625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Dýr

01.02.2012 12:55

Námskeið í hestanuddi

Helgina 25. - 26. febrúar næstkomandi á Siglufirði, ef næg þátttaka fæst.

Námskeiðið stendur yfir frá kl. 9 -16 á laugardeginum, með bóklegum tíma og byrjar kl. 10 á sunnudeginum með verklegum tíma.

Námskeiðið kostar kr. 19.200 og lágmarksfjöldi eru 6 nemendur.

Greiða þarf staðfestingargjald kr. 6.000 við skráningu.

Skráning og allar upplýsingar eru í síma 861-6727 eða í hestanudd@hestanudd.net fyrir sunnudaginn 19. febrúar.

08.09.2011 23:30

Tómas í helgarferð til NSARDA

Á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Tinds er sagt frá því að Tómas Einarsson sem hefur þjálfað hundinn Krumma til leitar og eru þeir félagar t.d. á A útkallslista Landsbjargar.

Tómas flýgur til Bretlands á morgun ásamt félögum sínum hjá Leitarhundum SL og mun hópurinn m.a. fylgjast með æfingum hjá NSARDA.

NSARDA eða National Search and Rescue Dogs Assotiation eru nokkurskonar landssamtök leitarhunda í Bretlandi. Ætlar Björgunarsveitin að setja myndir og viðtal þegar Tómas snýr til baka úr ferðinni.
 

25.06.2010 22:24

Fuglaskoðunarhús

Jólahúsin koma að fleiri notum en bara við jólamarkað. Nú er búið að staðsetja eitt þeirra við Þóroddstaðatjörn. Nú nýtist húsið sem fuglaskoðunarhús og er húsið öllum opið og aðgengilegt.
Á heimasíðu Arcticaves er að finna fréttir og myndir af fuglum og fuglatengdu efni. T.d. náði Gísli Kristinsson mynd af svölu sem gerði sér lítið fyrir og settist á þakið á fuglahúsinu.
 

Fuglahúsið við Þóroddsstaðartjörn, mitt á milli tjarnar og vegs, appelsínugult að lit.

28.04.2010 20:50

Vor í lofti

Það má með sanni segja að vorið sé á leiðinni. krakkarnir farnir að leika sér á Tjörninni og endurnar okkar byrjaðar að stoppa umferð. Myndirnar voru teknar í morgun þegar endurnar voru búnar að koma sér vel fyrir á aðalgötunni og seinni partinn þegar nokkrir krakkar voru á bátum á Tjörninni.
Fleiri myndir af Tjarnarbuslinu er að finna í myndaalbúminu.
Gleðilegt sumar :-)



28.04.2010 19:41

Haförn í Ólafsfirði

Ungur haförn heiðraði Ólafsfirðinga með nærveru sinni skömmu fyrir hádegi í dag. Gísli Kristinsson, sem tók meðfylgjandi myndir, segir mjög sjaldgæft að hafernir sjáist í firðinum og hann hafi reyndar aðeins einu sinni heyrt um það. 

Það var Svavar B. Magnússon sem sá fuglinn fyrstur. Þá kom hann fljúgandi inn yfir bæinn og settist síðan á flugvöllinn - rétt framan við vinnubúðirnar við munna Héðinsfjarðarganganna. Síðan flaug örninn fram eftir vatninu og settist á bakkann þar sem Ólafsfjarðará rennur í vatnið. Þar tók Gísli myndirnar, af um það bil 300 metra færi. "Hann var frekar styggur og flaug lengra fram sveitina þegar ég reyndi að komast nær honum," sagði Gísli í samtali við mbl í dag (textin fenginn úr frétt á mbl.is)

Myndirnar tók Gísli Kristins (Kidda og Lólóar)







15.04.2010 12:50

Fugl fyrir milljón

Gisti og/eða matargestir á Brimnes hóteli í Ólafsfirði ( www.brimnes.is ), geta skráð sig til þáttöku í ljósmyndasamkeppni um bestu fuglamyndina tekna á Tröllaskaganum, Hrísey eða Grímsey á tímabilinu 15. apríl til 31. ágúst 2010.  Auk ýmissa veglegra verðlauna, verður besta myndin verðlaunuð með 1.000.000 króna í reiðufé.
Nánari upplýsingar er að finna á http://www.fuglfyrirmilljon.com

28.10.2009 11:11

Fréttir frá Fjallabyggð

Á heimasíðu Fjallabyggðar er sagt frá spjallborði sem búið er að koma upp um viðburði í Fjallabyggð. Þarna gefst bæjarbúum tækifæri á að spjalla saman og koma með athugasemdir sem tengjast þessum hátíðum.
Fréttin á Fjallabyggd.is

Einnig er sagt frá almennum fundum sem verða haldnir varðandi hundahald í Fjallabyggð. Siglufirði fimmtudaginn 29. október kl. 20.00 í Ráðhúsinu (2. Hæð)
Ólafsfirði miðvikudaginn 4. nóvember kl. 20.00 í Tjarnarborg.

Fundarefni:
Hundalaus svæði í sveitarfélaginu.
Aðrar almennar reglur um hundahald.
Frétttin fá Fjallabygg.is



19.09.2009 15:07

Réttir

625 kíkti í réttir nú rétt í þessu (við Kálfsá). Verið var að setja kindurnar á bíla og koma þeim í burtu. Myndir komnar í myndaalbúmið.

10.07.2009 13:20

"Andapabbi"

Endurnar gefa bænum okkar mjög sérstakan blæ. Ferðamönnum finnt þetta mjög sérstakt og spennandi, þangað til þær vekja þá af værum svefni á tjaldstæðinu. :-)
Þorbjörn hugsar vel um endurnar og Tjörnina. Hann var að gefa þeim brauð í morgun, og svo tók kallinn sig til að hreinsaði rusl í kringum Tjörnina í leiðinni.
Ekki hafa margir ungar komist á legg í sumar, það eru nokkrir frá því í vor og svo eru tveir eftir alveg "nýjir"
  

05.07.2009 20:39

Flottur fugl

Langaði að skella þessari mynd inn, en mér fannst fannst hann bara svo tignarlegur ofaná bílnum. Myndin er tekin fyrir utan Hornbrekku í dag.



    Flettingar í dag: 379
    Gestir í dag: 123
    Flettingar í gær: 1228
    Gestir í gær: 347
    Samtals flettingar: 800596
    Samtals gestir: 160842
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

    Vafraðu um

    Höfundur síðu

    Nafn:

    Gísli Rúnar Gylfason

    Farsími:

    863-4369

    Heimilisfang:

    Hlíðarvegur 8

    Staðsetning:

    Ólafsfjörður - hvað annað!

    Um:

    áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

    Tenglar