625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Börnin okkar

09.12.2011 07:19

Tónleikar í boði Sparisjóðanna



Þétt saman-Sterk saman

Tónleikar í boði Sparisjóðanna í Fjallabyggð fyrir nemendur Grunnskóla Fjallabyggðar í sal Rauðku.

Sunnudaginn 11. desember 2011

Yngri deild kl. 15:00.

Hjálmar, Baggalútur og Memfismafían (Gilli Gill, Ávaxtakarfan)

Þorsteinn Guðmundsson

Kók og prins á leiðinni út

Eldri deild kl. 17:00

Hjálmar, Baggalútur og Memfismafían(Gilli Gill,Ávaxtakarfan)

Þorsteinn Guðmundsson

Kók og prins á leiðinni út

Rútuferðir verða farnar frá Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði

kl. 14:30 fyrir yngri deild og kl. 16:30 fyrir eldri deild.

Ferðir til baka verða eftir hvora tónleika.

Ath. það er frítt á tónleikanna.


                                

16.11.2011 21:42

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af degi íslenskrar tungu heldu nemendur Grunnskólans upp á daginn með skemmtilegri dagskrá í hádeginu í dag. Foreldrum var boðið að koma og fylgjast með. Nemendur 1.-6. bekkjar í lásu upp og fóru með ýmis ljóð og texta.
Fyrr um morguninn hafði 6. bekkur farið í heimsókn á leikskólann og lesið fyrir krakkan þar.
7. bekkur fór yfir til Siglufjarðar þar sem hann sameinaðist með 7. bekk á Siglufirði í dagskrá þar sem farið var á Síldarminjasafnið og bókasafn Fjallabyggðar á Siglufirði.
Myndir komnar í myndaalbúmið.

11.11.2011 22:10

Kökukeppni Neon

Í kvöld var haldin árleg kökukeppni félagsmiðstöðvarinnar Neons. Mikill metnaður var lagður í kökurnar í ár og klárlega einhverjir framtíðar bakarar í hópnum.
Myndir komnar í myndaalbúmið:


Kristín Margrét Halldórsdóttir Sigurvegari í flokknum: "besta bragðið"


Sigríður Alma Axelsdóttir og Erla Marý Sigurpálsdóttir sigurvegarar í flokknum: "flottasta kakan"

08.11.2011 20:34

Tíu Til Tólf ára starf Kirkjunnar

Æskulýðssamband kirkjunnar í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi, ÆSKEY, í samstarfi við KFUM og KFUK á Norðurlandi stóð fyrir helgarsamveru fyrir TTT hópa úr kirkjum prófastsdæmisins og yngri deildir KFUM og KFUK í Ólafsfirði 5. og 6. nóvember sl. Fjölbreytt dagskrá var í boði og hófst hún uppúr hádegi á laugardegi og endaði með guðsþjónustu í kirkjunni klukkan ellefu á sunnudeginum.
Þegar við kíktum á hópinn á laugardaginn voru þau í leikjum í íþróttahúsinu og á leið í sund.
Myndir komnar í myndaalbúmið.

kraftmiklir krakkar :-)

15.10.2011 18:45

Skíðamaraþoni lokið - myndir

Á vef Skíðafélags Ólafsfjarðar kemur eftirfarandi fram:
---
Nú kl. 16:00 lauk maraþoninu sem byrjaði í gær. Vel hefur gengið að ganga hjá krökkunum og margir komið og lagt þeim lið, gengið með þeim og skráð sína þátttöku hér hjá okkur. Þegar allt er reiknað saman hafa um 18 manns lagt sitt að mörkum og búið er að hjóla, hlaupa og skíða samtals 715,8 km!!!!!! Krakkarnir vilja koma á framfæri þakklæti til allra sem studdu þau í verkefninu og síðast en alls ekki síst bæjarbúum sem tóku frábærlega á móti þeim í áheitasöfnuninni. Alls hafa nú safnast 263.000!!!

Myndir komnar í myndaalbúm sem Kristján Hauks sendi:

Duglegi hópurinn

14.10.2011 22:46

Áheitasöfnun Skíðakrakka

Fram kemur á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar að félagar úr Skíðafélaginu séu lagðir upp í sólarhringsmaraþon.
Lagt var af stað frá Tjarnarborg kl. 16:00 í dag en annars heldur hópurinn til á Ólafsvegi 42 á meðan á maraþoninu stendur. Þau Hugrún Pála, Jónína og Marinó sem eru að safna upp í æfingaferð til Noregs var gríðarlega vel tekið af bæjarbúum í áheitasöfnuninni og nú er bara að klára verkefnið.
Öllum er velkomið að líta við í Ólafsveginum, kaffi á könnunni og þar verður hægt að fylgjast með gangi mála og heilsa upp á þátttakendur. Nokkrir félagar úr skíðafélaginu munu aðstoða krakkana við að ná settu marki og mun hópurinn vera ýmist á hjólaskíðum, hlaupa eða hjóla næsta sólarhringinn.

Ætla skíðafélagsmenn að reyna að setja inn á heimasíðuna á meðan á maraþoninu stendur og einnig einhverjar facebook síður.

Enn er hægt að heita á krakkana í síma 864-6215, koma svo.....


 
Hluti af hópnum, en gengnir voru samtals 28km á fyrsta klukkutímanum

05.10.2011 14:19

Nýbakaðar kleinur -fjáröflun 10. bekkjar

Laugardagurinn 8. okt verða ungmennin í 10. bekkingar Grunnskóla Fjallabyggðar á ferðinni í Ólafsfirði að ganga í hús og selja nýbakaðar kleinur.
Er þetta liður í fjáröflun 10. bekkinga er þeir safna fyrir útskriftaferðinni sem farin verður í vor.  Þau munu fara af stað um klukkan 10:00 og  verður pokinn seldur á 1.000 kr.
Vonum að þið takið vel á móti þeim og njótið þess að borða nýbakaðar kleinur.

22.09.2011 18:44

Ólafsfjarðarkirkja - Barnastarfið að hefjast

Næstkomandi sunnudag, 25. september hefst barnastarfið í kirkjunum við utanverðan Eyjafjörð. Samveran verður í Siglufjarðarkirkju kl. 11:00. Bibliufræðsla og mikill söngur. Skralli trúður kemur í heimsókn.
Eftir samveruna verður boðið upp á pylsur og djús.

13.09.2011 23:30

3. flokkur KF keppir til úrslita í Valitorbikarnum

á morgun, miðvikudaginn 14. september, mun KF/Tindastóll, 3. flokkur, leika til úrslita í Valitorbikar karla við lið KA. Leikurinn verður haldinn á Akureyrarvelli, aðalvelli, og byrjar kl. 17.00.

Nú er bara að fjölmenna og styðja drengina.

 
3. flokkur KF/Tindastóll

07.09.2011 21:40

Til foreldrar/forráðamanna unglinga í félagsmiðstöðinni Neon

Eftirfarandi tilkynning barst frá Félagsmiðstöðinni Neon:
---
Fimmtudagskvöldið 8. september kl 20:00 mun íþrótta- og tómstundafulltrúi ásamt forstöðumanni Neon halda fund fyrir foreldra til að kynna starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í vetur. Á fundinum gefst ykkur færi á að móta starfið með okkur og koma með athugasemdir og tillögur. Fundurinn verður í húsnæði Neon/Grunnskóla við Hlíðarveg á Siglufirði. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.  

 

02.08.2011 12:21

Sjálfboðalliða vantar á Pæjumótið

Nú nálgast Pæjumótið og vantar sjálfboðaliða til aðstoðar við mótið.

Eftirfarandi vaktir þarf að manna:

Föstudagur 05/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Ca. 17.00-21.00 í kvöldverð

Laugardagur 06/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Ca. 17.00-21.00 í kvöldverð

Sunnudagur 07/08

6.00 - 10.00 í morgunverð

Er þetta mjög gefandi og ánægjuleg reynsla að þjónusta ungu dömurnar

Allir áhugasamir:

Vinsamlegast sendið tölvupóst á snillingur@simnet.is með nafni, síma og þá vöktum sem kæmu til greina.

Einnig er hægt að senda sms á 899-2052 eða hafa samband eftir kl. 16.00

Með fyrirfram þökk,
Katrín Andersen.

22.07.2011 00:53

Myndir frá Nikulásarmóti

Það eru komnar inn nokkrar myndir í myndaalbúmið frá Nikulásarmótinu í knattspyrnu sem fram fór síðustu helgi í Ólafsfirði.

Ánægðir strákar úr 7. flokk með verðlaunapeninginn sinn, og það var ekki spurning hverjir væru bestir (KF!!!!!!!!)

07.06.2011 20:59

Vinnuskólinn byrjaður

Þar sem við höfum ekki getað verið viss um að sumarið sé komið vegna "vetrarveðurs" undanfarna daga, þá er það hér með staðfest að það er komið, en það er alltaf ávísun á að sumarið sé komið þegar vinnuskólinn er kominn af stað. Þessi mynd var tekin þar sem þau voru að taka til hendinni við apótekið í morgun.

07.06.2011 20:50

Skólinn búinn

Grunnskóla Fjallabyggðar var formlega slitið í fyrsta skiptið í dag. Miklar breytingar hafa orðið á skólamálum hér í Fjallabyggð undanfarið ár og mun bara breytast meira á næstu árum.
Myndir komnar í myndaalbúmið frá skólasliti 1.-6. bekkjar í Ólafsfirði.

1. og 2. bekkur

27.05.2011 12:05

Grasrótardagur UEFA og KSÍ

Tilkynning frá KF:
---
Í tilefni af grasrótardegi UEFA og KSÍ þá verður haldinn svokallaður fjölskyldudagur KF á Ólafsfirði
sunnudaginn 29. Maí klukkan 14:00
Grillaðar verða pylsur, Landsliðsmaður mætir og spjallar við krakkana og gefur DVD-diska frá KSÍ til allra iðkenda og svo munu foreldrar spila við börnin. Tökum sunnudaginn frá og eigum skemmtilegan dag með börnunum

Með knattspyrnu kveðju
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar