625.is

Ólafsfjörður í nærmynd

Flokkur: Tímamót

14.12.2011 12:42

Gummi Fjólu sextugur

Guðmundur Ólafsson "stórleikari" og Ólafsfirðingur, (Gummi Fjólu) er sextugur í dag. Óskum við honum innilega til hamingju með daginn og minnum í leið á tónleikana sem hann heldur í Ólafsfjarðarkirkju í kvöld kl. 20:30.

Í tilefni dagsins tók samstarfsfólk hans hjá Leikfélagi Akureyrar óvænt á móti Guðmundi á Hótel Kea í morgun, söng fyrir hann afmælissönginn og fékk sér morgunmat með afmælisbarninu. Um þessar mundir er Guðmundur að æfa sjóræningjaleikritið Gulleyjan sem Leikfélag Akureyrar er að setja upp í samstarfi við Borgarleikhúsið.

Á meðal þeirra sem tóku á móti Guðmundi voru félagar hans í Gulleyjunni, þau Sigurður Sigurjónsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Þórunn Clausen, Kjartan Guðjónsson, Þóra Karítas Árnadóttir, Ívar Helgason og Einar Aðalsteinsson.


Guðmundur ásamt Sigursveini, sem spilar undir hjá honum á tónleikunum.

09.12.2011 21:01

Lukkuleikur foreldrafélagsins

Við höfum ákveðið að birta lukkuleikstölurnar í ár hér á síðunni. Kominn er tengill hér til hægri á síðunni.
Tölurnar eru birtar með fyrivara um innsláttarvillur, tölurnar er svo hægt að sjá í Samkaup-Úrval í Ólafsfirði.

 Dagsetning Vinningur A     Vinningur B  
 1. des  900 572
 2. des  897 337
 3. des  746 183
 4. des  512     556
 5. des  334 713
 6. des  63 582
 7. des  96 485
 8. des  46 605
 9. des  107 32
 10. des  853 678
 11. des  707 130
 12. des  223  68
 13. des  1 473
 14. des  624 868
 15. des  251
221
 16. des  494
179
 17. des  4
304
 18. des  623
260
 19. des 376

417
 20. des  161 361
 21. des 616
545
 22. des  157 333
 23. des  282 245
 24.des  728  610

17.10.2011 12:35

Skíðafélag Ólafsfjarðar 10 ára

Þriðjudaginn 18.október verður skíðafélag Ólafsfjarðar 10 ára.
Af því tilefni er bæjarbúum og velunnurum boðið í afmæliskaffi kl. 18:00 í skíðaskálanum í Tindaöxl.

Skíðafélag Ólafsfjarðar var stofnað 18. október 2001.

09.05.2011 20:42

Fermingarskeyti

Eftirfarandi barst 625.is:
---
Munið  fermingarskeytasöluna


Ferming í Ólafsfjarðarkirkju

Sunnudaginn 15. maí klukkan 11:00


Fermd verða:

Davíð Fannar Sigurðsson, Ægisbyggð 6

Erla Vilhjálmsdóttir, Strandgötu 19

Gunnar Óli Ármannsson Bylgjubyggð 33

Gunnar Hubert Luchner, Ægisbyggð 4

Hákon Leó Hilmarsson, Hornbrekkuvegi 7

Sigurbjörg Áróra Ásgeirsdóttir, Hlíðarvegi 38

Snjólaug Anna Traustadóttir, Aðalgötu 28

Sveinn Andri Jóhannsson, Aðalgötu 26


Vinsamlegast pantið skeyti í

síma: 862 - 6225 eða 663-2277

Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð nýtur ágóða skeytanna

13.02.2011 21:47

Leikfélag Ólafsfjarðar 50 ára

Leikfélag Ólafsfjarðar varð 50 ára í gær, 12. febrúar. Í tilefni af afmælisárinu er verið að setja upp afmælissýningu í leikstjórn Guðmundar Ólafssonar (Gumma Fjólu). Stefnt er að frumsýningu í mars. Meira hér þegar nær dregur. Myndir komnar í myndaalbúmið frá æfingu í dag þar sem leikarar fengu svo flotta afmælisveislu í tilefni af afmælinu.

22.01.2011 13:23

Rennibrautirnar opna á morgun, sunnudag

Nýja rennibrautin verður opnuð á morgun sunnudag, við sundlaugina í Ólafsfirði.
Frítt verður í sund í tilefni dagsins og opið verður frá 10-17.
Góða skemmtun.


Rennibrautin, myndin tekin fyrr í vetur.

11.11.2010 15:31

KS og Leiftur sameinast

Leiftur og KS samþykktu í gær á aðalfundum sínum að sameina félögin. Haldinn var stofnfundur sameinaðs félags KS og Leifturs í beinu framhaldi. Kosið var um nafn á félaginu og fyrir valinu varð KF - knattspyrnufélag Fjallabyggðar og munu sameinuðu félögin spila undir merkjum KF frá og með 1.janúar 2011.

Stjórn KF er skipuð eftirfarandi aðilum:

Ómar Hauksson
Dagný Finnsdóttir
Þorvaldur Sveinn Guðbjörnsson
Heiðar Gunnólfsson
Sigríður Ingimundardóttir
Hlynur Guðmundsson

Engin bauð sig fram til formanns í sameinuðu félagi og er stjórninni ætlað að finna sér formann á næstu dögum.

Búningar nýs félags verða bláir að lit og varabúningur m.fl. verða hvítir. Lög félagsins voru samþykkt á fundinum og taka þau gildi þegar ÍSÍ, UMFÍ og UÍF hafa lagt blessun sína á þau.

03.10.2010 17:30

Til hamingju með Héðinsfjarðargöng

Í gær voru Héðinsfjarðargöng opnuð fyrir almenna umferð. Í tilefni dagsins var mikið um að vera í Fjallabyggð. Það eru komnar myndir inn í myndaalbúmið frá vígsluathöfninni í Héðinsfirði.

Gangnamuninn til Ólafsfjarðar (séð úr Héðinsfirði)

01.10.2010 14:39

Kaffiboð og bíó á laugardaginn

Veglegt kaffiboð bæjarstjórnar Fjallabyggðar og Vegagerðarinnar í tilefni af vígslu Héðinsfjarðarganga hefst í Íþróttahöllinni í Ólafsfirði kl. 16:00 á morgun laugardaginn 2. október.  
Þar verða m.a. flutt tónlistaratriði og allnokkur ávörp gesta.  Búist er við fjölda fólks í kaffiboðið. 
Ákveðið hefur verið að sýna barnaefni í Félagsheimilinu Tjarnarborg Ólafsfirði á sama tíma, þ.e. frá kl. 16:00 á morgun, á meðan borðhald stendur yfir í Íþróttahöllinni. Barnafólk getur því valið um að vera við borðhaldið og hlýða á það sem þar fer fram, eða horfa á barnaefni í Tjarnarborg með léttar veitingar við hæfi barna.

23.09.2010 13:22

Opnun Héðinsfjarðarganga

Eftirfarandi er að finna á heimasíðu Fjallabyggðar vegna vígslu Héðinsfjarðarganga:
---

Ágætu íbúar Fjallabyggðar.

Helgin 2 og 3. október næstkomandi verður tilkomumikil. 
Stórviðburður í sögu Fjallabyggðar verður að veruleika þar sem allir taka  þátt í að sameina tvo frábæra byggðarkjarna í eitt raunverulegt og samtengt sveitarfélag.

Íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem og gestir þeirra og Vegagerðar munu streyma í Héðinsfjörð og verða við vígslu á göngum sem tengir  Fjallabyggð saman, samgöngulega séð.

Allir eru boðsgestir þennan dag og hefur bæjarstjórn ákveðið að bjóða gestum í veglegt kaffisamsæti þar sem bæjarbúar Fjallabyggðar sameinast og drekka kaffi með sínum gestum.

Tíu rútur munu stöðugt aka um Héðinsfjörð, á milli bæjarkjarna, til að koma í veg fyrir umferðar öngþveiti í göngum og eða í Héðinsfirði. Lögð er rík áhersla á öryggi íbúa og að flestir geti komið á staðinn og verið við opnun og vígslu þessara stórkostlegu mannvirkja.

Til að tryggja aðkomu bæjarbúa að vígslunni verður komið fyrir búnaði í báðum byggðarkjörnunum þannig að  íbúar geti fylgst með þessum atburði beint í gegnum skjávarpa.

Kaffisamsætið verður í íþróttamiðstöð Fjallabyggðar Í Ólafsfirði  að þessi sinni.

Undirbúningsnefnd hafði hér úr vöndu að ráða er varðar staðarval fyrir svo marga gesti en niðurstaða hennar og bæjarráðs byggir á skoðun á eftirtöldum forsendum m.a..
1. Góð aðkoma að íþróttamiðstöðinni
2. Stórt og mikið hús í eigu Fjallabyggðar
3. Þjónustufólk á einum stað
4. Kostnaður við hljóðkerfi og annan búnað tekur mið af einu húsi
5. Heildarfjármagn frá vegagerð og bæjarfélagi hafði áhrif
6. Ávörp verða flutt á einum stað
7. Skemmti og gamanmál á einum stað
8. Betri umferðarstjórnun
9. Boðsgestir á vegum Vegagerðar eru bundnir flugi og geta ekki farið á milli staða
10. Gott fordæmi - bæjarbúar Fjallabyggðar sameinist þennan gleðidag á einum stað.

Vil hér í lokin nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem hafa unnið að þessu verkefni og látið þennan dag verða að veruleika. Fjallabyggð byggir á ótrúlegri sögu og menningu. Bættar samgöngur verða til að gjörbreyta ferðaþjónustu á norðanverðum Tröllaskaga á næstu árum og saga svæðisins og menning mun nú verða öllum aðgengilegri.
Fjallabyggð verður nú í alfaraleið. Ráðherrar, fyrrum þingmenn og núverandi, bæjarfulltrúar núverandi og fyrrverandi eiga miklar  þakkir fyrir tvö stórvirki sem bæta munu mannlífið Í Fjallabyggð á næstu árum.

Saga Fjallabyggðar er rétt að hefjast en Héðinsfjarðargöng og  Menntaskólinn á Tröllaskaga er gott veganesti inn í framtíð sem byggir á að íbúar ákváðu að sameinast, ná því markmiði að vera vel yfir tvö þúsund  til að halda uppi og standa undir  þeirri þjónustu sem bæjarbúar kjósa hverju sinni.

Við sem íbúar skulum njóta þessa dags og helgarinnar, margt annað verður til skemmtunar og fróðleiks þessa helgi og vil ég þakka þeim fjölmörgu sem munu gera helgina eftirminnilega.
Sú dagskrá verður auglýst sérstaklega.

Hafið þakkir fyrir góðan undirbúning og viðtökur ágætu bæjarbúar - sameinuð stöndum við.

Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri.

Dagskráin 2. október

18.09.2010 16:58

Nýjasti Ólafsfirðingurinn og fleiri myndir

Lesendur síðunnar hafa sjálfsagt tekið eftir frétta og myndaleysi hér a síðunni undanfarnar tvær vikur. Tvær ástæður eru fyrir því. Eigandi síðunnar eignaðist dóttir fyrir rúmri viku og er það að sjálfsögðu fréttnæmt þar sem stúlkan er nýjasti Ólafsfirðingurinn. Einnig fór myndavélin í viðgerð.
Nú er vélin komin úr viðgerð og skellti ljósmyndarinn sér einn hring í bænum og smellti af hinu og þessu. Aðallega framkvæmdum sem eru í gangi eða er lokið. Myndirnar eru í myndaalbúminu.

Óskírð Gísladóttir, nýjasti Ólafsfirðingurinn.
Foreldrar: Gísli Rúnar Gylfason og Agnes Ýr Sigurjónsdóttir

Aðrir nýbakaðir foreldrar eru hvattir til að senda myndir af nýjustu bæjarbúunum þegar þeir fæðast.

11.05.2010 12:20

Fermingar í Ólafsfirði

Fermt verður í Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 15. maí kl. 11:00.
Fermd verða:
Anna Lára Ólafsdóttir, Aðalgötu 19
Daníel Már Kristjánsson, Ólafsvegi 43
Fanney Björg Björnsdóttir, Hlíðarvegi 11
Jón Fannar Björnsson, Hlíðarvegi 11
Kara Gautadóttir, Hrannarbyggð 17
Kristófer Leví Skjóldal, Ægisgötu 20
Orri Fannar Jónsson, Hlíðarvegi 25
Ólöf Þóra Tómasdóttir, Gunnólfsgötu 4
 
Fermt verður í Ólafsfjarðarkirkju á hvítasunnudag 23. maí kl. 11:00.
Fermd verða:
Aðalsteinn Ragnarsson, Kirkjuvegi 13
Alexía María Gestsdóttir, Ægisbyggð 5
Ágúst Örn Jónsson, Aðalgötu 37
Brynhildur Antonsdóttir, Ólafsvegi 51
Hallur Már Baldursson, Gunnólfsgötu 12
Hulda Vilhjálmsdóttir, Strandgötu 19
Jónína Kristjánsdóttir, Ólafsvegi 42
Marinó Jóhann Sigursteinsson, Strandgötu 17

Í tilefni af fermingu í Ólafsfirði vildi Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar minna á að það hefur verið með sölu á fermingarskeytum undanfarin ár.
Allur ágóði af sölu skeytanna rennur óskiptur til tækjakaupa á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar.
Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar
Sími: 663-2277
1102-26-101355
520181-0169
Verð á skeyti er 350 kr.

03.03.2010 21:25

Fjallabyggð fær afhentan nýjan slökkvibíl

Slökkvilið Fjallabyggðar fékk í gær afhentan nýjan slökkvibíl. Um er að ræða MAN bifreið sem kemur úr smiðju Sigurjóns Magnússonar ehf, þar sem bíllinn var yfirbyggður og innréttaður sem slökkvibíll. Myndir frá því að bíllinn var til sýnis við Tjarnarborg í gær komnar í myndaalbúmið.

Nýji bílinn

04.01.2010 10:26

Gleðilegt nýtt ár

625.is þakkar frábærar móttökur á árinu og óskar ykkur gleðilegs árs.
Nú fer síðan að vakna aftur eftir gott jólafrí og er óskað eftir efni frá ykku lesendur góðir, endilega að senda línu ef þið hafið ábendingar.
Þess má til gamans geta að á heimasíðu Magga Sveins er að finna flottar áramótamyndir
Einnig er að finna á heimasíðu Guðnýar Ágústsdóttur myndir frá sýningu BarPar, aðvendutónleikum kirkjukórsins og margt fleira. Tvær frábærar síður þar sem hægt er að skoða flottar myndir frá Ólafsfirði.

24.12.2009 10:59

Gleðileg jól

Gleðilega Hátíð

625.is óskar lesendum, bæjarbúum og landsmönnum öllum Gleðilegra Jóla

  • 1
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 1228
Gestir í gær: 347
Samtals flettingar: 800596
Samtals gestir: 160842
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 13:36:25

Vafraðu um

Höfundur síðu

Nafn:

Gísli Rúnar Gylfason

Farsími:

863-4369

Heimilisfang:

Hlíðarvegur 8

Staðsetning:

Ólafsfjörður - hvað annað!

Um:

áttu efni/fréttir sem tengjast Ólafsfirði, sendu mér endilega línu.

Tenglar