Skrifað af Gísli Rúnar 13.04.2011 12:10Starfsmann vantar vegna hvalaskoðunar í ÓlafsfirðiEftirfarandi atvinnuauglýsing barst 625.is, klárlega spennandi starf þarna á ferð: --- Norðursigling ehf óskar eftir starfsfólki við skipstjórn og leiðsögn í hvalaskoðun á Ólafsfirði í sumar. Um skemmtilegt starf er að ræða hjá traustu fyrirtæki. Umsóknir berist á netfangið info@nordursigling.is eða í síma 464-7272. Bestu kveðjur frá Húsavík, Skrifað af Gísli Rúnar 11.04.2011 21:14Sumarstörf hjá FjallabyggðFjallabyggð hefur auglýst eftir fjölda sumarstarfa. Þar má nefna flokksstjóra vinnuskóla, störf við slátt og umhirðu, einnig starf íþrótta- og tómstundafulltrúa sem fer í fæðingarorlof í sumar. Allar lausar stöður er hægt að finna á heimasíðu Fjallabyggðar, undir "lausar stöður" Skrifað af Gísli Rúnar 19.03.2011 10:09Vinnsla Ramma hf í ÞorlákshöfnÁ heimasíðu Ramma hf. er sagt frá því að síðustu mánuðina hafa þorskur og karfi verið unnir í fiskvinnslu Rammans í Þorlákshöfn. Karfinn er flakaður og fluttur út ferskur eða frystur en þorskurinn er flakaður, léttsaltaður og frystur fyrir Suður-Evrópumarkað. Humarveiðar- og vinnsla hefjast svo að venju í aprílmánuði. Skrifað af Gísli Rúnar 12.03.2011 15:35Fréttir af starfsemi RammansÁ heimasíðu Ramma hf. er m.a. sagt frá því að Hæstiréttur hafi staðfest frávísun á máli Rammans gegn ríkinu, ævintýralega miklum fiski og einnig hægt að skoða myndir frá heimsókn krakkanna á öskudaginn. Skrifað af Gísli Rúnar 23.02.2011 22:47Rammafiskur á sýninguRammi tók þátt í sýningu með sem haldin var í Newcastle fyrir "chips and fish" veitingastaði í Norður-Englandi, Skotlandi og Norður-Írlandi sl. sunnudag. Mikill fjöldi gesta sótti sýninguna sem tókst vel en á henni var sýnt allt sem þarf til reksturs "fish and chips" staðanna, jafnt hráefni sem tæki og tól. Nær allur sjófrystur fiskur sem Rammi selur er framleiddur undir vörumerki fyrirtækisins og er regluleg þáttaka á sýningum í Bretlandi liður í að kynna merkið þar. Mynd og frétt af vef Ramma hf. (fleiri myndir á www.rammi.is) Skrifað af Gísli Rúnar 22.02.2011 17:28Löndun úr SigurbjörguÍ dag er verið að landa úr Sigurbjörgu ÓF 1 á Siglufirði fiski sem veiddur var í Barentshafinu (norsku lögsögunni). Afli í 22 daga veiðiferð var 534 tonn, langmest þorskur ásamt lítilsháttar af ýsu. Skrifað af Gísli Rúnar 09.02.2011 17:08Sigurbjörg færð til hafnar í NoregiNorska strandgæslan færði Sigurbjörgu ÓF 1 sem er á veiðum í Barentshafi til hafnar í Hammerfest í Noregi í gærkvöldi vegna bókhaldsbrots. Málinu var lokið með greiðslu sektar og skipið heldur til aftur til veiða síðar í dag. Frétt af vef Ramma hf.Skrifað af Gísli Rúnar 08.02.2011 18:41Ríkið tekur yfir 70%Á heimasíðu Ramma hf. segir fyrirtækið sína sýn á því hvernig ríkið tekur sína hlutdeild með skattheimtu. Þar eru menn varla ánægðir með hlutskiptin. Sjá nánar hér: Einnig er sagt á heimasíðu Ramma hf. frá fréttamanni á Rúv sem að þeirra mati hafi gert tilraun til þess að setja met í bulli og vitleysu. Sjá nánar hér. Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2011 22:46Fjallabyggð auglýsir eftir þroskaþjálfaFélagsþjónusta Fjallabyggðar auglýsir stöðu þroskaþjálfa lausa til umsóknar. Starfið felst í almennum verkefnum á sviði félagsþjónustu, barnaverndar og málefna fatlaðra.
Viðkomandi þarf að hafa starfsréttindi sem þroskaþjálfi, hafa reynslu af sambærilegu starfi og góða þekkingu á helstu tölvu- og upplýsingakerfum félagsþjónustunnar. Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrifstofum Fjallabyggðar eða á heimasíðu Fjallabyggðar, http://www.fjallabyggd.is/ Með umsókn skal fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf ásamt sakavottorði. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar n.k. og skal skila á bæjarskrifstofur Fjallabyggðar Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði, einnig á netfangið hh@fjallabyggd.is Skrifað af Gísli Rúnar 01.02.2011 12:21Mánabergið landarÍ dag er verið að landa úr Mánabergi ÓF 42 í Ólafsfirði. Heildarveiði í 27 daga veiðiferð var 390 tonn, mestur hluti aflans er þorskur og ýsa. Skrifað af Gísli Rúnar 19.01.2011 10:29Starf við félagsmiðstöðina NeonFjallabyggð auglýsir eftir afleysingarfólki við Félagsmiðstöðina Neon, félagsmiðstöð unglinga í Fjallabyggð. Möguleiki á framtíðarstarfi. Skrifað af Gísli Rúnar Flettingar í dag: 379 Gestir í dag: 123 Flettingar í gær: 1228 Gestir í gær: 347 Samtals flettingar: 800596 Samtals gestir: 160842 Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25 |
Vafraðu umHöfundur síðu Nafn: Gísli Rúnar GylfasonFarsími: 863-4369Tölvupóstfang: gislirunar4@gmail.comHeimilisfang: Hlíðarvegur 8Staðsetning: Ólafsfjörður - hvað annað!Um: áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.TenglarEldra efni
|